Morgunblaðið - 06.02.1999, Blaðsíða 1
B L A Ð
A L L R A
LANDSMANNA
Tólf mánaða
1999
ISI / LYFJAMAL
Páll Axel
hreinsað-
ur af gmn
PÁLL Axel Vilbergsson, leikmaður
körfuknattleiksliðs Grindavíkur, var í
gær hreinsaður af gran um að hafa
gerst sekur um misnotkun karla-
hormónsins testosterones, og ann-
arra lyfja sem bannað er að neyta í
tengslum við æfingar eða keppni í
íþróttum, en um málið hefur verið
nokkuð fjallað í fjölmiðlum síðastalið-
inn mánuð.
„Þann 12. nóvember sl. var Páll Ax-
el Vilbergsson, leikmaður með úrvals-
deildarliði UMFG í köifuknattleik,
boðaðm- í lyfjaeftirlit,“ segir í fretta-
tilkynningu frá Heilbrigðisráði ÍSÍ í
gær. „Greining á sýni hans sýndi að
hlutfallið milli kai-lhormónsins
testosterones og óvirka efnisins
epitestosterons (T/E-hlutfall) var 6.9,
en svo hátt hlutfall gat bent til þess
að Páll hefði gerst sekur um misnotk-
un testosterons. Það gat þó einnig átt
sér eðlilegar skýringar og samkvæmt
heilbrigðisreglum Aiþjóða Olympíu-
nefndarinnar bar heilbrigðisráði ISI
skylda til að rannsaka málið ífekar."
Síðai'_ í fréttatilkynningu Heilbrigðis-
ráðs ISI segh-:
„Með greiningu á fleiri sýnum sem
tekin hafa verið af Páli síðustu vikur
hefur verið sýnt fram á að honum er
eðlilegt að hafa hátt T/E-hlutfall í lík-
ama sínum. Auk þess hefur gi'eining
á ísótópasamsetningu testosterons og
skyldra efna í sýnum leitt í ljós með
óyggjandi hætti að í þeim er ekkert
utanaðkomandi testosteron að finna.“
I samtali við Morgunblaðið í gær
sagðist Sigurður Magnússon, starfs-
maður ISI, ekki telja að sú umfjöllun
sem þetta mál hefði fengið á meðan
rannsókn stóð yfir kalla á breytt
vinnubrögð af hálfu Heilbrigðisráðs
ÍSÍ, en á meðan rannsókn stóð yfir
var talvert fjallað um það í fjölmiðl-
um. „Eg tel að Heilbrigðisráð ISI hafi
staðið rétt að málum þegar fjölmiðlar
hafa óskað eftfr upplýsingum um það
og sagst hafa heimildir fyrir því. Við
höfum aldrei gefið upp nafn íþrótta-
mannsins fyrr en nú þegai' endanleg
niðurstaða iiggur fyrir, enda annað
gagnstætt þeim vinnui-eglum sem við
höfum. Það eina sem við gerðum var
að viðurkenna aðspurðir að rannsókn
á einstöku máli væri í gangi eftir að
það komst til fjölmiðla. Þangað barst
það að sjálfsögðu ekki að okkar frum-
kvæði. Við töldum hins vegar betra
að staðfesta að rannsókn á máli væri í
gangi þegar þetta kom upp í stað þess
að þegja. Þannig vildum við koma í
veg fyrir að villandi upplýsingar
kæmu fram,“ sagði Sigurður.
LAUGARDAGUR 6. FEBRUAR
BLAÐ
VIÐURKENNINGAR
leikbann
AGANEFND Knattspyrnusambands íslands
ákvað á fundi sínum í gær að úrskurða leikmann
í 2. fiokki karla hjá KA í tólf mánaða keppnis-
bann. tírskurðurinn er felldur í kjölfar atviks í
leik á Islandsmóti innanhúss sem fram fór á
Akureyri 29. janúar sl. Leikmaðurinn rotaði þá
knattspyrnudómara eftir að hafa fengið að sjá
rauða spjaldið fyrir að sparka í andstæðing.
Bannið gildir í þeim aldursflokkum sem leik-
maðurinn er hlutgengur til keppni í og byggist á
ákvæðum í starfsreglum aganefndar KSI. Þær
segja m.a. til um heimild til tímabundins keppn-
isbanns í öllum aldursflokkum ef um alvarlegt
eða ítrekað brot er að ræða.
Stefán Gunnlaugsson, formaður knattspyrnu-
deildar KA, sagði að KA-menn tækju dóminum
af karlmennsku. „Auðvitað vonuðumst við eftir
styttra banni, en við bjuggust allt eins við þessu.
Aganefndin hefur lagt mjög
mikla vinnu í þetta mál, m.a.
aflað gagna frá útlöndum.
Við hlítum að sjálfsögðu
þessum dómi - hann er end-
anlegur af okkar hálfu,“
sagði Stefán.
Stefán bætti því við að
hann væri sáttur við hversu
skjótt aganefndin hefði
brugðist við í þessu máli og
væri það öðrum íþrótta-
greinum til eftirbreytni.
