Morgunblaðið - 09.03.1999, Side 12
12 B ÞRIÐJUDAGUR 9. MARZ 1999
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ
Bæjarar eru ánægðir með sig
Eina liðið sem á möguleika á að
sigra Bayern Miinchen er vara-
lið okkar,“ sagði Thomas Helmer,
miðvörður Bæjara, eftir leik Bayem
og Freiburg. Ottmar Hitzfeld skipti
sex leikmönnum út frá Evrópuleik
liðsins við Kaiserslautem og breytti
það engu fyrir meistarak-
andídatana.
Bayern sigraði ömgglega 2:0 og
var mark þeirra aldrei í hættu í
leiknum svo miklir voru yfirburðir
þeirra.
Bæjarar léku eins og þeir væra
að spara kraftana fyrir komandi
átök sem eru leikir í bikar- og Evr-
ópukeppni.
Gamalt bros tók sig upp hjá
Rainer Bonhof, þjálfara Borussia
Mönchengladbach, en lið hans vann
langþráðan sigur. „Það var gjör-
breytt lið sem lék í dag,“ sagði Bon-
hof glaðbeittur eftir leiídnn við 1860
Miinchen. Ný stjarna skaust upp á
stjörnuhimininn - Sebastian
Deisler, hinn 19 ára leikmaður
„Gladbach", sem skoraði stórglæsi-
legt mark langt utan af velli, og átti
auk þess stórleik. Þetta er mesta
efni sem komið hefur fram í langan
tíma, segja þýsku blöðin.
Hran Schalke heldur áfram og nú
er staða hollenska þjálfara liðsins,
Huub Stevens, sögð afar völt. Niirn-
berg sigraði öragglega í þessum
mikilvæga botnslag, 3:0. Slakir leik-
menn Schalke áttu aldrei mögu-
leika, en þeir hafa ekki unnið útileik
í vetur. Góða skemmtun í seinni
hálfleik, var það eina sem Stevens
öskraði á leikmenn sína í klefanum í
leikhléi, og rauk síðan út. Þá var
staðan 2:0 og svo virtist sem leik-
menn Schalke væru búnir að gefast
upp.
Dortmund vann sinn fyrsta úti-
sigur í vetur þegar liðið sótti Boch-
um heim, 1:0. Dortmund lék án
Andy Möller en í hans stað blómstr-
aði Rússinn But, sem átti stórleik.
Hann er aðeins tvítugur og á sann-
arlega framtíðina fyrir sér.
Hertha Berlín, sem ekki hefur
tapað nema einum leik á heimavelli
á leiktíðinni, fékk meistara Ka-
iserslautern í heimsókn. Gegn gangi
leiksins skoruðu leikmenn Ka-
iserslautern þegai' Ballack skoraði
stórglæsilegt mark langt utan af
velli. Michael Preetz jafnaði leikinn
á 80. mínútu og skildu liðin jöfn, 1:1,
og geta leikmenn Kaiserslautern
mjög vel við unað.
Eyjólfur Sverrisson lék allan leik-
inn hjá Berlín og fékk 3,5 í einkunn
en best er gefið 1 og lakast 5.
Leverkusen hristi af sér slenið og
lék vel gegn Werder Bremen og
sigraði verðskuldað 2:0. Ulf Kirsten
fann loksins leiðina að marki and-
stæðinganna og skoraði loksins eftir
tæplega 500 mínútna bið.
Wolfsburg sigi'aði slakt lið
Hamburger, 4:1. Það er eins og von-
leysi hrjái nú leikmenn og stjóm
Hamburger Sportverein eftir mikl-
ar breytingar og fjáfestingar í
mannskap.
Stuttgart hefur heldur betur rétt
úr kútnum og leikur vel um þessar
mundir. Stuttgart sigraði lið
Frankfurt örugglega 2:0 og getur
nú farið að láta sig dreyma um
Evrópusæti.
Reuters
CHRISTIAN Vieri var enn á skotskónum fyrir Lazio í ítölsku knattspyrnunni um helgina. Hann
fagnar hér marki sínu gegn Salernitana í leik sem fór 6:1 fyrir Lazio.
Góð forysta Barcelona
BARCELONA er komið með
fjögurra stiga forskot á toppi
spænsku 1. deildarinnar í knatt-
spymu. Svo er fyrir að þakka 4:1-
sigri á Salamanca og óvæntu tapi
sólskinsdrengjanna frá Mallorca
fyrir Alaves, 0:2.
Barcelona hefur nú 47 stig eft-
ir 25 leiki, en Celta Vigo er komið
í þriðja sæti eftir 4:0-stórsigur á
Real Betis á sunnudagskvöld.
Real Madrid er ekki víðsfjarri
toppbaráttunni - liðið sigraði
Real Zaragoza 3:2, en þurfti
reyndar til sigurmark frá Raul
Gonzales eftir lok hefðbundins
leiktíma.
Louis van Gaal, hinn hollenski
knattspyrnustjóri Barcelona,
sagðist sáttur við framgöngu
sinna manna - en alltof snemmt
væri að segja titilinn í höfn hjá
liðinu. „Það eru enn 13 leikir eftir
og allt getur gerst. Við eram á
réttri leið en þessi mánuður mun
skipta sköpum í þeirri viðleitni
okkar að vinna aftur meistaratit-
ilinn.“
Valencia er nú í öðra sæti -
hefur betra markahlutfall en
Celta Vigo - og hallast knatt-
spymuspekingar nú að því að lið-
ið sé hið eina sem ógnað geti
Barcelona í toppslagnum. Va-
lencia vann Atletico Bilbao 4:1,
en var undir 0:1 í leikhléi.
