Morgunblaðið - 23.03.1999, Side 1

Morgunblaðið - 23.03.1999, Side 1
• MARKAÐURINN • SMIDJAN • LAGNAFRÉTTIR • GRÓÐUR OG GARÐAR • HÝBÝLI • FRÉTTIR • Prentsmiðja Morgunblaðsins Þriðjudagur 23. marz 1999 Blað C Hver fær vextina? VEXTIR og verðbætur á hús- bréfin, eftir að fasteignaveð- bréfið er farið að bera vexti, fara til þess, sem tekur við hús- bréfunum, segir Sigurður Geirs- son í Markaðnum. Þar skiptir ekki máli, hvenær bréfin eru sótt til Ibúðalánasjóðs. / 2 ► ú - Hr' ímíém g,.V.v- Innskot í skjólveggi LANGUR skjólveggur getur hæglega skemmzt í miklu roki og það styrkir slíkan vegg að setja á hann innskot, segir Bjarni Ólafsson í þættinum Smiðjan. Oft verður það fallegt, ef plantað er runnum eða trjám inn í innskotin. / 20 ► Ú T T E K T Sumarbú- staðir TÍMI sumarhúsanna er að hefjast. Eðli málsins samkvæmt er eftirspurn eftir þeim mest síðla vetrar og á vorin. Algengt verð fyrir not- aðan bústað er á bilinu 3-5 millj. kr. og þaðan af hærra, allt eftir stærð og ásigkomulagi, en verð á sumarhúsum getur verið afar mismunandi. Að sögn Sigurðar Jónssonar, lögmanns á Selfossi, hefur verð á sumarhúsum ekki hækkað heldur haldizt stöðugt. „Fram- boð er ekki mikið, að minnsta kosti ekki eins og er, en eftir- spurn er talsverð og það er mikið hringt,“ segir hann í við- tali hér í blaðinu í dag. „Sumarhúsamarkaðurinn er rétt að fara í gang,“ segir Ævar Dungal hjá fasteignasölunni Fold. „En það er þegar ótrúlega mikið um fyrirpurnir og ég á því von á mikilli eftirspurn." Magnús Leópoldsson hjá Fasteignamiðstöðinni kveðst gera ráð fyrir góðri eftirspurn og meiri ásókn í Borgarfjörð og Mýrar en áður. „Með Hvalfjarð- argöngunum hefur leiðin vestur stytzt mikið og áhugi fólks á sumarhúsum þar aukizt til muna,“ segir Magnús Leópolds- son. Landssamband sumarhúsa- eigenda heldur aðalfund sinn á fimmtudag. Sveinn Guðmunds- son lögmaður, framkvæmda- stjóri þess, segir margt hafa áunnizt í hagsmunamálum sum- arhúseigenda. „Nú leggur landssambandið mikla áherzlu á öi yggismál sumarhúsaeig- enda, sem er alveg vanrækt svið,“ segir Sveinn. / 18 ► Hækkandi verð á íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu VERÐ á íbúðarhúsnæði á höfuð- borgarsvæðinu hefur farið hækkandi að undanförnu. Þessar hækkanir eiga fyrst og fremst rót sína að rekja til mikillar umframeftirspurnar. Þó að byggingarkostnaður kunni að hafa hækkað eitthvað, þá eru þær hækkanir minni. Það má telja víst, að miklir fólks- flutningar á höfuborgarsvæðið utan af landi eigi snaran þátt í þeiiTÍ miklu efth-spurn eftir íbúðarhús- næði, sem einkennt hefur íbúða- markaðinn síðustu misserin. Allir þurfa þak yfir höfuðið. Á árunum 1988-1998 voru brott- fluttir umfram aðflutta á lands- byggðinni hvorki meira né minna en 12.600 manns. Ibúum á höfuðborgar- svæðinu fjölgaði á sama árabili um 26.000 manns. Helmingur fólksfjölg- unarinnar á svæðinu stafar þvi af að- flutningum fólks úr öðrum landshlut- um. Bara á síðasta ári fluttu 1.760 manns til Reykjavíkur og byggðar- laganna í kring. En meiri eftirspurn efth’ íbúðai- húsnæði má vafalaust einnig rekja til góðærisins í landinu. Af þeim sökum leitar t. d. ungt fólk fyrr en ella út á markaðinn með íbúðarkaup í huga og dvelur skemur í foreldrahúsum. Teikningin hér til hliðar er byggð á útreikningum Fasteignamats ríkis- ins, sem leggur til grundvallar valið úrtak kaupsamninga, er berast fast- eignamatinu. Ávallt eru til umfjöll- unar steinhús reist 1940 eða síðar. Fermetrastærðh’ eru séreignarfer- metrar, þannig eru sameignarfer- metrar ekki taldir með í fjölbýli. í útreikningum Fasteignamatsins er tekið tillit til þeirrar miklu lækk- unar á ávöxtunarkröfu húsbréfa, sem orðin er og eflaust hefur átt mikinn þátt í að draga úr hækkunum á nafnverði íbúðarhúsnæðis. En þó að eftirspurn efth’ íbúðum sé mikil, þá er líka uppsveifla í bygg- ingariðnaðinum, sem ætti að geta mætt aukinni efth’spurn að ein- hverju leyti. Fermetraverð íbúðarhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu 1996-1998 Vísitala, staðgreiðsluverð hver fermetri, jan. 1996 = 100 Þriggja mánaða meðaltöl 114 JFMAMJJÁSONDJFMA NDJFMAMJJÁSOND HALTU RÉTT Á SPILUNUM l.œkkaðu elgiiarskalt 'nin með Eignarskattsfrjá!sniii bréfttm Það skiptir öllu máli hvernig þú spilar úr því sem þú átt. Með fjárfestingu í Eignarskattsfrjálsum bréfum Búnaðarbankans lækkar þú eignarskattstofn þinn og tryggir þér trausta og góða ávöxtun. Síðastliðin 2 ár var ársávöxtun Eignarskattsfrjálsra bréfa 10,3%, sem er hæsta ávöxtun sambærilegra sjóða.* Eignarskattsfrjáls bréf eru sannkallað tromp á hendi. Eignarskattsfrjáls og örugg fjárfesting. v' A 1 Eingöngu fjárfest í ríkistryggðum verðbréfum. • Enginn binditími. • Ilæsta ávöxtun sambærilegra sjóða! * .525 6060 í % V BUNAÐARBANKINN VERÐBREF •Ávöxtun m.v. 1. febrúar 1999. Sambærilegir sjóðir: Öndvegisbréf, Einingabréf 2 og Sjóður 5.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.