Morgunblaðið - 21.03.1999, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 21.03.1999, Blaðsíða 22
22 B SUNNUDAGUR 21. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ DÆGURTONLIST Finnsk tónlistar- FINNSK tónlist hefur ekki hlotið þá athygli sem hún þó á skilda hér á landi, því Finnar eru merkilega líkir Islend- ingum um flest, ekki síst í tónlistarsmekk. I Finnlandi þrífst vel ýmiss konar framúrstefna og jaðartónlist eins og fslendingar fengu að kynnast þegar hingað komu finnskir tónlistarmenn fyrir stuttu. eftir Árna Matthíasson Sem betur fer verður framhald á finnsk-ís- lensku menningarstarfí því hér verður haldin í vikunni finnsk tón- listarhátíð hvorki meira né minna. Hingað eru vænt- anlegar þrjár fínnskar sveitir, RinneRadio, Anna- Mari Kahara sveitin og Lenni Kalle Taipale tríóið. RinneRadio, sem er reynd- ar ein helsta sveit Finna nú um stundir, hefur áður komið hingað og leikið tví- vegis. Eins og þeir vita sem börðu augum RinneRadio í heimsókn sveitarinnar hingað tl lands fyrir stuttu komust að því að þar fór harla óvenjuleg sveit, ekki hefðbundin djasssveit, en þó með saxófónspuna og snarstefjun, en í bland var svo myljandi techno- og ambient-tónlist. Leiðtogi RinneRadio, Tapani Rinne segir reyndar að það vefjist fyrir fieirum en áheyrend- um og gagnrýnendum að skilgreina tónlist sveitar- innar, „það er ógerningur fyrir mig að svara því hvaða tónlist við erum að spila; ég veit aldrei hvað á eftir að gerast næst hjá okkur,“ segir hann, kímir og bætir síðan við að ekki síst sé erfítt að spá fyrir um framtíðina þegar þeir félagar eru að leika á tón- leikum, því þá sé nánast allt leyfilegt. Með Rinne í sveitinni eru þeir Ken One sem skrámar plötur og framleiðir tor- kennileg hljóð, Jari Kokkonen sem einnig er í hljóðadeildinni, Smoju sem Ljósmynd/Juho Huttunen Finnar Félagar í fínnsku djasstechnoambientþjóðlaga- sveitinni RinneRadio. hljóðblandar og loks sér VSA um að myndskreyta tónlistina. Rinne segir að allur gangur sé á því hvernig þeir félagar semja tónlist, það geti gerst út frá takt- flækju, saxófónstefí eða joikstemmu. „Það kvikna líka oft hugmyndir þegar við erum að spila á tónleik- um; ég spila eitthvað og hugsa: þetta verð ég að muna og nota seinna.“ Þegar spjallað er við Ronne er hann staddur í hljóðveri að taka upp með joikaranum Wimme sem kom meðal annars hingað til lands fyrir skemmstu. Rinne segist heillast af því þegar menningarstraumar og ólíkir tímar renni sam- an eins og hjá Wimme. Það skipti líka miklu máli fyi'ir hann að vera sífellt að þróast og þannig hefur sveitin oftar en einu sinni skipt um stíl og stefnu án þess þó að glata megin- þáttum sínum. „Það er væntanlega vegna áhrifa af því að leika mikið á tón- leikum," segir hann hugsi. „Það skiptir miklu máli að geta spilað fyrir fólk og fá þannig samtímasvörun við því sem maður er að gera ... en það er líka gott að vinna í hljóðveri og móta hlutina smám saman. Eg get eiginlega ekki gert upp á milli, gert upp við mig hvort ég vil heldur gera, því þegar ég er á tónleika- ferð langar mig til að vera í hljóðveri og þegar ég er kominn í hljóðverið langar mig að komast aftur upp á svið,“ segir hann og hlær við. Eins og getið er koma þrjár finnskar sveitir hing- að til lands að þessu sinni, RinneRadio, Anna-Mari Kahara sveitin og Lenni Kalle Taipale tríóið. Tón- listarhátíðin hefur verið haldin nokkur undanfarin ár í Finnlandi og kallast Listin heimsækir knæpurn- ar, enda er henni ætlað að kynna fyrir almenningi það sem hæst ber. Sveitirnar halda tyenna tónleika hver í Sólon Islandus, Iðnó, Gauki á Stöng og Kaffi Thomsen um næstu helgi, 26. til 28. mars. stemmning TRÚBADÚRINN Siggi Bjöms er vísast flestum kunn- ur, enda hefur hann leikið ótal sinnum hér á landi og víða er- lendis, aukinheldur sem hann hefur gefið út skífur. Fyrir skemmstu kom einmitt ein slík út með Sigga úti í Danmörku og kemur brátt út hér á landi. Siggi Björns hefur gert víð- reist síðasta áratuginn, dvaldi meðal annars um hríð hjá and- fætlingum við spilirí svo dæmi séu tekin. Undanfarin ár hefur Siggi búið í Danmörku og