Morgunblaðið - 12.01.1999, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1999 35
Stj órnunarnám
fyrir fólk úr
ýmsum fögum
Núna í byrjun febrúar verður kynning
á Norska stjórnunarskólanum í Reykja-
vík. Gunnar Hersveinn hitti þrjá nem-
endur úr skólanum sem voru hér í leyfi
yfír áramótin. Þau telja námið
veita sér alþjóðlega yfirsýn.
NORSKI stjórnunarskólinn
var stofnaður árið 1943 og
er nú annar fjölmennasti
viðskiptaháskólinn í Evr-
ópu. Hann nefnist Handelshoyskolen
BI á norsku og Norwegian School of
Management - BI á ensku en öll
kennsla fer fram á ensku. I honum
eru bæði svið fyrir háskólamenntaða
og fólk úr atvinnulífmu. Þótt hann sé
fjölmennur er hann dreifður um
Noreg og er iðulega kennt i litlum
einingum með nemendum
hvaðanæva úr heiminum. Aðalstöðv-
ar skólans eru í Sandvika sem er 12
km frá Osló. Undanfarin ár hafa ís-
lenskir nemendur lagt stund á nám
við skólann.
MBA (Master of Business Ad-
ministration) er eins árs (11 mánuð-
ir) stjórnunamám við skólann og á
markmið þess að vera að búa nem-
endur undir að vera skilvirkir
stjórnendur. Hugmyndin er að
kenna þeim að vera útsjónarsamir
og sjálfstæðir stjórnendur sem jafn-
framt geti unnið með hópa.
Guðrún Ýr Gunnarsdóttir lyfja-
fræðingur er meðal þeirra Islend-
inga sem verið hafa í MBA námi við
skólann. I auglýsingabæklingi frá
skólanum segir hún: „Námið bjó yfir
því sem ég sóttist eftir; alþjóðlegu
umhverfi, eins árs tímabili, hóflegri
hópastærð og nemendum frá ólíkum
löndurn."
Nemendur í MBA í norska
stjórnunarskólanum hafa að
meðaltali 8 ára reynslu úr atvinnulíf-
inu og hljóta konunglega viðurkenn-
ingu fyrir námið.
Alþjóðlegt stjórnunarnám
MSc sviðið The Master Science í
skólanum er sérhæfðara og einbeita
nemendur sér til dæmis að stjómun
orkufyrirtækja, efnahagsmálum, við-
skiptum og markaði. MSc er tveggja
ára nám og veitir aðgang að doktor-
snámi við skólann.
Námið gerir miklar kröfur til
nemenda eins og meistaranám á að
gera. Áherslan er á greiningu og
stjómun í viðskiptum og ríkisrekstri.
Námsefnið er alþjóðlegt og er
nemendum ævinlega miðlað nýjustu
kenningum og greiningaraðferðum.
Stúdentar geta sótt um að vera eina
önn sem skiptinemar við sérvalda
skóla í öðrum löndum til að öðlast
víðari sýn.
Núna í byrjun febrúar verður
kynning á Norska stjórnunarskólan-
um í Reykjavík en stjómendur hans
leitast við að fá sem breiðastan hóp
nemenda í skólann. Telja þeir það
skólar/námskeið
____________nudd_______________
■ Ungbarnanudd
Námskeið fyrir foreldra
bama á aldrinum frá eins
til tíu mánaða byijar
fimmtudag. 14. jan. kl. 12
og fimmtud. 21. jan. kl.
13. Skráning hafin. Tak-
markaður fjöldi, 6 böm.
Báðir foreldrar velkomnir.
Uppl. og innritun á Heilsusetri Þórgunnu
eða í símum 896 9653 eða 5521850.
___________tungumál ______________
■ Enskuskólinn
Enska er okkar mál.
7 vikna námskeið að hefjast.
Áhersla á talmál. Einnig 12 vikna um-
ræðunámskeið og 10 vikna námskeið í
skriflegri ensku og viðskiptaensku.
