Morgunblaðið - 09.03.1999, Page 16
Guðjón kallaði á ívar
ÍSLENSKA landsliðið í knattspyrnu kom saman í Lúxemborg í
gær til að undirbúa sig fyrir æfingaleik þjóðanna annað kvöld.
Ein breyting var gerð á hópnum sem Guðjón Þórðarson lands-
liðsþjálfari valdi í síðustu viku. ívar Ingimarsson úr ÍBV kom inn í
hópinn fyrir Sigurð Jónsson sem er meiddur á mjöðm. Leikurinn
annað kvöld er hugsaður sem undirbúningur fyrir Evrópuleikina
gegn Andorra og Úkraínu sem fara fram í iok mánaðarins.
Valur B.
Jónatansson
skrifar frá
Lúxemborg
Aðeins einn leikmaður var með í
för frá íslandi, ívar Ingimars-
son. Hinir leika allir
með erlendum liðum
og voi*u að tínast til
Lúxemborgar seinni
partinn í gær. Síðast-
ur til móts við hópinn var Helgi
Kolviðsson sem var að leika með
liði sínu Meinz í þýsku 2. deildinni í
gærkvöldi. Hann var væntanlegur
til Lúxemborgar rétt eftir mið-
nætti í gær.
Slydda var í Lúxemborg í gær og
hiti um frostmark. Islensku lands-
liðsmennimir létu það ekki á sig fá
og æfðu í gærkvöldi við frekar erfið
skilyrði. Forráðamenn Knatt-
spymusambands Lúxemborgar
óskuðu eftir því að íslenska liðið
frestaði æfingunni sem átti að vera
á aðalvellinum þar sem leikurinn fer
fram annað kvöld. Guðjón landsliðs-
þjálfari tók því illa í fyrstu en eftir
að hann skoðaði völlinn samþykkti
hann að æfa á æfingasvæði við hlið
aðalvallarins. „Völlurinn er mjög
mjúkur og við hefðum hreinlega
eyðilagt hann með því að æfa á hon-
um. Hann er mjög blautur og því
var ekki forsvaranlegt að eyðileggja
völlinn með æfingunni. Liðið er að
koma saman í fyrsta sinn í fimm
mánuði, eða síðan við spiluðum við
Rússa heima á Islandi 14. október.
Okkur veitir því ekki af samæfing-
unni fyrir verkefnin sem framundan
eru, en ég reiknaði með betri að-
stæðum hér. En það spáir þurru
veðri á morgun og eins á að hlýna,“
sagði Guðjón.
Landsliðið er skipað nær sömu
leikmönnum og voru í hópnum
gegn Rússum. Einu breytingamar
eru að Þórður Guðjónsson, Genk,
er ekki með núna þar sem hann er
að leika með félagi sínu annað
kvöld og Sigurður Jónsson er frá
vegna meiðsla. Þá var Sigurður
Om Jónsson, KR, ekki valinn í liðið
núna. I þeirra stað koma Eyjólfur
Sverrisson, sem var meiddur í
Rússaleiknum, Brynjar Gunnars-
son^ Orgryte, og Ivar Ingimarsson.
Island og Lúxemborg léku síð-
ast saman 1993 er Asgeir Elíasson
var landsliðsþjálfari. Þá vai- spilað
hér í Lúxemborg og endaði leikui'-
inn með jafntefli, 1:1. Hlynur Birg-
isson jafnaði þá fyrir Island undir
lokin. Lúxemborg hefur leikið tvo
leiki í 5. riðli undankeppni Evrópu-
mótsins og tapað þeim báðum, 3:0
gegn Pólverjum á útivelli og 0:3
gegn Englendingum á heimavelli.
Lúxemborg lék síðast æfingaleik
við Belga í nóvember og endaði
hann með markalausu jafntefli.
Næsti leikur Lúxemborgara í Evr-
ópukeppninni er á móti Svíum og
Búlgörum 27. og 31. mars.
