Morgunblaðið - 06.02.1999, Blaðsíða 3
2 B LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
+
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 1999 B 3
ÚRSLIT
ÍÞRÓTTIR
BADMINTON
Körfuknattleikur
Úrvalsdeildin í körfuknattleik
karla
íþróttahúsið Torfunesi, ísafirði:
Gangur leiksins: 4:0, 12:2, 18:8, 20:18, 30:19,
39:28,52:30, 60:35, 62:47,70:54,82:61, 86:71.
Stig KFÍ: James Cason 32, Ólafur Ormsson
17, Hrafn Kristjánsson 12, Mark Quasie 9,
Baldur Jónasson 6, Reynir Þrastarson 4,
Pétur Sigurðsson 4, Tómas Hermannsson 2.
Fráköst: 31 í vörn -13 í sókn.
Stig Þórs: Brian Reese 25, Sigurður
Sigurðsson 8, Einar Aðalsteinsson 7, Óðinn
Asgeirsson 7, Davíð Guðlaugsson 5, John
Carglia 5, Magnús Helgason 5, Konráð
Óskarsson 4, Hafsteinn Lúðvíksson 4,
Hermann Hermannsson 1.
Fráköst: 25 í vörn -12 í sókn.
Villur: KFÍ 22 - Þór 23.
Dómarar: Einar Skarphéðinsson og
Erlingur Erlingsson.
Áhorfendur: Um 200.
1. deild karla
Hamar - Stjarnan...............79:88
Þór Þ. - Breiðablik...........100:77
Handknattleikur
2. deild karla
Þór A. - Fylkir................20:19
Þýskaland 1. deild
Bad Scwartau - Gummersbach.....32:24
Blak
1. deild karla
KA-ÍS............................1:3
Knattspyma
England 1. deild
Bristol City - Q.P.R.............0:0
2. deild
Colchester - York................2:1
3. deild
Swansea - Brighton...............2:2
Tennis
Pan Pacific open í Tókýó
Einliðaleikur kvenna, 8-manna úrslit:
3- Jana Novotna (Tékklandi) vann 8-Natasha
Zvereva (Hvíta-Rússlandi) 7-6, keppni hætt.
4- Monica Seles (Bandar.) vann 6-Anna Ko-
umikova (Rússlandi) 7-5 6-3
7-Amanda Coetzer (S-Afríku) vann 1-
Lindsay Davenport (Bandarík.) 2-6 6-4 6-3
2-Martina Hingis (Sviss) vann 5-Steffi Graf
(Þýskalandi) 3-6 6-2 6-4
SUND
Thorpe
hættir námi
IAN Thorpe, heimsmeistari í 400
metra skriðsundi, hefur ákveðið að
leggja skólagöngu á hilluna í bili og
einbeita sér að undirbúningi fyrir
Ólympíuleikana í Sydney. Thorpe
er aðeins 16 ára. Hann vann gull í
400 m skriðsundi á HM fyrir ári,
vann tvenn gullverðlaun á Samveld-
isleikunum í haust og var í sveit
Astralíu sem setti heimsmet í
4x200 metra skriðsundi.
UM HELGINA
Badminton
50. Meistaramút íslands_ verður haldið í
TBR-húsinu um helgina. I dag hefst keppni
kl. 10, þar sem leikið verður fram að úrslit-
um í tvíliða- og tvenndarleik. Á morgun,
sunnudag, hefjast undanúrslit í einliðaleik
kl. 10. Úrslit hefjast kl. 14.
Körfuknattleikur
Laugardagur:
Bikarúrslit í Laugardalshöll.