Bama- og unglinganámskeið.
Málaskólar í Bretlandi.
Innritun stendur yfir.
Enskuskólinn,
Faxafeni 10,
s. 588 0303/588 0305.
■ Enskunám í Englandi
Við bjóðum enskunám við einn virtasta
málaskóla Englands. Skólinn sér jrér tyrir
fæði og húsnæði hjá enskri fjölskyldu. Um
er að ræða alhliða ensku 18 ára og eldri.
2ja til 11 vikna annir; unglingaskóla, júlí
og ágúst; 13-17 ára, 4ra vikna annir;
viðskipta-ensku, 2ja og 4ra vikna annir.
Upplýsingar gefur Jóna María
Júlíusdóttir á kvöldin í síma
462 3625 og 862 6825.
ýmislegt
Kynning á námi í hómópatíu.
^cée Um er að ræða 4ra ára
.« — nám. Robert Davids-
í on, skólastjóri, kynnir.
Stjórnunarskólinn,
Sogavegi 69.
Lau. 16/1 kl. 18.00.
/6ocop*v Upplýsingar gefur
Martin í s. 567 4991.
■ Kennsla hefst 18. janúar.
Fjölbreytt námskeið fyrir 5—14 ára nem-
endur. Upplýsingar og innritun í símum
562 8283 og 588 1038.
http://www.islandia.is/~hskoli/
tónlist
■ Píanókennsla
Kenni á píanó, bömum og fullorðnum.
Tónfræðikennsla innifalin.
Einnig sértímar í tónfræði.
Guðrún Birna Hannesdóttir,
Bólstaðarhlíð 50, sími 588 3277.
__________myndmennt
■ Myndlistarnámskeið
fyrir böm, unglinga og fullorðna - byrjen-
dur og lengra komna.
Teikning, málun (vantslitir, akríl, olía, sil-
kimálun), myndvefnaður, teiknimyndasö-
gur, og fjöltækninámskeið fyrir böm og
unglinga.
Upplýsingar og innritun í síma 562 2457
og 552 6570.
Myndlistarskóli Margrétar
■ Þýskunámskeid Germaniu
hefjast 18. janúar. Boðið er upp á
byrjendahóp, framhaldshópa
og talhópa. Upplýsingar í síma
551 0705 kl. 17-19.30.
■ MYND-MÁL myndlistarskóli
Málun, teiknun. Undirstöðuatriði og
tækni. Byrjendur og framhaldsfólk.
Upplýsingar og innritun kl. 14—21 alla
daga. Símar 561 1525 og 898 3536.
Rúna Gísladóttir, listmálari.
MENNTUN
Morgunblaðið/Kristinn
JON PALL, Jenny Rut og Vigfús Þór eru af ólikum fagsviðum og hafa valið sitt sviðið hvert með mismunandi
áherslum; alþjóðaviðskipti, markaðsfræði og Qármálahagfræði.
gefa góða raun vegna
þess að nemendur geti
lært álíka mikið hver af
öðrum eins og af kennur-
um og námsefni í skólan-
um.
Skólinn er dreifður um
Noreg og er honum skipt
í ýmsar deildir eftir
viðfangsefnum og eru
um 17 þúsund nemendur
í honum. Námið sem hér
er um rætt er í Sandvika.
Heimasíða norska
stjómunarskólans á Net-
inu er http://www.bi.no
og er þar hægt að fá
margvíslegar upplýsing-
ar um hann.
Geta hugsað sér
að vinna í útlöndum
Þrír íslenskir nemendur sem byrj-
uðu í MSc námi við skólann í haust
voru hér í jólafríi fram í janúar. Þeir
eru Jenny Rut Sigurgeirsdóttir líf-
efnafræðingur sem er í markaðs-
fræði, Vigfús Þór Sveinbjörnsson
viðskiptafræðingur frá HI sem er í
fjármálahagfræði og Jón Páll
Hreinsson rekstrarmarkaðsfræðing-
ur frá Tækniskóla íslands og er
hann í alþjóðaviðskiptum.
