Morgunblaðið - 09.03.1999, Qupperneq 10
10 B ÞRIÐJUDAGUR 9. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRJÁLSÍÞRÓTTIR
Fredericks
og Jackson
hyggjast
hætta
TVEIR af fremstu spretth-
laupurum heims, Namibíu-
maðurinn Frankie Freder-
icks og Colin Jackson heims-
methafi í 110 metra grinda-
hlaupi, segjast báðir vera á
síðustu metrum hlaupafer-
ilsins. Þeir eiga það sameig-
inlegt að liafa báðir orðið
heimsmeistarar á HM utan-
húss 1993, Fredericks í 200
metra hlaupi og Jackson í
grindahlaupinu. Þá setti
hann heimsmet sem enn
stendur, 12,90 sekúndur. Á
HM innanhúss í Maebashi
um sfðustu helgi unnu þeir
báðir gullverðlaun.
„Eg reikna með því að
rifa seglin eftir HM í Sevilla
í sumar,“ sagði Fredericks á
blaðamannafundi í Maebas-
hi. „Eins og mál standa nú
er þátttaka á Ólympíuleik-
unum í Syndey á næsta ári
ekki inni í dæminu hjá mér,“
bætti hann við. Fredericks
hefur oft og iðulega unnið
silfurverðlaun á stórmótum
þrátt fyrir að hafa verið í
fremstu röð í 100 og 200
metra hlaupi allan þennan
áratug. M.a. varð hann ann-
ar í 200 metra hlaupi á síð-
ustu Ólympíuleikum á næst-
besta tíma sögunnar, 19,68.
Jackson segist vera farinn
að lýjast eftir að hafa verið í
hópi fremstu grinda-
hlaupara heims í 13 ár, en
hann er 32 ára eins og
Frederick. „Ég ætla að
reyna að keppa á Ólympíu-
Ieikunum í Sydney, en það
er ekkert sjálfgefið. Eftir að
maður er kominn inn á fer-
tugsaldurinn þarf að leggja
enn harðar að sér en áður
til þess að halda sér í
fremstu röð. Á ferlinum hef
ég farið í fímm uppskurði
og á enn í hnjámeiðslum
sem kvelja mig oft þannig
að það tekur verulega á og
stundum langar mig helst til
þess að hætta,“ sagði
Jackson.
Reuters
HAILE Gebrselassie, heims-
meistarari í 1.500 og 3.000,
fagnar eftir sigurinn í 1.500
metra hlaupi.
tvöfalt
iTfer SKIPTILINSUR
V ^X/ GLERAUGNABÚDINj T) HelmoutKreidJer y ^^»*^^fc.Laugavegi 36 BD Á fPAKKA KR. 3.000
■ n#%
Þjálfarastyrkir ÍSÍ
Verkefnasjóður ÍSÍ auglýsir hér með til umsóknar styrki
fyrir íþróttaþjálfara til að kynna sér þjálfun erlendis. Að
þessu sinni verða veittir 10 styrkir, hver að upphæð kr.
50.000, en ætlunin er að auglýsa aftur eftir umsóknum í
haust og veita þá jafnmarga styrki.
Við úthlutun verður leitast við að styrkja sem flestar
íþróttagreinar. Þjálfarar hvers kyns hópa (afreksmanna,
barna, unglinga o.s.frv.) koma jafnt til greina við úthlutun.
Konur eru sérstaklega hvattar til að sækja um styrkina.
Umsóknum, með lýsingu á náms- og starfsferli, auk
greinargóðrar lýsingar á fyrirhugaðri ráðstöfun styrksins
og ávinningi íþróttahreyfingarinnar af henni, skal skilað til
skrifstofu ÍSÍ, íþróttamiðstöðinni í Laugardal, í síðasta lagi
26. mars nk.
Frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofu ÍSÍ,
sími 581 3377, netfang isi@toto.is
íþrótta- og ólympíusamband íslands
„AÐ vinna ein gullverðlaun er hefðbundið hjá mér en tvenn er
óvenjulegt og mig langaði til þess að freista þess að þessu sinni
og það tókst,“ sagði Haile Gebrselassie, heimsmeistarari f 1.500
og 3.000 metra hlaupi karla, eftir að hann hafði unnið síðari
verðlaun sín á mótinu, fyrir 1.500 metra hlaup.
Hann kom í mark á 3.33.77 mín-
útum eftir að hafa lent í harðri
baráttu við fyrrverandi heimsmeist-
ara, William Tanui, Kenya og landa
hans, Laban Rotich. Sá vann silfrið
á 3.33,98 og Evrópumethafínn
Andreas Diaz, Spáni, vann bronsið
á 3.34,46 eftir mikinn sprett síðustu
50 metrana.
