Morgunblaðið - 03.02.1999, Side 2

Morgunblaðið - 03.02.1999, Side 2
2 C MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Búist við jafnari eftirspurn eftir íslenskum þorski Góður markaður íslenskan fisk LOGI Þormóðsson, fram- kvæmdastjóri útflutningsfyrir- tækisins Tross hf., sem selur fyrir íslenskan físk ferskar fiskafurðir til Bandaríkj- ^ anna, segir að sú ákvörðun sjáv- arútvegsyfirvalda á Nýja-Englandi í Bandaríkjunum að minnka þorskkvóta dagróðrabáta um helming muni að öllum líkindum gera spurn eftir íslensk- um físki stöðugi'i. Logi segir þó að þetta muni sennilega ekki hafa nein af- gerandi áhrif þar sem innanfjarðarkvótinn, sem um ræðir, hafí verið lítill og þorskveiðar verði enn stundaðar suðaustur af Þorskhöfða. Góður markaður hefur verið fyrir ferskan íslenskan fisk í Boston í Massachusettsríki. Árið 1997 vora flutt á Bandaríkjamarkað 2.150 tonn af ferskum ýsuflökum, 1.563 tonn af ferskum þorskflökum, 234 tonn af ferskum karfaflökum, um 270 tonn af ferskum flatfiskflökum i • og 18 tonn af ferskum laxa- og sil- ungsflökum. Þá voru flutt út 588 tonn af heilum ferskum silungi, 185 tonn af heilum ferskum laxi og nokkur hundruð kíló af öðrum heil- um fiski. Útflutningsverðmæti þessa sjávarafla nam yfir tveimur milljörðum króna. Mikið skorið niður við Nýja-England SJÓMENN í Nýja Englandi í Banda- ríkjunum eiga ekki sjö dagana sæla um þessar mundir. Vegna slæmrar stöðu fiskstofnanna hefur verið þrengt að þeim á ýmsan hátt á síðustu árum og nú hefur fiskveiðiráðið í Nýja Englandi ákveðið að helminga dag- legan þorskafla og loka stóra svæði á miðunum. Nær það frá Maine til Þorskhöfðaflóa. 2.500 sjómenn missa atvinnuna Sjómenn eru mjög óhressir með þessar nýju takmarkaðnir og segja, að þær muni segja til sín í allri greininni, allt frá veiðunum til veitingahúsanna. Eru sumir þeirra farnir að svipast um eftir annarri atvinnu en fiskkaupmenn eru nú að leita fyrir sér með þorsk í Kanada, íslandi og við Kyrrahafið. Segja þeir, að neytendur muni fljótlega fá að finna fyrir þessu. I sjálfu sér sé engin hætta á þorskskorti en fiskurinn frá Kanada og Islandi sé dýr. Svæðinu, sem verður lokað, verð- ur skipt upp í fjögur svæði og gildir lokunin raunar aðeins á einu í senn í maí, júní, október og nóvember. Þá verður einnig bannað að nota botn- veiðarfæri. Þessar reglur eiga þó eftir að fá samþykki bandaríska við- skiptaráðuneytisins. Of mikil sókn Á síðustu áram hefur verið gripið til margs konar aðgerða til að vernda þorskinn og aðra fiskstofna úti fyrir Nýja Englandsríkjunum en í desember sl. sögðu fiskifræðingar, að staða þorskstofnsins í Maineflóa hefði ekki verið verri í 30 ár. Þá var ákveðið að draga úr veiðinni um 80%. Sögðu þeir, að sóknin væri einfaldlega allt of mikil en talið er, að aðgerðirnar, sem nú hafa verið ákveðnar, muni leiða til þess, að 700 bátum verði lagt og 2.500 sjómenn missi atvinnuna. 10 fyrirtæki sýna á Boston Seafood ALLS munu 10 íslensk fyrirtæki taka þátt í alþjóðlegri sjávarátvegs- sýningu sem haldin verður í Boston dagana 16.