Morgunblaðið - 25.03.1999, Blaðsíða 4
Sigurlaug Árnadóttir íslandsmeistari á listskautum fimmta árið í röð
meið
e
aftra
FOLK
■ COLIN Todd, knattspyrnustjóri
Bolton, hefur vísað á bug fréttum
um að hann hafi sýnt áhuga á að fá
Auðun Helgason, leikmann Víkings
í Noregi, til liðs við Bolton, að því er
kemur fram á spjallsíðu enska liðs-
ins.
■ ALEXANDER Mostovoi, fyrirliði
rússneska landsliðsins í knatt-
spyrnu, á nú í útistöðum við lands-
liðsþjálfarann Oleg Romantsev.
Leikmaðurinn gaf ekki kost á sér i
landsleiki Rússa gegn Armeníu og
Andorra - segist vera meiddur og að
forráðamenn spænska liðsins Celta
Vigo vilji að hann sleppi landsleikj-
unum tveimur og nái sér góðum, en
Mostovoi hefur verið lykilmaður
Celta á leiktíðinni.
■ ÞJÁLFARINN Romantsev brást
hins vegar æfur við í gær er fréttist
af Mostovoi þar sem hann var hrók-
ur alls fagnaðar á vafasömum nætur-
klúbbi í Moskvu. Þótti það ekki fara
saman við ímynd hins meidda
íþróttamanns og lét þjálfarinn hafa
það eftir sér að leikmaðurinn hefði
greinilega takmarkaðan áhuga á að
leika með landsliðinu og við það yrði
miðað í næstu leikjum. Þess má geta
að Rússar taka á móti íslenska
landsliðinu nú í sumar. íslendingar
unnu heimaleikinn, en Rússar hafa
raunar tapað öllum þremur viður-
eignum sínum til þessa.
■ MIKILL slagur er hafinn milli Ba-
yer Leverkusen og Bayern
Miinchen um brasiliska snillinginn
Fernandi Baiano, sem er 19 ára og
þykir eitthvert mesta efni sem fram
hefur komið.
■ FRAMHERJINN ungi, sem leikur
með Sao Paulo í Brasilíu, hefur þeg-
ar fengið stór tilboð frá Bayem, auk
þess sem Bæjarar hafa boðið félag-
inu 600 milljónir í félagaskiptagjald.
Sao Paulo segir það of lítið og vill
300 milljónir í viðbót.
■ RAINER Calmund, framkvæmda-
stjóri Leverkusen er sagður hafa
mjög góð sambönd í Brasil/u, sem
sést á því að þrír Brasilíumenn leika
með Leverkusen. Hann ætlar að
reyna að nýta þau sambönd og fá
leikmanninn til liðs síns fyrh- mun
minna fé.
■ ÞAÐ getur sett strik í reikning-
inn, að Real Madrid hefur lýst yfir
áhuga á leikmanninum og verða þá
öll önnur tilboð vasapeningar - og
ljóst að til Þýskalands færi hann þá
ekki.
MEIÐSL og hiti virtust ekki
há Sigurlaugn Árnadóttir, 14
ára skautameyju, er hún varð
Islandsmeistari á listskautum
fímmta árið í röð í Skauta-
höliinni í Laugardal um sl.
helgi.
Sigurlaug keppir fyrir
Skautafélag Reykjavíkur, en
hún fluttist til Reykjavíkur frá
Hornafírði fyrir sjö árum. Hún
hefur orðið Islandsmeistari í
listskautum öll árin sem keppt
hefur verið, en litlu munaði
um helgina að hún næði ekki
að verja titilinn.
„Eg hafði Iegið veik og með
hita í viku og ekki bætti úr
skák að ég skarst illa kvöldið
fyrir keppni," segir Sigurlaug.
Hún tekur einnig þátt í
sýningum á samhæfðum
skautadansi og við æfíngar á
honum kvöldið fyrir keppni
varð óhapp og Sigurlaug fékk
skauta yfír handarbakið,
skarst illa og þurfti að fara á
slysadeiid. „Þar var ég sár og
svekkt, en ákvað svo að láta
slag standa og keppa þrátt
fyrir meiðslin og hitann. Eg sé
alls ekki eftir því,“ bætir hún
við.
Aðstæður skautafólks hafa
gjörbreyst með tilkomu
Skautahallarinnar í Laugardal
og nú æfír mikill fjöldi
drengja og stúlkna alla vikuna
ýmsar íþróttir á svellinu.
Sigurlaug segist ætla að halda
áfram að dansa og keppa á
skautunum, bæði í hópnum í
samhæfðu skautadönsunum og
einnig í einstaklingskeppninni.
„Þetta er svo skemmtilegt,"
segir hún.
Bryndís á
spjöld sögunnar
BRYNDÍS Stefánsdóttir frá Akur-
eyri varð fyrst íslenskra kvenna til
að taka þátt í tveimur maraþongöng-
um á sama árinu, í Noregi og Sví-
þjóð. Hún keppti í norsku
Birkebeiner-skíðagöngunni, sem er
58 km, um helgina, aðeins þremur
vikum eftir að hún hafði gengið Va-
sagönguna í Svíþjóð, en hún er 90
km löng.
