Morgunblaðið - 12.01.1999, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1999 11
FRÉTTIR
Óánægja hjá starfsfólki Norðuráls, einkum í skautsmiðju
Kvartað undan
vinnuálagi og mengun
STARFSMENN hjá Norðuráli,
einkum í skautsmiðju, era óánægð-
ir með aðbúnað og vinnuumhverfí
sitt, að sögn Hervars Gunnai-sson-
ar, foiTnanns Verkalýðsfélags
Akraness. Hann segir að starfs-
mönnum í skautsmiðju þyki mikil
mengun á sínum vinnustað og
vinnuálag og kvarti undan því að
lítið sé á þá hlustað. Kenneth Pet-
erson, forstjóri Norðuráls, segir að
mesti álagstíminn vegna upp-
keyrslu fyrirtækisins sé nú að baki.
Hervar Gunnarsson sagði að far-
ið hefði að bera á óánægju hjá
starfsmönnum síðla hausts og þeg-
ar líða fór á veturinn. Hervar sagði
að starfsmenn hefðu borið mengun
í skautsmiðjunni, vinnuálag og
vinnuaðstæður saman við það sem
gerist í álveram í Þýskalandi,
þangað sem starfsmenn voru send-
ir til þjálfunar, og hefði niðurstað-
an verið sú að aðstæður á Grundar-
tanga stæðust ekki samanburð.
„Miðað við frásagnir starfsmanna
er bæði undirmannað miðað við
þau verkefni, sem þeim er ætlað að
leysa, og einnig er mjög mikið ryk í
skautsmiðju,“ segir hann.
Verkalýðsfélög starfsmanna og
Norðurál gerðu vinnustaðasamn-
ing og segir Hervar að vegna þess
séu það trúnaðarmenn, sem annist
bein samskipti við stjórnendur.
Tránaðarmenn hafi óskað stuðn-
ings verkalýðsfélaga í desember og
milli jóla og nýárs og aftur í liðinni
viku hafi verið farið yfir umkvört-
unaratriðin og rætt við starfs-
mannastjóra fyrirtækisins. Hervai'
segir að nú sé að reyna á hvort það
fyrirkomulag, sem samið var um,
lialdi.
Hann sagði að komið hefði verið
til móts við starfsmenn að hluta til
með því að innrétta gám sem
starfsmannarými, en þó hafi við-
ræður ekki skilað þeim árangri
sem starfsmenn höfðu vænst. „Þeir
telja að það skili ekki því sem þarf
og komi ekki á því ástandi sem
þyrfti til að þetta væri sæmilega
þrifalegur vinnustaður," sagði
Hervar.
Talsvert um mannaskipti
Hann sagði einnig að talsvert
hefði verið um mannaskipti hjá fyr-
irtækinu og þótt ýmsar skýringar
væra á því kvaðst hann vita til þess
að einhverjir hefðu hætt störfum
vegna þess að þeir teldu vinnustað-
inn ekki mönnum bjóðandi.
Hervar sagði að næstu tvær til
þrjár vikur skýrðist væntanlega
hvort takist að leysa málið innan
fyrirtækisins eða hvort verkalýðs-
félagið komi að því.
Kenneth Peterson, forstjóri
Norðuráls, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að um þessar
mundir væri verið að ljúka við upp-
keyrslu verksmiðjunnar, sem hefur
staðið frá því hún tók til starfa, og
sagði hann að því tímabili fylgdu
alltaf ákveðnir erfiðleikar og mikið
álag. „Við erum komnir yfir versta
hjallann, sem rakst á við jólafríin,"
sagði hann. Peterson sagði að
nauðsynlegt hefði verið að hliðra
ýmsu til í rekstrinum til að ná að
hámarka álagið vegna uppkeyrsl-
unnar íyrir jól, svo draga mætti úr
álaginu yfir hátíðarnar.
Aðspurður um kvartanir starfs-
manna í skautsmiðju vegna meng-
unar sagði Peterson að eftir upp-
keyrslutímann næði ástand í verk-
smiðjunni jafnvægi við lægra álag
en verið hefur undanfarið.
Um samanburð við mengun í
skautsmiðjum annarra álvera sagði
hann að fyrirtækið hefði aðeins
sent menn til að kynna sér starf í
kerskálum en ekki skautsmiðjum
erlendis og þótt starfsmenn kynnu
að hafa komið í skautsmiðjur
kvaðst hann ekki telja að um mark-
ÚR álverksmiðju Norðuráls að Grundartanga.
tækan samanburð væri að ræða
fyrir fyrirtæki með sams konar
framleiðslu.
Ósambærilegt ferli
við Straumsvík
Hann sagði að ekki væri hægt að
bera fyrirtækið saman við álverið í
Straumsvík því framleiðsluferli ál-
veranna tveggja væri ósambæri-
legt. Meðal þess sem fram fer í
skautsmiðju Norðuráls er að
skautin era brotin niður og er það
hluti af endurvinnsluferli verk-
smiðjunnar, eins og flestra álverk-
smiðja. Þessu fylgi ryk. Þetta sé
hins vegar ekki gert í Straumsvík.
