Morgunblaðið - 03.12.1998, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ
HANDKNATTLEIKUR
FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1998 B £
Morgunblaðið/Golli
VALUR Arnarson var einn bestur leikmanna FH gegn Stjörnunni en það nægði ekki því Heiðmar Fel-
ixson sem reynir að stöðva hann hafði betur ásamt félögum sínum.
Arnar var helja
Stjörnunnar
EYJAMAÐURINN Arnar Pétursson var hetja Stjörnunnar er hann
tryggði liðinu tvö stig með marki á síðustu sekúndu leiksins við
FH í Kaplakrika í gærkvöldi, lokatölur 23:22. Markið kom eftir að
Stjörnumenn höfðu verið í sókn síðustu tvær mínúturnar og ann-
ars ágætir dómarar leiksins, Guðjón L. Sigurðsson og Ólafur
Haraldsson, sýnt þeim nokkra þolinmæði. Sigurinn tryggði stöðu
Stjörnunnar í 5. sæti deildarinnar með 13 stig, einu stigi minna
en KA, en batt um leið enda á góðan sprett FH-liðsins, sem
hafði unnið þrjá leiki í röð. FH er í 7. sæti með 9 stig.
FH-ingar geta hins vegar nagað
sig í handarbökin fyrir tapið, því
lengst af leiknum léku þeir illa,
einkum í fyrri hálf-
lvar leik, þegar svo virt-
Benediktsson ist sem þeir væru
skrifar með hugann við allt
annað en leikinn.
Sóknarleikurinn var fábreyttur og
varnarleikurinn staður. Ef ekki
hefði komið_ til ágæt frammistaða
Magnúsar Arnasonar markvarðar
hefðu munurinn í hálfleik verið
meiri en raun varð á - 13:8, Stjörn-
unni í vil.
FH-ingar komu með öðru hugar-
fari til leiks í síðari hálfleik og
hresstust eftir því sem á leið.
Stjörnumenn reyndu að halda feng-
um hlut og munaði þar mest um
ágætan leik Heiðmars Felixsonar
sem FH-ingar réðu illa við. Vamar-
leikur FH skánaði og sóknarleikur-
inn skánaði eftir því sem leikmenn
eins og Knútm- Sigurðsson, Guð-
mundur Petersen og Gunnar Bein-
teinsson færðust í aukana. Stjörnu-
menn töldu sig geta brotið FH-inga
á bak aftur án þess að hafa mikið
fyrir. Sóknarleikurinn varð kæru-
lausari og um leið gripu Hafnfirð-
ingar tækifærið og á fimm mínútna
kafla um miðjan síðari hálfleik unnu
þeir upp forskot gestanna og
komust jdír 20:19, þegar hálf tólfta
mínúta var eftir. Pað sem eftir lifði
leiks var nokkurt óðagot á leik-
mönnum beggja liða sem ólmir
vildu stigin og létu fyrir vikið oft
ákafann bera skynsemina ofurliði.
Síðasta tækifæri FH til að komast
yfir á lokakaflanum rann út í sand-
inn er ruðningur var dæmdur á Val
Arnarson, rúmum tveimur mínútum
fyrir leikslok. Stjarnan fékk boltann
og innsiglaði sigurinn um leið og
lokaflautið gall.
Enn og aftur kom í ljós að yngri
leikmenn FH-liðsins eru ekki til-
búnir að leysa þá eldri af hólmi. Ef
Guðjón Arnason, Gunnar Beinteins-
son, Hálfdán Þórðarson eni ekki
með frá fyrstu mínútu til hinar síð-
ustu virðist leikur liðsins vera allur í
handaskolum. Valur er liðtækur en
fær oft litla aðstoð o verður oft að
vinna upp á eigin spýtur.
Skortur á einbeitingu hafði næst-
um komið Stjörnumönnum í koll
eina ferðina enn. Liðið getur leikið
vel í vörn sem sókn, en fellur niður
á lægra plan þess á milli. Heiðmar
var bestur þeirra, eins var
Aleksandr Shankuts öflugur.
Fj. leikja u J T Mörk Stig
UMFA 11 8 1 2 293:263 17
FRAM 10 8 0 2 286:248 16
VALUR 11 8 0 3 262:231 16
KA 11 7 0 4 279:269 14
STJARNAN 11 6 1 4 272:272 13
HAUKAR 11 4 1 6 298:298 9
IBV 10 4 1 5 231:231 9
FH 11 4 1 6 263:264 9
ÍR 11 4 0 7 267:294 8
GRÓTTA/KR 11 2 3 6 276:294 7
HK 11 2 2 7 254:284 6
SELFOSS 11 2 2 7 252:285 6
Höktandi
KA-menn
hrukku
í gang
HAUKAR naga sjálfsagt neglur, handarbök og annað tiltækt eftir
að hafa misst leikinn gegn KA út úr höndunum sér á Akureyri í
gær. Gestirnir virtust hafa ráð undir rifi hverju, léku við hvern
sinn fingur í fyrri hálfleik og náðu 7 marka forskoti. Vörn KA var
hriplek og sóknin höktandi og heimamenn góndu agndofa á
markatöfluna eftir 22 mínútur, staðan 5:12 og norðanpiltar litu
hver á annan í hljóðri spurn. Með góðum kafla undir lok hálf-
leiksins og mikill baráttu í seinni hálfleik tókst KA-mönnum að
snúa leiknum sér í hag og sigra, 23:22. Haukar voru afar
vonsviknir en geta aðeins sjálfum sér um kennt. Jafntefli hefði
þó e.t.v. talist sanngjarnt.
