Morgunblaðið - 12.01.1999, Qupperneq 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1999
MORGUNB LAÐIÐ
MENNTUN
Samvinna Sjálfsvígum ungs fólks hefur fjölgað hér á landi líkt og annars staðar á Vesturlöndum. Kristján
Kristjánsson ræddi við Dr. Gil Noam um áhættuhegðun ungs fólks og ráð til að vinna meðal annars gegn vímu-
efnanotkun sem leiðir til sjálfsvíga. Noam mælir sterklega með góðri samvinnu við skóla í forvarnarstafí.
Vandamál
barna leyst
í skólum?
• Skólinn getur skapað jafnvægi
og hjálpað fjölskyldum
# Pað er ekki rétt að unglingar séu
nógu gamlir til að
DR. GIL Noam prófessor
við Harvard-háskóla í
Boston í Bandaríkjunum
flutti fyrirlestur á nám-
skeiði á Akureyri um áhættuhegðun
ungs fólks, fíkniefnaneyslu og of-
beldi, áhættuþætti og forvarnir. Dr.
Gil Noam er einnig forstöðumaður
Hall-Mereer Laboratory of Develop-
ment and Developmental Psychopat-
hology við Harvard-læknaskólann og
McLen-spítala. Hann stýrir verkefni
í Boston um forvarnir í tengslum við
áhættuhegðun bama og unglinga.
Sjálfsvígum ungs fólks hefur
fjölgað viðast hvar á Vesturlöndum
undanfarna áratugi og er ísland þar
engin undantekning. Mikill hluti
fólks sem fremur sjálfsvíg misnotar
áfengi eða önnur vímuefni og vímu-
efnafíkn er því einn algengasti
áhættuþáttur sjálfsvíga.
Þá veldur áfengis- og önnur efna-
víma aukinni hættu á sjálfsvígi
vegna hömlulosandi verkunar og
samfara vímunni. Að undanfómu
hefur sjónum í auknum mæli verið
beint að ýmsum öðrum áhættuþátt-
um í tengslum við vímuefnafíkn, s.s.
misþroska, ofvirkni, lestrarörðug-
leika og ýmsum áfóllum í lífi barna.
Dr. Gil Noam var á íslandi í annað
sinn á dögunum, á vegum mennta-
málaráðuneytsins, sem hefur í sam-
ræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar
unnið að forvarnarstarfi í skólum.
Dr. Noam sagði í samtali við Morg-
unblaðið að áhættuþættir sjálfsvíga
væru margii- og tengdust m.a. þung-
lyndi og fíkniefna- og áfengisnotkun.
Hann sagði nauðsynlegt að skil-
greina vandann sérstaklega og síðan
að setja í gang verkefni, þar sem
skólar og samfélagið vinni saman að
forvarnarstarfi, jafnt í skólanum
sjálfum og utan hans. Þai- gætu
einnig komið að máli lögregla,
slökkvilið, kii-kjan og margir fleiri.
sjá um sig sjálfir
„Ég er ekki hingað kominn til að
segja fólki hvað það eigi að gera,
heldur til að miðla minni þekkingu
og reynslu og aðstoða þá sem vinna
að þessum málum, enda eru aðstæð-
ur á Islandi allt aðrar en í Bandaríkj-
unum. Hér á landi er áhættan vissu-
lega fyrir hendi en hún er að mínu
mati viðráðanleg. Astandið í Band-
aríkjunum er mun alvarlegra en með
því að nýta þá þekkingu sem til er
annars staðar er hægt að vinna að
forvarnarstarfi."
Skólar þurfa að vera
skeinmtilegir
Dr. Noam sagði að skólinn gæti
gert ástandið verra, ef börnunum líð-
ur ekki vel þar og ef þeim gengur illa
með námið. Skólinn geti hins vegar
skapað jafnvægi og hjálpað fjöl-
skyldum að leysa sín vandamál. „Ég
tel þó að skólarnir þurfí að breytast
þannig að bömin vilji vera í skólan-
um og hafí gaman af. Þetta á ekki
síst við þau eldri og ég tel að hægt sé
að gera skólann það áhugaverðan að
eldri börn og unglingar njóti þess
líka að vera þar. Og það er okkur
fullorðna fólkinu að kenna ef ung-
lingar vilja yfírgefa skólann.
