Morgunblaðið - 12.01.1999, Side 76
MORGUNBLAÐW, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTII
ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Metdagur á VÞI
13% hækkun
Flugleiðabréfa
ÞR JÚ met voru slegin í viðskiptum á
Verðbréfaþingi Islands (VÞI) í gær.
Um var að ræða mestu hlutabréfa-
viðskipti á einum degi, flest hluta-
bréfaviðskipti á einum degi og flest
heildarviðskipti á einum degi. Hluta-
bréfaviðskipti gærdagsins námu
rúmum 502 milljónum króna en
heildarviðskipti á VÞÍ í gær námu
835 milljónum. Hlutabréf flestra fé-
laga VÞI hækkuðu í verði í gær og
hækkaði úrvalsvísitalan um 4,47%.
Gengi hlutabréfa í Flugleiðum hækk-
aði mest eða um 13%, úr 3,58 í 4,05.
Mest viðskipti voru með bréf Eim-
skipafélagsins eða fyrir 116 milljónir
að markaðsvirði og Flugleiða, fyrir
98 milljónir króna. Þá námu viðskipti
með hlutabréf Tryggingamiðstöðvar-
Minnsta
tóbakssala
í nær
hálfa öld
RÚMLEGA 402 tonn voru seld
af tóbaki á síðasta ári hér á landi
samkvæmt útreikningum tó-
baksvarnanefndar. Útreikning-
aynir eni byggðir á tölum frá
Afengis- og tóbaksverslun rílds-
ins. Þetta er 2,7% minni sala en
árið áður. í frétt frá tóbaks-
varnanefnd segir að tóbakssala
hafí minnkað stöðugt síðan 1984
en þá var hún 134 tonnum meiri
en nú.
Tóbaksvarnanefnd segir að
samdráttur í tóbakssölu sé enn
augljósari þegar tillit er tekið til
fjölgunar iandsmanna. Heildar-
sala tóbaks árið 1998 var 1.935
grömm á hvern fullorðinn íbúa,
sem er minnsta sala síðan 1951,
sígarettusala var 1.682 stykki,
sem er minnsta sala síðan 1969,
vindlasala var 58 stykki, sem er
einhver minnsta sala síðan 1963,
og sala á reyktóbaki, neftóbaki
og munntóbaki var 108 grömm á
hvern fullorðinn íbúa, sem er
minnsta sala síðan mælingai’
hófust árið 1941.
innar 40 milijónum, FBA 37 milljón-
um, Opinna kerfa 24 milljónum og
Samherja 22 milljónum.
Töluverð hækkun varð á gengi
hlutabréfa í gær. Flugleiðabréf
hækkuðu mest eða um 13,1%, bréf
Pharmaco um 12,3%, Síldarvinnsl-
unnar um 8%, Tæknivals um 7,9%,
Eimskipafélagsins um 5,9%, Nýherja
um 5,9%, Skeljungs um 5,7%, Trygg-
ingamiðstöðvarinnar um 5,6%,
Granda um 5,2%, Þróunarfélagsins
um 5,2% og SH um 5%. Gengi hluta-
bréfa lækkaði aðeins í einu félagi,
Eignarhaldsfélaginu Alþýðubankan-
um hf., um 3,2%.
■ Hlutabréfaviðskipti/16
■ Eignarhlutur/16
Hvasst
á Suður-
landi
MIKIÐ hvassviðri gekk yfir
Suðurland í gær. Náði vind-
hraðinn mest 10 vindstigum á
Stórhöfða í Vestmannaeyjum
en 9 vindstig mældust á veður-
athugunarstöðinni á Skarðs-
fjöruvita í Mýrdal. Mikil hálka
og krap var á vegum og inikil
úrkoma, ýmist hagl eða rign-
ing. Samkvæmt upplýsingum
frá Veðurstofu Islands átti
vindinn að lægja í nótt sunnan-
og austanlands og snúast í
vestan hvassviðri og éljagang á
Vesturlandi. Mikið brim var í
hvassviðrinu við Vík en þessir
Víkurbúar létu hvassviðrið sem
vind um eyru þjóta og skelltu
sér í smá göngutúr.
Alþingi kærir
Tvíhöfða
ALÞINGI hefur kært umsjónar-
menn útvarpsþáttarins Tvíhöfða og
stjórnendur útvarpsstöðvarinnar X-
ins til lögreglunnar í Reykjavík fyrir
að láta gera hróp að þingmönnum af
þingpöllum. Að sögn Friðriks Ólafs-
sonar, skrifstofustjóra Alþingis, er
farið fram á það í kærunni að tiltek-
inn starfsmaður á vegum þáttarins
verði dæmdur tii þeirra viðurlaga,
sem lög kveða á um, og að auk þess
verði þáttur stjómenda útvarpsstöð-
varinnar í málinu athugaður.
Um er að ræða atvik, sem átti sér
stað daginn eftir að Alþingi sam-
þykkti lög um gagnagrunn á heil-
brigðissviði, þegar starfsmaður út-
varpsstöðvarinnar kom á þingpalla
og gerði hróp að þingheimi.
