Morgunblaðið - 21.03.1999, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 21.03.1999, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. MARZ 1999 B 19 (BESTI KVENLEIKARI í AÐALHLUTVERKI í mínum huga var það engin sjmrning að Kate Blanchett bæri Oskarsverðlaunin í ár fyrir kynngi- magnaða túikun á Elísabet drottn- ingu. Svo sá ég Hilary og Jackie og rafmagnaðan leik Watson í feikierf- iðu hlutverki sellóleikarans Jacqueline du Pré. Hvað sem því líð- ur verða þær sjálfsagt að lúta fyrir vinsældum Paltrow, ekki hæfileik- I um. One True Thing, myndin hennar * Meryl Streep, er ekki væntanleg á 1 næstunni og Montenegro hefur ör- ugglega villst inná listann. Kate Blanchett, Eiizabeth Gwyneth Paltrow, Ástfanginn Shakespeare Emily Watson, Hilary og Jackie Meryl Streep, One True Thing Fernanda, Central Station BESTI KARLLEIKARI í AUKAHLUTVERKI Myndir hæfíleikamannanna Billys * Bob Thomton og Roberts Duvall eru enn ósýndar. Coburn stendur sig vel að venju, en myndin hans er ekki lík- leg til nokkurra afreka. Karlinn er engu að síður orðinn goðsögn í kvik- myndaborginni. Ed Harris gekk áreynslulaust í gegnum hlutverk sitt í The Truman Show. Sem gerir valið auðvelt (?) í þessum flokki. Verð- Ílaunin eru ástralska stórleikarans Geoffrey Rush - sem stóð sig reynd- ar engu síður í Ástfóngnum Shake- speare Geoffrey Rush, Elizabeth James Cobum, Affliction Ed Harris, The Truman Show Billy Bob Thomton, A Simple Plan Robert Duvall, A Civil Action BESTI KVENLEIKARI íAUKAHLUTVERKI ÍEnn höfum við ekki fengið tæki- færi til að sjá til Lynn Redgrave né Brendu Blethyn, sem eru til alls vís- ar á góðum degi. Það þrengir hópinn í erfiðum flokki. Rachel Griffiths er sannarlega vel að sigrinum komin í lágstemmdri túlkun á Hilary, systur- inni sem dregur sig í hlé í Hilaiy og Jackie, Lady Dench stelur senum í Elizabeth (og ekki er hún síðri í Ást- föngnum Shakespeare). Akademían fer þó ekki útfyrir landsteinanna því t hér drottnar stórleikkonan Kathy Bates, sem var ógleymanleg sem I klækjarefurinn, lesbían og kosninga- * smalinn í þeirri meinfyndnu ádeilu, Primary Colors. Það getur þó unnið gegn henni að myndin var frumsýnd snemma á árinu ‘98. Kathy Bates, Primary Colors Rachel Griffiths, Hilary og Jackie Judi Dench, Elizabeth Lynn Redgrave, Gods and Monsters Brenda Blethyn, Little Voice BESTA ERLENDA MYND ÁRSINS Hér þarf ekki að orðlengja valið. Sigui-vegarinn verður Lífið er fag- urt/La Vita é bella. Það sem hefur heyrst af keppinautum hennar styrkir mann í trúnni. Aðalatriðið vitaskuld að myndin rís í listaverk um trúna á vonina, kærleikann og ekki síst framtíðina. Lífið er falIegt/La Vita é bella, Ítalía Central do Brazil, Brazilía Afínn - EI Abuelo, Spánn Tangó, Argentína Börn himinsins/Becheba Ye Asemon, Iran BESTA FRUMSAMDA HANDRITIÐ Það skyldi þó aldrei verða að The Truman Show fái hér nokkra upp- reisn æru? Ekki er það sennilegt; þar með væri Akademían að viður- kenna mistök sín hvað snertir skort á öðrum útnefningum myndarinnai-. Beatty og Pisker fengu fína dóma fyrir satíruna