Morgunblaðið - 21.03.1999, Síða 10

Morgunblaðið - 21.03.1999, Síða 10
10 B SUNNUDAGUR 21. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ Kúvent Matvöruverslun hefur verið ær og kýr hjón- anna Ernu Eiríksdóttur og Braga Kristjáns sonar frá því þau luku námi ung að árum. I rúm 30 ár hafa þau rek- ið verslunina Herjólf en búðin hefur verið í eigu fjölskyldunnar í 42 ár, þar sem þrjár kynslóðir hafa unnið saman eins og einn maður. Nú hef- ur verslunin verið seld en Hildur Friðriksdótt- ir heyrði af því að nú standi hugur hjónanna til að selja mjólkina beint úr kúnum í stað ÞAÐ VAR dálítið skrýt- in tilfínning að vakna í morgun og þurfa ekki að mæta í vinnuna," sögðu hjónin Erna Ei- ríksdóttir og Bragi Kristjánsson þegar blaðamaður Morgunblaðsins bankaði upp á hjá þeim síðastliðinn þriðjudagsmorgun. Nánar tiltekið daginn eftir að þau af- hentu verslunina Herjólf í Skipholti til nýrra eigenda eftir rúmlega þrjá- tíu ára rekstur. Verslunin var aftur á móti upphaflega stofnuð á Grenimel 12 fyi-ir 42 árum af foreldrum Braga, þeim Kristjáni Sigfússyni og Guð- björgu Guðmundsdóttur. Þrátt fyrir að létt væri yfír þeim voru þau lúin, enda höfðu þau unnið við talningar og frágang langt fram á nótt. Ekki varð það til að reka á eftir þeim þótt nokkuð væri liðið fram á nótt, að þau áttu erfítt með að skilja við verslunina. En núna í morg- unsárið gátu þau gert grín að því, að nýju eigendurnir hefðu sennilega verið farnir að bíða eftir að þau færu en ekki kunnað við að ýta á eftir þeim. „Æ, mér fannst ég eiga eftir að skúra svo að við gætum skilað búðinni í þokkalegu ástandi,“ segir Erna og Bragi segir hlæjandi, að hann hafí verið farinn að skipta sér af hlutum sem honum hafí í rauninni ekkert komið við. Tvíþættar tilfínningar Þau segja að tilfinningarnar séu tvíþættar. Bæði sé gott að losna frá rekstrinum sem hafí krafíst vinnu- krafta þeirra öll undanfarin ár frá því snemma að morgni og fram yfír kvöldmat en ákveðinn tómleiki fylgi því einnig að hverfa úr rekstrinum. ,Áður fyrr var lokað í IV2 tíma í há- deginu og þá fór maður heim og hitti börnin. Það var lúxus, en svo breytt- ist afgreiðslutíminn og síðan höfum við ekki farið í mat,“ segja þau. Það sem þau munu meðal annars sakna er félagslífið í kringum rekst- urinn. Þau segja að verslunin hafi um áraraðir verið miðstöð fjölskyld- unnar og mikil vinátta hafí skapast við viðskiptavinina, sem margir kvöddu þau síðasta daginn með blómum. Einnig sendu fyrirtæki sem þau áttu í viðskiptum við ýmsar gjaf- ir. „Þetta var alveg yndislegur dagur og mikil stemmning. Eflaust hefði það orðið enn meira, ef menn hefðu vitað að við vorum að hætta í gær, en það var svo seint ákveðið," segir Bragi. Honum ratast greinilega satt orð á munn, því þennan morgun sem viðtalið fór fram, hringdi síminn við- stöðulaust og meðal þeirra sem hringdu var fólk, sem löngu er flutt úr hverfinu. Innst inni líður þeim þó vel með þá ákvörðun að selja reksturinn, enda bíður þeirra spennandi verkefni og langþráður draumur, þ.e. að snúa sér að búrekstri „fyrir austan fjall“, þai- sem