Morgunblaðið - 26.02.1999, Side 8

Morgunblaðið - 26.02.1999, Side 8
Corona Extra "t Matur, á&t og kynlíflf mikil áfengisneysla getur valdið varan- legum skaða á kyn- getu fólks. Pú hwrgmr 2,000 ©§ fmré bjér ©§ uiai ®!f)$ ©§ þu ylJt, Irá ! Nðuftkráfif)! Nú þegar Samtök ferðaþjónustunnar standa fyrir Góugleði, og allskyns til- boð á ferðum, gistingu, mat og drykk eru I boði, er tilvalið fyrir ástfangið fólk að nýta sér þau, og á það ekki síður við um þá sem verið hafa í löngu sambandi og finnst vanta örlít- ið krydd í tilveruna. Fátt er meira gef- andi fyrir fólk en að dekra við sig sjálft, komast eitthvað tvö saman og njóta næðis og rómantíkur. Slík ferð, sem gefin er án sérstaks tilefnis, kem- ur örugglega í stað margra blóm- vanda sem kannski hefðu að ósekju mátt rata til elskunnar þinnar án þess að kaupmenn ýttu sérstaklega við þér með áminningu um konu-, bónda- og/eða Valentfnusardaga. Rómantísk uppskríft Hvernig er hægt að nýta sllk tilboð sem best svo að þau skili tilbreytingu og kryddi I tilveruna? Ef um er að ræða par sem búið hefur lengi saman er upplagt að láta hugann reika til þess tlma þegar þið voruð ung og nýorðin ástfangin og sjá hvaða hlutir höfðuðu til ykkar þá, á meðan til- hugalífið var með hvað blómlegust- um hætti. Nauðsynlegt er að daðra hvort við annað sem oftast og ekki síst á svona rómantískri helgi. Daðrið gefur okkur ánægju og ekki síður fullvissu um að við séum enn eftirsóknarverð. Leiknir daðrarar hafa á takteinunum úrval aðferða sem óþarfi er að tíunda nán- ar. Félagssálfræðingar hafa komist að því I tilraunum sínum, að augun og atferlið hafi fjórum sinnum meira vægi í daðri en hið talaða orð, ekki síst í kynferðislegu samhengi. Ástarlyf Til eru á skrá yfir 900 efni sem sögð eru kveikja kynlöngun fólks. Þó hafa einungis fá þeirra staðist tímans tönn. Ef gerður væri listi yfir allt það sem í gegnum tíðina hefur verið talið valda frygð, myndi hann sjálfsagt fyrst og fremst verða vitnisburður um trúgirni manna og örvæntingarfulla leit að hinum eina og sanna ástarelexír. Um aldirnar hafa menn látið sér detta í hug allskyns samsull sem þeir hafa svo innbyrt í von um áhrif til örvunar á kynhvöt sinni, eða jafnvel I von um lækningu á getu- eða áhugaleysi sínu og maka síns í kynlífinu. Til dæmis um það sem menn hafa neytt í þessu skyni mætti nefna asnaeistu og inn- yfli úr fuglum, að ótöldum getnaðar- limum hinna ólíklegustu dýra, svo sem úlfa og broddgalta. Einnig höfðu menn trú á villikáli, lauk, ávöxtum og kryddi. Grikkir og Rómverjar höfðu mikla trú á ýmiss konar ástardrykkjum sem þeir brugguðu. Sérstaklega kraftmiklir þóttu drykkir bruggaðir úr "satyrion" (það er efni unnið úr skógar-brönu- grasi). Sagt er að slíkan drykk hafi Herkúles drukkið forðum áður en hann tók til við að afmeyja 50 dætur gestgjafa síns. Þeir sem staðið hafa framarlega í eró- tískum listum eru Arabar, Hindúar og Kínverjar og bera kynllfshandbækur þeirra þess glögg merki, en þar er að finna námu uppskrifta á kynörvandi efnum. Á okkar tímum afneitar fólk oft þess- um fornu fræðum á þeirri forsendu Sú matargerð sem mest leggur upp úr kryddi eins og chili, engifer og hvít- lauk er indversk matargerð og er því ekki úr vegi, ef upplifa á rómantíska og ekki síður erótíska kvöldstund, að elda indverskan mat eða bregða sér á indverskan veitingastað. Fróðlegt verður að fylgjast með matseðlum veitingahúsa sem vilja sérstaklega höfða til para í erótískri helgarferð. Eitt er víst að af nógu er að taka og til að fullkomna kvöldið væri ekki úr vegi að fara saman í