Börn alast upp við mjög mismun-
andi aðstæður og sumum börnum
sem alast upp við erfiðar aðstæður
gengur engu að síður vel í skóla. Ég
hef verið að rannsaka hvernig þeim
börnum, sem eiga erfitt heima, m.a.
vegna hjónaskilnaðar og eða
drykkju- og fíkniefnavandamála for-
eldra, tekst að standa sig vel í skóla.
Þrátt fyrir rannsóknir höfum við
ekki enn svar við þeim spurningum,
eða hvar börnin fá þann styrk sem
þarf til að gera vel. Einnig erum við
að leita svaia við þeim spumingum,
af hverju sum börn geta sagt nei en
önnur ekki.“
Dr. Noam sagði nauðsynlegt að
Morgunblaðið/Björn Gíslason
DR. GIL Noam flytur fyrirlestur sinn á námskeiði um áhættuhegðun ungs fólks, sem haldið var á Akureyri.
börnin hefðu eitthvað við að vera eft-
ir skóla, þau séu oft ein heima, for-
eldarnir í vinnu og enginn viti
nákvæmlega hvað þau hafí fyrir
stafni. „Ég veit til þess að hér á landi
er eitthvað gert fyiúr yngstu börnin
eftir skóla en hef á tilfinningunni að
þar sé hægt að gera betur og þá ekki
síst fyrir þau eldri. Það er ekki rétt
að unglingar sem eru 13, 14 og 15
ára séu nógu gamlir til að sjá um sig
sjálfir, því þeir eru það ekki.“
Hvað eru bömin að gera?
A námskeiðinu á Akureyri ræddi
Dr. Noam um ýmsa áhættuþætti,
fátækt, þunglyndi, streitu, fíkniefna-
neyslu og sálarástand og nauðsyn
þess að grípa nógu snemma til að-
gerða gagnvart þeim eru í sjálfsvígs-
hugleiðingum. „Þetta er eins og með
aðra sjúkdóma, því lengur sem ekk-
ert er aðhafst, því erfiðara er við
vandann að eiga. Börn bregðast
mjög mismunandi við vandamálum
en með því að veita þeim hjálp í tíma,
komast þau yfir sín vandamál mun
fyiT en fullorðið fólk. Hins vegar
getur verið erfitt að átta sig
nákvæmlega á því hvað það er sem
er að angra börn. Það er ekki hægt
að gera með því að horfa eingöngu á
viðkomandi, það þarf að tala við
börnin og reyna þannig að komast að
því hvað ami að.“
Vímuefnafíkn og annar vímuefna-
vandi fer vaxandi meðal ungs fólks á
Islandi. Neysla þessara efna er orðin
almennai-i en áður og ungt fólk sem
leitar sér meðferðar vegna vímu-
efnaneyslu er verr fainð vegna neysl-
unnar en áður hefur þekkst og kom-
ið í harðari neyslu. Neysla áfengis og
annarra vímuefna skapar umhverfí
sem eykur líkur á ofbeldisverkum.
Gerendur ofbeldis eru í mörgum til-
vikum undh- áhrifum vímuefna og
hið sama má segja um þolendur of-
beldis. Meirihluti líkamsmeiðinga á
íslandi gerist í framhaldi af deilum
ölvaðs fólks.
Þekking á vandanum
hefur aukist
Dr. Noam sagði að um leið og
áhættan hér á landi hafi aukist, hafi
þekking fólks á vandanum einnig
aukist, auk þess sem meðferð-
arúrræði og lyf séu betri. „Það sem
vantar upp á er að kennarar, heil-
brigðisstarfsfólk, ráðgjafar, kh’kj-
unnar fólk og lögi-egla vinni saman
að settu marki og þá geta fjölmiðlar
einnig haft mikið að segja. Eins teldi
ég ráðlegt að spyrja krakkana sjálfa
að því hversu mikill fíkniefna- og
áfengisvandinn er og þá hvort hann
er eins mikill og sagt er.