Aðspurður hvernig fyrirtækið
vildi koma til móts við óánægða
starfsmenn sagði hann að stöðugt
væri unnið að því að bæta starf-
semina og leita betri leiða í sam-
vinnu við starfsfólk. Hann sagði að
rætt hefði verið við starfsmenn í
viðræðum, sem að mestu fóru fram
fyrir nokkram vikum. Ymsar ráð-
stafanir hefðu verið gerðar í kjölfar
þeirra viðræðna.
Aðspurður hvort mannaskipti
hefðu verið tíð í starfsliði sagðist
Kenneth Peterson þvert á móti
hafa talið að mannaskipti væru til-
tölulega lítil. Fæstir starfsmenn
hefðu verið vanir vinnu í þungaiðn-
aði en engu að síður hefði hann
talið að gott samstarf hefði tekist á
vinnustaðnum. Starfsfólk hefði
enst betur í starfi í þessu framandi
vinnuumhverfi en hann hefði fyrir-
fram gert sér vonir um.
Athugasemd
MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfar-
andi athugasemd frá Guðmundi Gunnars-
syni, formanni Rafiðnaðarsambands Is-
lands:
„Vegna fréttar í Morgunblaðinu laugar-
daginn 9. janúar er rétt að eftirfarandi komi
fram.
Forysta Rafiðnaðarsambandsins skilur
ekki niðurstöðu skipulagsnefndar með sama
hætti og forysta VR virðist gera. Skipulags-
nefnd ASI er vel kunnugt um að yfirgnæf-
andi meirihluti félaga FIS rámast vel innan
10 aðildarfélaga RSI og þá í fullu samræmi
við skipulagsreglur ASI. Skipulagsnefnd
veit vel að forysta RSI mun ekki gera neinar
athugasemdir við það þótt einhverjir félaga
FIS vilji vista sig í öðram stéttarfélögum.
Niðurstöðu hennar skiljum við sem spurn-
ingu skipulagsnefndar ASÍ um hvort við
ætlum okkur að færa rafeindavirkja innan
FÍS úr félaginu í Félag rafeindavirkja, raf-
virkja í félög rafvirkja, tæknifólk í Félag
tæknifólks o.s.frv. Því er til að svara að eng-
in ákvöráun hefur verið tekin um þetta inn-
an RSI eða aðildarfélaga sambandsins og
engin áætlun er um að hafa um það samráð
við aðra hvort og þá hvenær það verði gert.
Við ráðskumst ekki með okkar félagsmenn
með þessum hætti, þeir verða sjálfir að ráða
þar ferðinni. Foi'ysta RSI vill en einu sinna
minna á að þetta er nákvæmlega sama þró-
un og hefur átt sér stað á öllum hinna Norð-
urlandanna. Þar hafa samtök símamanna
gengið í rafiðnaðarsamböndin þegar lands-
sími viðkomandi lands hefur verið einka-
væddur.
Forysta RSI skilur niðurstöðu skipulags-
nefndar fyrst og fremst á þann veg að hún
sé alvarleg aðvöran til forystu VR, að félag-
ið láti af þeirri venju að vista launamenn svo
hundraðum skipti, sem eiga samkvæmt
skipulagi ASÍ að vera í öðrum stéttarfélög-
um innan ASÍ en VR, má þar benda á bíl-
stjóra, iðnaðarmenn, benzínafgreiðslufólk,
flugfreyjur, starfsfólk í bakaríum og þannig
mætti lengi telja. Sérstök ástæða er að geta
þess að ekkert stéttarfélag innan ASÍ hefur
farið fram á það við VR að félagið vísi launa-
mönnum sem vilja vera í VR á dyr, en for-
ysta VR virðist aftur á móti ekki hika við að
viðhafa þau vinnubrögð gagnvart öðrum
stéttarfélögum. Viðhorf forystu VR í þessu
máli flokkast undir óþolandi forsjárhyggju
og tilheyra löngu úreltum viðhorfum og eiga
ekki þekkjast innan nútíma verkalýðshreyf-
ingar.
Við viljum minna á að forysta VR hefur á
engu stigi haft samband við RSÍ vegna
þessa máls til þess að leita upplýsinga eða
samráðs. Ætíð hefur verið leitað annað. Það
er skoðun okkar að raunveralegur tilgangur
þessa málatilbúnaðar forystu VR sé einhver
allt annar en í veðri ei’ látið vaka.“
Frábær tilboð • Eitt besta verðið
Peysur.......995,
Vesti........495,
Jakkar....I «490,
Kápur.....2*900,
A.m.k. 50% afsláttur af
öðrum fatnaði og skóm
- 30% afsl. af töskum
Buxur......795.-
Pils.......795,-
Dragtir..1.990,-
Blússur....995,-
(Suelle
D a I vc g u r 1
Sími 5M1000
ÞYSKUR GÆ
FATNAÐUR - ALLAR STÆRÐI