„Eg þurfti að hafa mun meira
fyrir gullinu í 1.500 metra hlaupinu,
en vann það á góðum lokaspretti
þar sem ég reyndi að slá andstæð-
inga mína út af laginu. Fyrir hlaup-
ið hafði ég eins og vant er spáð mik-
ið í hvernig andstæðingar hlaupa og
sú vinna bar árangur í dag,“ sagði
Gebrselassi sem kvartaði yfír
þreytu vegna svefnleysis. „Nóttin
fyrir þetta hlaup er sú fyrsta sem
ég hef getað hvílst almennilega síð-
an ég kom því mér hefur gengið illa
að jafna mig á tímamuninum," sagði
Gebrselassie ennfremur en hann
býr hluta ársins í Evrópu og að
hluta til í heimalandi sínu. Hann
sagðist ekki búast við því að snúa
sér að 1.500 metra hlaupi utanhúss í
framtíðinni. „Eftir næstu Ólympíu-
leika hef ég í hyggju að snúa mér að
maraþonhlaupi,“ sagði þessi ein-
staki hlaupari, að margra mati sá
besti sem uppi hefur verið, og brosti
eins og honum einum er lagið.
Engin þreytumerki á Szabó
Rúmeninn Gabriela Szabó lék
sama leikinn og Gebrselassie í 1.500
og 3.000 metra hlaupi kvenna. Hún
sigraði í styttra hlaupinu á laugar-
daginn en bar þess engin merki í
lengra hlaupinu á sunnudag.
Marokkómaðurinn Zahra Ouaziz
reyndi að halda í við Szabó á síðustu
hringjum 3.000 metra hlaupsins en
hafði ekki erindi sem erfiði. Szabó
var mjög einbeitt og hljóp síðustu
200 metrana á 29,5 sekúndum og
tryggði sér öruggan sigur á 8.36,42
mín. Ouaziz kom önnur í mark á
8.38,43.
„Mér hefði ekki getað gengið bet-
ur, að vinna tvenn gullverðlaun á
sama heimsmeistaramótinu er stór-
kostlegt og jafnvel tíminn er ágæt-
ur,“ sagði Szabó er hún hafði kastað
mæðinni eftir síðari sigurinn. „Það
er erfitt að keppa svona ört eins og
hér var gert og því lagði ég ríka
áherslu á að slaka vel á milli þess
sem ég var að keppa og einnig áður
en að keppninni kom. Nú fer ég að
búa mig undir heimsmeistaramótið
utanhúss í ágúst.“
Kúbu-
menn
eru
sigur-
sælir
KÚBUMENNIRNIR Ivan
Pedroso og Javier Sotomayor
urðu heimsmeistarar í fijálsí-
þróttum í íjórða sinn um helgina
er þeir unnu sínar greinar á
heimsmeistaramótinu í Maeebas-
hi í Japan. Sotomayor, sem er á
32. ári, er greinilega ekkert að
slá af þrátt fyrir að hafa verið
lengi að. Hann sveiflaði sér auð-
veldlega yfir 2,36 metra í fyrstu
tilraun og það nægði honum til
sigurs. Landi hans Pedroso
þurfti að hafa meira fyrir sinum
sigri í langstökki.
Eftir að hafa snemma tekið
forystuna í Iangstökkinu með
því að stökkva 8,42 metra lenti
hann í kröppum dansi í síðustu
umferð er Spánveijinn Yago La-
mela stökk 8,56 og setti spánskt
met,. Pedroso sem er heimsmet-
hafi innanhúss, 8,79, lagði sig
allan fram í lokastökkinu og fór
6 cm lengra en Spánverjinn og
hampaði um leið sínum fjórðu
gullverðlaunum á heimsmeist-
aramóti innanhúss, en hann
vann fyrst 1993.
„Ég átti í mesta basli með at-
rennuna í þessari keppni, átti of
mörg ógild stökk,“ sagði
Pedroso glaðbeittur í Iok keppn-
innar. „Eigi að síður leið mér vel
og hafði nauðsynlegt sjálfstraust
til þess að vinna. Ég vissi að ég
gæti auðveldlega stokkið yfír
8,50 metra þannig að það var
bara að sýna fram á það í loka-
stökkinu."
„Þetta er aðeins byrjunin hjá
mér og vonandi get ég gert enn
betur á HM utanhúss í Sevilla í
sumar," sagði Spánverjinn La-
mela og var ánægður með silfur-
verðlaunin. „Ég ætlaði að bæta
spánska metið en að ég færi yfir
8,50 metra var nokkuð sem ég
átti ekki von á,“ bætti hann við.
Sotomayor gefur
ekki eftir
Sotomayor stökk yfir 2,36
metra í fyrstu tilraun en það
gerði Rússinn ungi, Vyacheslav
Voronin, einnig, en þar sem
hann hafði ekki stokkið yfir 2,33
metra fyrr en í þriðju tilraun á
meðan Kúbumaðurinn fór yfir í
fyrstu tilraun var Kúbumaður-
inn sigurvegari. Hvorugum
tókst að stökkva 2,40. Brons-
verðlaun komu í hlut bandariska
Olympíumeistarans, Charles
Austin, hann lyfti sér yfir 2,33
metra.
„Ég gat ekki stokkið nema
með fimm skrefa atrennu í stað
sjö, það var ástæðan fyrir því að
ég stökk ekki yfír 2,40,“ sagði
Sotomayor. „En áhorfendur
studdu mjög við bakið á mér og
hjálpuðu mér yfir erfiðasta
hjallann.
Sotomayor sagðist ætla að
vera með af fullum krafti í
fremstu röð a.m.k. fram yfir
næstu Olympíuleika. Hann væri
í góðri æfíngu um þessar mund-
ir og vonaðist til þess að svo yrði
áfram. Hann varð fyrst heims-
meistari i hástökki innanhúss
1989.