Morgunblaðið - 25.03.1999, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 25.03.1999, Blaðsíða 3
MORGUNB LAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1999 C 3 ÍÞRÓTTIR Jón Kristjánsson, þjálfari Vals, spáir í úrslitakeppni karla sem hefst í kvöld „Liðin koma öðruvísi undirbúin til leiks“ ÚRSLITAKEPPNIN í handknattleik karla hefst í kvöld með tveimur leikjum. Deilda- og bikarmeistarar Aftureldingar fá HK í heimsókn í Mosfellsbæ og ÍBV fær Hauka til Vestmanna- eyja. Hinir tveir leikirnir, Fram-KA og Stjarnan-FH, eru á dag- skrá annað kvöld. Tvo sigra þarf til að komast í undanúrslit keppninnar. Morgunblaðið fékk Jón Kristjánsson, þjálfara ís- landsmeistara Vals, til að spá í einvígi liðanna og eins styrk og veikleika liðanna átta. Jón segist búast við spennandi úrslitakeppni eins og reyndin hefur verið undanfarin ár. „Öll mis- tök í úrslitakeppni ValurB. geta reynst mjög Jónatansson dýrkeypt. Liðin koma shifar öðruvísi undirbúin fyrir þessa keppni. Pjálfari og leikmenn hafa haft góð- an tíma til að kortleggja andstæð- inginn. Þeir eru búnir að mæla út allar hreyfingar liðs andstæðing- anna og eins hreyfingar einstakra leikmanna. Þau reyna að útiloka alla óvænta þætti,“ sagði Jón. „Af reynslu minni í keppninni kann það ekki góðri lukku að stýra, að vera með miklar breytingar á leikstíl. Það eru helst þau lið sem hafa van- trú á því sem þau hafa verið að gera í vetur sem fara út í örvænt- ingarfullar breytingar," sagði hann. Afturelding gegn HK „Eðlileg úrslit í þessu einvígi er sigur Aftureldingar. HK hefur ver- ið að leika flata 6-0-vörn í vetur og það hentar sóknarleik Afturelding- ar ágætlega. Afturelding er með gott sóknarlið og klárar vel skotin fyrir utan. HK gæti reyndar strítt bikarmeisturunum, en ég tel lið Aftureldingar mun sterkara og því ætti þessi viðureign að fara aðeins í tvo leiki. Afturelding hefur verið með jafnbesta liðið í vetur og spilað mjög skynsamlega. Það er gott varnarlið og sóknin er vel skipu- lögð. Liðið er með góðan leikstjórn- anda sem vinnur mjög vel fyrir lið- ið. Þá hefur Bjarki blómstrað í vet- ur og það má segja að allar stöður séu vel mannaðar. Helsti styrkur HK er baráttan og síðan er liðið með öfluga skyttu sem er farin að eldast. Sóknarleik- ur liðsins snýst mikið til í kringum Sigurð Sveinsson og það gæti kom- ið niður á liðinu í öðrum og jafnvel þriðja leik því þá fer aldurinn að segja til sín. Vörnin er ágæt og markvarslan hefur oft verið fín. Besta vörnin gegn Aftureldingu er framliggjandi vörn en HK hefur að mínu mati ekki burði til þess að spila þannig vörn. Afturelding valt- ar ekki auðveldlega yfir HK, en getumunurinn á liðunum er full mikill. Það hjálpar líka Aftureld- ingu að minni pressa er á liðinu eft- ir að hafa landað tveimur titlum í vetur.“ ÍBV gegn Haukum „Fyrirfram reikna ég með að ÍBV klári einvígið 2:1 því liðið er mjög sterkt á heimavelli. Það er mikil stemmning í herbúðum Eyja- manna og heimavöllurinn getur ráðið úrslitum. Það er mikilvægt fyrir IBV að Guðfinnur Krist- mannsson leiki vel því hann hefur verið helsta ógnun liðsins í vetur. Þá hefur línuspilið verið sterkt vopn. Varnarleikur liðsins hefur verið góður og eins markvarslan. Haukar hafa það umfram ÍBV að vera með breiðari hóp, nánast tvo leikmenn í hverri stöðu. Þeir þola því frekar áföll en ÍBV. Það er eng- inn einn leikmaður sem getur skipt sköpum heldur er það liðsheildin sem ræður ferðinni. Helsta vanda- mál Hauka í vetur hefur verið vam- arleikurinn. Þeir hafa verið að breyta varnarleiknum töluvert á milli leikja og greinilega ekld fund- ið réttu lausnina á honum. Eins hefur stöðugleikinn í markvörsl- unni ekki verið nægur.