Morgunblaðið - 26.02.1999, Page 9
VÍKING
Menning á Góugíeði
FLUCLEIDIR
Leiklist
Þjóðleikhúsið sýnir gamanleikinn
Tveir tvöfaldir á stóra sviðinu. Örn
Árna, Edda Heiðrún og Hilmir Snær
eru ( stærstu hlutverkunum í ekta
farsa sem kitlar hláturtaugarnar veru-
lega.
Brúðuheimili Henriks Ibsens er einnig
sýnt á stóra sviði Þjóðleikhússins um
þessar mundir.
Á litla sviði Þjóðleikhússins er nú ver-
ið að sýna leikritið Abel Snorko býr
einn og á Smíðaverkstæðinu arkar
um Maður [ mislitum sokkum en það
leikrit er eftir Arnmund Bachman.
Borgarleikhúsið býður uppá farsann
Sex í sveit, sem sýndur hefur verið við
miklar vinsældir [ nokkuð langan tíma
og svo virðist sem landinn sé enn að
springa úr hlátri. Edda Björgvins fer á
kostum ásamt eiginmanninum Gísla
Rúnari og fleiri góðum leikurum.
Einnig er verið að sýna á stóra sviði
Borgarleikhússins verkið sígilda Horft
frá brúnni eftir Arthur Miller.
Hellisbúinn Bjarni Haukur arkar enn
um svið (slensku óperunnar og sýnir
áhorfendum á gamansaman hátt hve
samskipti kynjanna geta verið grát-
brosleg.
Felix Bergsson er á mannlegum nót-
um á sviði (slensku óperunnar þar
sem hann kynnir okkur fyrir nokkrum
hommum og sýnir okkur inn í hugar-
og menningarheim þeirra [ leikritinu
Hinn fullkomni jafningi.
( Loftkastalanum má sjá þá Jóhann
Sigurðarson og Hilmi Snæ í hlutverk-
um Lenny og George í hinni slgildu
sögu John Steinbeck, Mýs og menn.
Jóhann þykir fara á kostum sem hinn
vitgranni George.
(Iðnó er verið að sýna hið átakanlega
gamanleikrit Rommf en það leikrit er
einnig sýnt á Akureyri.
Þjónn í súpunni er einnig sýnt I Iðnó
en þjónarnir þar eru kynlegir kvistir
og meðhöndla gestina á annan hátt
en tfðkast á öðrum veitingahúsum.
Boðið er uppá hádegisleikrit ( Iðnó
þessa dagana. Leikritið sem i boði er
heitir Leitum að ungri stúlku og er
eftir Kristján Þórð Hrafnsson.
Myndlist
( Listasafni Islands stendur m.a. yfir
sýningin Fjórir frumherjar þar
sem sýnd eru verk eftir Þórarinn B.
Þorláksson, Ásgrím Jónsson, Jón Stef-
ánsson og Jóhannes Kjarval. Þar
stendur einnig yfir sýning á verkum
þýska listmálarans Sigmar Polke.
Þrjár sýningar standa yfir f Listasafni
AS(, Freyjugötu 41. I Ásmundarsal og
á svölum sýnir Brynhildur Þorgeirs-
dóttir skúlptúra. Ný aðföng listasafns-
ins verða sýnd í arinstofunni og f
gryfjunni sýnir Steinunn Helgadóttir
málverk. Safnið er opið á milli kl. 14
og 18 alla daga nema mánudaga.
(Listasafni Kópavogs, Gerðarsafni eru
nú sýnd myndverk eftir Svölu Þóris-
dóttur Salman en sýningin er haldin
til minningar um hana.
Stöðlakot, Bókhlöðustíg 6. Þar hanga
uppi olíumálverk og teikningar eftir
Gunillu Möller og er sýningin opin
daglega kl. 14-18.
Sigurður Magnússon myndlistarmað-
ur er nú með einkasýningu í Listhúsi
Ófeigs, Skólavörðustíg S, Reykjavík.
Sýningin er opin á verslunartíma á
virkum dögum en milli kl. 11 og 14 á
laugardögum.
( Hallgrímskirkju stendur yfir sýning á
málverkum eftir Kristján
Davfðsson.
Gallerf Geysir, Hinu Húsinu. Þar
stendur yfir sýningin Ljósbrot,
Ijósmyndasamkeppni FF. Sýningin er
opin frá 8-22 virka daga og 12-18 um
helgar.
Gunnhildur Björnsdóttir sýnir verk sín
á Hótel Selfossi. Sýningin opnaði
19.febrúar og stendur [ fjórar vikur.
Hafnarborg, Strandgötu 34, Hafnar-
firði. Þar stendur yfir sýning á
verkum sænsku textíllistakonunnar
Gun Johansson. ( Sverrissal er Sigurð-
ur Ellasson með sýningu á tréristum.
Opið er milli kl. 12 og 18 alla daga
nema þriðjudaga.
.Tónlist
Sinfóníuhljómsveit Islands. Gula röðin
4. Mars. Mozart og Mendelson. Ein-
leikari er Edda Erlendsdóttir og stjórn-
andi er Rico Saccani. Bláa röðin 6.
Mars í Laugardalshöll. Giaccomo
Puccini:Turandot. Stjórnandi er Rico
Saccani.
Listaklúbbur Leikhúskjallarans. Mánu-
daginn l.mars munu þau Þórarinn
Hjartarson og Ragnheiður Ólafsdóttir
flytja og fjalla um ástarljóð þau sem
Páll Ólafsson skáld orti til unnustu
sinnar og slðar eiginkonu, Ragnhildar
Björnsdóttur. Dagskráin ber yfirskrift-
ina Eg skal kveða um eina þig. Húsið
opnar kl. 19:30 en dagskráin hefst kl.
20:30.
GÓUGLEÐI
M A T U R
DRYKKUR
MENNING
1. - 7. mars