Friðrik sagði að maðurinn hefði
við yfirheyrslu játað að hafa verið
sendur út af örkinni af útvarpsþætt-
inum Tvíhöfða á X-inu og að lögregl-
an hefði áður verið kölluð til vegna
svipaðra uppátækja á vegum þáttar-
ins.
Friðrik sagði að eftir atvikið
hefðu forsvarsmenn stöðvarinnar
sent þinginu blómvönd ásamt ein-
hverjum orðum um að líta ætti á
þetta sem fyndni. Svo virtist sem
þeir hefðu ekkert séð athugavert við
háttalagið en Friðrik sagði að ef
mennirnir vildu biðjast afsökunai’
ættu þeir að gera það beint út.
Hann sagði að kæra vegna máls-
ins hefði verið send til lögreglustjór-
ans í Reykjavík. Hjá lögreglunni í
Reykjavík fengust í gær ekki upp-
lýsingar um gang rannsóknarinnar.
Morgunblaðið/RAX
Dráttarvextir lögaðila felldir niður eða endurgreiddir vegna frestunar á álagningu
500 af 6.100 lögaðilum
greiddu á réttum tíma
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur ákveðið að
heimila innheimtumönnum ríkissjóðs að fella niður
eða endurgreiða dráttarvexti sem lagðir voru á fyr-
irframgreiðslu lögaðila, hlutafélaga og sameignar-
félaga í ágúst, september og október á síðasta ári,
^^i'egna þess að skattyfirvöld ákváðu í júlí að fresta
álagningu skatta um þrjá mánuði eða fram í októ-
ber. Af alls um 6.100 skattskyldum lögaðilum í
landinu stóðu um 500 gjaldendur í skilum með fyr-
irframgreiðslu þinggjalda á þessu tímabili.
Skv. upplýsingum Ragnheiðai’ SnoiTadóttur, lög-
fræðings í íjármálaráðuneytinu, var talið eðlilegt að
fella niður dráttarvexti hjá þeim gjaldendum sem
fengu á sig áætlaða fyrirframgreiðslu þinggjalda á
,^4|imabi]inu ágúst-október ásamt dráttarvöxtum.
Hún segir ástæðuna þá að vegna sérstakra að-
stæðna sem rekja mátti til skattyfirvalda hafi verið
nauðsynlegt að fresta álagningu á lögaðila á síðasta
ári um nokkra mánuði. „Það var auglýst í Lögbirt-
ingablaðinu og Morgunblaðinu en þegai’ upp vai’
staðið kom í ljós að af um 6.100 greiddu um 500 á
réttum tíma. Lögaðilar sem hafa alla tíð staðið í
skilum hafa ekki séð þessar tilkynningar og
greiddu þai- af leiðandi ekki og fengu á sig dráttar-
vexti. Það var því greinilegt að þrátt fyrir að fyrir-
tæki hefðu greiðslugetu og greiðsluvilja fengu þau
á sig dráttarvexti. Menn töldu þetta ósanngjarnt og
vegna þessara sérstöku aðstæðna var ákveðið að
fella dráttarvextina niður,“ segir hún.
Að sögn Ragnheiðar liggja ekki fyrir upplýsing-
ar um hversu háa fjárhæð er að ræða sem heimilt
er að fella niður eða endurgreiða þar sem um áætl-
aða fyrirframgreiðslu vai’ að ræða. „Stór hluti
þurrkast sjálfkrafa út vegna þess að fyrirfram-
gi’eiðslan er hærri en álagningin varð í raun og
veru,“ sagði Ragnheiður.
Samtök verslunarinnar mótmæltu innheimtu
dráttarvaxtanna í nóvember sl. og héldu því fram
að óviðunandi væri að gjaldendur sem staðið hafi
skilvíslega við fyrirframgreiðslu gjalda fram til
þessa skuli vera krafðii’ um greiðslu dráttarvaxta
vegna tafa sem orðið hafi á álagningu og rekja
mætti til tölvuvandræða hjá skattyfirvöldum. Hef-
ur ráðuneytið nú tilkynnt samtökunum að ákveðið
hafi verið að fella niður dráttarvextina. Fyrirtækj-
um ber að beina kröfum um endurgreiðslu eða nið-
urfellingu dráttarvaxta til innheimtumanna
ríkisins.
Fundu þýfi
og fíkniefni
á heimili
LÖGREGLAN í Reykjavík hand-
tók mann á heimili sínu í gær og
lagði hald á talsvert magn fikní-
efna og þýfi.
Lögreglan hafði gi’un um að þýfi
væri að finna á heimili mannsins í
austurborginni. Hann hleypti ein-
kennisklæddum lögreglumönnum
inn til sín og veitti leyfi til húsleit-
ar.
Rúm 30 grömm af amfetamíni
og 17 grömm af hassi fundust við
leitina og mikið þýfí.
Maðurinn er í vörslu lögreglu og
málið fær sína venjubundnu fram-
vindu í framhaldinu. Talið er að
þýfið sé afrakstur margra inn-
brota. Maðurinn hefur áður gerst
brotlegur við lögin.