Morgunblaðið - 09.03.1999, Side 8

Morgunblaðið - 09.03.1999, Side 8
8 B ÞRIÐJUDAGUR 9. MARZ1999 MORGUNBLAÐIÐ + FRJÁLSÍÞRÓTTIR JÓN Arnar Magnússon, Tindastóli, hafnaði í 5. sæti í sjöþraut heimsmeistaramótsins og bætti eigið Norðurlandamet um 123 stig, fékk 6.293 stig. Hann var 62 stigum frá bronsverðlaunum. Þrátt fyrir að Jón hafi bætt sig mest allra keppenda tókst honum ekki að ná marki sínu á mótinu, það er að vinna gull- eða silfur- verðlaun, a.m.k. að leika sama leikinn og á síðasta heimsmeist- aramóti er hann hafnaði i þriðja sæti. Glæsilegt Norðurlandamet fellur því að nokkru leyti í skugga af þessari staðreynd. Pólverjinn, Sebastian Chmara, Evrópumeistari í sjöþraut, varð sigurvegari sjöþrautarinnar, fékk 6.386 stig eftir æsi- jvar lega bai-áttu við Erki Benediktsson Nool, Eistlandi, í síð- skrífar ustu grein. Nool hafði farið illa að ráði sínu í hástökki á fyrri degi og dróst aftur úr um stund, en sérlega góður ár- angur í stangarstökki, 5,50 metrar, á síðari degi kom honum í fremstu röð á ný. Með árangrinum í stang- arstökkinu opnaðist möguleikinn og keppni hans og Chmara i 1.000 metra hlaupinu var mikil sem end- aði með naumum sigri Pólverjans og um leið innsiglaði hann sigur sinn í þrautinni. Nool fékk 6.374 stig. Tékkinn Roman Sebrle hreppti þriðja sætið, hlaut 6.319 stig og landi hans Tomás Dvorák varð fjórði, önglaði saman 6.309 stigum. Því næst kom Jón, Rússinn Lev Lobodin í sjötta sæti með 6.153 stig og lestina rak Ungverjinn Dezö Szabó, fékk 6.029 stig. Áttundi keppandinn, Chris Huffins, Banda- ríkjunum, hætti keppni eftir 5. grein og kenndi um meiðslum. Eftir keppni á fyrri degi var Jón í 4. sæti með 3.546 stig, aðeins fjórum stigum á eftir Dvorák er var í 2. sæti. Sebrle var fyrstur og Chmara í 3. sæti. Þá voru Huffíns og Nool skammt á eftir og ljóst að hörð keppni yrði um verðlaunasæti og því mætti ekkert bera út af. í fyrstu grein dagsins, 60 metra grindahlaupi, varð Jón í 6. sæti á 8,09 sekúndum, 10/100 frá íslands- meti sínu og þótt eflaust væri til of mikils ætlast að hann jafnaði þann árangur var Jón nokkuð frá því sem vonir stóðu til um. Fékk hann 959 stig fyrir tíma sinn. Á næstsíðustu grind virtist sem Jón missti jafnvæg- ið og hafði það sín áhrif og minnkaði hraðann. Lobodin var fyrstur á 7,81 sek. og hlaut 1.030 stig. Dvorák varð annar á 7,84 og Huffins þriðji, 7,91. Allir fengu þeir yfir 1.000 stig hver. Sebrle og Chmara voru hins vegar á undan Jóni sem var í 5. sæti í stiga- keppninni eftir greinina. Því næst var tekið til við stangar- stökkið og þar reið á að Jón stykki a.m.k. 5,10 metra, helst 5,20, til þess að eiga góða möguleika á verðlauna- sæti. Tékkarnir höfðu báðir nokkurt forskot á Jón fyrir þessa grein og vitað var að Chmara gæti stokkið hærra en Jón. Hann byrjaði á því að fara auðveldlega yfir 4,80 metra og síðan 5 metra. Þegar röðin kom að 5,10 byrjuðu vandræðin og hann felldi í þrígang. Jón vann því færri stig en ella á Tékkana sem fóru 4,80 og 4,90 og Chmara jók forskot sitt á Jón er hann stökk 5,20. Nool jafnaði hins vegar sinn besta árangur, stökk 5,50 og vann m.a. rúmlega 150 stig á Jón Arnar svo dæmi sé tekið. Það sýnir vægi þessarar greinar þar sem Er að sjálfsögc sáttur með árai „ÉG náði ekki því takmarki sem ég hafði sett mér og það eru mikil vonbrigði,“ sagði Jón Arnar Magnússon, eftir að hafa hafnað í 5. sæti í sjöþraut heimsmeistaramótsins og bætt Norð urlandametið um 123 stig. „Vonbrigðin eru mikii að ná ekki því takmarki sem maður hefur sett sér, ekki síst vegna þess að það vantaði svo lítið upp á hjá mér, svo sem eina hæð til við- bótar í hástökki eða stangarstökki eða þokkalegt sextíu metra hlaup svo dæmi sé tekið.