þau hafa átt bújörð í tæp 14 ár. Átti ekki endilega að verða kúabú ... En hvað kom til að þau keyptu sér bújörð á sínum tíma? Þau svara bæði í einu, að í upp- hafi hefðu þau vel getað hugsað sér einhvers konar sumaraðstöðu úti í sveit, fjarri skarkalanum í bænum og tækifæri til að kynnast einhverju öðru en þau voru vön. „Það er líka svo mikil kyrrð í sveitinni, öfugt við hraðann og kapphlaupið við tímann hér í borginni. En kannski var það líka draumurinn að rækta landið og skila því betra frá sér en tekið var við því,“ segir Bragi og bætir við að hann telji að ríkt sé í íslendingum það sem hann kallar „tilfinning til moldarinnar“. Þau voru búin að leita í nokkurn tíma að hentugri jörð. Þegar þeim bauðst Jaðar í Hrunamannahreppi til kaups haustið 1985 voru þau ekki lengi að taka ákvörðun. I fyrstu keyptu þau aðeins húsin og jörðina Það þurfti að at- huga spenagerð og ýmislegt fleira, sem við höfðum aldrei hugsað út í og höfð- um ekkert vit á. en höfðu ekki hugmynd um hvort þau ætluðu út í búrekstur. Þar sem bóndinn ætlaði að búa til vors þurftu þau ekki að ákveða sig fyrr en síðar með vélakostinn og búfén- aðinn, sem var um 150 kindur og 20 kýr. Þau taka fram, að væru þau að hefja búskap núna myndu þau sennilega ekki velja jörð eins og Jaðar, því hún henti fjárbúskap mun betur en kúabúskap. „Við vor- um ekkert að hugsa um það í þá daga heldur féllum við fyrir fegurð- inni í kringum bæinn. En þegar leið að vori ákváðum við að kaupa bú- fénaðinn líka og réðum til okkar fólk til að sjá um reksturinn.“ Spenagerð, hvað er nú það? Þau segjast ekkert hafa vitað hvað búskapur var, en urðu að fara af stað að útvega sér kýr úr því sem komið var. „Unga fólkið sem rak búið kom með okkur og valdi kýrn- ar, því það þurfi að athuga júgur og spenagerð, sem við höfðum aldrei hugsað út í og höfðum ekkert vit á,“ segja þau og brosa yfír kunnáttu- leysi sínu á þessum tíma. Þau rifja ennfremur upp, að í fyrsta skiptið sem þau tóku þátt í mjöltum vildi svo óheppilega til að rafmagnið fór af. „Við urðum að fara út og hand- mjólka. Það gekk nú einhvern veg- inn, en það var erfítt," segir Ema hlæjandi. Þar sem þau höfðu alla sína ævi starfað við rekstur litu þau á bú- skapinn sem fyrirtæki sem þyrfti að bera sig. Þau seldu því féð fyrir um sjö árum, þar sem þau sáu meiri hagkvæmni í að vera einungis með eina tegund búfjár. Síðar keyptu þau aðra jörð, Kjóastaði í Biskups- tungum, og eru báðar jarðirnar samtals 800-900 hektarar. Tilheyra búunum nú um 200 nautgripir, þar af 50-60 kýr. Þau segjast verða vör við að bændur séu í auknum mæli farnir að líta á búrekstur sem fyrir- tækjarekstur, enda hljóti það að vera framtíðin. „Það eru að verða miklar breytingar í búrekstri núna. Til dæmis eru gerðar allt aðrar kröfur til heilbrigðis og hreinlætis gripanna í sambandi við mjólkur- framleiðsluna en var þegar við byrj- uðum í upphafí," segja þau. Fyrir um þremur árum hafði nautgripum fjölgað svo mikið, að frekara ræktunarland vantaði. Það var þá sem þau keyptu Kjóastaði og aftur réðu þau fólk til að sjá um þann rekstur. „Við höfum átt kúa- búið en í rauninni ekki getað gert meira en að vera bakhjarl. Fólkið sem hefur verið hjá okkur undan- farin tíu ár á Jaðri hefur nánast al- gjörlega séð um búskapinn og gert það ákaflega vel.