KONUR
KR - ÍS.............................15
KARLAR
Keflavík - Njarðvík ................17
Sunnudagur:
1. deild karla:
Egilsstaðir: Hötttur - Skafholtstungur .. .14
Pylkishús: Fylkir - ÍS .............14
Selfoss: Selfoss - ÍR...............14
Handknattleikur
Laugardagur:
1. deild karla:
Digranes: HK - UMFA...............16.15
Sunnudagur:
Vestm.: IBV : Stjarnan ..............20
Austurherg: ÍR - FH..................20
KA-heimili: KA - Grótta/KR...........20
Selfoss: Selfoss - Valur ............20
Strandgata: Haukar - Fram.........20.30
1. deild kvenna:
Laugardagur:
Ásgarður: Stjaman - Grótta/KR ...16.30
Austurberg: ÍR - Haukar...........16.30
Valsheimili: Valur - Víkingur.....16.30
Vestm.: ÍBV - FH .................16.30
Blak
Laugardagur:
1. deild karla:
KA-heimili: KA - ÍS.................13
1. deild kvenna:
KA-heimili: KA - ÍS..............14.30
íþróttir fatlaðra
fslandsmeistaramót fatlaðra í fijálsíþróttum
(í flokkum þroskaheftra og hreyflhamlaðra)
fer fram í Baldurshaga og Laugardalshöll á
morgun, sunnudag. Keppt verður í 60 m
hlaupi og iangstökki með atrennu í Baidur-
haga fyrir hádegi. Kl. 13.30 hefst keppni í
Laugardalshöll og verður þá keppt í kúlu-
varpi, hástökki og langstökki án atrennu.
Áætlað er að mótið standi til kl. 16110.
KÖRFUKNATTLEIKUR
Guðmundur Bragason
kominn í úrslitarimmu
GUÐMUNDUR Bragason hefur
leikið vel með liði sínu í norður-
hluta 2. deildarinnar þýsku í
körfuknattleik. Guðmundur gekk
til liðs við Weissenfels um ára-
mótin og hefur leikið fimm leiki
með liðinu. „Ég er þokkalega
ánægður með hvernig ég hef
leikið. Þetta er stærri og jafnari
hópur en hjá Hamborg í fyrra,
níu leikmenn leika mjög jafnt.
Ég hef leikið um tuttugu mínútur
í hverjum leik og er ætlað að ein-
beita mér að vörninni og taka
fráköst. Ég hef gert í kringum
tíu stig að meðaltali í leikjunum,"
sagði Guðmundur.
Weissenfels er í efsta sæti
deildarinnar ásamt BCJ Ham-
borg, liðinu sem Guðmundur lék
með í fyrra. Ein umferð er eftir
af deildinni og sex efstu liðin í
riðlinum komast áfram í úrslita-
keppnina þar sem leikið er heima
og að heiman. Þegar þeirri
keppni er lokið fara tvö efstu lið-
in áfram í keppnina um tvö laus
sæti í fyrstu deild. Hún fer
þannig fram að tvö neðstu liðin
úr efstu deild og tvö efstu úr úr-
slitakeppni hvors riðils 2. deildar
leika í tveimur þriggja liða riðl-
um og sigurvegari hvors riðils
leikur í efstu deild að ári.
Auðveldur sigur
ísfirðinga
Isfirðingar unnu býsna auðveldan
sigur á norðanmönnum í Þór,
Akureyri, er liðin mættust vestra í
gærkvöldi. Lokatöl-
Magnús ur leiksins urðu
Gíslason 86:71 og þar með
skrifar þafa ísfírðingar nú
20 stig eftir sextán
leiki og eru í 5. sæti, en Þór er í
næstneðsta sæti með 8 stig.
Leikmenn KFÍ hófu leikinn í
gærkvöldi af kappi, pressuðu stíft
út um allan völl og gáfu Þórsurum
lítinn tíma til að athafna sig. Fyrir
vikið dró strax sundur með liðunum
og í leikhléi var ellefu stiga munur.
Hið sama var upp á teningnum í
seinni hálfleik. ísfirðingar drógu
nokkuð úr hraðanum og leyfðu
yngri og efnilegri leikmönnum að
spreyta sig og hið sama gerðu norð-
anmenn síðustu tíu mínúturnar,
þegar leikurinn var í reynd tapaður.