-18. mars nk. Útflutn- ingsráð íslands skipuleggur þátt- töku íslensku fyrirtækjanna. Boston Seafood Show er alþjóðleg sjávarátvegssýning, ein hin stærsta sinnar tegundar í heiminum. Uppi- staðan í sýningunni era sjávarafurð- ir en auk þess era sýndar vélar, tæki og ýmis búnaður íyrir sjávarútveg. Alls taka um 750 fyrirtæki þátt í sýningunni og hana sækja um 22 þúsund gestir. íslensku íyrirtækin sem taka þátt í sýningunni eru, auk Útflutnings- ráðs: Eimskip, Marel, TM Software, Umbúðamiðstöðin, Flugleiðir, 3X- Stál, Landssmiðjan, Formax, Nor- fisk og Genis. Mikilvæg sýning Útflutningsráð íslands skipulegg- ur sýningarsvæði íslensku fyrir- tækjanna og segir Katrín Björns- dóttir hjá Útflutningsráði að þau verði með sama sýningarsvæði og undanfarin ár. Hún segir að þó áherslan sé einkum lögð á sjávaraf- urðir á sýningunni sé uppistaðan á sýningarbás íslensku fyrirtækjanna vélar og tæki. Engu að síður sé sýn- ingin talin geysilega mikilvæg. „Sýningin í Boston var stærsta sjáv- arafurðasýning í heimi áður en sýn- ingin í Brassel hófst. Hinsvegar má segja að Boston-sýningin miðist meii'a við Ameríkumarkað og hún er því mikilvæg að því leytinu til,“ seg- ir Katrín. MOKFISKA Á LINUNA FYRIR VESTAN • ÞEIR hafa verið að mok- físka á línuna fyrir vestan eins og annars staðar. Áhöfnin á Fjólu BA frá Patreksfírði er ein þeirra sem hefur verið að gera það gott. Þeir lönduðu fyrir skömmu 12 tonnum eftir 30 bala lögn eða um 400 kíló á bala. Aflinn hefur farið í enn meira á bala, að minnsta kosti Morgunblaðið/Birgir Þórbjarnarson 500 kíló. Þeir eru því kampa- kátir félagarair Óskar Jóns- son, skipstjóri, Grímur Grét- arsson og Guðmundur Birgis- son. T ogkraftur mikilvæg’ur við veiðar á kolmunna FÆREYSKA fjölveiði- skipið Christian í Grót- inum náði mjög góðum árangri á síðasta ári. Það var gert út í um 9 mánuði og fiskaði fyrir rúmlega 640 milljónir króna á þeim tíma. Alls varð aflinn 60.000 tonn, þar af 45.000 tonn af kolmunna. Útgerðarmaður skipsins, Kristian M. Rassmusen, segist ekki eiga von á svo gjöfulu ári í ár. Hann segir verð á hinum svokallaða uppsjáv- arfiski fara lækkandi. „Samvinna við veiðarnar nauðsyn fyrir íslendinga og Færeyinga“ „Við fengum skipið nýtt frá Chile í marz í fyrra. Það fór beint á veiðar og stundaði þær allt fram til jóla án þess að dagur dytti úr vegna byrj- unarörðugleika. Þetta skip hefur reynzt frábærlega vel og er greini- legt að skipasmiðir í Chile kunna vel til verka,“ segir Rassmusen í samtali við Verið. Ævintýri líkast „Þetta var ævintýri líkast í fyrra. Veiðarnar gengu eins og í sögu og verð á öllum tegundum, kolmunna, maki-fl, loðnu og sfld var í hámarki. Við hefðum ekki getað byrjað betur, en þetta verður ekki sama gósenár- ið í ár. Verðið er farið að lækka á þessum tegundum og þá gildir að ná sem mestum afla. Við geram okkar bezta í því. Þetta er öflugt skip og það er togkrafturinn sem gildir, þegar veiðar á kolmunna eru stund- aðar. Það er meira en 7.000 hestafla vél í skipinu og togkrafturinn yfrið nægur. Það hefur gert gæfumuninn hjá okkur,“ segir Kristian M. Rassmusen. Auk 45.000 tonna af kolmunna veiddi Christian í Grótinum, sem er gerður út frá Klakksvík, 5.000 tonn af loðnu og 10.000 tonn af síld og markrfl. Skipið er nú á kolmunna- veiðum, en þær stundar það fram á vorið er síldin, makríllinn og síðan loðnan taka við. Kolmunnaveiðin hefst svo á ný að áliðnu sumri. Rassmusen segir að kolmunninn haldi sig innan lögsögu Islands, Færeyja og í Síldarsmugunni megnið af árinu, en á útmánuðum gangi hann inn fyrir lögsögu Evr- ópusambandsins og hrygni út af ír- landi og víðar. Þá þétti hann sig og veiðin verði þá mest. Það sé hins vegar aðeins stuttur tími, megnið af árinu sé hann aðgengilegur fyi-ir ís- lendinga og Færeyinga. íslenzku skipin eiga góða möguleika „Ég tel að íslenzku skipin eigi góða möguleika á kolmunnaveiðun- um. Sum þeirra, eins og Beitir NK og Þorstein