Morgunblaðið - 06.02.1999, Blaðsíða 4
tmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
KÖRFUKNATTLEIKUR / BIKARÚRSLIT
Heilmikill
hvevfarígur
Fyrirliðar í
Reykja-
nesbæ
ÞEIR verða í eldlínunni
í bikarúrslitaleik karla í
körfuknattleik í dag,
fyrirliðarnir Guðjón
Skúlason (t.v.) hjá Kefla-
vík og Friðrik Ragnars-
son hjá Njarðvík.
ÓHÆTT er að kalla viðureign
Keflvíkinga og Njarðvíkinga
hverfaríg, því svo er komið að
bæði félögin tilheyra sama
bæjarfélaginu - Reykjanesbæ
- og mætast þannig fyrsta
sinni í bikarúrslitum.
Guðjón Skúlason, fyrirliði Kefl-
víkinga, segir að þetta sé
skemmtileg staðreynd og örugglega
verði mikill hverfarígur í Laugar-
dalshöll. Hann viðurkennir að sam-
kvæmt stöðu liðanna í deildinni
megi telja Keflavíkurliðið sigur-
stranglegra í leiknum, en Njarðvík-
ingar séu með reynt lið og allt geti
gerst í bikarnum.
„Ef við höldum okkar striki er
ljóst að við höfum ekkerí að óttast.
Við höfum marga góða leikmenn -
mikla breidd. Þannig ættum við að
geta látið þá svitna vel og hafa fyrir
hlutunum. Em jafnframt megum við
ekki gera okkur seka um vanmat,
slíkt býður aðeins hættunni heim og
er ekki gott veganesti í bikarúrslita-
leik,“ sagði Guðjón.
Hann segir að allir séu heilir í
Keflavíkurliðinu og hlakki mikið til.
„Við höfum verið á mjög góðri sigl-
ingu í deildinni og þess vegna hefur
skapast skemmtileg stemmning í
vetur, leikmenn og aðstandendur
liðsins hafa sjálfstraustið í lagi. Við
ákváðum fyrir tímabilið að stefna á
sigur í öllum keppnum og höfum
þegar staðið við það að sigra í
Eggjabikarnum".
Mikil hefð í
herbúðum Njarðvíkinga
Teitur Örlygsson er einn reynslu-
mesti leikmaður Njarðvíkinga og
hann þekkir vel þau átök sem fylgja
spennandi úrslitaleik í bikarkeppn-
inni. „Þeir eru sigurstranglegri í
leiknum, það er ekki spurning," seg-
ir hann um mótherjana og nágrann-
ana í Keflavíkurliðinu.
„Við lentum í hremmingum í síð-
asta leik okkar í deildinni, töpuðum
þá fyrir KR og kannski getum við
nýtt okkur það í uppbyggingunni
fyrir leikinn. Vandinn er að knýja
fram þessa vonsku og orku sem
fylgir spennandi íþróttaleikjum og
nýta þessa þætti sér til framdráttar
inni á vellinum. Við eigum vissulega
við ramman reip að draga, en það er
mikil hefð í herbúðum okkar Njarð-
víkinga og við gefum ekkert fyrr en
í fulla hnefana."
Teitur segir ekki spilla fyrir að nú
sé um sannkallaðan hverfísslag að
ræða og íbúar Reykjanesbæjar
verði áreiðanlega fjölmennir á
áhorfendapöllum Laugardalshallar í
dag. „En það verða líka aðrir áhuga-
menn um körfuknattleik og ég er
ekki í vafa um að bekkurinn verði
þétt setinn. Það ætti líka að tryggja
góða stemmningu og skemmtilegan
leik, enda er þetta óneitanlega
stærsti einstaki viðburðurinn í ís-
lenskum körfuknattleik á hverju
ári.“
'
Morgunblaðið/Björn Blöndal
Afmælisgjöf til KR?
KR-stúlkur hafa ekki tapað leik í
deildinni á leiktíðinni og hafa ör-
ugga forystu á toppi deildarinn-
ar. Þær verða því að teljast,
sterkari fyrirfram en Guðbjörg
Norðíjörð Elíasdóttir segir þó
ljóst, að þær hafi ekki efni á van-
mati í úrslitaleiknum.
„Það breytir ekki þeirri stað-
reynd að við ætium okkur að
sigra í þessum leik, það er alveg
á hreinu. Stúdínur eru þó verð-
ugir andstæðingar og tókst að
slá Keflavík út í undanúrslitum,
sem er ekki svo lítið. Hins vegar
er KR hundrað ára þessu ári og
bikarinn verður fyrsta afmælis-
gjöfin til félagsins og við munum
gera allt sem í okkar valdi stend-
ur til að svo megi verða,“ sagði
Guðbjörg.
