Morgunblaðið - 09.03.1999, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 09.03.1999, Blaðsíða 4
4 B ÞRIÐJUDAGUR 9. MARZ1999 HANDKNATTLEIKUR MORGUNBLAÐIÐ Systurnar Jolanta og Ljana Slapikiene frá Litháen verja markið hjá Stjörnunni og FH „ÞAÐ hvarflaði aldrei að mér að ég myndi spila handbolta á íslandi og því síður að systir mín yrði líka hér að keppa,“ sagði Jolanta Slapikiene mark- vörður fyrstu deildarliðs FH í handknattleik því systir henn- ar, Ljana Sadzon, leikur með nágrannaliðinu Stjörnunni í Garðabæ. Ljana er á öðru ári sínu hér á landi og vakti at- hygli á systur sinni, sem gekk í raðir FH fyrir yfirstandandi tímabil. Jolanta, sem er 27 ára, býr í Hafnarfirði ásamt manni sínum og kann vel við sig á íslandi þó að ■■■■■g hún hafi ekki haft Stefán mörg tækifæri til að Stefánsson ferðast um landið - sknfar fyj-jj. ufan íþróttahús- in, sem hún hefur keppt í. „Það er of mikið að gera í handboltanum en ég ætla að reyna að ferðast í sumar og skoða landið,“ sagði Jolanta, sem vinnur á Hrafn- istu í Hafnarfirði og líkar vel - vinnufélagar hennar eru líka ánægðir með hana og segja hana duglega og hressa. Hún hefur lært svolítið í íslensku og lét það flakka: „skjóta, skref, skúra, takk,“ þuldi hún upp en bætti svo við á lægri nótunum eina blótsyrðinu sínu. Markvörðurinn hafði ekki spilað í öðrum löndum en ákvað að slá til, en var hún ekkert smeyk. „Nei, ég hafði engar áhyggjur því systir mín var hér fyrir og ég sé ekki eftir því, hér er gott að vera, það er bara veðrið, sem hefur komið mér á óvart. Það er samt skrýtið að vera á Islandi og keppa við systur sína en þegar leikurinn er kominn í gang legg ég mig alla fram um að vinna og myndi ekki hika ef ég fengi tæki- færi til að skora hjá henni,“ sagði Jolanta, sem lék með landsliði Lit- háen eins og Ljana systir hennar en hún þvertók fyrir að þær einokuðu markvarðarstöðuna. Systurnar koma frá smábænum Pasvalys, sem er norðarlega í Litháen, en hún veit ekki hvað framtíðin ber í skauti sér og veit ekki hvað hún verður lengi á Islandi. „Mér líkar vel hér og ef ég verð áfram hér mun ég fá hingað þriggja ára son minn, sem er hjá afa og ömmu í Litháen því við töldum of erfitt fyrir hann að koma eitt ár hingað." Ragnheiður markahæst STÓRSKYTTAN Ragnheiður Stephensen úr Stjörnuimi var markahæst í 1. deild kvenna með 167 mörk svo að hún hefur gert meira en 9 mörk í leik að meðaltali. „Ég hef oft verið nálægt þvf að vera inarkaliæst en spái lítið i það. Bg spila stöðu skyttu og hef drjúgan skot- kvóta en í ár hef ég nýtt fær- in betur og það skilaði þess- ari niðurstöðu," sagði Ragn- heiður. Eru einhver mörk eft- irminnilegri en önnur hjá stórskyttunni? „Já, það eru auðvitað vippurnar þegar ég kemst inn úr horninu." Morgunblaðið/Þorkell SYSTURNAR frá Litháen, Ljana í Stjörnubúningi og Jolanta í FH-búningi. Herdís ekki með týrr en næsta vetur „ÉG hef það ágætt en vildi helst af öllu geta spilað en af því verð- ur ekki fyrr en næsta vetur og þá kem ég líka tvíefld til leiks svo að það er af og frá að ég sé hætt,“ sagði Herdís Sigurbergsdóttir leikstjórnandi Stjörnunnar eftir leikinn við Fram á laugardaginn. Hún sleit sem kunnugt er hásin í landsleik en sat á varamanna- bekknum á laugardaginn og stappaði stálinu í stöllur sínar. „Það er miklu erfiðara að þurfa að sitja á bekknum en mig óraði fyrir og ég á mjög bágt með mig þar en ég reyni livað ég get til að hvetja stelpurnar áfram. En ég er ekki hætt - langt í frá því ég er búin að leggja mikið á mig hjá sjúkraþjálfara svo að það kemur ekkert annað til greina en að halda áfrain,“ sagði baráttujaxl- inn ódrepandi. Algengt er að þeg- ar hásin slitnar þurfi að vera í gifsi í 8 vikur, siðan taka við tvær vikur þar sem ekki má hreyfa fót- inn og loks endurhæfing en þessi ferill getur tekið hálft til eitt ár. Ljúfur og sætur „ÞETTA var Ijúfur og sætur sigur,“ sagði Gústaf Björnsson, þjálf- ari Fram, eftir 32:29-sigur á Stjörnunni á iaugardaginn þegar fram fór síðasta umferð deildarkeppni fyrstu deildar kvenna. Og þjálfarinn leit björtum augum fram á veg, ánægður með gengið í vetur. „Þegar vinnubrögðin í vörn og sókn eru góð þarf enginn að vera hissa á að vel gangi en