Morgunblaðið - 05.02.1999, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ
____________________________FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1999 C 3
KNATTSPYRNA
Guðni Bergsson
Arnará
eftir að
standa sig
GUÐNI Bergsson, fyrirliði Bolton, seg-
ir að synd sé að sjá á eftir góðum vini
félaga í Arnari Gunnlaugssyni. „En
jafnframt hlýt ég að gleðjast fyrir hans
hönd og óska honum velgengni á nýj-
u*n vettvangi,11 sagði Guðni.
Fyrirliðinn hefur átt í erfiðum
meiðslum á þessari Ieiktíð, en Bolton
hefur gengið ágætlega upp á síðkastið
°g er sem stendur í þriðja sæti. „Amar
hefur reynst Bolton afskaplega vel,
hann hefiir skorað inörg mörk og sýnt
mjög góða takta. Þess vegna hafa önn-
ur lið lýst yfir áhuga á honum og verið
tilbúin að greiða háar íjárhæðir."
Guðni hefur leikið bæði í úrvalsdeild
°g 1. deild með Bolton Wanderers og
um skeið með Tottenham í efstu deild.
Arnar var tvívegis í byrjunarliði
Bolton í úrvalsdeildinni á síðustu leik-
i 'fi'ð, en kom að auki þrettán sinnum inn
á sem varamaður. Breskir fjölmiðlar
gerðu því skóna í gær að Arnar yrði
jafnvel í byijunarliðinu á morgun gegn
Sheffield Wednesday, svo ekki fær
* hann langan tíma til að aðlagast nýjum
félöguin og sterkari deild. „Það er þó
nokkur munur á deildunum. í úrvals-
deildinni em almennt betri leikmenn
°g betri lið með fjölmennum og sterk-
11 m leikmannahópum. Ég hef hins veg-
ar engar áhyggjur af því, Arnar hefur
oft sýnt hversu leikinn hann er með
' boltann og það á eftir að nýtast honuin
Yel. Vissulega fá leikmenn í úrvals-
deilðinni meiri athygli og ekki er að
efa að í Leicester verður mikið fjallað
um Arnar á næstunni, enda kostar
bann liðið svo mikla peninga. Martin
G’Neill [knattspyrnustjóri Leicester]
hefur hins vegar oft lýst yfir hrifningu
sinni á Ai-nari og þess vegna er ekki
ástæða til annars en að vera bjart-
í sýnn,“ segir Guðni ennfremur.
Guðni bætti þvf við að Bolton setti
> stefnuna beint á sæti í úrvalsdeildinni á j
Þuýjan leik, enda teldu menn að liðið
ætti heima á meðal þeirra bestu. „Von-
andi gengur það upp og þá verður
3 igaman að Ieika gegn Arnari á næstu
Aleiktíð. Það gæti orðið virkilega
áskemmtilegt."
Morgunblaðið/Golli
ARNAR Gunnlaugsson er hér í baráttu við besta markvörð HM í Frakklandi, Fabien Barthez, þegar
Frakkar náðu jafntefli við íslendinga á LaugardalsveUinum sl. sumar, 1:1.
Amar til
Leicester
fyrir metfé
LEICESTER City, sem leikur i ensku urvalsdeildinni i knatt-
spyrnu, festi í gær kaup á íslenska landsliðsframherjanum Arn-
ari Gunnlaugssyni frá 1. deildarliðinu Bolton Wanderers. Kaup-
verð Arnars er talið vera á bilinu 240 til 290 milljónir króna og
þar með er Ijóst að Arnar er dýrasti leikmaður í sögu íslenskrar
knattspyrnu.
Amar er markahæstm- leik-
manna Bolton í 1. deildinni,
hefur gert fjórtán mörk og var m.a.
útnefndur leikmaður september-
mánaðar í deildinni af Sky-sjón-
varpsstöðinni. Snemma tókust því
að berast fregnir af áhuga stórliða á
kappanum og viðræður hans og
Bolton um nýjan samning sigldu í
strand. Fyrir tveimur vikum fór
Arnar svo formlega fram á að vera
settur á sölulista hjá félaginu.
