Morgunblaðið - 21.03.1999, Side 5

Morgunblaðið - 21.03.1999, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ ERFISÐRYKKJAN í barnaheimil- inu var látlaus. Á borðinu var mynd af hinni iátnu. Irina sagði að þau reyndu að ann- ast börnin sem sín eigin og því fengju þau daglega heimsókn með- an á sjúkrahússdvölinni stæði. Hún sagði flest börnin vera með húð- sjúkdóma sem auðvelt væri að með- höndla. Þau sem haldin eru alvar- legum sjúkdómum fá meðhöndlun á sjúkrahúsi. Margar stúlknanna hafa orðið fyrir kynferðislegi’i misnotk- un, oftast af hálfu feðra sinna eða stjúpfeðra. Sum eru illa farin eftir misþyi’mingar foreldra. Okkur voru sýndar myndir af lítilli stúlku. Höf- uðið var alsett ljótum örum eftir barsmíðar móðurinnar. Að gera börn vinsamleg Ekkert formlegt skólahald er á heimilinu. Það var í samvinnu við skóla í hverfinu en því var slitið vegna slæms heilsufars barnanna. Starfsmenn eru alls 31, þar á meðal kennarar, sálfræðingur og lögfræð- ingur. Þau börn sem vilja læra fá kennslu við hæfi. „Helsta markmið okkar er að kenna börnunum að þeirra sé þörf í þjóðfélaginu," sagði Irina. „Þau eru andfélagslega sinnuð en við reynum að gera þau vinsamleg þjóðfélag- inu.“ Hún sagði algengt að börnin vildu ekki eiga samneyti við aðra, væru ákaflega lokuð og ættu í sálar- kreppu. Sálfræðingur heimilisins reynir að fá þau til að opna sig og tala um Iífsreynslu sína í einkavið- tölum. Fyrstu 10 dagana eru nýju börnin höfð á sérstakri deild. A þessum tíma fer fram frekari gi-eining á barninu því stundum gera einhverj- ir sjúkdómar vart við sig svo senda verður barnið á sjúkrahús. Fjögur rúm eru í móttökudeildinni og nú voru þar tvö börn, Zhenya, fjögurra ára drengur, og Marsha, þriggja ára stúlka. Zhenya var að koma þarna í annað sinn. Hann hafði ver- ið ættleiddur en líkaði ekki vistin hjá nýju fjölskyldunni betur en svo að hann strauk. Þessi fjögurra ára snáði var búinn að vera týndur á götum Moskvu í marga daga áður en hann fannst. Þess munu mörg dæmi að börn vilji koma aftur á barnaheimilið, sem segir sína sögu um aðbúnaðinn þar miðað við það sem síðar gerist. Bágur fjárhagur Aðaltekjulind RK-deildarinnar er gjafafé. í fyrra var aftur sagt frá heimilinu í hollenskum fjölmiðlum og í kjölfar þess barst stuðningur. Stundum hafa rússnesk fyrirtæki og félagasamtök einnig rétt hjálpar- hönd. Irena sagði að í fyrstu hefði heimilið notið stuðnings yfirvalda en nú væri nær alveg tekið fyrir það. Ríkisstjórnin hefði lýst vilja til að veita styrk en staðbundnu yfir- völdin væru erfiðari viðureignar. „Ég þarf sífellt að færa sönnur á hvað við erum að gera og bókstaf- lega gráta út hjálp.“ Takmörkuðum fjármunum heim- ilisins er varið í að byggja upp börn- in, viðhald húsnæðisins situr á hak- anum. „Við leggjum áherslu á að gefa bömunum góðan mat,“ sagði Irina. „Þau eru vannærð og hafa mörg verið það mánuðum saman svo það hefur komið niður á heilsu þeirra." Matarbirgðirnar í búrinu voru ekki til margra daga. Irina sagði að stundum gæfu velviljuð fyrirtæki mat, ávexti og fleira. Hverfissjónvarpsstöð er þrisvar í mánuði með þátt um starf RK- deildarinnar og auglýsir heimilis- fangið. Það hefur oft leitt til