Morgunblaðið - 28.03.1999, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 28.03.1999, Blaðsíða 18
18 B SUNNUDAGUR 28. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Dagbók frá Damaskus Alyktun Samfylkingarinnar Hækkun of lítil og kemur of seint ÞINGFLOKKUR Samfylkingarinnar hefur samþykkt eftirfarandi ályktun: „Þingflokkur Samfylkingarinnar fagnar þeirri ákvörðun ríkisstjórnar- innar að hækka grunnlífeyri al- mannatryggingakerfisins. Sú ákvörð- un er í samræmi við rökstuddar kröf- ur samtaka aldraðra og öryrkja sem stjómarandstæðan hefur ítrekað tek- ið upp á Alþingi. Við þeim heíúr rík- isstjórnin jafnan daufheyrst þar til nú, þegar örstutt er til kosninga. Kosningahækkun ríkisstjómarinnar er of lítil og kemur of seint. Þó hækkun gmnnlífeyris um 7% sé fagnaðarefni vantar enn mikið á að kaupmáttur bótaþega hafi aukist til jafns við aðra þegna þjóðfélgsins. Þetta sést þegar þróun kaupmáttar launafólks og bótaþega er skoðuð frá janúar 1995 tfi apríl 1999. Á þeim tíma hefur kaupmáttur meðaltalslauna hækkað um 25,7%. Á sama tíma hefur kaupmáttur gmnn- lífeyris og tekjutryggingar almanna- tryggingakerfisins hins vegar aðeins hækkað um 18,4%. Sé tekið mið af einstaklingi sem fær hámarksbætm- frá TR hefur kaupmáttur hans að teknu tilliti til staðgreiðslu skatts, einungis hækkað um 16,9%. Það er því ljóst að enn vantar mik- ið upp á að góðærið hafi skfiað sér til aldraðra og öryrkja í sama mæli og til annarra þegna samfélagsins. Gjá- in milli þeirra hefur breikkað. Samfylkingin mun beita sér fyrir að góðærið skili sér ekki síður til aldraðra og öryrkja en annarra landsmanna." Auglýsing um úrsögn úr væntanlegum gagnagrunni á heilbrigðissviði Hér að neðan er birt eyðublað um úrsögn úr gagnagrunni á heilbrigðissviði. Klippa má eyðublaðið út og senda til Landlæknisembættisins, sbr. neðst á eyðublaðinu. Athugið að hvert eyðublað er einungis ætlað einum einstak- lingi, en einnig má senda útfyllt ljósrit. Auglýsingin er birt í öllum dagblöðunum og verður endurbirt innan nokkurra daga. Einnig fást eyðublöð á heilsugæslustöðvum, sjúkrahúsum, apótekum, á afgreiðslu Trygginga- stofnunar Ríkisins og hjá Landlæknisembættinu. Þá er verið að senda út upplýsingabækling í hvert hús með algengum spumingum og svörum. Óheimilt er að setja gögn i gagnagrunninn fýrr en um miðjan júní nk. Fyrir þann tfma verður send kvittun um móttöku útfyllts eyðublaðs. Nánari upplýsingar fást á skrifstofu landlæknis í síma 510 1900. Landlæknisembættið Beiðni um úrsögn úr gagnagrunni á heilbrigðissviði Samkvæmt lögum nr. 139/1998 um gagnagrunn á heilbrigðissviöi, 8 gr„ um réttindi sjúklings, getur sjúklingur hvenær sem er óskað eftir því að upplýsingar um hann verði ekki fluttar í gagnagrunn á heilbrigðissviði. í lögunum segir: ...Beiðni sjúklings getur varðað allar upplýsingar sem þegar liggja fyrir um hann í sjúkraskrám eða kunna að verða skráðar eða nánar tiiteknar upplýsingar. Skylt er að verða við slíkri beiðni. Sjúklingur skal tilkynna landlækni um ósk sína. Landlæknir skal annast gerð eyðublaða fyrir slíkar tilkynningar og sjá til þess að þau liggi frammi á heilbrigðis- stofnunum og hjá sjálfstætt starfandi heilbrigðismönnum. Landlæknir skal sjá til þess að dulkóðuð skrá yfir viðkom- andi sjúklinga sé ávallt aðgengileg þeim sem annast flutning upplýsinga í gagnagrunn á heilbrigðissviði. Landlæknir skal sjá tll þess að upplýsingar um gagnagrunn á hellbrigðissviði og um rétt sjúklings skv. 1. mgr. séu aðgengilegar al- menningi. Heilbrigðisstofnanir og sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsmenn skulu hafa þessar upplýsingar aðgengileg- ar sjúklingum í húsakynnum sínum. Rétt er að taka það fram að þar til gengið hefur verið frá skilyrðum rekstrarleyfis er ekki Ijóst nákvæmlega hvaða heilsufarsupplýsingar verða í fyrirhuguðum gagnagrunni á heilbrigðissviöi. Einnig er rétt að benda á að einstaklingar geta, hvenær sem er, skipt um skoöun og þarf þá að tilkynna það til landlæknis bréflega. Meö hiiðsjón af ofangreindu óska ég