Morgunblaðið - 09.03.1999, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ
HANDKNATTLEIKUR
ÞRIÐJUDAGUR 9. MARZ 1999 B 5
Tíundi heimasigur ÍBV
HK-menn færast nær sæti í átta liða úrslitum
„ÉG var 39 ára í síðasta leik og gat ekki neitt og nú á fimmtugs-
aldrinum fór þetta fyrst að ganga,“ sagði Sigurður Valur Sveins-
son þjálfari og leikmaður HK kampakátur eftir mikilvægan bar-
áttusigur á Haukum, 28:25.
HK-menn bjrrjuðu vel í leiknum
og náðu að komast tveimm-
mörkum yflr. Sá munur hélst þó
■■■■■■ ekki lengi því Hauka-
Tómas Gunnar menn náðu að jafna
Viðarsson þegar um sjö mínútur
skrífar voru ijgnar af feikn.
um, 2:2. Vamarleikur
beggja liða var ágætur og iiðunum
gekk erfiðlega að skora íyrst um
sinn. Það má eiginlega segja að
varnarleikurinn hafí verið á kostnað
sóknarleiksins.
Mikið jafnræði var með liðunum í
fyrri hálfleik. HK var þó alltaf
skreflnu á undan en yflrleitt þurfti
ekki að bíða lengi eftir jöfnunar-
marki Haukamanna. Það var því í
takt við hálfleikinn að jafnt var í
leikhléi, báðum liðum tókst að skora
ellefu sinnum.
Seinni hálfleikurinn var líkur
þeim fyrri hvað jafnræðið varðar.
Varnarleikurinn var hins vegar ekki
í sama gæðaftokki. Á fyrstu tuttugu
mínútum hálfleiksins var vamar-
leikurinn það slakur að liðin gátu
nánast skorað að vild. Á þessum
kafla voru gerð 22 mörk, sem skipt-
ust jafnt á milli liðanna, og segir
það í raun allt sem segja þarf.
Eftir þetta mikla markaregn
ákvað HK að taka Ieikhlé og það
átti eftir að skila sér. Með ræðu Sig-
urðar í huga náðu leikmennirnir að
þétta varnarleikinn. Uppskeran
varð sú að þeir gerðu fjögur mörk í
röð og breyttu stöðunni í 28:24. Það
var þessi góði lokakafii sem skóp
sigurinn. Haukar náðu þó að klóra í
bakkann áður en yflr lauk, lokatölur
28:25.
Oft hafa Haukamenn leikið betur.
Sóknarleikur þeima var tilviljunar-
kenndur og varnarleikurinn, á köfl-
um, ekki upp á marga fiska. HK er
hins vegar á mikilli siglingu. Liðið
hefur einungis tapað tveimur leikj-
um í síðari umferðinni og allt annað
er að sjá til liðsins nú en í upphafi
móts.
Með sigri tókst HK-mönnum að
skjótast upp um eitt sæti. Þeir eru
jafnir IR og Val að stigum en verma
það níunda sökum óhagstæðara
markahlutfalls. Næsti leikur þeirra
er einmitt gegn Valsmönnum og
ekkert nema sigur gulltryggir þá í
átta liða úrslitin þó svo að jafntefli
FOLK
„HVAÐ næst... verða settir tveir menn mér til höfuðs,“ getur
Sigurður Valur verið að hugsa, en hann var tekinn úr umferð
í leiknum gegn Haukum.
■ EINAR Gunnar Sigurðsson leik-
maður UMFA skoraði mark frá
miðju um miðjan fyrri hálfleik þegar
hann komst inn í sendingu frá Sig-
mari Þresti Oskarssyni markverði
Eyjamanna.
■ ÞÁ voru Eyjamenn á leið í hraða-
upphlaup, Einar Gunnar sá að Sig-
mar Þröstur var ekki í markinu og
stökk upp á miðjunni og skaut og
þrátt fyrir hetjulega tilraun Sigmars
Þrastar tókst honum ekki að koma í
veg fyrir mark.
■ SIGMAR Þröstur bætti síðan fyr-
ir þetta því í einu vítakasti sem
Bjarki Sigurðsson tók var Sigmar
kominn niður, nánast sestur, en var
þó nógu snöggur upp til að slá bolt-
ann frá Bjarka í þverslána.
■ ÞAÐ var háður nokkurs konai-
forleikur að þessum leik í Eyjum
þegar sömu lið mættust í undanúr-
slitum bikarkeppni 4. flokks. Rétt
eins og í meistaraflokki sigi-uðu
Eyjamenn með þriggja marka mun,
18:15.