Fyrir vikið náðu flestir leikmanna
að komast á blað, t.d. allir í liði
Þórs.
Bestir í liði heimamanna voru
þeir James Cason og leikstjórnand-
inn Hrafn Kristjánsson átti einnig
ágæta spretti. I liði Þórsara bar
einna mest á nýja útlendingnum,
Reeves. Sá er greinilega ekki í
neinni leikæfingu, en gæti orðið
sterkur í næstu leikjum.
Gunnar marka-
hæstur í Sviss
GUNNAR Andrésson er markahæstur í úrslitakeppni átta efstu liða
svissneska handknattleiksins þegar fjórar umferðir eru að baki.
Gunnar hefur gert 27 mörk eins og hinn þekkti handknattieiksmaður
Marc Baumgartner, þjálfari og leikmaður efsta liðsins, Pfadi
Winterthur. Lið Gunnars, Amicitia Zúrich, hefur aðeins unnið einn
leik af ljórum og er í sjöunda og næst neðsta sæti með 2 stig.
Pfadi Winterthur er í efsta sæti með fullt hús að leikjunum fjórum
loknum en tók með sér þrjú stig inn í úrslitakeppnina fyrir að vinna
deildarkeppnina sem fram fór fyrir áramót. St. Otmar, lið Júlíusar
Jónassonar, er í öðru sæti, hefur einnig unnið leikina fjóra það sem af
er en St. Otmar fékk aðeins eitt stig með sér áfram í úrslitakeppnina
þar sem liðið hafnaði í þriðja sæti deildarkeppninnar. Júlíus hefur
leikið alla leiki liðsins, átt góðan leik í vörninni og verið sterkur í nýju
hlutverki í sókninni, þ.e.a.s. á línunni.
RALL / HEIMSMEISTARAKEPPNIN
Bfll McRaes
ólöglegur
Alþjóðasamband akstursíþrótta-
félaga, FIA, úrskurðaði í vik-
unni að áfrýjun Ford-liðsins í
heimsmeistarakeppninni í rallakstri
gegn þeirri ákvörðun að nýi keppn-
isbíllinn, Ford Focus Cosworth
WRC, sem brezki ökuþórinn Coiin
McRae ók í Monte Carlo-rallinu á
dögunum, skyldi teljast ólöglegur
þar sem vatnsdælan í bílnum var
ekki í samræmi við reglur.
McRae náði þriðja sætinu í
Monte Carlo, sem var fyrsta umferð
heimsmeistarakeppninnar í ár, en
með fyrirvara um að áfrýjun Ford-
liðsins yrði hafnað. í úrskurði FIA
var þó viðurkennt, að það hafi ekki
verið ásetningur Ford-liðsins að
brjóta reglurnar.
Martin Whittaker, liðsstjóri
Ford-liðsins, sagðist vonsvikinn yf-
ir niðurstöðunni en hann sætti sig
við hana. Hét hann því að Ford-
menn kæmu tvíefldir til leiks í
næsta rall, sem hefst í Svíþjóð 12.
febrúar.
UPPHAFSÁRIN
EINAR Jónsson, fyrsti íslandsmeistarinn « einliðaleik, sést hér í tví-
liðaleik með Friðriki Sigurbjörnssyni, sem varð fyrsti meistarinn í
tvfiiðaleik ásamt Quðjóni Einarssyni.
kenndist af keppni milli UMF Snæ-
fells og TBR.