leik- ið þar einn eða með ýmsum tónlistarmönnum. Fyrir stuttu kom út í Danmörku plata með honum, Roads, sem hefur fengið prýðilega dóma þar í landi. Hún kemur út hér á landi í vikunni. Á plötunni Roads fær Siggi ýmsa tónlistarmenn til liðs við sig, fjölþjóðlegt lið listamanna, því þeir' eru dansk- FOLK mAÐDÁENDUR Bruce Spríngsteens taka þeim fregn- um eflaust vel að hann hyggst kalla saman fyrrverandi félaga sína í E-Street sveitinni og leggja land undir fót í sumar. Spríngsteen hyggst meðal annars halda nokkra tónleika í Bretlandi og hæg heimatökin fyrir íslenska rokkvini að bregða sér bæjarleið að hlýða á kappann. Ekki er búið að fastsetja tónleika Spríngsteens og félaga, en líkur á að þeir fyrstu verði í maí í Newcastle. Tónleikarnir í Bretlandi eru upphaf Evrópuferðar Springsteens, en ekkert hefur veríð látið uppi um tónleika- staði eða -tíma. mFRÆGT var þegar George Michael glímdi við útgáfu sína fyrir dómstólum og tapaði mál- inu fyrir rest. Hann á reyndar sjálfur útgáfu og var ekki að tvínóna við það þegar kreppti að; sagði upp öllum samning- um við listamenn á merkinu fyrir skemmstu. Utgáfa Michaels heitir Aegean og tap- aði tæpum þrjátíu milljónum króna á síðasta árí. mTAMMY Wynette fær að hvíla í gröfinni að svo komnu eftir að dómari hafnaði beiðni dætra hennar tveggja um að hún yrði grafm upp og krufm. Pær halda því fram að síðasti eiginmaður Wynette, George Richey, hafí dælt í hana róandi lyfjum síðustu æviárin og í raun dópað hana inn í eilífðina. Dæturnar fá reyndar ríflegt af fé samkvæmt erfðaskrá Wy- nette, en Richey heldur um taumana og mun hagnast vel það sem hann á eftir ólifað. Skarhead Að mörgu leyti dæmigerð fyrir hardcore-sveifluna vestan hafs. Mðgnnð keynsla VESTAN hafs hefur mikil vakning átt sér stað; ný gerð rokktón- listar hefur rutt sér til rúms og sameinar það helsta úr fram- sæknu rokki, hiphopi og þung- arokki. Tónlist- ina kalla menn hardcore og byggist á magnaðri keyrslu og villimannslegri. Helsta útgáfa slíkrar tónlistar er Victory-útgáfan í Chicago. Meðal útgáfusveita Victory er Skarhead, sem er ekki beinlínis ný af nálinni, sendi frá sér fyrstu skífuna fyrir fjór- um árum og vakti mikla athygli. Skarhead skipa þeir Lord Ezec, Lou Di- bella og Boston Mike sem sjá um sönginn, Mitts og White Owl sem leika á gítara, Little Tony sem leikur á bassa og Goat á trommur. Skarhead-menn hafa unnið sér gott orð fyrir grimma spila- mennsku og fyrir- taks tólftommu, Drugs, Money and Sex, en ekki spillir að Lord Ezec er stjarna austur í Japan og selur þar eigin fatamerki með góðum árangri, en segist einnig fylgjast vel með því sem er á seyði í gegnum húðflúrsstofu sína í Queens. Skai'head er að mörgu leyti dæmigerð fyrir hardcore-sveifluna vest- an hafs, en þó helst dekkri hliðar þeirra tón- listarstefnu. Sveitin á ættir að rekja til síðpönk- sveitarinnar Crown of Thomz sem aðalsöngvari sveitarinnar segii' hafa verið vælusveit þar sem ekki mátti syngja neitt sem styggt gæti áheyr- endur. „I Skarhead kom- um við til dyranna eins og við erum klæddii' og ef einhver kann ekki að meta það getur hann far- ið til fjandans.“ Siggi Björns Fjölþjóðleg stemmning i tónlistinni á nýrri plötu. ir, enskir, kúrdískir og kín- verskir. Að sögn Sigga kemur og fjölþjóðleg stemmning í tónlistinni þó hann sé sem fyrr að leika þá tónlist sem honum hugnist best, blús, þjóð- lagatónlist, rokk, sveitatónlist og reggí. Platan Roads kemur út í vikunni eins og rakið er og Siggi er kominn hingað til lands að kynna plötuna sem víðast. Hann fékk með sér hingað félaga sína tvo, enska gítarleikarann Keith Hopcroft og slagverksleikara frá Tríni- dad og Tóbagó, Roy Pascal. Þeir búa báðir í Danmörku en hafa víða farið ekki síður en Siggi og þannig spilaði Pascal um tíma með Eddy Grant og ferðaðist um Karíbahaf með stáltrommusveit. Pascal er með eigin sveit i Danmörku og lék meðal annars á síðustu Hróarskelduhátíð. Útgáfutónleikai- Sigga Bjöms og félaga verða í Fóget- anum næstkomandi fimmtu- dagskvöld, en síðan liggur leið- in út á land.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.