Morgunblaðið - 21.03.1999, Side 18

Morgunblaðið - 21.03.1999, Side 18
18 B SUNNUDAGUR 21. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ sunnudag í háborg kvikmyndanna, Hollywood. Eins og jafnan ríkir mikil eftirvænting, bæði meðal þeirra sem tilnefndir eru og annarra sem tengj- ast kvikmyndaiðnaðinum. Sæbjörn Valdimarsson spáir hér í úrslit kvöldsins við 71. afhendingu / 0 skar sver ðlaunanna. JÖFULLEGUR ófögnuður stríðsátaka í ójarðneskri fegurð Kyrra- hafseynnar Guadalcaual, andstæðurnar í The Thin Red Line. ÞAÐ gustar af Kathy Bates í Primary Colors, enda tilnefnd sem besta leikkona í aukahlutverki. ROBERO Benigni gæti orðið margfaldur verð- launahafi fyrir Lífið er fallegt/La Vita e’ bella. ing á stjómmálabaráttu, ekki síst pólitískum refshætti og gæti gerst á öllum tímum þó viðfangsefnið sé stjórnviska Elísabetar I. Englands- drottningar. Sem er glæsilega túlkuð af Kate Blanchett. Mjög góð mynd en ekki framúrskarandi. Að venju stilli ég tilnefningunum þannig upp að sú sem ég tel líklegasta til sigurs er efst, síðan koll af kolli: Björgun óbreytts Ryans (Saving Private Ryan) The Thin Red Line Ástfanginn Shakespeare (Shakespeare In Love) Elizabeth Life Is Beautiful BESTI LEIKSTJÓRI ÁRSINS Hefð er fyrir því að leikstjórar myndanna sem tilnefndar eru í hóp þeirra bestu, fylli þennan flokk. Svo er þó ekki í ár þar sem The Truman Show er hafnað af óskiljanlegum ástæðum, Peter Weir fær einn til- nefningu. Hann hlýtur því að teljast vafasamur sigurvegari. Sama gildir um John Madden. Mér er fyrirmun- að að sjá þau gæði í Ástföngnum Shakespeare sem réttlæta slíkan heiður. Benigni sem fyrr stóra spurningarmerkið, sjálfsagt er Spiel- berg öruggur til sigurs. Samt sem áður læt ég skynsemina lönd og leið og spái einfaranum, goðsögninni og hæfileikamanninum Malick heiðrin- um. Pað eitt gæti orðið þess valdandi að við þyrftum ekki að bíða aftur í tvo áratugi eftir næsta stórvirki frá þessu merka kvikmyndaskáldi og sérvitringi. Terrence Malick, The Tin Red Line Steven Spielberg, Björgun óbreytts Ryans Roberto Benigni, Life is Beautiful John Madden, Shakespeare In Love Peter Weir, The Truman Show BESTI KARLLEIKARI I' AÐALHLUTVERKI Þar er fyrst til að taka að enn er ósýnd hérlendis hrollvekjan Gods and Monsters, því verða afrek Ians McKellens ekki tíunduð hér. Vafa- laust hefur breski stórleikarinn stað- ið sig með stakri prýði en myndin er lítil um sig og ekki vænleg til afreka. Kom þó svo sannarlega á óvart við tilnefningarnar. Nick Nolte er einn af traustustu Hollywoodleikurum samtímans, en Afíliction þótti ekki ýkja merkileg og kolféll (var sett hérlendis beint á myndband). Hann er því afskrifaður. Nolte hefði betur verið tilnefndur fyrir frammistöðu sína í The Thin Red Line, þá hefði hann átt raunhæfa möguleika. Ro- berto Benigni er stóra spurningar- merkið hér sem víðar. Þá eru þeir tveir eftir, Edward Norton og Tom Hanks. Áhorfandan- um er boðið uppá margar hliðar á Norton í ádeilunni American History X, sem er yfir höfuð einstaklega vel leikin. Sveiflast frá góðlegum pabba- dreng yfir í miskunnarlausan kyn- þáttahatara og „skinhead", sem gæti fengið Hannibal Lecter til að missa matarlystina, og að lokum í iðrandi mann. Ef myndin stæði fylliega und- ir væntingum - hún virkar af- bragðsvel á köflum en síður sem heild - legði ég allt mitt traust