“ Tíu kílómetrar eru á milli bæj- anna, en búin eru rekin saman, þannig að mjólkurframleiðslan fer fram á Jaðri og þangað fer fólkið af Kjóastöðum til vinnu hluta úr degi. Á Kjóastöðum er hins vegar uppeldi geldneyta og ræktunarframkvæmd- ir. Þau segjast munu flytja á Kjóa- staði með vorinu, en framtíðin ein muni leiða í Ijós hvort einhver kraft- ur og dugnaður leysist úr læðingi. „Kannski verðum við komin miklu meira inn í reksturinn þegar fram líða stundir en við höfum hugsað okkur. Hugmyndin núna er alla vega að binda okkur ekki þarna eins og við höfum gert í búðinni, þannig að við höfum möguleika á að fara í frí ef við viljum. Við sjáum alls ekki fyrir okkur núna, að við verðum að- alfólkið heldur frekar aðstoðar- menn. Við munum því áfram hafa bústjóra á staðnum. Það verða nóg verkefni fyrir okk- ur eins og að fara í gegningar, sjá um viðhald og leysa fólkið af svo það geti farið í frí. Búskapurinn er ekkert annað en rekstur sem þarf að sinna og það er heilmikið mál ef gera á það vel. Þetta er líka spurn- ing um hagkvæmni stærðarinnar og sennilega þurfum við að stækka við það sem nú er.“ Eitt af því sem þau langar til að snúa sér að í ríkara mæli er hesta- mennsku. „Við höfum ekki haft tíma til að sinna henni, en okkur langar að kynnast því betur,“ segir Bragi og Erna bætir við: „Kannski fáum við barnabörnin og fjölskylduna frekar í heimsókn ef við eigum góð hross.“ 21 árs kaupmaður Það sem vekur ekki síst athygli við það, að Bragi og Erna eru að kúvenda á miðjum aldri og flytjast í sveitina, að minnsta kosti að hluta til, er að bæði eru borgarbörn og hafa alltaf verið. Undantekningin er tvö sumur sem Bragi fékk að heim- sækja frændfólk sitt í Bolungarvík og fékk nasaþefinn af sveitastörf- um. Aftur á móti hefur verslunin verið þeirra ær og kýr allt frá því þau luku gagnfræðanámi ung að ár- um. Og eftir að þau giftu sig árið 1969 hafa þau fylgst að í rekstrin- um. Bragi var ekki nema 21 árs þegar hann keypti verslunina Herjólf við Grenimel af föður sínum, Kristjáni Sigfússyni, sem þá var búinn að byggja nýtt verslunarhúsnæði í Skipholti, en á þeim tíma var versl- unin ein sú stærsta í Reykjavík. Bragi nefndi sína búð Bragabúð og segir að mikla athygli hafí vakið að svo ungur maður stofnaði eigin verslun. „Þá voru eilíf viðtöl við mig í blöðum því ég var yngsti kaupmað- um miðj an aldur Morgunblaoiö/Asdis SESSELJA Guðnadóttir er einn þeirra fjölmörgu viðskiptavina Ilerjólfs í Skipholti sem komu að kveðja kaupmannshjónin siðasta daginn þeirra í búðinni. þess að selja hana yfír búðarborðið. Morgunblaðið/Ámi Sæberg „KANNSKI verðum við komin miklu meira inn í reksturinn þegar fram líða stundir en við höfum hugsað okkur,“ segja hjónin Erna Eiríksdóttir og Bragi Kristjánsson, sem vísa þarna til kúabúsins sem þau eiga fyrir austan fjall.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.