“ Fram gegn KA „Ef Framarar ná að stilla upp sínu sterkasta liði hef ég trú á að þeir vinni KA 2:1. Þeir hafa verið nokkuð brokkgengir í vetur vegna meiðsla lykilmanna. Þeir fóru flest- ir í gegnum úrslitakeppnina í fyrra og urðu fyrir ákveðnum vonbrigð- um. Þeir ættu að vera reynslunni ríkari og koma betur tilbúnir í þessa keppni. Það er lykilatriði hjá Fram að vinna fyrsta leikinn, tap á heimavelli í fyrsta leik gæti slegið liðið út af laginu. Það sem getur skipt sköpum fyrir Fram er að rétt- hentu skytturnar, Gunnar Berg eða Magnús, leiki vel. Þá er mikilvægt að Björgvin nái að sýna sitt rétta andlit. Ef Tiov er í lagi verður vörn- in góð og Sebastian hefur verið að verja ágætlega. KA er ekki með áberandi veik- leika í sókninni og hefur ágæta leikmenn í flestum stöðum. Vörnin hefur verið lakari í vetur en und- anfarin ár. Eg veit ekki hvort bróðir minn er að breyta einhverju þar, en hann var kallaður inn til að stoppa í varnarnetið. Það hefur líka háð liðinu að það er að keyra á ungum og óreyndum markverði og það veldur oft óstöðugleika. Þeir sem þurfa að skila sínu hjá KA eru Daninn Lars og Sverrir. Þá er mikilvægt að Leo nýtist liðinu vel á línunni. Leikur KA byggist mikið á því að sóknin gangi upp því ekki er hægt að treysta varnarleiknum um of.“ Stjarnan gegn FH „Eg veðja á að Stjarnan taki þetta 2:0. Stjarnan er með gott sjö manna lið. Oflugar skyttur og mjög sterka, hávaxna, flata vöm. Markvarslan hefur einnig verið góð í vetur. Rússinn hefur náð að binda saman vörnina og gert góða hluti fyrir liðið. FH kemur til með að leika framliggjandi 3-2-1-vörn og það má segja að það sé draumavörn fyrir sóknarleik Stjörnunnar. Garð- bæingar eru sterkir maður á móti manni, sérstaklega Heiðmar, Kon- ráð og Arnar. Það er líka spurning hvort það losni ekki of mikið um rússneska línumanninn þegar FH er með vörnina framarlega. Lykillinn að góðum árangri FH er að hraðaupphlaupin gangi upp. FH-ingar eiga í erfiðleikum með að leysa sóknarieikinn gegn vörn Stjömunnar. Þeir verða því að treysta á að skora sem mest úr hraðaupphlaupum, áður en varnar- mennirnir ná að stilla sér upp. FH- liðið er ekki með nægilega stórar og öflugar skyttur fyrir utan. Það mun væntanlega mæða mikið á Guðjóni Arnasyni og Val Arnarsyni í sóknarleik liðsins og eins að Gunnar Beinteinsson nái að nýta hraðaupphlaupin. Þá er mikilvægt fyrir liðið að markvarslan verði góð,“ sagði Jón. ATLI Eðvaldsson, þjálfari 21 árs landsliðsins í knattspyrnu karla, hef- ur valið 16 leikmenn fyrir leikinn gegn Úkraínu, sem fram fer í und- ankeppni EM í Kænugarði næsta þriðjudag. Markverðir: Ólafur Þór Gunnarsson, ÍA Fjalar Þorgeirsson, Þróttur. Aðrir leikmenn: Arnar Þór Viðarsson, Lokeren Þorbjörn Atli Sveinsson, Bröndby Valur Fannar Gíslason, Strömgodset Bjarni Guðjónsson, Genk Jóhann B. Guðmundsson, Watford Heiðar Helguson, Lilleström Haukur Ingi Guðnason, Liverpool Fylgst með Indriða á Ítalíu ENSKA úrvalsdeildarliðið Tottenham sendir „njósnara" á alþjóðlega knattspyrnumótið sem hefst á Italíu nú á sunnu- dag. Utsendari liðsins á að fylgjast með varnarmanninum Indriða Sigurðssyni í íslenska piltalandsliðinu sem tekur að venju þátt í mótinu. Islenska liðið leikur í riðli með Belgum, Slóvenum og Rúmenum á mótinu og hyggj- ast forráðamenn Tottenham nota tækifærið og fylgjast með Indriða í leikjum liðsins í riðlakeppninni og í úrslitum komist liðið þangað. Indriði hefur um skeið ver- ið eftirsóttur af enskum lið- um, enda stóð hann sig mjög vel í vöm KR á síðustu leiktíð. Þannig hafa forráðamenn Li- verpool gengið út frá því að hami ljúki stúdentsprófi nú í vor og gangi í raðir félagsins eftir Ieiktíðina í efstu deild hér á landi. Forráðamenn Tottenham eru hins vegar ekki tilbúnir að gefa varnar- manninn eftir án frekari at- hugunar og því verður út- sendarinn sendur út af