á Norton. Hann sannar sig enn sem einn albesti leikari samtímans. Hanks er vinsæll og flinkur leikaif, það gerir útslagið og sjálfsagt mun straumurinn liggja til Ryans. Tom Hanks, Björgun óbreytts Ryans Ed Norton, American HistoryX Roberto Benigni, Life is Beautiful Nick Nolte, Afflicton Ian McKellen, Gods and Monsters UMTALSVERÐUSTU nýj- ungamar í ár frá bandarísku kvikmyndaakademíunni, AMPAS, eru þær helstar að afhendingardagurinn hefur verið færður fram og ber nú uppá sunnu- dag, einn besta bíóaðsóknardaginn. Engin hallarbylting á döfinni, enda stofnunin íhaldssöm og frekar stein- 3 runnin. A dögunum féll frá einn af örfáum snillingum leikstjórastéttar- innar, Stanley Kubrick. Það ' segir sína sögu að AMPAS sá sér að vísu fært að veita honum ein verðlaun á hálfrar aldar glæsiferli mannsins. Ekki geta þau talist merkileg; fyrir bestar brellm- í 2001: A Space Odyssey. Því fer fjarri að Kubrick sálugi sé einsdæmi þegar kemur að Óskarnum og hæfileikamönnum. Eitt dæmi: Chaplin hlaut aldrei náð fyrir augum akademíunnar. Þegar þessi Goiíat kvikmyndasögunnar var kominn að fótum fram tók hún loks við sér og úthlutaði honum heið- ursóskar. Því mun engum bregða þó Óskarsafhendingin að ári snúist mik- ið til um síðasta verk Kubricks, Eyes Wide Shut, sem verður frumsýnd í sumar. Þessar hugi'enningar leita á mann þegar farið er yfir tilnefningamar í ár. Þær eru undarlegri en oftast áð- ur. Maður spyr sig í sífellu: hvar er þessi og hinn? Eitt dæmi: Hvað með The Truman Show, eina frumlegustu og bestu kvikmynd sem komið hefur frá Bandaríkjunum á áratugnum? Hún var ekki í náðinni (akademían gat hinsvegar ekki gengið framhjá leikstjóranum, Peter Weir), hinsveg- ar sá hún ástæðu til að tilnefna sem bestu mynd í tveimur flokkumLjflr) er fallegt/La Vita é bella, eða Life Is Beautiful, einsog hún heitir hérlend- is (það virðist löngum hausverkur 7 hvaða tungumál er talað í þessu landi). Það er engin ný bóla að menn undrist hina órannsakanlegu vegu AMPAS, maður hefur samt á tilfinn- ingunni að val hennar sé þó einstak- lega skrýtin blanda í ár. Allt á sér skýringar. Akademían hefur löngum verið undarlega veik fyrir enskum myndum og leikurum og ekkert nema gott um það að segja. 1999 er engin undantekning. En satt best að segja hefur oftast verið hærra risið á Óskarsfóðri Bret- anna en í ár og akademían því sótt alla leið inná meginlandið í mynda- ' leit. Sem er afar fátítt. Þá mun at- kvæðasmölunin aldrei hafa verið grimmari en í ár, en stór hluti aka- demíumeðlima, og sá áhrifamesti, er tekinn að reskjast. Dugnaður kvik- myndaveranna við kynningu er þungur á metunum og hvað snertir , valið á bestu erlendu mynd ársins eiga í rauninni engar umtalsverð ÞAÐ stormar af Judi Dench í bresku keppms- GEOFFREY Rush er slægvitur og háll og til alls vís myndunum í ár. Hér er Fórðunarmeistarinn að fyrir frammistöðu sína í Elizabeth. Hér er hann vinna að útliti stórleikkonunnar í Ástföngnum reyndar í Ástföngnum Shakespeare, þar sem hann Shakespeare. reyndir og líkindafræði. Samt verða þessar ágiskanir aldrei annað en skot útí myrkrið; í Hollywood getur allt gerst og enginn veit neitt. Það er ekki lítill hluti af skemmtuninni. í ár gæti þetta breyst. Tvísýnan sjaldan verið meiri. Því ekki að láta tilfinn- ingamar ráða meiru en oft áður? BESTA MYND ÁRSINS Ef einhver mynd á eftir