Arið 1933 var Jón Jóhannesson,
síðar einn af bestu fimleika-
mönnum íslands, í nokkurra vikna
viðskiptaferð í Kaupmannaliöfn. Jón
/ hafði áhuga á flestum íþi-óttum, var
s frábær íþróttamaður sjálfur, og las
því íþróttasíður dönsku dagblaðanna
ítai-lega meðan á dvöl hans í Dan-
mörku stóð. Hann veitti því fljótlega
athygli að mikið var skrifað um
íþrótt, sem hann þekkti h'tt til og
nefnd var badminton. Með Jóni í för
var ljósmyndarinn og langhlaupar-
inn kunni Jón Kaldal. Kunningi Jóns
I Kaldal hafði þá hvatt hann til að
1 kynna sér þessa skemmtilegu íþrótt
og þeir nafnarnir ákváðu því að fara
j saman í sportvöruverslun í borginni
þar sem veitt var
badmintonkennsla.
Þeir tóku frá tíma og
fengu þarna hálftíma
tilsögn í íþróttinni.
Badmínton í
svefnherberginu
Jón Jóhannesson
' varð mjög hiifinn og
taldi badininton tilval-
ið til iðkunar á íslandi.
Skipíi þar ekki
minnstu máli, að bad-
minton var leikið inn-
anhúss og því ekki háð
veðri og vindum, sem
oft voru óhagstæð tit-
anhússíþróttum á ís-
iandi. Þeir félagarnir
festu báðir kaup á
■ boltum og spöðum og
hóldu með þá aftur til
íslands. Katrín
; Skaptadóttir, kona
Jóns Jóliannessonar,
• sótti hann út á ílugvöll
og svo mikið lá Jóni á
að sýna henni;;þessa
íþrótt, sem hann hafði
uppgötvað, að hann
} sló fyrsta badminton-
boltann á Islandi í
j svefnherbergi þeirra
hjóna!
Stuttu síðar hafði
: hann samband við fólk úr tennisdeild
íþróttafélags Reykjavikur, ÍR, og
jj sýndi þeim þessa nýstárlegu íþrótt.
; Tennisfólkið varð strax áhugamikið og
| á haustdögum fengust fáeinir tímar í
íþróttahúsi ÍR nálægt Landakoti og
var þá byrjað að spila af nokkum al-
vöru. Varð þegar vart mikils áhuga á
íþróttinni. Éáir gátu þó stundað bad-
minton að staðaldri til að byrja með,
einkum vegna húsnæðiseklu, áhalda-
skorts og ónógrar kennslu. Jón reyndi
H að segja til, en kunnátta hans vai- tak-
; mörkuð við þann eina tíma, sem hann
| og Kaldal höfðu fengið í Danmörku.
i Jón mun reyndar hafa faríð mjög
nærri því að slá rétt, þó ekki hafi
tækni hans verið fullkomin. Á þessum
tíma voru aðeins þrjú íjiróttahús, sem
rúmað gátu badmintonvöll. í íþrótta-
, húsi Jóns Þorsteinssonar var hægt að
koma fyrir tveimur völium og í ÍR-
| húsinu og á Laugarvatni var pláss fyr-
: ir einn völl. Vegna þessara erfiðu að-
5 stæðna dró nokkuð úr áhuganum og
ekki var mikið leikið fyrstu áiin eftir
J að Jón kom með spaða og bolta frá
J Kaupmannahöfn.
