Morgunblaðið - 09.03.1999, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ
KAPPAKSTUR
PRIÐJUDAGUR 9. MARZ 1999 B 11
Schumacher hefur aldrei
fagnað sigri í Ástralíu
Eddie Iwine hristi
FERRARI á tryggan aðdáenda-
hóp um allar jarðir og vegna mik-
ils fjölda ítala og fólks af ítölsku
bergi brotins í Astralíu hefur liðið
ætíð vonast til að geta glatt hóp-
inn í fyrsta móti ársins. A því hef-
ur orðið nokkurt hlé því síðasta
sigur Ferrari á ástralskri grund
vann Gerhard Berger 1987.
I því sambandi hefur Ferrari að
sjálfsögðu sett traust sitt á
Schumacher í seinni tíð þó svo hann
hafi aldrei unnið fyrsta kappakstur
ársins frá því hann hóf keppni í for-
múlu-1. Og áratugur var liðinn frá
því Ferrari vann síðast fyrsta
kappakstur ársins, en það gerði
Nigel Mansell 1989, en þá vai-
keppt í Brasilíu. Segja má því að
Eddie Irvine hafi bjargað heiðri
Ferrari í Astralíu og unnið lang-
þráð afrek sem liðið hafði engar
vonir gert sér um að hann ynni,
heldur Schumacher.
slyðruorðið
VÆGAST sagt hófst 50. keppnistímabil í formúlu-1 kappakstri
öðruvísi en búist hafði verið við og með afar óvæntum sigri má
segja að Bretinn Eddie Irvine hafi hrist af sér slyðruorðið í meira
en einum skilningi. í fyrsta lagi losaði hann sig við glaumgosa-
stimpilinn og í öðru lagi þann vafasama heiður að hafa verið sá
ökuþór sem unnið hefði flest stig í formúlu-1 án þess að hafa
farið með sigur af hólmi í neinu móti.
Eftir óvenjulega atburðarás í
upphafi kappakstursins leit
lengi vel út fyrir fremur tíðinda-
lausa keppni og yfir-
Ágúst burðasigur McLaren,
Ásgeirsson en bílar þeirra tóku
sknfar strax forystu og juku
forystu sína jafnt og
þétt. En á 14. hring kom í ljós að
bílarnir voru ekki eins traustir og
talið var því þrýstingur fór af
vökvakerfi í bfl Davids Coulthards
svo hann var úr leik. Og stuttu
seinna bilaði gírkassi hjá heims-
meistaranum Mika Hákkinen svo
sjálfhætt var.
Kom það nú McLaren í koll að
hafa ekki reynt bflana fulla keppn-
isvegalengd á æfingum og prufu-
akstri það sem af er vetri. Því hafði
Ferrari aftur á móti einbeitt sér að
og reyndist það Irvine vel. Tók
hann forystu þegar þriðjungur var
af keppni og ók mjög vel alla leið í
mark og vann verðskuldað.
Ii'vine hafði 81 sinni keppt í for-
Ferrari
skálaði á
kostnað
McLaren
McLAREN sýndi ákveðna
reisn í niðurlægingu sinni í
Melbourne svo Ferrari gæti
fagnað óvæntum sigri sínum
og Eddie Irvine í íyrstu for-
múlu-1 keppni ársins.
Flestir höfðu búist við tvö-
földum sigri MeLaren, var það
nánast talið formsatriði eftir
æfingar og tímatökur þar sem
silfurörvarnar höfðu mikla yf-
irburði. Og ekki dró úr þeim
spádómum eftir upphaf keppn-
innar þar sem silfuröi-varnar
tvær stungu aðra bfla af og
juku forskotið jafnt og þétt.
En svo fór að báðum fataðist
flugið og liðsmenn McLaren
sátu sneyptir eftir og höfðu
engin not fyrir kampavínið sem
brúka átti í mótslok. Ákváðu
þeir að færa erkifjendunum
hjá Ferrari kampavínsbirgðir
sínar svo þeir gætu fagnað
verðskulduðum árangri.
Var því skálað íyrir íyrsta
sigri Ferrari í opnunarmóti í
áratug og afar óvæntum sigri
Eddie Irvine á kostnað McL-
aren.
múlu-1 kappakstri en aldrei sigrað.
Hafði hann hlotið 99 stig á sex ár-
um eða fleiri stig en nokkur ökuþór
annar sem ekki hafði unnið mót, en
fjórum sinnum hefur hann orðið í
öðru sæti. Hefur honum verið
fundið til foráttu að vera helst til
mikill glaumgosi og skorta vilja og
einbeitingu til að sigra. Var þetta
50. mót Irvine frá því hann gekk til
liðs við Ferrari og hefur honum
tekist það sem Michael
Schumacher á enn ógert með Ferr-
ari, en það er að vinna fyrsta mót
ársins. Aratugur var liðinn frá því
liðið hafði farið með sigur af hólmi í
fyrsta móti ársins.
Statistar
stálu senunni
Schumacher hefur aldrei gengið
vel í Astralíu og engin breyting
varð þar á nú. Byrjaði hann á því að
drepa á bflnum á rásmarki þar sem
gírskipting stóð á sér og varð því að
hefja keppni í öftustu röð, 19. sæti í
stað þriðja. Bilunin virtist í stýris-
hjóli og varð Schumacher því að
gera óvænt hlé á akstrinum til að fá
nýtt stýrishjól með þeim afleiðing-
um að möguleikar hans minnkuðu
enn frekar og hafnaði hann að lok-
um í áttunda sæti, eða síðastur
þeirra bfla er komust alla leið í
mark.