Morgunblaðið/Valur B. Jónatansson
ÞAD var fámennur hópur sem lagði upp frá skrifstofu KSÍ í gærmorgun. ívar Ingimarsson leikmaður,
Stefán Stefánsson sjúkraþjálfari, Guðmundur R. Jónsson liðsstjóri, Sigurjón Sigurðsson læknir, Ás-
geir Sigurvinsson fararstjóri, Guðjón Þórðarson landsliðsþjálfari og Halldór B. Jónsson fararstjóri.
KNATTSPYRNA / VINÁTTULANDSLEIKUR í LÚXEMBORG
Rúnar
sigraði
í London
RÚNAR Alexandersson hélt
áfram sigurgöngu sinni í
fjölþraut í fimlcikum um
helgina og bar sigur úr být-
um á Opna Lundúnamótinu
í frjálsum æfingum. Rúnar
fékk alls 54,25 stig. Hann
hiaut 8,6 fyrir ællngar á
gólfí, 9,7 á bogahesti, 9,2 í
hringjum, 8,4 í stökki, 9,35
á tvíslá og 9,0 á svifrá. Alls
fékk hann hæstu einkunn-
irnar á öllum áhöldunum,
nema í stökki.
Þess má geta að þegar
Rúnar sigraði á bikarmeist-
aramótinu í Laugardalshöll
á dögunum hlaut hann 52,9
í heildareinkunn og hann
sigraði á boðsmóti í Los
Angeles um siðustu helgi
með heildareinkunnina
54,575 - náði þá besta ár-
angri súiurn í fjölþraut til
þessa.
Lárus Orri
áförum
frá Stoke
„ÉG mun ekki skrifa undir
nýjan samning við Stoke,“
sagði Lárus Orri Sigurðs-
son, sem er nú með íslenska
laudsliðinu í Lúxemborg.
Lárus Orri sagði að allt
væri á niðurleið hjá Stoke
og hann vilji fara frá liðinu.
„Ég hef áhuga á að komast
til liðs í fyrstu deild.“ Vitað
er að Sheff. Utd. hefur sýnt
honum áhuga, en þar er
Lou Macari aðstoðarmaður
Steve Bruce, knattspyrnu-
stjóra. Macari var hjá Stoke
þegar Lárus Orri kom til
íiðsins.
Arnar að
semja
við AEK
ARNAR Grétarsson hefur gert
samkomulag við fori'áðamenn
AEK Aþenu í Grikklandi um nýjan
fjögurra og hálfs árs samning.
Amar sagðist gera ráð fyrir að
skrifa undir samninginn á næstu
dögum.
„Ég er ánægður með að sam-
komulag hefur loks tekist milli mín
og félagsins eftir viðræður undan-
farnar vikur. Ég tel samninginn
hagstæðan, ekki síst í fjárhagslegu
tilliti," sagði Arnar.
Amar lék með AEK er liðið
mætti OFI frá Krít, liði Einars
Þórs Daníelssonar, um síðustu
helgi. AEK hafði sigur, 2:0, og vom
Amar og Einar teknir út af undir
lok leiksins. OFI er í áttunda sæti
1. deildar í Grikklandi.
AEK er í öðm sæti deildarinnar
á eftir Olympiakos. Arnar sagði að
Olympiakos hefði leikið vel að und-
anförnu en liðið mætir AEK í loka-
umferð grísku deildarinnar í vor.
„Það væri gaman ef liðin mættust í
hreinum úrslitaleik,“ segir Arnar
Grétarsson.
