Morgunblaðið - 05.03.1999, Page 1
B L A Ð
A L L R A
LANDSMANNA
1999
Hlo rgunMaðtö
■ FÖSTUDA GUR 5. MARZ
BLAÐ
Vill banna
kollspyrnur
DAVID Kernick, liðslæknir enska 3. deildarliðs-
ins Exeter, hefur lagt til að kollspyrnur í knatt-
spyrnu verði bannaðar utan vítateigs til þess að
vernda leikmenn fyrir heilaskemmdum. Hann
segir útilokað að fá því framgengt að kollspyrn-
ur verði bannaðar með öllu því þær séu svo snar
þáttur í leiknum, ekki síst upp við mark. Hann
segir að með tilliti til þess að milljónir manna
leika knattspyrnu um heim allan þá hefði það
læknisfræðilegar afleiðingar þó svo að hver
kollspyrna ylli ekki nema óverulegum
heilaskaða.
Enska blaðið Times birti upplýsingar er ýta
undir fullyrðingu Kernicks, en að sögn blaðsins
hafa heilarit á norskum atvinnumönnum í knatt-
spyrnu leitt í ljós lífeðlisfræðilegar skemmdir.
KNATTSPYRNA
Reuters
Man. Utd.
efst á blaði
MANCHESTER United er
efst á blaði hjá veðbankanum
WiIIiam Hill í London yfir
það lið sem líklegt er að
verði Evrópumeistari í ár.
Staðan hjá veðbankanum er
þaunig eftir fyrri leikina í 8-
liða úrslitum:
9- 4 Manchester United
3- 1 Juventus
10- 3 Bayern Miinchen
11- 2 Dynamo Kiev
8- 1 Real Madrid
12- 1 Inter Milan
25-1 Olympiakos Piraeus
66- 1 Kaiserslautern
Ingólfur æfir
og keppir í
Stavanger
SELFYSSINGURINN Ingólf-
ur Snorrason æfir og keppir
með karatedeild Stavanger í
Noregi um þessar mundir.
Hann hélt utan 22. febrúar og
verður þar fram að páskum.
Tvö mót eru á dagskrá hjá hon-
um á þessum tíma, Skandinavi-
an open í Svíþjóð og Noregs-
meistaramótið, en þar keppir
Ingólfur með liði Stavanger. í
liði Stavanger eru þrír norskir
landsliðsmenn og þjálfarar þess
eru Morten Alstadsæter og
Stein Ranning, fyrrverandi
heimsmeistari.
Lazio í góð-
um málum
CHELSEA, Lazio og Lokomotiv
Moskva standa vel að vígi að
loknum fyrri leikjum átta liða úr-
slita Evrópukeppni bikarhafa
sem fram fór í gær. Chelsea lagði
Válerenga 3:0 á Stamford Bridge
og Lokomotiv sigraði Haifa frá
Israel með sömu markatölu í
Moskvu. Afar sennilegt verður að
telja að Lazio þurfi ekki að leggja
hart að sér á heimavelli í síðari
leiknum við gríska liðið Panioni-
os því þeir unnu býsna auðveldan
sigur í Aþenu, 4:0. NK Varteks og
Mallorka skildu hins vegar jöfn í
markalausu jafntefli í Zagreb og
ljóst að þar ráðast úrslitin á
Spáni að hálfum mánuði liðnum.
Á myndinni að ofan er Norð-
maðurinn Tore Andre Flo leik-
maður Chelsea að berjast við
landa sinn í vörn Válerenga.
JÓN ARNAR MAGNÚSSON HEFUR SETT STEFNUNA Á GULL EÐA SILFUR / C3
FRJALSIÞRÓTTIR / HEIMSMEISTARAMOTIÐ INNANHUSS
Gísli Sigurðsson, þjálfari Jóns Arnars Magnússonar, um sjöþrautina í Japan
Erum klárir í slaginn
„Við erum klárir í slaginn, búnir
að jafna okkur á tímamuninum að
mestu og bíðum bara eftir því að
keppnin hefjist," sagði Gísli Sig-
urðsson, þjálfari Jóns Arnars
Magnússonar sjöþrautarkappa,
staddur á hóteli í Maebashi í Jap-
an í gær. Eftir miðnætti hefst
fyrri dagur í sjöþrautarkeppni
heimsmeistaramótsins þar sem
Jór. Arnar Magnússon verður í
eldlínunni og hann ætlar sér ekk-
ert annað en verðlaunasæti.
„Við erum búnir að skoða að-
stæður og vera með létta æfíngu á
vellinum og okkur líst vel á hann.
Aðstæður eru eins og best verður
á kosið og Jón er bjartsýnn á að
vel takist til. Nú er bara næsta
verkefni að ná góðum svefni og
fara síðan í að einbeita sér að
verkefninu.“
Gísli sagðist vera búinn að hitta
helstu andstæðinga Jóns Amars,
s.s. Sebastian Chmara, Tomas
Dvorák, Roman Sebrle og Chris
Huffins og létu þeir allir vel af sér.
Dvorák segist hafa náð sér að
fullu af meiðslum sem hrjáðu hann
í fyrra og er klár í slaginn. Þannig
að segja má að allir þeir bestu
verði með hér að heimsmethafan-
um, Dan O’Brien, undanskildum."
Gísli sagði að vissulega væri
slæmt að O’Brien væri ekki.
„Hann hefur verið sá besti undan-
farin ár, en það breytir ekki öllu
að hann keppir ekki. Eini ókostur-
inn við að hafa hann ekki með er
að sigurinn hefði verið sætari hjá
þeim sem vinnur," sagði Gísli og
hló.
„Mér líst vel á Jón. Hann er
vel stemmdur og í góðu lagi lík-
amlega og andlega þannig að við
erum bjartsýnir. Meginmálið hjá
Jóni er að hann byrji vel, hlaupi
60 metrana á skemmri tíma en
6,90 sekúndum og stökkvi að
minnsta kosti 7,60 metra í lang-
stökki. Takist það fær hann mik-
inn byr í seglin og getur orðið til
alls líklegur. Það er sama uppi á
teningnum hér og annars staðar,
það skiptir öllu máli að byrja
vel.“