Ég hef þá tilfinningu eftir þessa
stuttu heimsókn til Akureyi’ai’, að
hér sé hægt að ná góðum árangri
með samvinnu og sameiginlegu átaki
allra þessara aðila. íbúafjöldi er af
þægilegri stærð, hér er öflugt skóla-
starf og stórt sjúkrahús, þannig að
möguleikarnir eru miklir.“
Námskeiðið um áhættuhegðun
ungs fólks var einkum ætlað skóla-
stjórnendum, umsjónarkennurum,
námsráðgjöfum, forvarnafulltrúum,
skólasálfræðingum og skólahjúkrun-
ai’fræðingum í grunn- og framhalds-
skólum. Þar kom fram að markvisst
forvamarstarf í skólum getur haft
mikið að segja gegn ýmiss konar
áhættu og sjálfseyðandi hegðun
ungs fólks. Leggja verður áherslu á
getu skóla til þess að greina áhættu-
hegðun bai’na og unglinga og veita
þeim aðstoð sem í vanda eru staddir.
Því er talið mikilvægt að starfsfólk
skóla sé í stakk búið að koma auga á
og liðsinna nemendum sem eiga í
erfiðleikum.
fejLANDIC / íslenskar fyrirsætur
Er þetta þitt tækifæri?
Við kynnum módel/fyrirsætunámskeið sem hefjast
fimmtud. 21. janúar og eru í 6 vikur/12 kennslustundir
• Hvernig ná má árangri
• Hvað veistu um myndatökur? Ljósmyndari frá New York kennir
• Hver nemandi fær video-bók
• Choreography, uppsetning á tískusýningu, kennt að setja upp sýningu
• Ganga á palli/snúningar, ganga milli borða/posing
- Starf fyrirsætunnar, heilsa-, förðun-, viðtöl og fleira
• Erlendir gestakennarar
• Þekkt umboðsskrifstofa frá London sendir fulltrúa sinn til að leita að
nýjum andlitum
• Myndir teknar af öllum í vinrtubók, sem þú færð að eiga og þarft að
vinna með
HAFIN ER LEIT AÐ ELITE-STULKU 1999 - ERT ÞAÐ ÞU?
Innritun frá kl. 10-16.00. Upplýsingar í sími 588 7799/588 7727,
enigma@islandia.is Skeifunni 7,108 Reykjavík
Tveggja mánaða nám-
skeið í kvikmyndagerð
INNRITUN stendur yfir í vornám-
skeið Kvikmyndaskóla Islands. Kvik-
myndaskóli Islands hefur starfað frá
árinu 1992. Meginmarkmið skólans
hefur verið að halda viðamikil nám-
skeið í kvikmyndagerð fyrii’ byrjend-
ur í faginu. Úm 200 nemendur hafa
setið námskeið skólans. Allmargir
hafa tengst kvikmyndagerð að námi
loknu sem aðstoðarfólk í kvikmynda-
gerð, einhverjir hafa haldið til
frekara náms í kvikmyndagerð er-
lendis en aðrir hlotið styrk úr Kvik-
myndasjóði Islands.
Fjallað verður um framleiðsluferli
kvikmynda allt frá því að hugmynd
fæðist og þar til mynd er sýnd.
Skoðuð verða brot úr mismunandi
tegundum mynda. Byrjað er á ítar-
legri, bóklegri kennslu og er merk-
miðið að nemendur öðlist þekkingu
á undirstöðugreinum kvikmynda-
gerðar, m.a. handritsgerð, leik-
stjórn, kvikmyndatöku, klippingu og
hljóðvinnslu. Seinni hluti námskeiðs-
ins er að mestu verklegur en þá eru
framleiddar tvær 15 mínútna stutt-
myndir upp úr völdum handritum
tveggja nemenda. Nemendur kynn-
ast þar hvernig framleiðsluferlið er í
raun og hvernig mynd er kláruð
þannig að hún sé útsendingarhæf í
sjónvarpi.
Auk þess er boðið upp á fyrir-
lestra um helgar og kvikmyndasýn-
ingar.
Leiðbeinendur við skólann eru
allt starfandi íslenskir kvikmynda-
gerðarmenn og alls hafa á þriðja tug
kvikmyndagerðarmanna kennt við
skólann í lengri eða skemmri tíma.
Skólastjóri Kvikmyndaskóla Is-
lends er Böðvar Bjarki Pétursson.
Framkvæmdastjóri er Inga Björk
Sólnes.
Upplýsingar um Kvikmyndaskóla
íslands og námskeið eru veittar í
símum 588 2720 og 896 0560.