„Það er gott að þetta mál er
afstaðið, þessi ungi og efni-
legi leikmaður mun æfa vel
með okkur næsta árið og
mæta svo tvíefldur til leiks
þegar banninu Iýkur.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Broddi íþróttamaður Reykjavíkur
BRODDI Kristjánsson, badmintonmaður, var í gær útnefndur íþróttamaður Reykjavíkur og tók hann
á móti viðurkenningu sinni úr hendi Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur borgarstjóra Reykjavíkur.
Broddi er 38 ára og hefur unnið 37 íslandsmeistaratitla í iþrótt sinni auk þess sem hann er lands-
liðsþjálfari. Þetta er í annað sinn sem Broddi hlýtur þessa viðurkenningu.
KNATTSPYRNA
Jón Kr. til
Fylkis
JÓN Kr. Gíslason, landsliðs-
þjálfari í körfuknattleik, hef-
ur tímabundið tekið við þjálf-
un meistaraflokks Fylkis
þannig að liðið geti a.m.k. lok-
ið keppni á íslandsmótinu, en
til stóð að draga liðið út úr
keppni í 1. deild karla. Ástæð-
an var fjárhagsvandi og erfið-
leikar við að fá fólk til starfa,
en nægur áhugi var fyrir
hendi hjá ungmeunum í Árbæ
að stunda æfhigar í
körfuknattleik. Körfuknatt-
leikssamband íslands ákvað
að hlaupa undir bagga með
Fylkismönnum svo þeir gætu
lokið keppni í 1. deild með því
að lána þeim Jón Kr. landslið-
þjálfara. Mun hann stýra
Fylkismönnum íþeim leikjum
sem eftir eru á íslandsmótinu
jafnframt því sem hann þjálf-
ar liðið þrisvar í viku.
Fer Arnar beint í byvjunarliðið?
ARNAR Gunnlaugsson, framherji íslenska landsliðsins í knatt-
spyrnu, skrifaði í gær undir samning til þriggja og hálfs árs við
enska úrvalsdeildarliðið Leicester City. Staðfest hefur verið að
kaupverð hans nemi tveimur milljónum punda, eða um 230 millj-
ónum króna. Jafnar það dýrustu kaup Leicester til þessa og gerir
Arnar að dýrasta leikmanni íslenskrar knattspyrnu.
Þetta er frábært tækifæri fyrir
leikmanninn,“ sagði Martin
O’Neill, knattspyrnustjóri Leicester,
á blaðamannafundi í gærkvöldi.
„Hann hefur hæfileikana til að leika í
úrvalsdeildinni og nú er fyrir hann að
sanna að hann hafi andlegan styrk til
að standa sig þar,“ sagði O’Neill enn-
fremrn-, en Árnar fékk aðeins tvö
tækifæri í byrjunarliði Bolton í úr-
valsdeildinni á síðustu leiktíð, en kom
þeim mun oftar inn á sem varamaður.
„Ég vil ekki leggja of mikið á
hann í byrjun, hann er ekki lausnin á
öllum vandamálum okkar, en Arnai'
er metnaðarfullur og nú er í hans
valdi að sýna hvað hann getur. Við
væntum ekki kraftaverka, en hans
framlag gæti reynst dýrmætt," sagði
O’Neill, sem telur að með tiikomu
Arnars muni samkeppni um stöður í
liðinu aukast, þótt það verði varla
fyrst í stað.
O’Neill bætti því við að hann teldi
Arnar koma til liðsins á hárréttum
tíma. Liðið sé í undanúrslitum déild-
arbikarsins og ætli sér sæti í Evrópu-
keppni á næstu leiktíð. Hann viður-
kenndi þó að helst af öllu hefði hann
viljað kaupa John Hartson, framherj-
ann sem Wimbledon keypti á dögun-
um fyrir 7,5 milljónir punda frá West
Ham, en því hafi Leicester hreinlega
ekki haft efni á. „Ég er þó sannfærð-
ur um að í Arnari höfum við gert
mjög góð kaup, en 230 milljónir er
ekki lítið fé fyrir leikmann sem ekki
leikur í efstu deild.“
Arnar Gunnlaugsson sagði að
draumar hans væru nú að rætast.
„Ég vil leika í úrvalsdeildinni. Ég hef
mikla trú á Leicester og þeim mark-
miðum sem liðið hefur sett sér. Ég tel
að leikstíll minn henti Leicester vel.“
Á fundinum kom fram að O’Neill
hefði lengi fylgst með Arnari með það
í huga að fá hann í framlínuna við hlið
Emile Heskey og Tony Cottee.
Amar fékk skyrtu nr. 13 og hann
er í leikmannahópi Leicester sem
tekur á móti Sheffield Wednesday í
dag. O’Neill vildi ekki staðfesta
hvort íslenski framherjinn færi beint
í byrjunarliðið. Arnar sagðist þó yfir
sig spenntur. „Ég veit að ég er í
hópnum og vonandi fæ ég að taka
þátt. Það væri frábært að byrja fyrir
framan aðdáendur liðsins á heima-
velli." Hann bað sjálfur um treyju-
númerið, þar sem 13 er happatala
fóður hans. „Vonandi verður hún
happatalan mín líka,“ sagði hann.
50. MEISTARAMÓT ÍSLANDS í BADMINTON / B3