Rúmeninn Adrian Ilie var besti
maður Valencia, skoraði stór-
kostlegt mark á 53. mínútu og
jafnaði þar metin og skoraði svo
þriðja mark liðsins úr vítaspyrnu
sem hann fískaði sjálfur.
Fiorentina í toppbaráttunni á Ítalíu
eftir sigur á Parma
Lazio á
a&M ■
ferð
LAZIO hefur fjögurra stiga forystu á toppi ítölsku úrvalsdeildar-
innar í knattspyrnu eftir leiki helgarinnar. „Milljarðaliðið" frá
Rómaborg skellti Salernitana á heimavelli á sunnudag - gerði
sex mörk gegn aðeins einu marki gestanna, sem þó komust yfir.
Fiorentina og AC Milan unnu bæði og fylgja í humátt á eftir.
Þetta var tólfti sigur Lazio í
fjórtán síðustu leikjum liðsins.
Chilebúinn Marcelo Salas skoraði
tvö mörk og fyrirliðinn Nesta eitt -
fyrsta mark hans á ferlinu í efstu
deild.
Hetja Lazio í leiknum var þó án
efa vamarmaðurinn Paolo Negro,
sem kom ekki inn í liðið fyrr en á
síðustu stundu vegna meiðsla.
Ighli Vannucchi kom Salernitana
yfir eftir ríflega hálftíma leik og
mínútu síðar tókst Negro að koma
í veg fyrir annað mark gestanna er
hann bjargaði með undraverðum
hætti á marklínu. Stuttu síðar jafn-
aði hann metin fyrir Rómverja og
staðan var 1:1 í leikhléi.
Seinni hálfleikurinn var eign
Lazio frá upphafi til enda. Marka-
hrókurinn Christian Vieri kom lið-
inu yfir á upphafsmínútunum og
síðan komu mörkin eitt af öðru og
urðu alls sex.
Enn án Batistuta
Fiorentina leikur enn án Argent-
ínumannsins Gabriels Batistuta, en
tókst samt að sigra Parma 2:1 og
skjótast þannig í annað sæti deild-
arinnar. Þar hafði Panna verið fyr-
ir umferðina, en Flórensliðið var
sterkara í leiknum og sigur þess
sanngjarn. Luis Oliveira gerði
fyrra mark liðsins beint úr glæsi-
legri aukaspymu og Rui Costa
bætti öðru marki við í seinni hálf-
leik úr vítaspyrnu.
Sigurinn var mjög mikilvægur
f'yrir Fiorentina, ekki aðeins í topp-
baráttunni heldur einnig til að slá á
þær úrtöluraddir sem sögðu liðið
hvorki fugl né fisk án Batistuta.
„Það er ekki rétt að við getum
ekki án hans verið, sagði Portúgal-
inn Rui Costa eftir leikinn. „Við er-
um ennþá í baráttunni.“
AC Milan hefur gengið vel á
leiktíðinni, en sigur þeirra á Pi-
acenza var í naumasta lagi, 1:0,
enda léku gestimir einum færri
lengi vel. Þýski landsliðsfyrirliðinn
Oliver Bierhoff gerði eina mark AC
í leiknum.
Juventus er allt að koma til og
hefur ekki beðið ósigur í þeim
fimm leikjum þar sem nýi stjórinn
Carlo Ancelotti hefur verið við
stjórnvölinn. Um tíma leit raunar
út fyrir að það myndi breytast í
leik liðsins gegn Sampdoria á
sunnudagskvöld, því Ariel Ortega
kom Sampa yfir í seinni hálfleik
með glæsilegri aukaspyrnu. Þá
sögðu hinir reynslumiklu leik-
menn Tórínó-liðsins hins vegar
hingað og ekki lengra, gerðu tvö
mörk og tryggðu sér þannig öll
stigin. Filippo Inzaghi var hetja
Juve, gerði sigurmarkið á lokasek-
úndunum.
Intemazionale gengur allt í mót
og liðið hefur nú tapað fjóram
leikjum í röð. Liðið lá úti fyrir Bari
um helgina, 1:0, og gerði Yksel Os-
manovski eina mai'k leiksins á 43.
mínútu. Um leið var þetta fyrsti
sigur Bari síðan í janúar.
Þórður
skoraði
og Genk
á toppinn
GENK, lið bræðranna Þórð-
ar, Bjarna og Jóhannesar
Guðjónssona, hefur eins stigs
forystu á toppi belgísku 1.
deildarinnar í knattspyrnu
eftir leiki helgarinnar. Genk
sigraði Charleroi 2:1 og
skoraði Þórður annað niark
Genk með glæsileguni hætti.
Club Brugge er í öðru
sæti, en hefur leikið einum
leik fleira. Brugge steinlá á
sunnudag fyrir Lierse, 5:2,
og forysta Genk getur því
orðið fjögur stig, vinni liðið
botnlið Kortrijk annað
kvöld.
Þjálfari Brugge viður-
kenndi eftir tapið að erfitt
yrði að ná Genk úr þessu.
„Hingað til höfum við verið
með sterkustu vörnina í
deildinni - ég mun krefja
leikmenn skýringa á þeiin
mistökum sem þeir gerðu í
þessura leik,“ sagði hann.