„Þetta er einkarekinn skóli sem er
þekktur fyrir góð tengsl við at-
vinnulífið," segir Jenný, „kennai-ar
eru oft bæði starfandi í
skólanum og hjá fyrir-
tækjum og stunda þar
rannsóknir. En það er
einmitt áhersla á
rannsóknh' í skólan-
um.“
„Norðmenn eru í
minnihluta í master-
námi við skólann,“ seg-
ir Vigfús Þór, „nem-
endur eru frá flestum
heimsálfum og einnig
eru þar skiptinemar
sem dvelja í hálft ár í
senn. Öll kennsla fer
fram á ensku og nem-
endur fá 20% af ein-
kunn metna í virkni á
námskeiðum."
Jón Páll segir að skólaárið kosti
450 þúsund íslenskar krónur og sé
ódýrara en til dæmis í Bandaríkj-
unum. Hins vegar er uppihald
fremur dýrt í Noregi. Hann leigir
lítið hús vestur af Osló vegna þess
að fjölskyldan er með honum. „Það
er líkt og að búa í sveitinni," segir
hann. Vigfús Þór býr á
stúdentagörðum.
Jenny Rut er hins vegar alin upp
í Noregi og líður líkt og heima hjá
sér. „Ég ætla mér að fá vinnu hérna
þegar ég er búin með námið,“ segir
hún og segist vel geta hugsað sér
að samþætta lífefna- og markaðs-
fræði í framtíðarstarfi enda sé sá
markaður stór. Vigfús segist líka
geta hugsað sér að vinna úti til að
dýpka reynsluna en ætlar svo að fara
heim aftur. Hann segir stærð norsku
fyrirtækjanna gefa marga mögu-
leika. Jón Páll segir freistandi að
vinna úti vegna margfalt betri launa
en hann efast þó um að aðstæður
leyfi það. Haldnir eru sérstakir ráðn-
ingardagar í skólanum þar sem fyr-
irtæki kynna sig og nemendur sækja
ef til vill um vinnu.
Ánægð í skólanum
en vöruúrval í búðum Iítið
Þau segja að skólaárinu sé skipt í
sex annir og kennt sé óháð árstíðum.
Nemendur velja sér leiðbeinanda og
eru fáir um hvern þeirra. Námið
endar svo með stóru verkefni. Vigfús
á að skrifa fræðilega ritgerð, Jenna á
að vinna rannsókn og Jón Páll á að
samþætta rannsókn og fræðilega rit-
gerð en hann ætlar að einbeita sér
að útflutningsfræðum með áherslu á
sjávarútveg.
Þau segjast vera mjög ánægð
með skólann og hann bjóði upp á
marga möguleika. Húsnæði er þó
dálítið vandamál fyrir fjölskyldufólk
en því sé hjálpað til að finna það.
Einnig segja þau vöruúrvalið í búð-
um vera meira á íslandi en í Noregi,
e.t.v. vegna verndunar á norskum
landbúnaði.
Guðrún Ýr
Gunnarsdóttir
á ótrúlegu veröi
• Hátt og lágt drif - byggður á grind
• Kraftmikil og hljóðlát vél
• Einstaklega góður í endursölu
I
I
FULL
FRAMI
ám
& SUZUKI
SUZUKIBILAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
Heimasíða: www.suzukibilar.is
TEGUND: VERÐ:
JLXSE3d 1.580.000 KR.
JLXSE 5d 1.830.000 KR.
DIESEL 5d 2.180.000 KR.
Sjálfskipting kostar 150.000 KR.
ALLIR SUZUKI BÍLAR ERU MEÐ:
• vökvastýri • 2 loftpúða •
• aflmiklar vélar • samlæsingar •
• rafmagn I rúðum og speglum •
• styrktarbita í hurðum •
• samlitaða stuðara •
VITARA