Morgunblaðið - 21.03.1999, Side 15

Morgunblaðið - 21.03.1999, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. MARZ 1999 B 15 , - -'.-s PÓLSKUR RAFVIRKI : VERDUR FRELSISHETJA s A tæpum þrjátíu árum hefur lágvaxinn raf- virki frá Popowo í Póllandi markað djúp spor í sögu þjóðar sinnar. Sindri Freysson rekur hér sögu járnmannsins frá Gdansk, ! sem háði grimmilega baráttu fyrir umbót- um, komst til æðstu metorða en er nú um margt utangarðs í pólskum stjórnmálum. FhfRIR einungis tíu áram, í febrúar 1989, settust leið- togar kommúnista í Póllandi og helstu andstæðingai- þeirra niður við hringborð í bæn- um Magdalenska og hófu viðræður um lýðræðislegar umbætur. Niðurstöður þessara viðræðna gáfu fyr- irheit um Flauelisbylting- una í Tékkóslóvakíu, hrun Berlínarmúrsins, valda- skiptin í Rúmeníu og önnur ummerki þess að tími kommúnismans hafði liðið undir lok í Austur-Evrópu. A meðal mannanna við hringborðið var lágvaxin verkalýðshetja frá Gdansk, Lech Walesa. Langþráður draumur hans var að ræt- ast. Lech Walesa fæddist í lok september árið 1943 í bænum Popowo, nærri Bydgoszcs í vesturhluta Póllands. Hann var elstur þriggja bræðra, sonur tré- smiðsins Stanislaws Wa- lesa, sem heimsótti Banda- ríkin ásamt eiginkonu sinni árið 1973 og sneri aldrei aftur til Póllands. Eigin- konan, móðir Lechs, lést af slysföram í Bandaríkjun- um. WALESA er afar trúaður og hefur hlotið ríkulegan stuðning kaþólsku kirkjunnar. Fangelsaður 100 sinnum WALESA átti frumkvæði að því að verka- menn legðu undir sig skipasmíðastöðina og skipaði sér þannig í forystu Samstöðu. Að loknu námi í rafvirkj- un gegndi hann herskyldu en hóf síðan störf hjá Lenín-skipasmíðastöðinni í Gdansk árið 1966. Þremur árum síðar kvæntist hann konu að nafni Donata, sem hann á sjö börn með, og hefur hún verið hans helsta stoð og stytta í gegnum árin. I viðtali ný- verið sagði Walesa að vegna anna hans og mikilla fjarvista hefði Donata að miklu leyti annast málefni fjölskyldunnar. Sjálfur hefði hann misst af upp- vaxtarárum sona sinna með skað- legum afleiðingum fyrir bæði þá og sig, en „menn verða að greiða ákveðinn fórnarkostnað í lífinu“. Walesa vísaði þarna m.a. til þess að einn sonur hans gerðist sekur um ölvunarakstur sem leiddi til alvar- legs slyss, og annar gerði sig að at- hlægi þegar hann heimsótti gleði- hús peningalaus og lét starfsstúlk- urnar fá bankabók sína sem trygg- ingu fyi'ir greiðslu. Þær voru ekki seinar á sér að láta pólska fjölmiðla vita. Þegai' hrina mótmæla reið yfir Pólland árið 1970 tók Walesa sæti sem einn 27-menninganna sem kall- aðir vora hinir sterku og skipuðu að- gerðaiTáð verkamanna í skipa- smíðastöðinni í Gdansk. Sama ár var hann einn stofnanda að samtökun- um Frjáls verkalýðsfélög við strönd Eystrasaltsins. Mótmælin runnu út í sandinn en Walesa hélt áfram að vasast í verkalýðsbaráttu og urðu þau afskipti þess valdandi að hann var rekinn úr starfi árið 1976. Lögreglan hafði náið eftirlit með Walesa og kveðst hann hafa verið handtekinn eða settur í varðhald eitt hundrað sinnum frá þeim tíma sem honum var sagt upp störfum til ái-sins 1980, meðal annars fyrir að flytja eldheita barátturæðu í Gdansk árið 1978. Walesa reyndi að framfleyta fjölskyldu sinni með íhlaupavinnu næstu árin, ásamt því að rífa kjaft sem mest hann mátti til að andmæla aðbúnaði verkafólks og kjöram þess. Tíu árum eftir að hann blandaði sér fyrst í verkalýðsbaráttuna, WALESA gengur sigri hrósandi út um hlió Lenin-skipasmíðastöðvar- innar í Gdansk, umkringdur félögum sínum, en þar hófst barátta Sam- stöðu fyrir tæpum 20 árum. sumarið 1980, fór óánægja verka- manna í Gdansk vaxandi enn á ný. Walesa var meinaður aðgangur að skipasmíðastöðinni en klifraði yfir • hliðið og komst með klókindum inn , á mótmælafund verkamanna. Þar i lagði hann til að þeir legðu stöðina undii' sig. Tillagan hlaut eindreg-' inn stuðning og segja má að Wa- , lesa hafi með þessu frumkvæði sínu tryggt að á hann væri litið sem leiðtoga verkfallsins sem í hönd fór. Það verkfall og atburð- imir sem gerðust í kjölfarið era að margra mati fyrsti naglinn í lík- kistu kommúnískra valdhafa í Pól- landi og jafnvel annars staðar í Austur-Evrópu. Helsta krafan var um frjáls verkalýðsfélög og hærri laun en auk bættra kjara og félaga- i frelsis voru aðrar kröfur legíó og má segja að draga megi þær sam- v an í tveimur orðum; mannréttindi og tjáningarfrelsi. Umheimurinn vaknar Stjórnvöld reyndu í fyrstu að þegja verkfallið í hel, í þeirri von að verkamennirnir gæfust upp þegar þeir mættu tómlæti ríkisrek- inna fjölmiðla og opinberra full- trúa, en það spurðist hratt út og verkamenn annars staðar í Pól- landi gi'ipu til samsvarandi að- gerða. ► v \ « f ' ( r

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.