’ Birkebeinerrennet byrjar í bæn-
um Rena og er gengið til Lil-
lehammer. Aldrei hafa eins margir
tekið þátt í göngunni og í ár eða
rúmlega 8.300 manns. Sigurvegari í
kai-laílokki varð Norðmaðurinn Er-
ling Jevne og í kvennaflokki Anita
Moen, einnig frá Noregi.
Fimm íslendingar voru með að
þessu sinni: Bryndís Stefánsdótt-
ir, Akureyri, í flokki 25-29 ára.
Hún gekk 58 kílómetrana á 5 klst.,
18 mín. og 1 sek. Olafur Björns-
son, Olafsfírði, keppti í flokki
30-34 ára og gekk á 3.39.29 klst.
Sigurður Gunnarsson frá ísafirði í
flokki 45-49 ára, fór gönguna á
3.57.54 klst. Óskar Kárason frá
Isafirði keppti í flokki 45-49 ára, á
4.44.41, og Halldór Margeirsson
ísafírði í flokki 55-59 ára á 4.47.19
klst.
Ginola vill að
Tottenham
kaupi
leikmenn
DAVID Ginola, hinn franski
leikmaður Tottenham, segir að
sigur liðsins í deildarbikar-
keppninni sé aðeins fyrsta
skrefið af algjörri endurreisn
félagsins og uú sé mikilvægt að
Alan Sugar, forseti félagsins,
veiti fjármagn til leikmanna-
kaupa og að erlendar stór-
stjörnur verði f hópi nýrra leik-
manna.
Tottenham tryggði sér með
sigrinum sæti í nýrri Evrópu-
keppni félagsliða á næstu leik-
tíð og Frakkinn telur að það sé
forsenda þess að ná í sterka
Ieikmenn. „Fyrr í haust átti
Tottenham í viðræðum við Pat-
rick Kluivert og leikmenn í
svipuðum gæðaflokki, en svarið
var ávallt hið sama - að iiðið
væri ekki spennandi þar sem
það léki ekki í Evrópukeppni.
Nú erum við komnir þangað og
því er lag að lokka hingað frá-
bæra Ieikmenn,“ segir Ginola.
LISTHLAUP Á SKAUTUM
Morgunblaðið/Kristinn
SKIÐAGANGA
Gunnar gerði vel
í Vasagöngunni
ÍSLENSKIR skíðagöngumenn
voru fjölmennir í hinni árlegu Va-
sagöngu sem fram fór í Svíþjóð
fyrr í þessum mánuði. Þátttakend-
ur voru alls 13.755, en 2.697 göngu-
menn hættu á 90 km langri leið-
inni. Svíinn Staffan Larsson sigraði
í göngunni og fór vegalengdina á
4.31,37 klst.
Bestum árangri íslensku kepp-
endanna, sem voru 26 talsins, náði
Haukur Eiríksson frá Akureyri
sem gekk á 5.02,50 klst. eða 31
mín. á eftir sigurvegaranum og
endaði í 207. sæti. Gunnar Péturs-
son, 69 ára gamall Isfirðingur,
gekk Vasagönguna nú í fjórða sinn
en fyrst tók hann þátt í göngunni
fyrir 47 árum, 1952. Gunnar gekk
vegalengdina á 9.40,24 klst. og
verður það að teljast einstakt afrek
því skíðafæri var mjög erfitt.
Hér á eftir fer árangur íslensku
keppendanna í Vasagöngunni:
207. Haukur Eiríksson, Akureyri 5.02,50
560. Baldur Ingvarss., Akureyri 5.30,02
730. Magnús Eiríkss., Siglufirði 5.38,33
742. Helgi H. Jóhannesson, Ak. 5.39,21
949. Þóroddur Ingvarsson, Ak. 5.49,18
951. Kristján Guðmundss., ísaf. 5.49,22
1.517. Rógnv. Ingþórss., Umeá 6.15,07
1.746. Þórhallur Asmundss, Sauð. 6.21,41
1.976. Birgir Gunnarsson, Sauð. 6.30,33
2.019. Kári Jóhannesson, Ak. 6.31,31
3.427. Jóhannes Kárason, Ak. 7.20,08
3.676. Ingþór Bjamason, Ak. 7.27,19
4.418. Sigurður Gunnarsson, ísaf. 7.51,12
4.888. Jón Stefánsson, Ak. 8.05,58
5.332. Stefán Jónasson, Ak. 8.20,41
5.752. Elías Sveinsson, ísaf. 8.34,39
6.286. Birgir Guðlaugsson, Sigl. 8.53,35
236. Bryndís Stefánsdóttir, Ak. 9.05,23
7.139. Óskar Kárason, ísaf. 9.26,16
7.548. Árni Aðalbjarnarson, ísaf. 9.40,24
7.600. Gunnar Pétursson, ísaf. 9.43,00
342. Guðrún Pálsdóttir, Sigluf. 9.45,56
7.933. Jón Rafn Péturss., Uppsala 9.55,37
7.996. Halldór Margeirsson, Isaf. 9.68,14
9.359. Óli M. Lúðvíksson, ísaf. 10.49,06