undirrituð/aður eftir því að upplýsingar um mig verði ekki fluttar í gagnagrunn á heilbrigðissviði. Beiðni mín varðar (vinsamlegast merkið með X í viðeigandi reiti): I I Allar upplýsingar um mig sem þegar liggja fyrir í sjúkraskrám □ Allar upplýsingar um mig sem kunna að verða skráðar í sjúkraskrá □ Aðrar upplýsingar um mig úr sjúkraskrám nánar tiltekið:-------------------------------- staður og dagsetning Undirskrift (ef um ólögráða barn eða einstakling er aö ræöa veröur foreldri eða lögráðamaður að undirrita þetta skjal). Þessi beiðni er fyrir (vinsamlegast notið prentstafi) nafn einstakiings kennitala lögheimili póstnr. og staður nafn lögráöamanns ef um barn eða ólögráða einstakling er að ræða kennitala lögheimili póstnr. og staður Beiðnin sendist til: Skrifstofu Landlæknis, Dagnagrunnur á heilbrigðissviði, Laugavegur 116,150 Reykjavík Landlæknisembættið mars 1999 Braut heilann akaft... PP á síðkastið hefur vor- þreytu gætt í bekknum, vet- urinn er langt kominn og ekki nema röskur mánuður til vor- prófa. Samt var prófkvíða ekki farið að gæta að ráði og dulítill doði ríkj- andi og menn voru tregir að taka til máls. Þangað til dr. Hazem greip til þess ráðs að setja ærlega pressu á liðið: við vitnisburð í vor verður ekki aðeins tekið tillit til frammistöðu í prófunum heldur einnig framgöngu í tímum í vetur svo og skyndiprófs sem hann efndi til á fimmtudaginn. Þá hefst nú hver dagur á því að tvær nemendur tala í fimm mínútur hvor. Við vorum beðin að gefa okk- ur fram sem vildum byrja og við Martin, hollenski, töldum greinilega að illu væri best aflokið. Við megum tala um hvað sem er og ég braut heilann svo ákaft að á endanum skrifaði ég eftirfarandi: „Kattabtú haða al kalam fi al lúra islandesa va ardjú an ataðekkera al kalimat fi al lúra arabia. Fakkertú kaþíran an ma mádúna, múnasibúnn va momtium. Fakkertú kaþím iða kúltú min baladí, djesíra kabíran fi al samal, jaisjú húna kalilan al nes, leken kúllú vahedin momtaza túnn kama ana. Fakkertú kaþíran iða kúltú an taam hrasatan fi Islanda, húneka leisa djæs va hamdullillah adsjara kalílan ...“ og svo framvegis. Á íslensku hljómar þetta á þessa leið: „Skrifaði þetta á íslensku og vona ég muni orðin á arabísku. Braut heilann ákaft um hvaða við- fangsefni væri nú skemmtilegt og fróðlegt að ræða. Braut heilann um hvort ég ætti að segja frá landinu mínu, stórri eyju í norðri, þar eru íbúar fáir en hver öðrum frábærari. Braut einnig heilann um hvort ég ætti að segja frá íslenskri matar- gerð, að Islendingar hafi engan her og þar í landi sé lítið um tré en því meira af fossum, fjöllum, jöklum og hraunbreiðum og goshverum. Braut heilann um hvort ég ætti að ræða um veðrið á Islandi en vissi að eng- inn myndi trúa mér, flestir ímynda sér að við búum til dæmis í snjóhús- um. Braut heilann um hvort ég ætti að tala um fjölskyldu mína. Stór- kostleg fjölskylda! A.m.k. meðan ég er í Sýrlandi og hún á Islandi. Braut heilann um að tala um allt mögu- Nú er dr. Hazem kom- inn á fleygiferð með undirbúning fyrir vor- prófín og sumir í bekknum - sem hafa ekki verið sérlega málglaðir þegar eftir því hefur verið leitað, skrifar Jóhanna Krist- jónsdóttir, taka nú væntanlega á sig rögg því frammistaða í tím- um gildir um 20% af heildareinkunn. legt: lífið, óttann, hamingjuna, vandamálin, ástina og dauðann. Nú er ég að hugsa, eru 5 mínútur liðnar? Ég vona það. Ef þið skilduð þetta ekki æðrist þá ekki.“ Mér tókst að muna öll orðin og þó framburðurinn væri kannski með hinum alþekkta íslenska hreim, urðu líflegar umræður um snjóhús og tré að „erindi“ mínu loknu. Momtaz, sagði dr. Hazem svo ég hallast að því að ég geti verið sátt við fyrstu stuttræðuna mína á arab- ísku. Af kettinum Aðalsteini er það að frétta að hann hefur borið fóstru sinni svo vel söguna að hingað þyrp- ast ekki bara systkini hans og frændur heldur líka loðnir persa- kettir. Ég hrek þá miskunnarlaust burtu og Aðalsteinn horfir á aðfar- irnar með velþóknun úr blómapott- inum sínum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.