■ FJÖLMÖRG vítaköst voru dæmd í
leik HK og Hauka, eða alls fimmtán.
Skorað var úr öllum nema tveimur.
Sá leikmaður sem sá til þess að
klúðra þeim, var enginn annai’ en
Sigurður Vaiur Sveinsson.
■ SIGURÐVR Valur fékk blómvöng
í leikhléi og þá mættu upprennandi
dansstjörnur á gólfið og dönsuðu
honum til heiðurs - í tilefni fertugs-
afmæli hans síðastliðinn föstudag.
gæti dugað. Haukar eru öruggir
með sæti á meðal þeirra bestu, en
ljóst er að liðið verður að leika bet-
ur í úrslitakeppninni en það hefur
verið að gera upp á síðkastið ef það
ætlar sér einhverjar rósir.
Hjá Haukum voru þeir Óskar Ár-
mannsson og Kjetil Ellertsen einna
sprækastir. Maður leiksins var þó
án nokkurs vafa Sigurður Valur
Sveinsson leikmaður og þjálfari
HK. Hann var með vel hlaðna „fall-
byssu“ - sem hann hefur sennilega
fengið á fertugsafmælinu, í leiknum
og skoraði 11 mörk þrátt fyrir að
vera tekinn úr umferð nánast allan
síðari hálfleikinn. Sigurður er kom-
inn á fimmtugsaldurinn og skorar
enn grimmt. Það er spurning hvort
það segi meira um hann sem leik-
mann eða íslenskan varnarleik.
„Þetta segir miklu meira um mig
sem leikmann,“ svaraði Sigurður
hlæjandi þegar hann var inntur eft-
ir þessu atriði. Sigurður sagðist
ekki hafa fundið neinn mun á sér en
ef eitthvað væri þá væri hann bara
léttari á sér. En þrátt fyrir það ætl-
ar hann að hætta eftir þetta tímabil.
„Já, ég ætla að klára þetta verkefni,
koma okkur í átta liða úrslit og
standa okkur sæmilega þar, svo
hengir maður skóna á snagann.
Ástæðan er fyrst og fremst aldur-
inn og tíminn.“
mui guiiuiciuiu/vjruui
SIGURÐUR Valur Sveinsson skoraði ellefu mörk gegn Haukum. Hér er hann fyrir framan varnarmúr Hauka, tilbúinn að iáta skotið ríða af.
Eyjamenn tóku á móti deildar-
meisturum Aftureldingar í
Eyjum á sunnudag en sigur var
■■■■■■ heimamönnum nauð-
Sigfús Gunnar syn til að tryggja sér
Guðmundsson gæti í úrslitakeppn-
skrifar jnnj j,ag lánaðist
leikmönnum ÍBV;
þeir lögðu UMFA að velli með
þriggja marka mun, 28:25. Settu
þeir þar með punktinn yfir i-ið á
glæsilegum árangri á heimavelli á
leiktíðinni, sigruðu í 10 af 11 leikj-
um sínum.
Leikurinn var jafn í upphafi, liðin
skiptust á um forskotið en svo fór
að leikmenn Aftureldingar, sem
mættu greinilega afslappaðir til
leiks, fóru að síga framúr. Náðu
þeir í tvígang um miðjan hálfleikinn
fjögurra marka forskoti á kafla þar
sem léttleikinn réð ríkjum hjá þeim
og alls kyns „sirkussendingar" litu
dagsins ljós og flestar þeirra báru
árangur. Eyjamenn létu ekki slá sig
útaf laginu heldur söxuðu á forskot-
ið og náðu að jafna leikinn en Aftur-
elding hafði þó eins marks forskot í
leikhléi, 15:14.
Það voru leikmenn UMFA sem
byrjuðu siðari hálfleik betur, gerðu
tvö fyrstu mörkin, en eftir það fóru
heimamenn í gang, jöfnuðu og
komust yfir. Höfðu þeir síðan frum-
kvæðið nánast til leiksloka með
þeim undantekningum þó að í
tvígang tókst leikmönnum Aftureld-
ingar að jafna en það dugði skammt
og þriggja marka baráttusigur
Eyjamanna, 28:25, var í höfn.
Haraldur Hannesson var sterkur
í vörn í annars jöfnu Eyjaliði auk
þess sem hann skilaði góðum mörk-
um úr hraðaupphlaupum. í liði Aft-
ureldingar stóð Ásmundur Einars-
son í markinu og stóð sig vel. Auk
hans átti Savukynas Gintaras prýði-
legan leik fyrir UMFA.
Sigurður mætti
með vel hlaðna
„fallbyssu“