Morgunblaðið - 09.03.1999, Síða 9

Morgunblaðið - 09.03.1999, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MARZ 1999 B 9 FRJÁLSÍÞRÓTTIR stökkið. „í eitt þúsund metra hlaup- inu bætti Chmara sig um þrjár sek- úndur, Nool um fjórar og ég um fimm en það nægði ekki. Hefði ég bætt mig um eina sekúndu til viðbótar hefði ég náð bronsinu. Það munaði því sára- litlu, en alveg nógu samt.“ Þú hefur einbeitt þér að æfingum fyrir þetta mót í vetur og ætlaðir þér mun stærri hlut en raun varð á. Það hljóta var vera mikil vonbrigði. „Eg er að sjálfsögðu ekki sáttur við minn hlut, en það má ekki láta það slá sig út af laginu, heldur læra af því sem miður fer.“ Þarft þú ekki að setjast niður með Gísla þjálfara og athuga hvað hefur brugðist? „Við þurfum að gera það og athuga hvað gerðist í spretthlaupunum. Hins vegar verðum við að halda okk- ar striki í tækniæfingum í hástökki og stangarstökki. Þar hefur mikið verið gert en margt eftir sem við verðum að halda áfram að bæta. Margir andstæðinga minna hafa æft þessar greinar í áratug og jafnvel lengur, en ég hef æft undir leiðsögn í fjögur ár.“ Sebastian Chmara sem vann nú og eins á Evrópumeistaramótinu í fyrra er sex árum yngri en þú, vart hefur hann meiri reynslu en þú? „Chmara var að byrja að keppa á alþjóðlegum mótum um líkt leyti og ég þannig að hann hefur ekkert minni reynslu en ég þrátt fyrir að vera yngri. Hann varð heimsmeistari stúd- enta og hefur verið lengi að og um leið viðað að sér reynslu. Hann er mjög sterkur í sjöþrautinni, en hefur ekki náð sama styrk í tugþrautinni þar sem spjótkast, kringlukast og 400 metra hlaup er slakt hjá honum. Hann er að sækja í sig veðrið og verða feikisterkur." Jón verður að taka hrað- ari framförum „ÞRÁTT fyrir hraðar framfarir hjá Jóni Arnari þá nægja þær ekki til þess að halda í við aðra, því miður. Þetta segir okkur það að Jón Arnar verður að bæta sig enn hraðar,“ sagði Gísli Sigurðs- son, þjálfari Jóns Arnars Magnússonar. „Fyrir mótið vissum við að það gæti þurft að ná 6.300 til 6.400 stigum til þess að kom- ast á verðlaunapall og það gekk eftir. Jón Arnar er nálægt þeim árangri og þótt hann bæti mest allra keppenda, um 123 stig, nægir það ekki. Hann á verðlaun frá heimsmeistaramóti innan- húss í París 1997 og í Ijósi þess þá eru það vonbrigði að hafna í fimmta sæti þrátt fyrir að hann bæti sig mikið.“ Gísli segir það verulegt um- hugsunarefni hvers vegna Jón hafi ekki náð sér á strik í sprett- hlaupum, þar sem hann sé léttari en oft áður og hafi fengið góða hvíld fyrir mótið. „Undir svipuðum kringumstæðum hefur hann alltaf verið góður í spretthlaupunum, nú bregður svo við að hann bregst. Fyrir mótið hafði hann hlaupið undir meira álagi á betri tímum en nú. Nú nær hann ekki að sýna „frískleika" í spretthlaupunum og það er engin launung á að ég hefði viljað sjá tíu hundraðshlutum betri tíma bæði í 60 metra hlaupinu og grindahlaupinu. A sama tíma og þetta gerist hleypur hann hins veg- ar mjög vel atrennuna í langstökk- inu. Þetta ætti hins vegar að hald- ast í hendur. Yfir þetta atriði og fleiri þurfum við að leggjast og leita skýringa á. Einnig er Jón ekki nógu frískur í hástökki og stangar- stökki, þar sem hann hefði þurft að fara yfir eina hæð til viðbótar, það er 5,10 í stöng og 2,05 í hástöídd. Þar er hann að verða af stigum miðað við það sem við höfum verið að sjá á æfingum og jafnvel í mót- um. Þessi stig eru ekkert færri en þau sem hann hefði hugsanlega getað náð inn með betri sprett- hlaupum.