Morgunblaðið - 03.12.1998, Side 3

Morgunblaðið - 03.12.1998, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1998 B 3 ÍÞRÓTTIR Morgunblaðið/Steinþór BIRKIR Kristinsson, landsliðsmarkvörður í knattspyrnu, réttir konu í Jerevan í Armeníu hjálpar- hönd fyrir landsleik Armeníu og íslands í haust. Hann er laus allra mála hjá Norrköping ■ Svíþjóð, er fluttur heim til íslands og tilbúinn að verja mark íslensks liðs í efstu deild en nokkur hafa rætt við hann með það fyrir augum. Þríi' leikmenn eru farnir úr her- búðum Valsara. Salih Heimir Porca er genginn til liðs við Breiðablik og Englendingamir Mark Ward og Richard Burgers eru snúnir aftur til slns heima. Ekki er gert ráð fyrir að þeir komi aftur til Hlíðarenda næsta vor. Eggert Stefánsson, varaformaður knattspyrnudeildar Vals, segir að langt sé síðan liðið hafi misst jafn fáa menn eftir mót. „Þetta er mjög ánægjulegt og eflaust afleiðing þess að liðin era farin að gera samninga við leikmenn til lengri tíma. Við höf- um verið að vinna í því að styrkja hópinn hjá okkur og segja má að koma Einars Páls og Sindra sé liður í því. Við ætlum að reyna að fá eins og einn leikmann í viðbót, en það er erfitt að keppa við ákveðin félög sem bjóða háar fjárhæðir," sagði Eggert. Fleiri Júgóslavar til Grindavíkur Milan Stefán Jankovic er tekinn við þjálfun Grindavíkurliðsins af Guðmundi Torfasyni, en hyggst ekki leika með liðinu, sem varð í 7. sæti deildarinnar í sumar. Zoran Ljubicic er genginn til liðs við Kefl- víkinga, en allir aðrir verða áfram í herbúðum liðsins. Bjarni Andrésson, formaður knattspyrnudeildar, segir að gengið hafi verið frá samningum við Skot- ann Scott Ramsay, Grétar Hjartar- son og Sinisa Kekic. Þá sé verið að ganga frá samningum við annan Skota, Paul McShane, sem lék með liðinu á síðustu leiktíð. Grindvíkingar hyggjast styrkja leikmannahóp sinn eitthvað fyrir sumarið, en Bjarni segir að fáir séu í boði hér innanlands. „Milan þjálf- ari hefur nokkra Júgóslava í sigtinu og það kemur í ljós á næstunni hverjir það verða,“ sagði formaður- inn ennfremur. Formannaskipti hjá Blikum Lið Breiðabliks sigraði með nokkrum yfirburðum í 1. deildinni á síðustu leiktíð og tryggði sér þar með rétt til að leika í efstu deild næsta sumar. Afskaplega litlar breytingar hafa orðið á leikmanna- hópi liðsins á sl. mánuðum, en þeim mun meiri á yfirstjórn liðsins. Stað- an er nefnilega sú að Guðmundur Oddsson, sem verið hefur formaður knattspyrnudeildar í þrjú ár, gaf ekki kost á sér til endurkjörs sl. mánudag, en ekkert framboð kom í embættið og varð að boða sérstakan aukaaðalfund sem verður í næstu viku til að finna nýtt fólk í stjórnina. „Þetta er nú ekkert stórmál," sagði Guðmundur við Morgunblaðið í gærkvöldi. „Eg sagði á sínum tíma að ég gæfi mér þrjú ár sem formað- ur og ætla mér að standa við það. Fólk virðist ekki hafa trúað þessu og á aðalfundinum var einfaldlega enginn tilbúinn að taka við.“ Hagnaður hefur verið á rekstri knattspyrnudeildarinnar og Guð- mundur segist skilja við gott bú. „Þetta er hins vegar afskaplega mikil vinna og ég er búinn að gera skyldu mína. Eg er ekkert að hlaupa í burtu og ætla að vinna að þessu áfram, en kannski ekki á hverjum einasta degi eins og verið hefur,“ sagði Guðmundur. Salih Heimir Porca er eini leik- maðurinn sem genginn er í raðir Breiðabliks frá síðustu leiktíð. Sig- urður Grétarsson mun þjálfa liðið áfram, en óvissa vegna stjórnar- skipta mun hafa tafið leikmanna- mál. Enginn mun vera farinn frá liðinu, en verið er að vinna í endur- nýjun samninga við nokkra leik- menn. Guðmundur vildi ekki gefa upp hverjir þeir væru, því „þá færu önnur lið að róa í þeim,“ eins og hann orðaði það. Hjá Breiðabliki er allt komið á fullt við undirbúning að breyttu rekstrarformi meistaraflokks karla og kvenna. Er stefnt að stofnun hlutafélags þar að lútandi innan skamms. Draugasögur um Víkinga Víkingar fylgja