EA, hafa þegar sannað getu sína og nú er verið að setja stærri vélar í nokkur önnur og ný að koma inn. Það er hins vegar mik- ilvægt að Færeyingar og íslending- ar eigi með sér góða samvinnu við þessar veiðar og heimili hvorir öðr- um frjálsar kolmunnaveiðar innan lögsögu sinnar, því kolmunninn get- ur breytt göngum sínum og ekki er alltaf á vísan að róa. íslendingar hafa ekki möguleika á að elta kolmunnann inn í lögsögu Evrópu- sambandsins og verða því að nýta möguleikana vel áður en hann geng- ur of langt suður eftir,“ segir Rassmusen. Christian í Grótinum ber um 2.000 tonn í kælitönkum og landaði hann tvívegis á Eskifirði í fyrra. Rassmusen segir vel koma til greina að landa á Islandi eins og í Færeyjum og Noregi, það ráðist af aðstæðum hverju sinni. Norðmenn að kaupa sig inn í færeysku bátaútgerðina Norskur „tannfískbátur“ með veiðileyfi við Island NORÐMENN eru nú byrjaðir að kaupa sig inn í færeyskan sjávarútveg, en það mætir mikilli and- stöðu í Færeyjum. Tvö norsk fyrirtæki hafa, samkvæmt fréttum í norska blaðinu Fiskaren, selt tvo gamla báta til Færeyja. Þeir eiga þriðjung hluta- fjár í útgerðunum, sem keyptu bátana, sem er innan leyfilegra marka, þrátt fyrir að þeir eigi í raun meirihluta fjár í útgerðinni. Bátarnir fá svo úthlutað ákveðnum fjölda veiðidaga innan færeysku lögsögunnar eins og aðrir fær- eyskir bátar. Fiskaren segir að um sé að ræða tvo báta, Fröyanes og Vendla. Síðan segir blaðið svo: Á pappíranum er það færeysk útgerð, sem á meiri- hlutann í bátunum, en fjármagnið er allt norskt. Hvað varðar Fröya- nes hefur verið stofnað hlutafélag með um 90.000 króna færeyskt hlutafé og 30.000 króna norskt (eða um 1,2 milljónir íslenzkar krónur) til kaupa á bátnum til Færeyja. Þannig halda menn sig innan ramma færeysku laganna um eign- araðild og fjárfestingu útlendinga í sjávarútvegi. Sé hins vegar litið á raunveralega fjárfestingu er hlutur Norðmanna í bátnum 8 milljónir norskar (72 milljónir íslenzkar) og hlutur Færeyinga 4 milljónir (36 milljónir íslenzkar). Vilja að leyfið verði afturkallað Ervik Havfiske gekk nýlega frá samningi við færeyska útgerð um kaup á bátnum Fröyanesi. Færeyska útgerðin hefur leyfi til línuveiða við Færeyjar og ísland. Þau tíðindi að þessi tíu ára norski línubátur sé nú orðinn færeyskur hefur vakið harkaleg viðbrögð í Færeyjum. Meðal annars hafa farið fram umræður í Lögþinginu, en þar hefur þess verið krafizt að veiðileyfi bátsins verði afturkallað. Þrjár ástæður liggja að baki kröf- unni um afturköllun leyfisins; Af- kastageta hans er mun meiri en þeirra þriggja, sem hverfa úr rekstri vegna hans; Hinn raunveralegi eig- andi er ekki Færeyingur, heldur Er- vik Havfiske (norsk útgerð) og að báturinn er á skrá yfir þau skip, sem hafa stundað ólöglegar tannfiskveið- ar í Suðurskautshafinu. Fyrrverandi hvalbátur Hinn báturinn, Vendla, er fyrr- verandi hvalbátur, smíðaður árið 1948 en hefur verið breytt til veiða í nót og með flottroll. Það er félag í eigu Svend Aage Ellefsen, athafna- manns í Færeyjum, sem hefur keypt bátinn frá Áustevoll í Noregi. Félagið hefur neitað að gefa upplýs- ingar um hvernig samningurinn er og hverjir eigi hin 33%, sem eru í eigu Norðmanna, en 66% hlutafjár eru í eigu Færeyinga. Vendla verð- ur gerður út á kolmunnaveiðar til manneldis innan lögsagna Færeyja, Noregs og Evrópusambandsins og verður einnig beitt til veiða á al- þjóðlegu hafsvæði eins og Sfld- arsmugunni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.