Morgunblaðið - 26.02.1999, Side 3
VÍKING
FLUCLEIDIR
Landslið Islands i matreiðslu tekur við verðlaunum i heimsmeistarakeppninni i
Lúxemborg i nóvember 1998. Frá vinstri: Hákon Már Örvarsson, Jón Daniel
Jónsson, Ásbjörn Pálsson, Elmar Kristjánsson, Cuðmundur Guðmundsson og
Ragnar Wessmann
að taka þátt í móti sem haldið verður
í Chicago á þessu ári en því miður
verður ekkert af því vegna þess hve
kostnaðurinn er mikill. Æfingar eru
miklar fyrir keppnir því við þurfum jú
að útbúa réttina aftur og aftur og á
Ólympíuleikunum t.d. þurfum við að
útbúa heitan mat fyrir 110 manns.
Við höfum lært mikið á þeim keppn-
um sem við höfum tekið þátt í og
gerum okkur því von um enn betri ár-
angur í framtíðinni."
Landsliðið keppti á Ólympíuleikunum
( matreiðslu árið 1996 og krækti þar í
silfurverðlaun fyrir heitan mat og
brons fyrir kaldan mat. Árið 1994
Bárður Guðlaugsson framreiðslumaður
varð heimsmeistari i blöndun kokkteila
árið 1993.
hlaut liðið gull og silfur I alþjóðlegri
keppni í Lúxemborg og á Ólympíu-
leikunum árið 1992 fékk liðið brons-
verðlaun fyrir heitan mat.
Heimsmeistari
í blöndun kokkteila
Það eru ekki einungis matreiðslu-
menn sem náð hafa góðum árangri á
mótum erlendis því bakarar, fram-
reiðslumenn og kjötiðnaðarmenn
hafa einnig komið heim með verð-
laun I farteskinu. Bakararnir Jón Rún-
ar Arillusson, Hafliði Ragnarsson og
Gunnlaugur Valsson tóku þátt í Bella
Center keppninni í Danmörku árið
1997 og hlutu þrenn af fimm gull-
verðlaunum. Ári síðar hlaut Valdimar
Hauksson bakaranemi gullverðlaun f
alþjóðlegri keppni. Framreiðslumenn
hafa náð frábærum árangri í alþjóð-
legum keppnum og er skemmst að
minnast árangurs Bárðar Guðlaugs-
sonar, sem varð heimsmeistari í
blöndun kokkteila árið 1993.
Sama ár varð Margrét Gunnarsdóttir
heimsmeistari í vinnubrögðum við
gerð fagurdrykkja eða long drinks
eins og þeir eru oftast nefndir. fs-
lenskir framreiðslunemar hafa fjórum
sinnum hlotið gullverðlaun I norrænu
nemakeppninni. Kjötiðnaðarmenn
hafa ekki látið sitt eftir liggja hvað
varðar góðan árangur á erlendri
grund. Þeir hafa verið iðnir við að
koma landbúnaðarafurðum okkar á
framfæri með þátttöku í alþjóðlegum
keppnum og norrænum fagkeppn-
um sem haldnar eru í tengslum við
Interfair-matvælasýninguna í Herning
á Jótlandi. Á síðustu sýningu voru 39
tegundirfrá 13 kjötiðnaðarmönnum.
Af þeim vörum unnu 37 til verðlauna
sem skiptust I 4 gull, 10 silfur og 20
brons.
Kjötiðnaðarmenn hafa náð góðum árangri
i fagkeppnum erlendis með islenskar land-
búnaðarafurðir. Hér heggur Marlus Blom-
sterberg, sem er mjög reyndur i faginu,
nautahrygg i T-bein steikur.
Jíátið tœran íoga kertanafrá
Jíeimaey lýsa upp skammdegið
Kertin frá Kertaverksmiðjunrú Heimaey eru framleidd
eftir gömlum hefðum handverksmanna. Þau eru
gegnumlituð og fáardeg í fjölmörgum fallegum litum
sem eru þróaðir undir ströngu gæðaeftirliti.
Allt hráefni til framleiðslunnar er sérstaklega valið
til að tryggja sem lengstan og bestan brennslutíma.
Kertaverksmiðjan Heimaey
er verndaður vinnustaður
sem veitir fjölda
fatlaðra atvinnu.
V* K S >
^^CehnaeAj/
Faxastíg 46 - 900 Vestmannaeyjum - sími 481 2905
Söluskrifstofa Reykjavík - sími 588 2905
Viltu 10?