Vinsældir í Hólminum
i Árið 1947 kom ungur maður til
Stykkishólms og tók við skólastjóra-
stöðu í barnaskólanum. Hann hét Þor-
j geir Ibsen og átti ásamt öðrum eftir
i að afla badmintoníþróttinni óhemju
s vinsælda í Hólmínum. Þorgcir hafði
1 fyrst komist í kynni við íþróttina þeg-
ar hann var í Kennaraskólanum
skömmu fyrir 1940. Kennaranemar
I voru þá í skylduleikfími í íþróttahúsi
S Jóns Þorsteinssonar og í tímum á eftir
þeim voru Jón Jóhannesson og fleiri
badmintonmenn. Þorgeh- heillaðist af
íþróttinni, keypti spaða og þegar hann
flutti stuttu síðar upp á Ákranes hóf
hann að spila badminton í nýju
íþróttahúsi Ákurnesinga ásamt fáein-
um öðrum félögum sínum. Þegar hann
kom til Stykkishólms var íþróttahúsið
þar fokhelt, en um haustið 1947 var
búið að ljúka við húsið og þeir byrjuðu
að spila badminton, Þorgeir og Guð-
Fyrsta íslandsmótið
Fyrsta íslandsmótið var haldið vor-
ið 1949 í íþróttahúsi Háskólans. Aðeins
vai- keppt í einliðaleik og tvíliðaleik
karla. Ei-fitt er að geta sér til um það,
hví ekki var keppt í kvennaflokkum á
þessu móti en líklegra er að dræm
þátttaka þeirra hafi verið ástæðan
heldur en að þeim hafi ekki veríð leyft
að vera með. Einar Jónsson var fýrsti
landsmeistai-inn í einliðaleik, en hann
spilaði þetta ár fyrir |R, þó hann væri
einnig féiagi í TBR. Ástæðan fyrir því
að hann valdi að spila fyrii’ ÍR frekar
en TBR var sú að félagi hans í tvíliða-
leik, Sigurður Steinsson, var í ÍR.
TBR-ingarnir Friðrik Sigurbjörnsson
og Guðjón Einarsson hirtu síðan titil-
inn í tvíliðaleik kai-la.
Það veikti nokkuð keppnina, að Jón
Jóhannesson sleit hásin snemma í
mótinu og þurfti að hætta keppni.
Dreymdi fjallkonuna
Kvöldið fyrir mótið lagðist Einar
Jónsson snemma til hvQu svo hann
yrði vel upplagður í keppninni. Þegar
hann festi svefn dreymdi hann ein-
kennilegan draum. Fjallkonan birtist
honum og Einari fannst sem hann ætti
að þekkja hana, þó hann hefði ekki
gert það þegar hann vaknaði. Konan
færði Einari fjóra íslenska ríkisdali
með þeim orðum að henni fyndist hann
eiga þá skilið. Morguninn eftir hélt
Einar síðan í íþróttahús Háskólans og
kom þá í ljós að tii að vinna íslands-
meistaratitilinn í einliðaleik, þuifti
hann að vinna fjóra leiki. Það gerði
Einar og varð fyrsti íslandsmeistarinn
í badminton. Það má því með sanni
segja að draumur hans hafi ræst.
Hólmarar sterkir
íslandsmótið í badminton var haldið
1950 um páskana í annað sinn og nú í
Stykkishólmi. Keppendur voru 27 tals-
ins. Mótið vakti mikla athygli í Hólm-
inum og heimamenn reyndust geysi-
sterkir. Þeir settu mikinn svip á mótið
og hirtu báða einliðaleikstitlana, Ágúst
Bjartmars sigraði í karlaflokki og
Ebba Lárusdóttir í kvennaflokki.
Á íslandsmótinu, sem ft-am fór í
Hálogalandi í Reykjavík vorið 1951,
urðu Hólmarar sigursælir. Ágúst
Bjartmars vai-ði einliðaleikstitil sinn
frá árinu áður og það gerði Halla Árna-
dóttir einnig. í tvfliðaleik karla sigi-aði
Ágúst ásamt Ólafi Guðmundssyni og í
tvenndarleik urðu sigurvegarar hjónin
Þorgeir Ibsen og Halla Árnadóttir.
Yfirburðir Hólmara voru jafnvel enn
meiri en þetta gefur til kynna, því þeir
hirtu einnig önnur verðlaun í þremur
greinum. Þetta er versti árangur TBR
á íslandsmóti fyir og síðai-
Wagner kom, sá og sigraði
Um páskana 1952 var haldið ís-
landsmót i Stykkishólmi. Þar keppti
Daninn Wagner Walbom í fyrsta sinn
á mótinu fyrir TBR. Hann var að vísu
ekki búinn að fá formleg ríkisborgara-
réttindi þegar mótið fór fram. Alþingi
hafði samþykkt réttindi hans, en stað-
festing hafði ekki borist frá stjórnar-
ráðinu. Samþykki Alþingis þótti hins
vegar nægilegt til að íþróttasamband-
ið heimilaði þátttöku hans. Wagner
vai-ð þrefaldur meistari, með Einari
.Tónssyni í tvfliðaleik og Unni Briem í
tvenndarleik. Þetta vai- í fyrsta skipti,
sem nokkur hafði sigrað í þremur
greinum á íslandsmóti.