Sýndist sitt hverjum um þá
ákvörðun leikmannsins, m.a. sagði
Colin Todd, knattspyrnustjóri
Bolton, leikmanninn gráðugan og
talsmaður Bolton sagði við Morgun-
blaðið að þar á bæ teldu menn Arn-
ar hafa mjög slæma ráðgjafa. Engu
að síður var fallist á beiðnina og
Arnar hafði opinberlega verið í viku
til sölu er forráðamenn Leicester
lýstu formlega yfir áhuga sínum.
Beint í byrjunarliðið?
I gær gekk stjórn Bolton svo að
tilboði Leicester, sem hljóðar upp á
2 til 2,5 milljónir punda, og búist við
því að Arnar skrifi undir samning
fyrir hádegi í dag. Fari svo er hann
gjaldgengur í lið Leicester sem tek-
ur á móti Sheffield Wednesday í úr-
valsdeildinni á morgun. Er jafnvel
talið að hann fari beint í byijunar-
liðið, enda hefur Emile Heskey,
helsti framherji liðsins, átt í meiðsl-
um, og gæti Arnar því leikið með
hinum gamalkunna Tony Cottee í
framlínunni.
„Ég óska Arnari alls hins besta,“
sagði Colin Todd í gærkvöldi.
„Hann hefur gert góða hluti með
liðinu og vonandi tekst honum að
aðlagast Leicester. Okkar verkefni
er að einbeita okkur að því að kom-
ast aftur í úrvalsdeildina og fyrir
höndum er leikur gegn Grimsby,“
bætti þjálfarinn við. Hann stóð fast
við bakið á Arnari um síðustu helgi
er aðdáendur Bolton bauluðu á leik-
manninn þann stundarfjórðung sem
hann lék sem varamaður í sigurleik
gegn Norwich.
Kaupverð Ai-nars hefur ekki end-
anlega verið staðfest, opinberar
heimasíður Bolton og Leicester
gi-einir á um það svo nemur hálfri
milljón punda. Síða Bolton segir
kaupverðið 2,5 milljónir punda.
Ekki er ólíklegt að í samningnum
séu ákvæði um hækkun kaupverðs í
samræmi við fjölda leikja Amars
með Leicester og má skv. heimild-
um Morgunblaðsins búast við að
endanlegt verð verði nálægt 290
milljónum króna.
Dýrasti leikmaður liðsins
Það þýðir að Arnar er dýrasti
leikmaður í sögu Leicester-liðsins.
Varnai-maðurinn Frank Sinclair átti
fyrra metið, hann var keyptur íyrir
síðustu leiktíð á tvær milljónir
punda frá Chelsea.
Þess má geta að Arnar fór frá
Akranesi sumarið 1997 til Bolton og
var kaupverð þá gefið upp 15 millj-
ónir, sem skiptust milli leikmanns-
ins og IA. Akurnesingar hafa hins
vegar ekkert upp úr sölunni nú,
enda lék Arnar aðeins tvo leiki með
ÍA 1997, kom þaðan frá Sochaux í
Frakklandi.
Arnar er 25 ára gamall, tvíbura-
bróðir Bjarka, atvinnumanns með
Brann í Noregi. Hann varð marka-
kóngur íslandsmótsins leiktíðirnar
1992 og 1995, skoraði 15 mörk í 18
leikjum 1992 og 16 mörk í 9 leikjum
þremur árum síðar. Alls hefur hann
skorað 35 mörk i 47 leikjum í efstu
deild hér á landi. Þá hefur hann
leikið 27 landsleiki og gert í þeim
tvö mörk. Hann lék um tíma með
bróður sínum með hollenska liðinu
Feyenoord og þýska liðinu Núrn-
berg. Hann var leikmaður Sochaux í
Frakklandi um tveggja ára skeið,
en skrifaði undir samning til
þriggja ára við Bolton 10. júlí 1997.
■ MARCELO Bielsa hóf landsliðs-
þjálfarastarf sitt hjá Argentínu
með sigri. Argentínumenn fögnuðu
sigri í Venezuela fyrir framan 30
þús. áhorfendur í Maracaibo, 2:0.