Segja má að sólin í Albertsgarð-
inum í Melbourne hafi íýrst og
fremst skinið á keppendur sem
hafa verið í aukahlutverkum í for-
múlu-1 undanfarin ár. Að Ii-vine
frátöldum áttu Heinz-Harald
Frentzen og Ralf Schumacher, sem
höfðu sætaskipti hjá Jordan og
Williams, mjög góðan dag. Þá lauk
ítalinn Giancarlo Fisichella hjá
Benetton keppni í fimmta sæti og
nýliðinn Pedro de la Rosa frá Spáni
komst í stigasæti í jómfrúrakstri
sínum á Arrows-bfl.
Fjórir heimsmeistarar
féllu úr leik
Annars var kappaksturinn í Mel-
bourne óvenju tíðindasamur. Um
miðbik leiðarinnar hafði rúmur
helmingur bflanna fallið úr keppni
og aðeins átta bflar komust alla leið
í mark. Skotinn Johnny Herbert
var úr leik er kviknaði í bflnum
hans á rásmarki. Tvisvar varð trufl-
un á keppninni er öryggisbflar voru
sendir í brautina er bflar klesstust
og duttu úr leik á hættulegum stöð-
um. Áður er getið vandræða
Schumachers en einnig drapst á
Arrows-bfl de la Rosa. Þá féll
heimsmeistarinn frá 1996, Damon
Hill, út á fyrsta hring í sínum 100.
fonnúlu-1 kappakstri. Loks brotn-
aði vængur af BAR-bíl meistara
Reuters
BRETINN Eddie Irvine fagnaði sigri í Melbourne.
ársins 1997, Jacques Villeneuve,
svo hann féll úr leik á 13. hring.
Enginn heimsmeistaranna frá síð-
ustu fjórum árum lauk því keppni.
Stewart-bílarnir til
alls líklegir
Stewart, lið gömlu kappaksturs-
hetjunnar Jackie Stewart frá
Skotlandi, sýndi í Melbourne að í
því búa hæfileikar til að berjast um
fremstu sæti. Rubens Bairichello
náði fjórða besta tíma í tímatökum
og kom fimmti á mark eftir að hafa
orðið að leggja af stað af bflskúra-
svæðinu, eða í 21. sæti.
Og í ofanálag varð hann að taka
út refsingu meðan á keppninni stóð
fyrir ólöglegan framúrakstur. Varð
hann því að koma inn að bflskúrun-
um og staðnæmast þar í 10 sekúnd-
ur en í heildina tapar ökuþór a.m.k.
30 sekúndum á slíku. Hefði
Barriehello ekki orðið fýrir þessu
hefði hann orðið fjórði í mark.
Getur Ban-ichello sótt huggun í
það að hafa náð næsthraðasta hring
dagsins í brautinni, einungis Mich-
ael Schumacher náði hraðari hring
en hann. Hin nýja Ford Cosworth
V10 CR-1 vél á einna stærstan þátt
í því áberandi hlutverki sem
Stewart-bílarnir léku á æfingum,
tímatökum og sjálfri keppninni í
Melbourne, en hún er talin fram-
leiða um 800 hestöfl.
Annars varð upphaf keppninnar
eitthvað sem Stewart-liðið vill ör-
ugglega gleyma og komast sem
fyrst yfir. Kviknaði í vélarhúsi
beggja Stewart-bflanna um það
leyti sem ræsa átti keppendur af
stað og þar sem liðið hafði einungis
eina bifreið til vara fékk Rubens
Ban-ichello hana og Johnny Her-
bert gat því ekki keppt.
Villeneuve
sektaður
KANADÍSKI ökuþórinn
Jacques Villeneuve öðlað-
ist heiður sem engum öku-
manni þykir nokkur sæmd
að en það var að verða
fyrsti ökuþór ársins til að
hljóta fjársekt fyrir brot á
reglum formúlu-1.
Villeneuve reyndist hafa
brotið reglur um hámarks-
hraða á bílskúrasvæðinu á
æfíngum fyrir tímatökur á
laugardagsmorgni. Mæld-
ist hann á 83 km/klst en
þar má hraðast aka á 80
km.
Verður hann ekki í nein-
um erfíðleikum að borga
sektina, sem hljóðaði upp á
1.000 dollara, jafnvirði 70
þúsund króna, en situr hins
vegar uppi með skömmina.
Skammvinn
gleði
hjá Hill
DAMON Hill hjá Jordan
ætlaði að standa sig í Mel-
bourne en það var 100.
keppnin hans í formúlu-l.
Og þó hann sé langelstur
keppenda virðist keppnis-
gleðin ekkert hafa dvínað.
Náði hann frábæru við-
bragði og skaust strax úr
ni'unda sæti í' það fímmta á
beina kaflanum eftir rás-
mark.
En Adam var ekki lengi í
paradís því er komið var í
þriðju eða fjórðu beygju
bremsaði annar Prost-bíll-
inn helst til seint og ók aft-
an á HiII með þeim afleið-
ingum að hin gula bifreið
hans snerist á brautinni og
flaug útaf henni. Þar með
var keppni hans lokið. ,Ég
er sárgramur yfír því
hvernig fór og vonandi
verður 101. keppnin betri,“
sagði hann eftir á.
Rehband hitahlífar íyfir 30 mismunandi
gerðum fyrirflesta liði ogvöðva líkamans
(ksmo
Alhliba stoötækjasmibi
Trönuhraun 8 • HafnarfírÖi • Sírru 565 2885
Söluaðilar;
Lyfja, Lágmúla 5, Reykjavík ■ Frísport, Laugavegi 6, Reykjavík
Sportbúð Kópavogs ■ Vestursport, Isafirði • Hjólabær, Seífossi
Toppmenn og Sport, Akureyri • Sportbúð Óskars, Keflavík