EBBA Lárusdöttir varð íslandsmeistari ■ ein-
liðaleik fimm ár í röð - 1952 til 1957.
WAGNER Walbrom varð ís-
landsmeistari í einliðaleik
1952-1955 og 1957.
mundur Þórarinsson, frjálsíþrótta-
þjálfari, sem var þá kennari í Hólmin-
um.
Bæjarbúar tóku að veita þeim félög-
um athygli og fljótlega kviknaði mikill
áhugi á badminton. ðlafur Guðmunds-
son, síðai- sveitarstjóri, og Ágúst Bjart-
mars, voru fyrstir til að byrja og náðu
strax góðum tökum á leiknum. Fljót-
lega eftir að þeir byrjuðu smitaðist
áhuginn um allan bæ. Hólmarai- ui-ðu
fljótt leiðir á að leika hver við annan og
fóru að hugsa sér til hreyfings. Þeir
buðu badmintonmönnum að sunnan í
heimsókn til Stykkishólms og fóru
sjálfir til Reykjavíkur. Loksins voru
kornnir fram á sjónarsviðið góðir bad-
mintonleikmenn, sem ekki voru í TBR
og þar með skapaðist grundvöllur fyrú-
landsmót. Fimmti áratugurinn ein-
Spennandi keppni í einliðaleik karla á 50 ára Meistaramóti íslands
Margir kallaðir,
einn útvalinn
ÍSLANDSMÓTIÐ í badminton
fer fram um helgina og er þetta
í 50. sinn sem keppnin fer fram
en liðlega 31 ár er síðan Bad-
mintonsambandið var stofnað.
„Á þessum merku tímamótum
er gaman að sjá að keppnin
um íslandsmeistaratitilinn í
einliðaleik karla hefur aldrei
verið eins mikil en fimm manns
koma væntanlega til með að
berjast um hann,“ sagði Jafet
S. Ólafsson, formaður Bad-
mintonsambands íslands.
Fyi’ir tæplega hálfum mánuði náði
íslenska landsliðið besta árangri
sínum þegar það varð meistari í
keppni B-þjóða, sem var í Belfast á
Norður-írlandi, og tryggði sér þar
með rétt í keppni 16 bestu Evrópu-
þjóða, sem verður í Glasgow í
Skotlandi á næsta ári. „Ég fullyrði
að þetta er sterkasta landsliðið sem
við höfum nokkru sinni átt,“ sagði
Broddi Kristjánsson, landsliðsþjálf-
ari, við Morgunblaðið eftir keppnina,
en hann og Árni Þór Hallgrímsson,
elstu mennimir í landsliðinu, töpuðu
ekki leik í keppninni, og unga fólkið
stóð sig mjög vel. „Þeir eru fima-
sterkir í tvíliðaleiknum og gefa ekk-
ert eftir í baráttunni um íslands-
meistaratitilinn í einliðaleik," sagði
Jafet um Brodda og Áma Þór. „Hins
vegar fá þeir hai’ða keppni frá Sveini
Sölvasyni, Tryggva Nielsen og
Tómasi Garðarssyni Viborg, sem all-
ir æfa og keppa aðallega erlendis.“
Aukin útbreiðsla
Jafet sagði að þessi mikla breidd
og skemmtilega bai-átta hefði mikið
að segja. „Við rekum Badminton-
sambandið eins og hvert annað fjrr-
irtæki, eyðum ekki meira en við öfl-
um, og fjárhagsstaðan er því góð.