ilmolíubað. Heit böð með ilmsterkum olíum geta verið lostavekjandi. Gott er að hafa baðvatnið vel heitt, svo það stigi upp frá því sterkt ilmandi gufa sem þið getið andað að ykkur. Best er að láta renna fyrst í baðið og setja olluna síð- ast svo hún fljóti ofan á vatninu og loði við húðina þegar þið standið upp. Dæmi um ilmoltur með losta- vekjandi áhrifum eru: Svartur pipar, kardimommur, rósir, salvía, jasmín, appelsínublóm, sandalviður og ylang ylang. Eitt er víst að möguleikar fólks á sam- setningu hinnar fullkomnu helgar með elskunni sinni eru nánast óþrjót- andi og það eru einungis okkar eigin hömlur sem eru takmarkandi. Nú er lag að láta drauminn um rómantíska helgi rætast. Góða ferð og góða skemmtun. að ekki séu vísindalegar sannanir fyr- ir því að þau geri gagn. En eitt er víst: Ástarlyf hafa miklu frekar áhrif ef við trúum á mátt þeirra og höfum til þeirra fordómalaus viðhorf. Þau eru ekki lækningalyf og þarf annað en þau til að lækna kynlíf I kröggum. Ýmis krydd hafa verið talin góð, svo sem kúmen og kóriander sem notuð hafa verið í ástarfæði allt frá tímum forn-Egypta. Einnig er chilipipar þekktur og er talið að rétt magn af honum geti leyst úr læðingi meiri löngun en fólk á von á, en of mikið geti llka kæft alla löngun. Chilisósa er oft notuð með ostrum sem eru sívinsælt og gamalt ástarlyf, og einnig er chilisósa notuð í krem fyrir karlmenn til að fá stinningu. Það krydd sem talið er fjölhæfast af sterku kryddtegundunum er engifer, og er talið að sé þess neytt í krist- allaformi eða sem súkkulaði þá sé það kynörvandi. Áfengi og kynlíf Áfengi hefur löngum verið talið til ástarlyfja og sjálfsagt er sú skoðun til komin vegna þess að I litlu magni getur það minnkað kvíða og losað um hömlur. Fyrir bragðið hefur það auðveldað fólki að kynnast öðrum og I framhaldi af því að brydda upp á kynlífi. Magn áfengisins sem innbyrt er skipt- ir þá nánast öllu máli því að of mikið magn getur haft þveröfug áhrif á kyngetu fólks. Of mikið magn dregur úr öllum taugaviðbrögðum og getur valdið tímabundnu getuleysi, og Það er ýmislegt sem getur haft áhrif á magn áfengis í blóði fólks. Þar á meðal er kynferði, aldur, þyngd, magn áfengis sem innbyrt er og á hve löngum tíma það er innbyrt, sömuleiðis hvort mat- ur er f maganum eða ekki svo og ýmis sérkenni f líkamsstarfsemi þess sem drekkur. Ég rakst á athyglisverða töflu um áhrif áfengis eftir magni á kyngetu fólks. Þar var stuðst við sjússamæli sem mælieiningu. Talað var um magn annarsvegar og kynferðisleg viðbrögð hinsvegar. Áhrif af einum tvöföldum eru: Afslöppun, minni félagslegar hömlur og væg örvun. Kynferðisleg örvun veitir aukið blóðstreymi sem auðveldar stinningu. Tveir tvöfaldir leiddu til óskýrs mál- fars, erfiðleika f samhæfingu hreyf- inga og aukið kynferðislegt áreiti. Kynferðisleg viðbrögð voru áhrif á heilastöðvar sem stjórna fullnægingu sem þýðir að þörf er á aukinni ertingu fyrir fullnægingu eigi hún að nást. Þrír tvöfaldir valda klaufalegum hreyf- ingum. Maðurinn eða konan slagar og tilfinningar verða ýktar. Kynferðis- leg viðbrögð eru þau að margar kon- ur eiga erfiðara með að fá fullnæg- ingu og mögulega er líka um full- nægingarerfiðleika að ræða hjá karl- mönnum. Fjórir tvöfaldir valda óskýrri hugsun og stjórnlausum hreyfingum. Kynferðisieg viðbrögð eru þá sífellt meiri erfiðleikar karla við að halda stinningu og fullnæging oft útilokuð. Uppskriftin að vel heppnuðu ástarllfi er hinsvegar örugglega frekar sú að stunda edrúmennsku en fyllerí. MEIRA ►

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.