Breiðabliki upp úr 1. deild og miklar sögur hafa gengið um meint leikmannakaup þeirra í haust. Hefur liðið verið bendlað við fjölmarga knattspyrnu- menn. Þeirra á meðal eru Þórhallur Dan Jóhannsson, sem leikur með danska liðinu Vejle og títtnefndur Kristinn Lárusson. Guðmundur H. Pétursson, for- maður knattspymudeildar Víkings, segir að þetta séu aðeins drauga- sögur. „Ég hef heyrt þetta sjálfur og að fjölmargir leikmenn séu bendlaðir við félagið. Ég kannast hins vegar minnst við það sjálfur,“ sagði Guðmundur. Guðmundur staðfesti þó að Vík- ingar ættu í viðræðum við Kristin Lárusson og Steinar Guðgeirsson, rétt eins og fleiri lið. Hins vegar væri ekki lengur inni í myndinni að Þórhallur Dan kæmi frá Danmörku, hann væri samningsbundinn danska liðinu og því í eigu þess. Víkingai- hafa fengið tvo leik- menn frá öðrum félögum, varnai'- manninn Asgeir Halldórsson úr Fram og Jakob Hallgeirsson úr Skallagrími. Enginn hefur yfirgefið herbúðir félagsins frá síðustu leik- tíð, en tveir segjast hættir, eins og formaðurinn orðaði það, þeir Hörð- ur Theódórsson og Marteinn Guð- geirsson. Hörður verður aðstoðar- þjálfari við hlið Lúkasar Kostics. KÖRFUKNATTLEIKUR Króatar allt of sterkir Islenska landsliðið í körfuknattleik tapaði 111:77 fyrir Króötum í Si- benic þar í landi í gærkvöldi en leik- urinn var liður í Evrópukeppni landsliða. Staðan í leikhléi var 62:44. Að sögn Jóns Kr. Gíslasonar landsliðsþjálfara vora Króatar rosa- lega sterkir og alltof sterkir fyrir ís- lenska liðið. „Við lékum ágætlega í sókninni en nú náði vörnin sér ekki á strik. Króatar era með nokkra leikmenn sem eru 210 sentímetrar og því erfitt að eiga við þá. Þetta sést meðal annars á því að í fyrri hálfleik gerðu þeir 30 stig innan teigs en við aðeins fjögur," sagði Jón Kr. í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi. Jón Kr. sagði að Falur Harðarson hefði verið í miklum ham og gert 15 stig í fyrri hálfleik, en hann var stigahæstur með 21 stig. Herbert Arnarson átti einnig góðan leik, Teitur Örlygsson átti góða spretti en var ekki með góða nýtingu. Fal- ur var með 55% nýtingu í þriggja stiga skotum, 100% innan teigs og 100% í vítum. Skotnýting íslenska liðsins var 43% en Króatar hittu úr 68% skota sinna. Helgi Jónas Guðfinnsson meidd- ist á tá á æfingu fyrir leikinn og gat því ekki leikið með í gær. Jón Kr. sagði að ekki yrði ljóst hversu al- varleg meiðslin væru fyrr en tekin yrði mynd af þeim þegar hann kæmi til Hollands þar sem hann leikur með Donar Groningen. Eistar töpuðu á heimavelli fyrir Litháum, 60:91 og Bosníumenn rétt mörðu Hollendinga 68:60. Staðan í riðlinum er nú þannig að Bosníu- menn eru efstir, þá Ki'óatar, Lithá- ar, Hollendingar, Eistar og íslend- ingar reka lestina. ■ Reuters HERBERT Arnarson reynir hér að stöðva Veljko Mrsic, sem var stigahæstur Króata með 26 stig. Létt hjá Þjóðverjum ÞÝSKA Iandsliðið í handknattleik, sem tekur þátt í HM í Egyptalandi, fór létt með Egypta i tveimur landsleikjum um sl. helgi. Þjóðverjar byrjuðu á því að vimia stórt fyrir framan 4.500 áhorfendur í Hannover, 37:21 (20:10). Þar fór Daniel Stephan, Lemgo, á kostum og skoraði tfu mörk. 4.200 áhorfendur sáu Þjóðverja vinna seinni leikinn í Bremen, 28:20, eftir að staðau var 12:11 í leikhléi. Kretzschmar, sem skoraði fjögur mörk í fyrri lciknum, var markahæstur með sex mörk. Heiner Brand, landsliðsþjálfari Þjóðverja, var ánægður með sfna menn og segir þýska liðið í stöðugri framför. „Við verðum komnir með sterka liðsheild fyrir heimsmeistarakeppnina." BSSI OG VlFILFELL KYNNA (cca OPIÐ BIKARMÓT dagana 5. og 6. des í snóker- og poolstofunni í Lágmúla 5 Úrslit verða spiluð sunnudaginn 6. des. og hefjast kl. 12.00. Úrslitaleikurinn verður sýndur í sjónvarpi og eru allir hvattir til að mæta og horfa á. Þátttökugjald kr. 1.500 Snyrtilegur klæðnaður. Allir velkomnir!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.