“ Er skýiinga að leita í því að áherslur ykkar við æfmgar hafí verið rangar? „Það er ekki hægt að fullyrða um það á þessu stigi málsins, ég þarf að skoða það þegar heim verð- ur komið. Eins og málið stendur nú strax eftir keppni held ég að svo sé ekki. Jón hefur verið að hlaupa upp á síðkastið betur en hann gerði nú og hann hefur einnig verið að stökkva hærra í stangarstökki.“ • Reuters JÓN Arnar Magnússon í stangarstökkskeppninni. Þrjú landsmet ÞRJU landsmet voru sett í sjö- þrautarkeppni heimsmeistara- mótsins. Erki Nool, Eistlandi, bætti eigið met sem haim setti fyrir mánuði úr 6.309 stigum í 6.374. Tékkinn Roman Sebrle fékk 6.319 stig og bætti met landa síns Roberts Zméliks um 91 stig, en þamð met setti Zmelik er hann vann gullið i sjöþraut á HM fyrir tveimur árum. Þá var Tomás Dvorák einnig undir gamla tékklenska metinu en hann hafnaði í fjórða sæti þrautarinnar með 6.309 stig. Ekki þarf að taka fram að þetta er besti árangur Dvoráks, sem er heimsmeist- ari í tugþraut. Loks setti Jón Amar Magnússon Islandsmet í sjöþraut, 6.293 stig, bætti fyrra met um 123 stig. Met Jóns í kúluvarpi féll HEIMSMEISTARAMÓTSMET Jóns Amars Magnússonar í kúluvarpi sjöþrautarinnar, 16,27 metrar sem hann setti á HM 1997, var bætt í sjöþraut- arkeppninni er Tékkinn Tomás Dvorák varpaði kúl- unni 16,70 metra í fyrstu um- ferð. Dvorák náði ekki að gera betur í næstu tveimur köstum og Jón Amar varð að sjá á eftir metinu, hans lengsta kast var 16,08. Chmara með met í 1.000 m SEBASTIAN Chmara, Pól- landi, setti heimsmeistara- mótsmet í 1.000 metra hlaupi í sjöþraut er hann kom í mark á 2.37,86 mín. Gamla metið setti Tomás Dvorák á HM 1997, 2.40,75. Erki Nool og Jón Arn- ar hlupu einnig á skemmri tíma en gamla metið. Nool hjjóp á 2.38,63 og Jón á 2.39,55. Chmara bætti sinn fyrri árangur um leið um 3 sekúndur, Nool um fjórar sek- úndur og Jón um nærri fimm. Nool jafnaði sitt besta EISTLENDINGURINN Erki Nool jafnaði sinn besta árang- ur í stangarstökki í sjöþraut er hann vippaði sér yfir 5,50 inetra. Fékk hann að Iaunum 1.067 stig, 95 stigum meira en Sebastian Chmara sem stökk 5,20 metra. Ámagurinn lyfti Nool einnig upp í 2. sætið f stigakeppninni en fyrir stang- arstökki var hann í 6. sæti. Vala fékk önnur verðlaun Norðurlanda NORÐURLÖNDIN riðu ekki feitum hesti frá heimsmeist- aramótinu í Maebashi og voru Norðmenn og Svíar sérlega óánægðir með sinn hlut, en íþróttamenn þeirra komu tóm- hentir frá mótinu. Norður- löndin fengu aðeins tvenn silf- urverðlaun og þar af vann Vala Flosadóttir, IR, önnur þeirra er hún hafnaði í öðm sæti f stangarstökki kvenna. Hin veðrlaunin komu í hlut heimsmethafans í 800 m hlaupi karla innanhúss og ut- an, Danans Wilsons Kipketers. Hann varð að gera sér annað sætið að góðu og var 3 sek- úndum frá heimsmetinu sem hann setti á HM í París fyrir tveimur árum. T

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.