Morgunblaðið - 21.03.1999, Page 17

Morgunblaðið - 21.03.1999, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ KIRKJUSTARF SUNNUDAGUR 21. MARZ 1999 B 17 Safnaðarstarf Bræðrafélag Fríkirkjunnar í Reykjavík 70 ára BRÆÐRAFÉLAG Fríkirkjusafn- aðarins var stofnað 17. mars 1929 og verður því 70 ára á þessu ári. Aðal- hvatamaður að stofnun félagsins var sr. Ami Sigurðsson, þáverandi Frí- kirkjuprestur, ásamt nokkrum öðr- um áhugasömum Fríkirkjumönnum. Stefnuskrá félagsins var eins og sagði í fyrstu lögum félagsins: „St- arfssvið félagsins er að leitast við að efla og glæða félags- og trúarlíf safnaðarmanna." Þessi grein hljóðar nú svo: „Tilgangur félagsins er að auka kynni meðal safnaðarmanna, sameina þá um að efla og glæða fé- lags- og trúarlíf innan safnaðarins og að hlynna að hag og velferð Frí- kirkjunnar í Reykjavík. Viðfangs- efni félagsins voru mörg og marg- vísleg, og síðar aðallega fólgin í að styðja söfnuðinn varðandi viðhald og framkvæmdir við kirkjuna. I þessu skyni var fjáröflunarstarfsemi mikið á dagskrá félagsins. Árið 1950 urðu kaflaskil í starfi Fríkirkjusafnaðarins og Bræðrafé- lagsins og söfnuðurinn klofnaði vegna óánægju með útslit prests- kosninga eftir að sr. Árni Sigurðs- son féll frá. Þá var sr. Þorsteinn Bjömsson kosinn safnaðarprestur. Hluti félagsmanna í Bræðrafélaginu undi því illa og söfnuðurinn og bræðrafélagið klofnuðu. Þá hófst nýtt tímabil félagsins og nefndi sig þá Fóstbræðrafélagið, efldist það mjög næstu árin og var félagsstarfið öflugt, til marks um það vom félagar um 160 árið 1952. Starfsemi félagsins var hin sama og áður, félagsstarfíð, stuðningur við kirkjuna og söfnuðinn. Árið 1994 varð starfsemi félagsins endurvakin eftir nokkurra ára deyfð og er fé- lagslífið nú aftur blómlegt. Fundir em haldnir mánaðarlega yfir vetrar- mánuðina og era m.a. kirkjuleg og þjóðfélagsleg málefni tekin fyrir á hverjum fundi. Bræðrafélagið held- ur upp á 70 ára afmælið í dag, sunnudag, með því að sækja messu í Fi-íkirkjunni kl. 17. Þar munu bræð- ur aðstoða safnaðarprestinn, sr. Hjört Magna, við messugjörðina og að henni lokinni verður afmælis- fagnaður haldinn í Safnaðarheimil- inu. Núverandi formaður félagsins er Ragnar Bemburg. Bústaðakirkja. Starf TTT mánudag kl. 17. Friðrikskapella. Kyrrðarstund í há- degi á morgun, mánudag. Léttur málsverður í gamla félagsheimilinu að stundinni lokinni. Grensáskirkja. Mæðramorgunn mánudag kl. 10-12. Ragnheiður Ýr Grétarsdóttir sjúkraþjálfari ræðir um streitu og slökun. Allar mæður velkomnar með lítil böm sín. Hallgrímskirkja. Æskulýðsfélagið Örk (eldri deild) mánudag kl. 20 í kórkjallara. Passíusálmalestur og orgelleikur mánudag kl. 12.15. Langholtskirkja. Passíusálmalestur og bænastund mánudag kl. 18. Laugameskirkja. Mánudagskvöld kl. 20.12 spora hópurinn. Neskirlqa. Fótsnyrting á vegum Kvenfélags Neskirkju mánudag kl. 13-16. Upplýsingar í síma 551 1079. TTT, 10-12 ára starf, kl. 16.30. Mömmumorgunn miðvikudag kl. 10-12. Páskaföndur. Seltjamarneskirkja. Passíusálma- lestur mánudag kl. 12.30. Árbæjarkirkja. Æskulýðsfundur yngri deildar, 8. bekkur, kl. 20-22 í kvöld. Æskulýðsfundur 10. bekkjar og eldri kl. 20.30-22. Starf fyrir 7-9 ára (STN) mánudag kl. 16-17. TTT starf fyrir 10-12 ára mánudag kl. 17-18. Æskulýðsfundur eldri deild- ar, 9. bekkur, kl. 20-22 mánudag. Digraneskirkja. TTT-starf 10-12 ára á vegum KFUM og K og Digra- neskirkju kl. 17.15 á mánudögum. Starf aldraðra á þriðjudag verður í Hjallakirkju. Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir 9-10 ára drengi á mánudögum kl. 17.30. Æskulýðsstarf fyrir 9.-10. bekk á mánudögum kl. 20.30. Bænastund og fyrirbænir mánudaga kl. 18. Tekið á móti bænaefnum í kirkjunni. Grafarvogskirkja. Bænahópur kl. 20. Tekið er við bænarefnum í kirkj- unni alla daga frá kl. 9-17 í síma 587 9070. Mánudagur: Bibh'uleshóp- ur kl. 18-19. Farið verður í texta píslarsögunnai- Á Golgata - Hvað gerðist á krossinum? Æskulýðsstarf fyiár 16-18 ára kl. 20-22. Æskulýðs- starf í Engjaskóla fyrir 9.