Bulworth, en hún gekk ekki sem skyldi. Maðurinn er engu að síður dáður í sinni heimaborg. Eigum við ekki að segja að Stoppard og myndin hans, sem hlaut flestar tilnefningar í ár, eða 13 (!), fái þessi einu aðalverðlaun, en það verður mjótt á milli hans og Rodats. Jack Norman, Tom Stoppai-d, Ástfanginn Shakespeare Robert Rodat, Björgun óbreytts Ryans Warren Beatty, Jeremy Pisker, Bulworth Roberto Benigni, Life Is Beautiful Andrew Niccol, The Truman Show BESTA HANDRITIÐ BYGGT Á ÁÐUR BIRTU EFNI Hollywood klappar sér á bakið og verðlaunar frú May, gamlan og traustan fagmann og húmorista, par excellence. Elaine May, Primary Colors Terrence Malick, The Thin Red Line Scott Frank, Out of Sight Bill Condon, Gods and Monsters Scott B. Smith, A Simple Plan BESTA LISTRÆNA STJÓRNUN Myhre og Howett standa uppúr að mínum dómi, en Ástfanginn Shakespearékemur einnig sterklega til greina. Ekki er ólíklegt að ætla að önnur hvor þessara búningamynda hreppi hnossið. Enn spyi’ maður, hvar er The Truman Showl John Myhre, Peter Howett, Elizabeth Martin Childs, Jill Quertier, Ástfanginn Shakespeare Tom Sanders, Lisa Dean Kavan- augh, Björgun óbreytts Ryans Jeannine Oppewall, Jay Hart, Pleasantville Eugenioo Zanetti, Cindy Carr, What Dreams May Come BESTA KVIKMYNDA- TÖKUSTJÓRNUN I þessum flokki eru tveir snilling- ar á ferð, John Toll og Janusz Kam- inski. Sópunarkenningin styrkir Ka- minski, Toll fékk breiðara tilfinn- ingasvið og litaskala. John Toll, The Thin Red Line Janusz Kaminski, Björgun óbreytts Ryans Conrad L. Hall, A Civil Action Remi Adifarasin, Elizabeth Richard Greatrex, Ástfanginn Shakespeare BESTA TÓNLIST í GAMAN- EÐA TÓNLISTARMYND Goldsmith er búinn að vera í miklu uppáhaldi á þessum bæ frá því ég sá Sjö daga í maí, ‘63, eða ‘64. Það er löngu orðið tímabært að þetta snjalla tónskáld fái sín önnur Óskarsverð- laun (fékk þau ‘76, fyrir The Omeri), á löngum og giftusamlegum ferli sem rúmar einar 15 tilnefningar. Jerry Goldsmith, Matthew Wilder, Mulan Randy Newman, Pöddulíf - A Bug’s Life KVIKMYNDAHÚSAGESTIR hafa aldrei fyrr komist jafn nálægt stríðsátökum og í hinni raunsæju Björgun óbreytts Ryans, sem hlýtur að teljast sigurstranglegust - en allt getur gerst. Emily Watson ætti að vera sigurstrang- leg fyrir stórleik sinn sem aðalpersón- an í harmsögu Jaequeline du Pré, Hilary og Jackie. Það eru tvo ljón í veginum; Kate Banchlett og Gwy- neth Paltrow. Huldumaðurinn, sérvitringurinn og hæfileikamaðurinn Terrence Malick stendur á bak við hina ljóðrænu stríðsmynd, The Thin Red Line. Hér er honum spáð sigri. Einn af óumdeilan- legum kvikmynda- snillingum samtún- ans, Steven Spiel- berg. Mynd hans, Björgun óbreytts Ryans, setur örugg- lega mark sitt á Oskarsverðlaunaaf- hendinguna í kvöld (nótt). GWYNETH Paltrow bætir en Joseph Fiennes skaðar Ástfanginn Shalespeare, mest tilnefndu myndina í ár. Stephen Schwartz, Hans Zimmer, Egypski prinsinn - The Prince of Egypt Mark Shaiman, Patch Adams Stephen Warbeck, Ástfanginn Shakespeare BESTA BÚNINGAHÖNNUN ^ Powell mer sigur yfir