stuðn- ings. ► Einstæð- ingar á eft- irlaunum Á VEGUM Rauða kross deildarinnar í 10. hverfi Moskvuborgar starfa 86 nianns við heimahjúkrun og sinna um 2.000 öldruðum í hverfmu. „Við njótum ekki neinnar opinberrar aðstoðar við þetta starf,“ sagði Irina A. Lernotsjínskaja, formaður RK-deildarinnar. Flestir sem njóta heimahjúkrunar eni komnir yfir sjötugt og ein- stæðingai-. Margir líða af öldrunarsjúkdómum, geð- veiki eða búa við fötlun og raeira en þriðjungurinn er með berkla. Flestir fá heim- sókn daglega en þeir sem ei-u rólfærir fá Iieiinsókn þrisvar í viku. Auk lieimilis- hjálpar er fólkinu veitt lækn- ishjálp og félagsleg aðstoð. Heimilislijálpin er í mörgum tilvikum eina sambandið við umheiminn. Meðan við voi-um í heim- sókn á barnaheimilinu í 10. hverfi var haldin erfi- drykkja í einu herberginu. Görnul kona sem notið hafði heimilishjálpar frá 1994 hafði dáið tveimur dögum áður og var jarðsett þennan dag. „Við buðuin nágrönn- um hennar að vera við út- förina en það kom í Ijós að hún átti ekki nema tvo vini. Þessi kona var eins og ætt- ingi okkar og þess vegna buðum við til erfidrykkju,“ sagði Irina. Eftirlaun í Moskvu eru að meðaltali um 450 rúblur (1.440 kr.) á mánuði og lægri úti í héraðinu, að sögn Irinu. Hins vegar hafi verið reiknað út af opinberum að- ilum að framfærslukostnað- ur sé 1.280 rúblur (4.100 kr.) á mánuði eða nær þrefalt hærri. Eftirlaunin hafa lítið sem ekkert hækk- að en verðlag 4-5 faldast á sama tíma. Þegar Sovétríkin liðu undir lok voru ellilaunin 132 rúblur á mánuði en verðlag- ið lágt. Þá gat verið erfitt að ná f mat, en fólk gat lagt svolítið fyrir. Nú er hins vegar nóg til í búðunum, en eftirlaunafólk hefur ekki efni á neinu. Þeir sem eru rólfærir safna flöskum eða jafnvel gramsa í sorpi til að finna eitthvað nýtilegt. „Við getum ekki annað en skainmast okkar fyrir hvernig þetta er orðið,“ sagði Irina. Það mun ekki óalgengt að þriðjungur af eftirlaununuin fari í húsaleigu. Nú munu uppi hugmyndir um að einkavæða íbúðarhúsnæði sem verið hefur í opinberri eigu. Margir efast uin ágæti þess fyrir aldraða og ein- mana. Mikill húsnæðisskort- ur hefur verið í borgunum. Okkur var sagt að þess væru dæmi að fólk byði gömlu fólki að leigja af því her- bergi gegn góðri greiðslu. Sumir hafi látið glepjast og hreinlega horfið í kjölfarið, öðrum verið úthýst af leigj- endunum og lent á götunni. SUNNUDAGUR 21. MARZ 1999 B 5 Vertu með þegar það er opnað Efnismeira Dagskrárblað Morgunblaðsins með páskadagskránni kemur út 31. mars. Dagskrárblaðið kemur nú út með breyttu sniði og enn ríkara að innihaldi en áður. í blaðinu er að finna fróðleg og skemmtileg viðtöl við persónur og leikendur, umfjöllun um páskamyndirnar og áhugaverða dagskrárliði yfir hátíðina, ásamt ýmsu öðru skemmtilegu efni. Auk þess eru ítarlegar upplýsingar um tveggja vikna dagskrá allra sjónvarps- og útvarpsstöðva. Auglýsendum er bent á að síðasti frestur til að skila auglýsingum í blaðið er 24. mars. Auglýsingadeild Morgunblaðsins veitir allar nánari upplýsingar og tekur við pöntunum í síma 569 1111. ftttfitsttMaM* f ^ omskm í allri sinni mynd! 6 0 T T FÓLIC • SlA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.