Af fremur augljósum ástæðum
er Alda Leif Jónsdóttir, leikmað-
ur íþróttafélags stúdenta, ekki
jafnhrifin af hugmyndinni um af-
mælisgjöf fyrir KR. „Nei, við ætl-
um að mæta í þennan ieik og
taka bikarinn. Þótt við höfum
tapað fyrir KR í deildinni í vetur
erum við samt eina liðið sem hef-
ur náð að vinna KR á leiktíðinni,
það gerðum við í haust þegar við
unnum Reykjavíkurmótið. Það er
því vel hægt að sigra þær og það
ætlum við okkur að gera með
góðum leik,“ sagði Alda Leif enn-
fremur.
Segja má að um tvö Vestur-
bæjarlið sé að ræða, en með mis-
mikla hefð að baki. Þannig mun
KR-klúbburinn hita upp sérstak-
lega fyrir leik og mæta með
stóran hóp stuðningsmanna, en
ÍS státar ekki af slíku, „stuðn-
ingsmennirnir eru kannski
meira svona vinir og vanda-
menn,“ eins og Alda Leif orðar
það. Engu að síður segir hún að
þeirra menn muni hafa hátt á
bekkjunum og styðja vel við
bakið á sínu liði.
Szabo með
Evrópumet
í stöng
UNGVERJINN Zsuzsa Zsabo
setti í fyrrakvöld Evrópumet
í slangarst ökki kvenna á
móti í Búdapest. Zsabo stökk
4,51 metra, en fyrra met átti
Daniela Bartova frá Tékk-
landi, 4,48 inetra, það setti
hún í Sindelfingen í Þýska-
Iandi 9. mars í fyrra. Þessi
árangur Zsabo er jafn Evr-
ópumetinu utanhúss en það
er í eigu Bartovu hinnar
tékknesku. Árangur Zsabo
lofar góðu fyrir heimsmeist-
aramótið í fijálsíþróttum
sem fram fer í Japan fyi-stu
helgi marsmánaðar. Núver-
andi heimsmeistari í stangar-
stökki kvenna er Bandaríkja-
inaðurinn Stacy Dragila.
FOLK
■ RYAN Giggs verður a.m.k. einn
mánuð frá keppni með Manchester
United eftir meiðsli sem hann hlaut
gegn Derby á miðvikudaginn. Þetta
kom í ljós við læknisskoðun í gær.
■ MANCHESTER UNITED sækir
neðsta lið úrvalsdeildarinnar, Nott-
ingham Forest, heim í dag. Leik-
menn United hafa ekki tapað í síð-
ustu fjórum heimsóknum sínum á
City Ground og ekki beðið lægri hlut
í sex viðureignum í deildinni og bik-
arnum á þessu ári.
■ CHELSEA, sem er í öðru sæti úr-
valsdeildarinnar, fær hins vegar ann-
að botnlið í heimsókn, leikmenn
Southampton.
■ BRIAN Kidd og liðsmenn hans hjá
Blackburn fara til Villa Park í Brim-
ingham og leika við Aston Villa, en
Blackburn vann fyrri leikinn á
heimavelli, 2:1. Sigurmai-kið gerði
Tim Sherwood, sem nú hefur gengið
í raðir Tottenham.
■ REIKNAÐ er með að Sherwood
verði í byrjunarliði Tottenham, sem
leikur í dag við Coventry á White
Hart Lane.
■ ALEX Ferguson knattspyrnu-
stjóri Manchester United var í gær
útnefndm- knattspyrnustjóri mánað-
arins í ensku úrvalsdeildinni. Þetta
er í sjöunda sinn sem hann er út-
nefndur og hefur enginn knatt-
spyrnustjóri hlotið þessa nafnbót oft-
ar síðan hún vai- fyi'st kynnt til sög-
unnar haustið 1993. Manchester
United vann alla fimm leiki sína í
deildinni í janúar.
■ DWIGTH York lærisveinn Fergu-
sons var útnefndur leikmaður janú-
armánaðar í ensku úrvalsdeildinni í
gær. Hann skoraði fimm mörk í leikj-
um úrvalsdeildarinnar í nýliðnum
mánuði.
■ IAN Rush, sem nú er leikmaður
og þjálfari hjá Wrexham, segist hafa
í hyggju að hætta að leika knatt-
spyrnu í lok þessa mánaðar og ein-
beita sér að þjálfun. Rush er 37 ára
gamall og gerði í fyrrasumar eins árs
samning við Wrexham.
■ STEVE McLaren þjálfari hjá Der-
by hefur verið ráðinn aðstoðarmaður
Alex Fergusons hjá Manchester
United og er honum ætlað að koma í
stað Brians Kidds sem réðist sem
knattspyrnustjóri Blackburn fyrir
nokkru. í stað McLarens hjá Derby
er kominn Ray Harford sem eitt sinn
var knattspyrnustjóri hjá Blackburn.
■ JOHN Barnes fyrrverandi leik-
maður Liverpool og enska landsliðs-
ins gæti verið á leið til Charlton. Al-
an Curbishley, framkvæmdastjóri
liðsins vill gjarnan fá kappann í sínar
raðir en Barnes hefur aðeins leikið í
23 mínútur með Newcastle á leiktíð-
inni.