Byme. Sandy Powell, Ástfanginn Shake- speare Alexandra Byme, Elizabeth Judianna Makovsky, Pleasan tville Sandy Powell, Velvet Goldmine Coleen Atwood, Beloved BESTA TÓNLIST í DRAMATÍSKRI MYND Enn stefnir í krappan dans milli stríðsmyndanna tveggja. Ég stend með minni máttar. Zimmer gerir af- gerandi og áberandi hluti fyrir sína ^ mynd, snillingurinn Williams er meira í bakgmnninum. Hans Zimmer, The Thin Red Line John Williams, Björgun óbreytts Ryans Randy Newman, Pleasantville David Hirschfelder, Elizabeth Nicola Piovani, Life Is Beautiful BESTA KLIPPING Ryan og rauða línan enn eina ferð- ina. Kahn hefur betur fyrir heil- steyptara útlit, skulum við segja. Michael Kahn, Björgun óbreytts Ryans Billy Weber, Leslie Jones, Saar Klein, The Thin Red Line David Gamble, Ástfanginn Shake- speare Anne V. Coates, Out of Sight Simona Paggi, Life Is Beautiful BESTA HLJÓÐSETNING Hér er Björgun óbreytts Ryans hinn ömggi sigurvegari - einsog nokkuð getur verið ömggt á þessu kvöldi! Gary Rydstrom, Gary Summers, Andy Nelson, Ronald Judkins, Björgun óbreytts Ryans ^ Andy Nelson, Anna Behlmer, Paul Brincal, The Thin Red Line BESTA FÖRÐUN Elizabeth Þá verður ekki lengra haldið að sinni, aðeins eftir minni háttar verð- laun fyrir brellur, stuttmyndir ofl. Það styttist í herlegheitin, sem hefj- ast uppúr miðnætti á Stöð 2. NÁMSSTEFNA... n Fimmtudaginn 25. mars n.k. kl. 10:00-17:00 Háskóla Islands, Tæknigarði, Dunhaga 5 ...um gerð umsókna og fjármögnun rannsókna- og þróunarverkefna úr rannsóknarsjóðum Evrópusambandsins, ásamt yfirliti um rekstur og þátttöku í slíkum verkefnum Fjallað verður almennt um skilyrði umsókna og hverning gerð þeirra skuli háttað. Kynnt verður hvemig samið er um verkefni, hver sé lagagrunnurinn og fjallað um mismunandi samningsform. Einnig eru tekin fyrir helstu atriði sem huga þarf að í rekstri slíkra fjölþjóðaverkefna og hvaða kröfur eru gerðar til þeirra af hálfu Evrópusambandsins. • Fyrirlesari verður Oskar Einarsson, sérfrœðingur hjá DGIII, ESB Helstu efnisþœttir til umrœðu og kynningar: • Stutt umfjöllun um 5. rammaáœtlun Evrópusambandsins • Ferill umsókna og mat þeirra • Gerð umsókna og uppbygging • Mikilvæg atriði sem þörf er að huga að í undirbúningi umsókna • Val umsókna • Samningur um verkefni og rekstur þeirra Umsóknarferli eru óháð fagsviðum, þannig að allir sem hafa hug á að sækja um í rannsóknarsjóði Evrópusambandsins, geta haft gagn af umfjölluninni. Hins vegar mun „Upplýsingaþjóðfélagið” (IST Information Society Technologies) verða notað sem dæmi, þegar þörf er á ákveðnum tilvísunum. • Nánari upplýsingar um námsstefnuna er að finna á heimasíðu KER http://www.rthj.hi.is/rantaek/ker/ Námsstefnan er öllum opin og ókeypis en fjöldi þátttakenda er takmarkaður.. Nauðsynlegt er að skrá sig fyrirfram hjá Grími Kjartanssyni í síma 525 4900 eða með tölvupósti grimurk@rthj.hi.is W" RANNÍS Laugavegi 13 • 101 Reykjavík • Sími 562 1320 • Bréfsími 552 9814 • Netfang rannis@rannis.is • Heimasíöa http://www.rannis.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.