Morgunblaðið - 22.01.1999, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.01.1999, Blaðsíða 1
B L A Ð A L L R A LANDSMANNA i > (K rníj'' 6b • rnis -nk. i 6i ííj fífiii KNATTSPYRNA 1999 FÖSTUDA GUR 22. JANÚAR BLAÐ Góð byrjun í Belfast Smári næsti formaður ÍA? SMÁRI Guðjónsson, sem hefur þjálfað kvennalið ÍA í knattspyrnu, gefur kost á sér sem formaður Knatt- spyrnufélags íA á aðalfundi félagsins í næstu viku. Gylfi Þórðarson, formaður fé- lagsins, gefur ekki kost á sér til endurlyörs. Ljóst er að miklar breytingar verða á stjórn félagsins, þar sem sex af átta stjórnarmönnum gefa ekki kost á sér. Döring frá Magdeburg LOTHAR Döring, þjálfari þýska handknattleiksliðsins Magdeburg, sem Ólafur Stefánsson leikur með, var leystur frá störfum í gær. Ástæðan er slæmt gengi liðsins að undanförnu. Að- stoðarmaður hans Peter Rost tekur við stjórninni og stýrir liðinu í leik gegn Wuppertal um helgina. Al- freð Gislason tekur við þjálfun liðsins 1. júlí. ÍSLENSKA landsliðið f badminton lék fyrsta leik sinn í riðlakeppni Evrópumóts B-þjóða, Helvetia Cup, í Belfast á Norður-írlandi í gær. Mótherj- arnir voru frar og sigraði íslenska liðið 3:2 í spennandi leik. í dag mæta íslendingar liði Sló- vena og er íslenska liðið talið sigurstranglegra. Ef Island sigrar fer það í milliriðil þar sem keppt verður við þær þjóðir sem sigra í hinum þremur riðlunum sem spilaðir eru í Belfast. Tryggvi Nielsen sigraði í einliðaleik karla, 15/8, 13/15 og 15/11. Brynja Pétursdóttir tapaði i' einliðaleik kvenna, 4/11 og 9/11. Broddi Krist- jánsson og Ámi Þór Hallgrímsson unnu í tvíliða- leik karla, 15/9 og 15/4. Elsa Nielsen og Brynja unnu ítvíliðaleik kvenna, 15/11, 15/17 og 17/14 og þá var sigurinn í höfn. Drífa Harðardóttir og Tóinas Viborg spiluðu síðan tvíliðaleikinn og voru að spila í fyrsta sinn sarnan og Tómas að leika fyrsta landsleik sinn. Þau töpuðu 13/15 og 7/15. Morgunblaðið/Kristinn KR-ingur á afmælinu ARNA Steinsen, fyrrverandi þjálf- ari KR í knattspyrnu kvenna, hefur gengið til liðs við FH og gæti svo farið að hún léki með félaginu næsta sumar. „Ég er ekki tilbúin að hætta í íþróttum á meðan ég hef ánægju af,“ segir Arna Þrátt fyrir félagsskiptin segist Arna, sem er dóttir Arnar Steinsen, íyrrverandi landsliðsmanns úr hinu sigursæla KR-liði 1959, ekki full- komlega hafa sagt skilið við KR. í tilefni 100 ára afmælis félagsins í næsta mánuði hyggst hún skipta tímabundið á ný yfir í KR. „Ég hef verið að velta því fyrir mér að fara aftur yfir í KR fyrir af- mælið og vera KR-ingur rétt á með- an veislan er haldin," segir Arna. „Skipti síðan yfir í raðir FH-inga að afmælisfagnaðinum loknurn." Hér á myndinni fyrir ofan er Ama með eiginmanni sínum, Magn- úsi Pálssyni og börnum þeirra Ernu Guðrúnu, Erni Rúnari og Andra ■ Ætla... / C3 KÖRFUKNATTLEIKUR / ÚRVALSDEILDIN 189 eriendir leikmenn hafa komið - og farið Erlendir leikmenn í úrvalsdeild- inni í körfuknattleik hafa aldrei verið flerri en í ár. Alls hafa 27 er- lendir leikmenn komið við sögu í leikjum liðanna í deildinni og fjórir vora væntanlegir í gær eða á næstu dögum þannig að 31 erlendur leik- maður mun hafa leikið í úrvalsdeild- inni áður en langt um líður. Talsverð sprengja varð í þessum málum fyrir þremur árum eftir að dæmt var í hinu svokallaða Bosman- máli þvi í kjölfarið var liðum heimiit að hafa eins marga leikmenn frá löndum innan Evrópska efnahags- svæðisins. Veturinn 1995/96 voru 14 erlendir leikmenn í deildinni en vet- urinn eftir 28 og í fyrravetur voru þeir 25 sem komu við sögu hjá félög- unum tólf í úrvalsdeildinni. Frá því erlendir leikmenn voni leyfðir á ný, haustið 1989, hafa 189 leikið í úrvalsdeildinni og hér eru þeir aðeins taldir sem náð hafa að leika einhvern leik. Þegar farið er yfir þessi tæpu tíu tímabil kemur í ljós að sum lið virðast alltaf fá leik- menn sem þau eru ánægð með en önnur virðast alltaf í einhverjum erfiðleikum og þurfa stöðugt að skipta. Mestur hefur stöðugleikinn verið hjá Njarðvíkingum en þar hafa 7 erlendir leikmenn komið við sögu síðan haustið 1989. Valsmenn, sem leikið hafa í deildinni í níu af þessum tíu tímabilum, hafa einnig verið fastheldnir á sína menn en þar hafa 9 erlendir menn komið við sögu. Ellefu leikmenn hafa verið hjá Keflvíkingum þennan tíma en efstir tróna KR-ingar og Grindvík- ingar en þar hafa 18 erlendir leik- menn leikið á þessum tíma. KR skipti tvisvar um leikmann veturinn 1992/93 og aftur tveimur árum síðar. Síðustu tvö ár hafa einnig verið Vesturbæingum erfið því fjórir leikmenn komu við sögu í hitteðfyrra og þrír í fyrra og flestir léku mjög fáa leiki. Hjá Grindvíkingum hefur þetta verið jafnt og þétt og aðeins eitt tímabil þar sem ekki var talin ástæða til að skipta um leikmann, 1993/94, er Wayne Casey lék með liðinu. Skallagrímsmenn voru sáttir við sína menn frá 1989 til 1996 en þessi fimm tímabil komu aðeins tveir er- lendir leikmenn við sögu, Maxim Krupachev og Alexander Ermol- inskíj. Síðan þá hefur félagið fengið til sín níu erlenda leikmenn. Sömu sögu er að segja norðan frá Sauðár- króki en frekar tíðindalítið var á leikmannamarkaði liðsins allt til keppnistímabilsins 1996/97 er fimm leikmenn léku með liðinu. ■ Umhyggja... / C6 ■ Óeðlilegt... / C6 ■ Þjálfarar... / C5 SUND: ÖRN ARNARSON ÆTLAR AÐ SAUMA AÐ METUM í FLUGSUNDUM / C8

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.