Útbreiðslan eykst stöðugt og nú
iðka hátt í 7.000 manns badminton
hjá félögunum en þar af em lang-
flestir hjá TBR. í sambandi við út-
breiðsluna má nefna að á undan-
förnum fimm ái’um höfum við gefið
samtals 720 badmintonspaða í
íþróttahús á landinu þannig að ansi
margir vellir geta verið í notkun á
sama tíma á landinu þess vegna.
Síðast gáfum við spaða í nýja og
glæsilega íþróttahúsið á Þórshöfn
og það var gaman að sjá að þegar
greint var frá húsinu í sjónvarps-
fréttum á dögunum var fólk einmitt
að leika badminton í því. TBR hefur
líka gefið spaða í grunnskóla og boð-
ið krökkum upp á fría kennslu og
allt er þetta liður í útbreiðslunni."
Um liðna helgi kom Þjóðverjinn
Gúnther Húber til landsins á vegum
Badmintonsambandsins og verður
hann við kennslu víða um land
næstu mánuði. Hann var landsliðs-
þjálfari Þýskalands 1984 til 1988 og
landsliðsþjálfari Sviss 1989 til 1991
en hefur starfað hjá þýska badmint-
onsambandinu síðan 1992. „Á und-
anförnum árum höfum við reglulega
sent þjálfara út á land til að leið-
beina fólki og það var gríðarlegur
fengur fyrir okkur að fá Þjóðverj-
ann en Ólympíusamhjálpin gerði
okkur það kleift með því að styrkja
okkur vegna átaksins. Hún greiðir
allan kostnað sem þessu fylgir,
styrkir okkur um 20.000 dollara
vegna verkefnisins,“ sagði Jafet.
Hann sagði ennfremur að miklu
máli skipti að allir gætu iðkað bad-
minton bui-tséð frá aldri. „Það góða
við þessa íþrótt er að krakkar geta
byrjað ungir, sex til sjö ára, og fólk
Morgunblaðið/Ásdís
JAFET S. Ólafsson, formaður Badmíntonsambands íslands.
getur haldið áfram að spila fram á
grafarbakkann."
Fjögur á Ólympíuleikana?
Eins og gi’eint hefur verið frá
hefur Alþjóða badmintonsambandið
mikla trú á Sveini Sölvasyni og kom
því til leiðar að Ólympíusamhj álpin
styrkir hann fram að Ólympíuleik-
unum í Sydney árið 2000 og greiðh-
ferðakostnað vegna móta. Sveinn er
einn af 14 badmintonspilurum sem
Samhjálpin styrkir með Ólympíu-
leikana í huga og hann hefur staðið
sig vel á alþjóða mótum í vetur en
árangurinn frá 1. apríl í ár til 1. apr-
íl á næsta ári skiptir öllu varðandi
val þátttakenda í Sydney. ,
.Aukinn árangur hefur vakið at-
hygli og Andrew Ryan, yfirmaður
þróunar- og þjálfunarsviðs Alþjóða
badmintonsambandsins, lagði til að
Sveinn yrði styrktur en að okkar
mati hefðu Tryggvi og Elsa Nielsen
líka getað komið til greina. Auk
fyiTnefndra stráka æfir Drífa Harð-
ardóttir líka erlendis þannig að auk-
in breidd er bæði hjá piltum og
stúlkum. Þessi breidd er ánægjuleg
og éftir því sem Broddi og Ámi Þór
hafa fengið meiri keppni hafa þeir
bara bætt sig. Við höfum hugsað til *
framtíðar með því að senda krakka
á sumarnámskeið í Þýskalandi og
Danmörku en undanfarin ár hafa
Badmintonsambandið og félögin
tekið sig saman og sent átta ung-
linga á námskeið erlendis þeim að
kostnaðarlausu. Þetta hefur allt sitt
að segja og að okkar mati er raun-
hæft að ætla að tvær konur og tveir
karlar nái lágmörkunum fyrir
Ólympíuleikana í Sydney."