þegar þau eru ekki fyrir hendi þarf maður að vera viðbúinn því að horfast í augu við tap en sem betur fer hefur verið mikið um sigra í vetur. Við bíðum spennt eftir úrslitakeppninni og í hana ætlum við af fullum krafti. Við fáum nú hálfan mánuð til að bæta við okkur og ég tel að við eigum ennþá heilmikið inni en það munu óvæntir hlutir gerast í úrslitakeppninni." Urslit voru flest eftir bókinni þar sem Víkingur vann FH 26:21, Grótta/KR sigraði KA 35:22 og Valsstúlkur unnu Stefán ÍR 25:13 í Breiðholt- Stefánsson inu en lánleysið fór skrifar með Haukastúlkum til Eyja þar sem ÍBV hafði betur, 24:20, svo að Hafnfirð- ingamir féllu niður í 5. sætið og missa af möguleika á fleiri heima- leikjum í úrslitakeppninni. í Safamýrinni á laugardaginn létu Jóna Björg Pálmadóttir og Marina Zoveva skotin dynja á marki Garðbæinga og skoruðu átta af fyrstu níu mörkum Fram. Stór- skyttan Ragnheiður Stephensen svaraði fyrir gestina á meðan stöll- ur hennar reyndu hvað þær gátu að skipuleggja sóknarleikinn, en þeim gengur afar illa að koma sér upp leikstjórnanda eftir að Herdís Sigurbergsdóttir meiddist. Fyrir vikið náði Fram undirtökunum og það varð hlutverk Stjömustúlkna að eyða öllu púðrinu í að revna að vinna upp muninn. Undir lokin reyndu Garðbæingar að taka Mar- inu og Jónu Björgu úr umferð og það gekk vel um tíma en dugði samt ekki. Framstúlkur sýndu í þessum leik að þær era til alls vísar í úr- slitakeppninni. Hugrún Þorsteins- dóttir markvörður varði mjög vel og Marina, þrátt fyrir að hafðar væru á henni góðar gætur, hélt sínu striki og skoraði grimmt. Stjarnan aftur á móti verður að finna ráð við leikstjórnandavanda sínum. „Það var lítið um mark- vörslu í fyrri hálfleik, enda varnar- leikurinn slakur svo að það stefndi í að Framstelpurnar skoraðu fjöra- tíu mörk,“ sagði Ragnheiður, sem átti góðan leik ásamt Ingu Fríðu Tryggvadóttur og Nínu K. Bjöms- dóttur. „Það gerði gæfumuninn að við misstum þær of langt fram úr okkur í byrjun og voram allan leik- inn að reyna að vinna það upp og það var of erfitt að elta þær. Ur- slitakeppnin leggst vel í mig og hefur alltaf gert en það verður erf- iðara núna en áður þó að takmark- ið sé enn það sama. Við erum enn- þá að leita leiða til að fylla skarðið sem myndaðist þegar Herdís meiddist en við höfum góðan tíma, hálfan mánuð í fyrsta leik og þá mánuð ef við vinnum fyrstu leikina. Sjálfstraustið hjá liðinu er í góðu lagi þó að það hafí verið dauft yfir leiknum á undan þessum, en Fram er með gott lið og engin skömm að því að tapa fyrir þeim. Við vorum líka búnar að tryggja okkur deild- armeistaratitil og þær vildu sýna okkur að þær væru rétt við hælana á okkur.“ Eyjastúlkur að hrökkva í gang Lið ÍBV sigraði Hauka í Eyjum á laugardag, 24:20, í hörkuspenn- andi leik. Eyjastúlkur hafa því lagt ■■■■■■ að velli tvö af sterkari Sigfús Gunnar liðum landsins á Guðmundsson heimavelli í tveimur síðustu umferðum mótsins og þar með hringt viðvöranarbjöllum fyrir úr- slitakeppnina þar sem þær mæta Framstúlkum. Leikurinn á laugardag var hörku- spennandi, Eyjaliðið hafði þó gott framkvæði í fyrri hálfleik og náði mest 4 marka forskoti en Haukar klóraðu í bakkann fyrir hlé svo munurinn var aðeins 2 mörk í hléi. Haukar héldu uppteknum hætti í upphafi síðari hálfleiks, jöfnuðu Liðin sem mætast STJARNAN leikur við Gróttu/KR í úrslitakeppninni 19. mai-s og þá eigast einnig við Valur og Haukar. Liðin leika sinn annan leik 21. mars og ef þau þurfa að leika þriðja leikinn verður hann 23. mars 20. mars leikur Fram við ÍBV og Víkingur mætir FH. Liðin mætast aftur 22. mars og ef þau þurfa að leika þriðja leikinn, verður hann 24. mars. Undanúrslitin hefjast síðan 12. apríl. leikinn og lengi vel var jafnt á öll- um tölum. En þegar staðan var 16:17 Haukum í vil tóku Eyjastúlk- ur góðan sprett, gerðu 4 mörk í röð og sigraðu að lokum með fjögurra marka mun, 24:20, og enduðu í 7. sæti deildarinnar. Sem íýrr var vöm liðs IBV góð og Lukrecija Bokan sterk í mark- inu, Améla Hegic var og öflug í sókninni. Hjá Haukum varði Vaiva Drilingaite oft vel og Thelma Árna- dóttir átti góða spretti. ■ Úrslit/ B14 ■ Staðan/B14

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.