örk- inni, en íslenska liðinu hefur oft gengið afar vel á mótinu á Ítalíu, m.a. unnið til gullverð- launa. Davíð Ólafsson, FH Sigurður Elí Haraldsson, FH Reynir Leósson, ÍA Bjöm Jakobsson, KR Edilon Hreinsson, KR Amar Jón Sigurgeirsson, KR Freyr Karlsson, Fram Þrír leikmenn, sem léku síðustu landsleikma í fyrra, verða ekki með gegn Úkraínu. Eiður Smári Guðjohnsen, Bolton, óskaði efth- leyfi til þess að sleppa leiknum, en hann er að ná sér á strik eftir að hafa meiðst í landsleik með liðinu. Þá er ívar Ingimarsson, IBV, í banni og Andri Sigþórsson, KR, að ná sér eft- ir meiðsl. KNATTSPYRNA Tíu tíma ferðalag til Úkraínu framundan hjá ungmennaliðinu Leikmenn koma frá sex löndum Atli velur ung- mennalandsliðið LEIKMENN íslenska 21 árs landsliðsins í knattspyrnu koma víða að fyrir leikinn gegn Úkraínu, sem fer fram í Kænugarði næsta þriðjudag. Leikmennirnir eru staddir í sex Evrópulöndum, en hittast allir í Munchen í Þýskalandi áður en haldið verður til Úkraínu á sunnudag. rír leikmenn, Bjöm Jakobsson, Edilon Hreinsson og Arnar Jón Sigurgeirsson, frá KR, fara frá ís- landi ásamt Atla Eðvaldssyni, þjálf- ara, og fararstjórn. í liðinu eru einnig sjö atvinnumenn sem koma frá Danmörku, Noregi, Belgíu og Englandi. Þrjú lið, Fram, Þróttur og IA, eru stödd í æfingabúðum á Spáni og þaðan koma fjórir leik- menn. Að endingu eru Davíð Ólafs- son og Sigurður Elí Haraldsson, FH, staddir hjá Lokeren í Belgíu við æfingar. 10 klukkustunda ferðalag Atli Eðvaldsson, þjálfari liðsins, segir að ferðalagið til og frá Úkra- ínu verði erfitt. Hluti hópsins haldi frá íslandi næsta sunnudag. Flogið verði til Frankfurt og þaðan haldið til Munchen, þar sem allur hópurinn kemur saman. Því næst verður haldið til Kænugarðs í Úkraínu. Ferðalagið frá Kænugarði á mið- vikudaginn tekur 10 klukkustundir. Hópurinn flýgur til Munchen, en þaðan halda nær allir atvinnumenn- imir aftur til sinna liða. Þorbjörn Atli Sveinsson, hjá Bröndby, fylgir hópnum hins vegar áfram til Ham- borgar og síðan til Kaupmanna- hafnar. Frá Danmörku heldur hluti hópsins til Islands. Atli sagði að leikmenn Fram, í A og Þróttar færu ekki aftur til liða sinna á Spáni held- ur fylgdu hópnum til Islands. Atli sagði að erfitt væri að fylgj- ast með öllum leikmönnum lands- liðsins þar sem margir þeirra væru atvinnumenn með liðum í Evrópu. „Knattspyrnusambandið hefur ekki bolmagn til þess að senda menn út til þess að fylgjast með þessum strákum. Leikmennirnir voru flestir í 18 ára landsliðinu og við viljum halda þessum hóp saman því sumir þeirra verða lykilmenn í A-landslið- inu þegar fram líða stundir." Atvinnumenn í mótbyr Atli sagði að andlegt ástand at- vinnumannanna væri misjafnt, sum- ir hefðu lent í mótbyr og lítið fengið að spreyta sig með liðum sínum. „Heimur atvinnumennskunnar er harður og því er nauðsynlegt að fá leikmennina til liðs við liðið og byggja upp sjálfstraust þeirra. Leikmennirnir nutu velgengni með 21 árs liðinu í undankeppni HM og ég efast ekki um að þeir munu standa sig gegn ÍJkraínu," segir Atli. Atli sagði að hann ætti von á að Úkraína væri með gríðarlega sterkt lið í þessum aldurflokki. „Þessi leik- ur verður án efa sá erfiðasti í keppninni, bæði verður ferðalagið erfitt og eins er umhverfið okkur framandi. Við höfum enn ekki feng- ið stig í keppninni en við látum þá [Úkraínumenn] hafa fyrir hlutun- um,“ sagði Atli. Félaga- og fyrirtækjakeppni KR og Domino s í knattspyrnu Fer fram föstudaginn 2. apríl og laugardaginn 3. apríl. Keppt verður í salarkynnum KR við Frostaskjól. Vegleg verðlaun eru í boði m.a. pizzuveistur frá Domino's og glæsilegur bikar. Þátttökugjald er 13,000 kr. Allar nánari upplýsingar gefur Magnús Gylfason i síma 894 7700.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.