Broddi Kristjánsson sér fram á harða keppni
„Örugglega erfitt
að veria titilinn"
BRODDI Krisljánsson, landsliðs-
þjálfari í badminton, á Islands-
meistaratitil að verja í einliðaleik
karla og tvíliðaleik, en 50. Is-
landsmótið fer fram um helgina.
„Það verður örugglega erfitt
að verja titilinn í einliðaleiknum
því margir gera tilkall til hans og
ekki færri en fimm eiga mikla
möguleika," sagði Broddi við
Morgunblaðið. 14 keppendur eru
skráðir til leiks í einliðaleiknum
og koma þrír la.idsliðsmenn
gagngert frá útlöndum þar sem
þeir æfa. Sveinn Sölvason og
Tryggvi Nielsen stunda íþróttina
í Danmörku en Tomas Viborg í
Svíþjóð.
Broddi sigraði Svehi Sölvason
frekar örugglega í úrslitum í
fyrra en ljóst er að báðir geta
ekki farið í úrslit þar sem Broddi
mætir Sveini eða Þorsteini
Hængssyni í átta manna úrslitum.
„Það er ekkert við þessu að
gera,“ sagði Broddi um töfluröð-
ina en hann er númer eitt og Árni
Þór Hallgrímsson númer tvö sem
gerir það að verkum að þeir geta
aðeins mæst í úrslitum. Dregið
var um röð annarra keppenda.
„Mfn skoðun er sú að raða ætti
Qórum mönnum en samkvæmt
reglum verða keppendur að vera
16 til að það sé hægt. Hins vegar
er ekkert víst að slíkt fyrirkomu-
lag hefði komið betur út fyrir
menn því þetta er mikið happ-
drætti og töfluröðin skiptir ekki
öilu máli.“
Landsliðsþjálfarinn, sem er 38
ára, er sigursælasti badminton-
spilari landsins. Frá 1980 hefur
hann 14 siimum orðið íslands-
meistari í einliðaleik og 17 sinn-
um í tvíliðaleik, þar af undanfarin
níu ár með Áma Þór. „Það
skemmtilega við keppnina núna
er hvað hún er tvísýn,“ sagði
Broddi, „og því er ómögulegt að
veðja á einhvern einn. Eftir ís-
landsmótið í fyrra sagði ég að ég
myndi ekki leggja mikið upp úr
einliðaleiknum að ári og þó ég
mæti alltaf til leiks með því hug-
arfari að sigra verður aðalatriðið
hjá mér að þessu sinni að spila
gott badminton og hafa gaman af
þessu. Siðan verður að koma í ljós
hvað það færir mér.“
Broddi sagði að með hveiju ár-
inu sem liði og stöðugt fleiri titl-
um væri æ erfíðara að ná rétta
hugarfarinu. „Þó ég vilji verða
meistari sætti ég mig alveg við að
komast ekki alla leið en tilfellið
er að þegar sigramir era eins
margir og raun ber vitni er mjög
erfítt að ná þeirri baráttu sem til
þarf. En að sjálfsögðu reyni ég að
koma rétt stemmdur til leiks og
takist það er aldrei að vita hvað
gerist."
12 af 14 keppendum koma frá
TBR og 10 þeirra eru með sama
kínverska þjálfarann, Sveinn og
Tryggvi æfa erlendis sem fyrr
segir en keppa fyrir TBR. „Þjálf-
arinn getur ekki dregið menn í
dilka og því verða þeir að sjá um
þetta sjálfir,“ sagði Broddi um
baráttuna sem fram undan er.
„Mér þykir líklegt að Árni Þór
og Tryggvi mætist í undanúrslit-
um en vængurinn mín megin er
ekki eins ljós og þar vil ég engu
spá.“
4