Bielsa tefldi eingöngu leikmönnum
sem leika í Argentínu. Heimamenn
léku sinn fyrsta leik undir stjórn
Argentínumannsins Jose Omar Pa-
storiz.
■ RYAN Giggs gæti misst af leik
Manchester United og Intern-
azionale í átta liða úrslitum Meist-
aradeildar Evrópu vegna meiðsla í
hné sem hann varð íyrir í leik gegn
Derby á miðvikudagskvöldið. Svo
óheppilega vildi til að Giggs meidd-
ist einnig í leik gegn Derby í fyrra
og varð þá af leiknum við Mónakó í
8-liða úrlsitum Meistaradeildarinn-
ar.
■ LUCIANO Spalletti hefur verið
endurráðinn þjálfari Sampdoria að-
eins sex vikum eftir að hann var
rekinn úr sama starfi hjá félaginu.
Spalletti leysir eftirmann sinn, Da-
vid Platt, af hólmi en ferill hans
sem þjálfara hjá félaginu var upp-
skerurýr.
■ EDOARDO Reja var í gær ráð-
inn þjálfari Vicenza eftir að félagið
lét Franco Colomba fyrr í vikunni
eftir brösótt gengi, en félagið er í
16. sæti deildarinnar.
■ RUUD GuIIit knattspymustjóri
Newcastle fór í gær til Zagreb í
þeim tilgangi að ganga frá samningi
við króatíska miðvallarleikmanninn
Silvio Maric hjá Kroatia Zagreb.
Newcastle borgaði 4 milljónir
punda fyrir leikmanninn, sem er 24
ára.
■ LUC Borrelli, hinn gamalreyndi
markvörður Lyon, lést í bílslysi á
miðvikudaginn á hraðbraut á milli
Parísar og Lyon. Bíll hans hafnaði
aftan á vörubíl með þeim afleiðing-
um að það kviknaði eldur í bfl
Borrellis og ekki fékkst við neitt
ráðið.
■ DZEMALUDIN Musovic lands-
liðsþjálfari Bosníu í knattspyrnu
hefur sagt af sér í framhaldi af 2:1
tapi fyri Möltu í vináttulandsleik.
Rætt er um að Ivica Osim taki við
landsliði Bosníu en hann stýrði Jú-
góslövum á HM 1990 þar sem þeir
komust alla leið_ í 8-liða úrslit en
töpuðu þá fyrir ftölum. Osim er nú ,
þjálfari hjá Sturm Graz í Austur-
ríki.
■ STJÓRN knattspyi’nusambands
Ungverjalands hefur verið sett til
hliðar í framhaldi af rannsókn á
fjármálum sambandsins, að sögn
Tamas Deutsch, íþróttamálaráð-
hen-a landsins, en m.a. virðist vanta
um 60 milljónir króna í sjóði þess.
Attila Lovacs, formaður knatt-
spyrnusambandsins, er meðal
þeirra sem hefur orðið að víkja.
■ TOTTENHAM gekk frá kaupum
á miðvallarleikmanninum Tim
Sherwood frá Blackburn á fjórar
millj. punda. Hann leikur líklega
með liðinu gegn Coventry um helg-
ina.
■ SHERWOOD er 30 ára. Hann lék
með Watford og Norwich áður en
hann gekk til liðs við Blackburn
fyrir sjö árum.
■ BRYAN Robson, fyi-rum fyrirliði
Englands og núverandi knatt-
spyrnustjóri Middlesbrough, telur
að Terry Venables, fyrrverandi
landsliðsþjálfari Englands, sé rétti
maðurinn til að taka við enska
landsliðinu.
■ ROBSON, sem sjálfur hefur ver-
ið orðaður við landsliðsþjálfara- ^
starfið, hefur sagt að hann væri
ekki á fórum frá Middlesbrough.
Glenn Iloddle tók við þjálfarastarf-
inu af Venables 1996, eftir EM í
Englandi. „Teny er snjall þjálfari,“
sagði Robson og bætti við: „Það er
engin hætta á að enska knatt-
spyrnusambandið ráði erlendan
þjálfara." f