að sópa að sér verðlaunum í ár, veðja ég á Björgun óbreytts Ryans. Akademían er búin að taka Spielberg í sátt eftir langvinna, óskiljanlega höfnun, og myndin hefur alla burði til að verða sigurvegari ársins, a.m.k. í þessum flokki. Færir áhorfandann í fótspor hermanna innrásarliðsins í Norm- andí af áður óþekktu raunsæi. Annað meistaraverk er The Thin Red Line, þar er sama stríð en skoðað frá öðr- um bakgrunni, átökunum á Gu- adaleanal. I ljóðrænni frásögn þar sem skiptast á skin og skúrir, hörm- ungar og ljótleiki undirstrikaður með fegurð og manngæsku, og öfugt. Endurkomu Terrence Malick var beðið með eftirvæntingu, hann bregst ekki unnendum góðra mynda en The Thin Red Line hefur ekki hitt í mark hjá þeim sem umhverfið er búið að kúga til algjörrar undir- gefni við hasarmyndamoð samtím- ans. Þá er komið að enn þriðja lista- verkinu. Tragikómedíunni hans Ro- bertos Benigni, Lífíð er fallegt, sem minnir ekki lítið á meistarverk Chaplins, De Sica, o.fl. sígildra snill- inga kvikmyndanna. Þetta á einkum við um síðari hluta myndarinnar, sem lýkur á kafla þar sem handrits- höfundinum/leikstjóranum/leikaran- um Benigni tekst að flétta saman sorg og gleði og trú á framtíðina á slíkan hátt að endirinn hlýtur að telj- ast, þegar frá líður, með sígildum augnablikum kvikmyndasögunnar. Lífíð er fallegt getur orðið hinn óvænti sigurvegari hátíðarinnar, með fimm, sex Óskara uppskeru, en stóð sig ekkert síður. á því eru margir meinbugir sem snerta ekki gæði myndarinnar held- ur fyrirkomulagið. Þó hlýtur maður að álíta að myndin verði miklum mun sigurstranglegri sem besta erlenda mynd ársins. Bretarnir koma ekki til greina með sínar myndir í ár - fyrst lista- verkið HiIIary og Jackie náði ekki í hóp hinna útvöldu. Ástfanginn Shakespeare er þó líklegri, lengst af óvenju vel skrifuð (af leikritaskáld- inu heimskunna, Tom Stoppai’d), en plöguð af ómerkilegum leik í titil- hlutverkinu og sviplausri Gwyneth Paltrow (virðist þó ekki skemma fyr- ir í augum akademíumeðlimanna). Myndin rís hæst þegar stórleikar- arnir drottna yfir sviðinu; Judi Dench, Tom Wilkinson, Geoffrey Rush og Colin Firth. Þá takast myndin og textinn á flug. Sami Geof- frey Rush (Shine), stendur sig einnig eftirminnilega í Elizabeth, sem tekur hinum breska keppinautnum fram að mörgu leyti. Myndin er snjöll lýs- tækifæri aðrar en þær sem dreift er af listrænum örmum risanna í Hollyood. Þar er Miramax, dóttur- fyrirtæki Disney, hvað öflugast, ásamt October Films, Gramercy, Fox Searchlight og Sony Classic. Hvað sem öllu þessu líður þá er Óskarsverðlaunin Stóra stundin í kvikmyndaheiminum ár hvert, aðrar hátíðir eru hjóm við hliðina á húllum- hæinu í Hollywood. Sama gildir um þessa gullnu styttu; önnur verðlaun komast ekki í hálfkvist við töfra Óskarsins og kynngikraft hvað snertir frægð, frama og áhrif. í þann aldarfjórðung sem ég hef skotið á vænlegustu sigurvegarana hefur mér oftar en ekki tekist að hitta naglann á höfuðið, haft lánið með mér. Enda sjaldan látið hjartað ráða valinu heldur ískaldar stað- KATE Blanchett er ógleymanleg sem Elísabet I., Englandsdrottning, í samnefndri mynd. Hún fær harða samkeppni frá Paltrow og Watson. Sigur óbreytts Ryans? Eftirsóttustu kvikmyndaverðlaun, -7------------------ Oskarsverðlaunin, verða veitt nú á

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.