HANDKNATTLEIKUR / ÞÝSKALAND
Stórieikur Ólafs skaut
Magdeburg í úrslit
Olafur Stefánsson átti frábær-
an leik með liði sínu Mag-
deburg um helgina. Magdeburg
lék gegn öðra þýsku liði, Lemgo, 1
undanúrslitum Evrópukeppni bik-
armeistara. Ólafur, sem var besti
maður vallarins, skoraði hvorki
meira né minna en 10 mörk og
ekkert þeirra úr vítakasti. „Ég
náði mér feiknavel á strik í leikn-
um „ sagði Ólafur í viðtali við
Morgunblaðið að leik loknum.
Leikurinn var afar spennandi og
þuifti Magdeburg að sigra með
tveggja marka mun til að komast í
úrslitaleikinn en Lemgo hafði unn-
ið heimaleikinn með aðeins einu
marki, 23:22.
Þegar staðan var 20:18 fyrir
Magdeburg og ein mín. til
leiksloka, varði markvörður
Lemgo, Grosser, vítakast frá Ólafi
og allt var í járnum. Ólafur bætti
heldur betur fyrir mistökin og
skoraði tvö mörk á lokamínútunni
og tryggði liði sínu ömggan sigur,
22:19.
Magdeburg leikur til úrslita við
Valladolid frá Spáni. Landsliðs-
markvörðurinn Fritz Walter lék
einnig afar vel og era þýsk blöð á
einu máli um að þetta hafi verið
hinn raunverulegi úrslitaleikur því
ekkert lið utan Evrópu geti veitt
hinum sterku liðum Magdeburg
eða Lemgo mótspyrnu.
Tvö önnur þýsk lið börðust
saman í Evrópukeppni félagsliða,
Nettelstedt og Flensburg. Flens-
burg sem hafði 3ja marka forskot
fyrir seinni leikinn var afar hepp-
ið í leiknum þegar staðan var
25:23 fyrir Nettelstedt rétt fyrir
leikslok og Nettelstedt var í sókn.
Þá misstu leikmenn liðsins bolt-
ann klaufalega og brunaði Rúss-
inn Igor Lawrov fram og tryggði
hinu sterka liði sínu úrslitaleik-
inn. Besti maður vallarins var
pólsk-þýski leikmaðurinn Bogdan
Wenta hjá Nettelstedt með 11
mörk. Wenta, sem sleit hásin í
október, þykir hafa náð sér und-
urfljótt og ljóst að hann mun sem
fyrr spila lykilhlutverk í HM í
Égyptalandi með Þjóðverjum.
Sigurður með átta mörk
Vegna Evrópuleikjanna voru
aðeins leiknir tveir leikir í 1.
deildinni og tapaði Bad
Schwartau gegn Grosswallstadt á
heimavelli, 26:28. Sigurður
Bjarnason var besti leikmaður
Schwartau í leiknum og gerði átta
mörk og var markahæstur leik-
manna liðsins.
Gummersbach vann einnig
óvæntan sigur á útivelli gegn Du-
tenhofen þar sem Yoon fór á kost-
um með 11 mörk og Norðmaður-
inn Steinar Ege var frábær í
marki og varði meðal annars fjög-
ur vítaköst.
Héðinn Gilsson átti mjög góðan
leik og skoraði sjö mörk er Bayer
Dormagen vann mikilvægan sigur
á Eintracht Wiesbaden, 28:26, á
útivelli. Róbert Sighvatsson skor-
aði tvö mörk fyrir Dormagen en
Daði Hafþórsson komst ekki á
blað að þessu sinni. Þar með
komst Dormagen í efsta sæti suð-
urhluta 2. deildar því aðalkeppni-
nautur þess, Willstatt, náði aðeins
jafntefli við TV SB-Altenkessel á
heimavelli, 24:24. Gústaf Bjarna-
son var ekki á meðal markaskor-
ara Willstatt að þessu sinni, en var
með í liðinu að vanda.
Dormagen hefur nú 47 stig að
loknum 28 leikjum, Willstatt hefur
stigi færra og Leutershausen er í
þriðja sæti með 42 stig, einnig úr
28 leikjum. Nú era sex umferðir
eftir af deildarkeppninni.