-10. bekk kl. 20-22. Hjallakirkja. Æskulýðsfélag fyrir unglinga 13-15 ára kl. 20.30 á mánu- dögum. Prédikunarklúbbur presta í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra er á þriðjudögum kl. 9.15-10.30. Um- sjón dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson. Seljakirkja. KFUK fundir á mánu- dögum. Fyrir 6-9 ára stelpur kl. 17.15-18.15 og fyrir 10-12 ára kl. 18.30-19.30. Mömmumorgnar á þriðjudögum kl. 10-12. Hafnarfjarðarkirkja. Æskulýðs- starf yngri deild kl. 20.30-22 í Há- sölum. Akraneskirkja. Kirkjuskóli eldri barna, 7-9 ára, mánudag kl. 17.30. Æskulýðsfélagið: Fundur í húsnæði KFUM og K við Garðabraut kl. 20. Krossinn. Almenn samkoma að Hlíðasmára 5 kl. 16.30. Allir vel- komnir. Hvammstangakirkja. TTT (10-12 ára) starf í kirkjunni mánudag kl. 18. Æskulýðsfundur á prestssetrinu mánudagskvöld kl. 20.30. Landakirkja Vestmannaeyjum. Kl. 11 bamaguðsþjónusta með sögum, söng og mikilli gleði. Kl. 14 messa með altarisgöngu. Molasopi á eftir í Kynningarfundur um 5. Rammaáætlun Evrópusambandsins LÍFSGÆÐI OG STJÓRNUN LIFRÆNNA AUÐLINDA Mánudaginn 22.mars 1999, Borgartúni 6, kl. 9:00-11:00 0AGSKRÁ • Yfirlit yfir þemaáætlunina: Lífsgæði og stjórnun lífrænna auðlinda Dr. IngileifJónsdóttir, Rannsóknastofa Háskólans í ónæmisfræði • Lykilsvið 4: Verksmiðja frumunnar og skild svið Indriði Benediktsson, sérfræðingur Framkvæmdastjórnar ESB, DG XII • Lykilsvið 5: Fiskveiðar, fiskeldi og fiskvinnsla Björn Ævar Steinarsson, sérfræðingur Framkvæmdastjórnar ESB, DG XIV • Reynsla af samstarfsverkefni innan Rammaáætlunarinnar; Bætturferill saltfiskvinnslu Borgey hf., Vísir hf. og SÍF. ‘ Sjöfn Sigurgísladóttir, verkefnisstjóri, Iðntæknistofnun íslands kC U) • Fyrirspurnir og umræður | Fundarstjóri: Hörður Jónsson, forstöðumaður Tæknisjóðs, Rannsóknarráði (slands Fundurinn er ókeypis og öllum opinn en þátttakendur eru beðnir um að tilkynna þátttöku sína í síma RANNÍS, 5621320 eða með tölvupósti: rannis@rannis.is RAIUMÍS safnaðarheimilinu. Kl. 20.30 æsku- lýðsfundur í safnaðarheimilinu. Lágafellskirkja. Foreldramorgnar, samvera á þriðjudögum kl. 10-12. Allir foreldrar velkomnir til samver- unnar í umsjá Þórdísar og Þuríðar í safnaðarheimilinu. TTT-starf á mánudögum kl. 17-19. 10-12 ára böm velkomin. Umsjón Sigurður Rúnar Ragnarsson. Fríkirkjan Vegurinn. Morgunsam- koma kl. 11. Bamastarf, lofgjörð, prédikun og fyiirbænir. Kvöldsam- koma kl. 20. Ki-öftug lofgjörð, pré- dikun orðsins og fyrirbænir. Állir hjartanlega velkomnir. Hvitasunnukirkjan Fíladelfia. Brauðsbrotning kl. 11. Ræðumaður Terry Bridle. Kl. 20 framsýning á leikritinu „Hlið himins, logar vítis“. Aðgangur er ókeypis og allir vel- komnir meðan húsrám leyfir en við bendum fólki á að koma tímanlega til að fá sæti. Ath. Samkoman kl. 16.30 fellur niður. Hjálpræðisherinn. Kl. 19 bænasam- koma. Kl. 20 hjálpræðissamkoma. Kafteinn Mariam Oskarsdóttir tal- ar. Mánudag kl. 15: Heimilasam- band. Valgerður Gísladóttir talar. Hólaneskirkja, Skagaströnd. Æskulýðsfélagið kl. 20 mánudag. AÐALFUIMDUR 1999 Aðalfundur Skeljungs hf. verður haldinn þriðju- daginn 23. mars 1999 í Hvammi á Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 38, og hefst fundurinn kl. 15.00. Dagskrá: 1. Venjuleg aöalfundarstörf skv. 17. gr. samþykkta félagsins. 2. Tillaga um breytingar á samþykktum félagsins um fjölda á stjómarmönnum. 3. Önnur mál, löglega upp borin. Dagskrá, tillögur og reikningar félagsins liggja frammi á aöalskrifstofu félagsins, hluthöfum til sýnis, viku fyrir aðalfund. Aögöngumiðar og fundargögn eru afhent á aöal- skrifstofu félagsins aö Suðurlandsbraut 4, 5. hæö, frá og meö hádegi 16. mars til hádegis á fundar- dag, en eftir þaö á fundarstaö. Að loknum aöalfundarstörfum veröur móttaka fyrir hluthafa i Setrinu á sama stað. Þaö er til auðveldari leið til aö halda fótunum í formi. C\n\ /ADIC® Stuöningssokkar Ol(0'V/AKD °9 sokkabuxur * Laugavegi 13 • 101 Reykjavík • Sími 562 1320 • Bréfsími 552 9814 Netfang rannis@rannis.is • Heimasíöa http://www.rannis.is Söluadilar Össur - Sjúkravörur- Apótek

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.