“ Jón segist hafa ætlað sér meira í 60 metra grindahlaupinu á síðari degi eftir slakan árangur í 60 metra ■■■■■■I hlaupi á fyrri degi. „Ég ívar hélt í við Roman Sebrle Benediktsson 0g yirtist á góðu róli þegar kom að næst síð- ustu grind. Þá rak hann handlegginn óvart í mig með þeim af- leiðingum að ég missti janfvægið og það dró úr hraðanum og ég missti hann verulega fram úr mér. Þar tap- aði ég verulegum tíma, en svona er þetta.“ Nú ert þú fullhvíldur og léttari en áður, eigi að síður bregðast sprett- hlaupin, hver er skýringin á því? „Spretthlaupin eru bara léleg, ég fann aldrei fimmta gírinn því miður, hver sem skýringin er á því. Ég komst bara aldrei af stað, þetta var afar einkennilegt. Síðan náði ég góð- um hraða í atrennunni í langstökk- inu.“ Þá var hástökkið lakara en vonir stóðu til. „Ég er tveimur til þremur sentí- metrum frá því sem ég á best og ein- hverntímann hefði það nægt og mað-' ur ekki þurft að naga sig í handarbök- in yfir því. Keppnin í þrautinni er bara orðin svo jöfn að það má ekkert bregðast, maður verður að ná því besta fram í hverri grein til þess að vera með í baráttunni um verðlaun á mótum, það næstbesta nægir ekki.“ Fyrir mótið varst þú að gera þér vonir um að geta að minnsta kosti far- ið yfír 5,10 metra í stangarstökki, einnig það brást og þú fórst yfír fímm metra og misstir þar með af verð- launasæti. Gerðirðu of miklar kröfur til þín í stangarstökkinu? „Alls ekki. Ég hef verið að stökkva 5,10 metra og 5,20 leikandi létt en þegar kemur að mótum þá verð ég ákafari og stangirnar verða mýkri. Um leið næ ég ekki að fara eins hátt og efni standa til. Ég ætlaði mér bara of mikið og gaf mér ekki þann tíma sem þurfti til að stökkva vel. Á þessa stöng sem ég notaði hef ég verið að stökkva 5,20 og það átti ekki að vera vandamál að þessu sinni en varð það.“ Þú gafst þér tíma til að einbeita þér í langstökkinu sem oft hefur vantap. I stangarstökkinu gerist það ekki. Áttu enn erfítt með að einbeita þér í keppni? „Ég gaf mér góðan tíma fyrir stökkin, það sem vantaði var hins veg- ar meiri vandvirkni við að tylla stöng- inni niður og vinna í því sem á eftir kemur þegar maður er kominn á loft, maður verður víst að gefa sér tíma þar einnig Jiegar komið er upp í þess- ar hæðir. Ég kom of fljótt að ránni og felldi hana, í stað þess að vanda mig meira.“ Jón sagði keppnina hafa verið eins jafna og við hefði mátt búast og í raun hefðu nokkrar greinar í heildina verið betri hjá öllum en við mátti búast, t.d. langstökkið, kúluvarpið og stangar- rúm 30 stig fást til viðbótar fyrir hverja 10 sm, svipað og hverja þriggja sentímetra hækkun í há- stökki. Eitt þúsund metra hlaup var síð- asta greinin að vanda og þar bætti Jón Arnar sinn fyrri árangur um fjórar sekúndur, hljóp á 2.39,55 mín- útum en það dugði skammt, tveggja sekúndna betri tími hefði skilað verðlaunasæti að því gefnu að aðrir hefðu ekki hlaupið á betri tíma. Jón hafnaði í þriðja sæti í hlaupinu, á eft- ir Chmara og Nool, en tveimur sek- úndum á undan Tékkunum. Eftir stóð 5. sætið og Norður- landamet, en brostnar vonir. Reikn- að hafði verið með að keppnin yrði jöfn og 6.300 til 6.400 stig þyrfti í verðlaunasæti. Það gekk eftir. Hjá Jóni vantaði herslumuninn tO þess að allt gengi eftir. Jón var 26 stigum frá 3. sæti keppninnar, þótt enda- laust megi segja ef, skal á það bent að 10 sm hærra stökk í stangar- stökki hefði gefið 31 stig til viðbótar og 3 sm í hástökki 28 stig. Það sýnir hins vegar aðeins að það verður alltaf að gera sitt besta, hið næst- besta dugir ekki. „ÉG er tveimur til þremur sentimetrum frá því sem ég á best í hástökki - og einhverntímann hefði það nægt < ar Magnússon, sem er hér í hástökkkeppninni í H Norður- landa- met - en brostnar voi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.