Höktandi KA-vélin hrökk í gang
þegar liðið var 7 mörkum undir
í fyrri hálfleik. Sverrir Björnsson og
Sævar Árnason
Stefán Þór skoruðu 2 mörk hvor
Sæmundsson og Halldór Sigfús-
skrifar son bætti við fimmta
marki liðsins í röð
þótt KA-menn væru tveimur færri á
lokamínútunum. Staðan var 10:12 í
leikhléi og Halldór bætti um betur í
upphafi seinni hálfleiks og eftir það
var mikil spenna í leiknum. Oskar
Armannsson hafði leikið KA-vörn-
ina grátt í fyrri hálfleik en var nú
tekinn úr umferð. Lipurt spil Hauka
riðlaðist, vörn KA-batnaði eftir að
Jónatan Magnússon lét til sín taka
og þá fór Sigtryggur Albertsson að
verja eins og hann gerir best. Hauk-
arnir höfðu þó frumkvæðið allt þar
til KA komst yfir í fyrsta sinn í
leiknum, 20:19, þegar rúmar 10 mín.
voru til leiksloka. Heimamenn voru
síðan sterkari á lokakaflanum en
Hauka virtist þrjóta örendi.
Ymsar skýringar eru á þessum
miklu sveiflum í leiknum. Haukai*
léku skemmtilega í fyrri hálfleik og
Jónas Stefánsson varði frábærlega í
markinu allan tímann. Hann varði
m.a. fjögur skot frá hornamannin-
um Jóhanni G. Jóhannssyni og var
fyrirliðinn tekinn af velli eftir þá út-
reið. Þá átti Lars Walther 4 skot í
ramma Haukamarksins en þessir
tveir leikmenn hafa verið burðarás-
ar KA í síðustu leikjum. Það sem
breyttist var að Sigtryggur fór að
verja óg hann hvatti sína menn vel
áfram, vörnin small saman og
Sveirir Björnsson fékk sjálfstraust
í sókninni, auk þess sem Sævar og
Halldór stóðu sig vel.
Haukum tókst ekki að fylgja
góðri byrjun eftir, Óskar komst
ekki í takt við leikinn í seinni hálf-
leik og þrátt f'yrir ágæt tilþrif hjá
Kjetil Ellertsen og Sigurði Þórðar-
syni var sóknarleikurinn brokk-
gengur. Frammistaða Jónasar í
markinu dugði ekki til; það var
krafturinn í KA-mönnum sem réð
úrslitum.
Tekist á í
Digranesi
ALLT ætlaði af göflunum að ganga í Digranesi í gærkvöidi þegar
Valsmenn sóttu HK heim, tekist var á um víðan völl og mistökum
fjölgaði eftir því sem leið á leikinn og spennan jókst - eitt mark
var skorað síðustu 6 mínúturnar og það var sigurmark Vals f
19:18 sigri.
Fyrstu mínútumar reyndu menn
að ná tökum á mótherjanum og
skiptust liðin á að skora. HK-menn
voru að venju harðir
Stefán í horn að taka í vörn-
Stefánsson inni en sóknarleikur-
skrifar ;nn var meg slakara
móti - þeir bættu
það upp með enn grimmari vöm en
Valsmenn fóru fljótlega að svara
fyrir sig og jafnt var í leikhléi, 10:10.
Valsmenn mættu betur undirbún-
ir til síðari hálfleiks og náðu fjög-
urra marka forskoti því ýmist
strönduðu sóknarlotur HK á Guð-
mundi markverði Vals eða hæpnum
dómum. Kópavogsbúarnir lögðu þó
ekki árar í bát, Hlynur Jóhannesson
markvörður varði vel, sem gaf HK-
mönnum von og með mikilli baráttu
tókst þeim að jafna þegar rúmar
sex mínútur voru til leiksloka.
Hvort lið fékk þrjú tækifæri til að
skora mark. Eitt skot HK var varið,
annað ótímabært fór framhjá og ein
sókn endaði með furðulegum ruðn-r
ingsdómi. Aftur á móti lauk tveimur
sóknum Vals þegar Hlynur varði en
úr þriðju skoraði Ari Állansson sig-
urmark þegar rúm mínúta var til
leiksloka.
„Eg veit ekki hvort dómararnir
voru tilbúnir í erfiðan leik, við
misstum líka einbeitinguna í dauða-
færum en vörnin var góð,“ sagði
Hlynur markvörður, sem varði 20
skot, en hann bar sig þó vel. „Eg
hef þó engar áhyggjur af stöðunni
því þetta er á réttri leið hjá okkur
en hef frekar áhyggjur af því að
tapa með einu marki því það gerðisV
í sjö leikjum í fyrra - vonandi gerist
það ekki aftur.“
Hjá Val nýtti Einar Örn Jónsson
færin sín vel og Guðmundur varði
ágætlega en Valsmenn geta þakkað
fyrir að hirða bæðin stigin í þessum
leik - því þeir voru lengi að ná átt-
um í gríðarlegum baráttuleik, sem
oft var líkastur slagsmálum. ■Jr