Morgunblaðið - 13.04.1999, Blaðsíða 10
10 C ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
SET á Selfossi,
framsækið fyrirtæki
Lagnafréttir
Að opna útlendum fyrirtækjum leið inn á
íslenzkan markað, er ekki hættulegt,
segir Sigurður Grétar Guðmundsson. Það
opnar íslenzkum fyrirtækjum leið inn á
alþjóðlegan markað.
PVC plaströr til grunnlagna.
OFT veltir lítil þúfa þungu hlassi
eru gömul sannindi og þau eiga
svo sannarlega við þá litlu þúfu sem
Einar Elíasson hlóð á Selfossi þegai-
hann hóf að steypa skólprör, sem
sannarlega var þörf fyrir í þeim ört
vaxandi bæ sem Selfoss var eftir
miðja öldina.
Fyrir skömmu fóru pípulagninga-
menn, meistarar og sveinar, í eina
af þeim kynnisferðum, sem þeir
fara í öðru hvoru, til að kynna sér
hvað er að gerast í lagnageiranum.
Fyi-irtækið sem heimsótt var
heitir SET hf. á Selfossi og þar hef-
ur mikið breyst frá því Einar hóf að
steypa skólprörin.
Um það hefur staðið deilan hér-
lendis hvernig ætti að vernda inn-
lenda framleiðslu fyrir innflutningi
sams konar vöru.
Inngangan í EFTA og síðan
samningarnir um Evi'ópska efna-
hagssvæðið hefur svipt burt þeim
múrum sem áður áttu að vernda
innlendan iðnað. Hvað hefur gerst,
heíúr íslenskur iðnaður ekki lotið í
lægra haldi eftir þann missi?
SET á Selfossi er talandi tákn um
að ef vel er að verki staðið, mögu-
leikarnir nýttir og vel staðið að
rekstri hefur brottfall verndarinnar
síður en svo orðið fjötur um fót.
Fjölbreytt
framleiðsla
Steinsteyptu skólprörin hans
Einars eru ekki lengur í fram-
leiðslulínunni, en annað hefur komið
í staðinn.
Hjá SET eru framleidd skólprör
eigi að síður, en nú úr plasti, bæði
til lagna í gi-unna og til innan-
hússlagna, rör allt að 500 mm í
þvermál úr polyeten til vatnsveitu-
lagna, snjóbræðslurör úr polyeten
og polypropen, og þá má ekki
gleyma gráu polybuten rörunum
sem eru þegar mikið notuð í gólf-
hitalagnir og jafnvel til annarra
hitálagna innanhúss.
Þeir sem íylgjast með fram-
kvæmdum í götum sjá oft vinnu-
flokka leggja hitaveitulagnir úr
MARGVÍSLEG tengi eru nauð-
synleg við allar lagnir.
FOREINANGRUÐ stálrör
í plastkápu.
nokkuð sérkennilegum rörum, aðal-
rörið er úr stáli, utanum það kemur
miklu víðara svart plaströr og á
milli stálrörsins og plaströrsins er
einangrun úr gerviefni sem við
skulum kalla úretan.
A fyrstu árum hitaveitna hérlend-
is voru allar lagnir lagðar í stein-
steypta stokka en þessi aðferð sem
fyrr var lýst hefur sparað mikið fé,
stálrörið flytur hitaveituvatnið,
svarta plaströrið varnar því að raki
komist að stálrörinu og tæri það og
úretanið einangrar, varnar því að
varminn tapist úr hitaveituvatninu.
Lengst af voru slík rör öll innflutt
en SET hefur á undanfórnum árum
framleitt slík rör í bullandi sam-
keppni við innflutning án nokkurrar
verndar.
Það virðist í fljótu bragði vera
ótrúlegt að hægt sé að flytja inn
stálrör frá Þýskalandi og hráefni í
plaströr frá Svíþjóð og úretan ein-
angrun frá einhverju þriðja landi,
gera þetta innflutta efni að heild
sem kemur að gagni og jafnvel selja
fullbúna framleiðslu aftur til Þýska-
lands.
Til þess að slíkt sé mögulegt
verður að stýra fyrirtækinu af ýtr-
ustu hagkvæmni, beita gæðastjórn-
un og nýta tæknina til að einfalda
og spara í framleiðslu. Það var ekki
laust við að gestirnir, hópur ís-
lenskra pípulagningamanna, væru
nokkuð stoltir af þessu íslenska
lagnafyrirtæki þegar kvatt var.
Þetta sýnir enn og aftur að réttir
menn á réttum stöðum geta þróað
íslenskan iðnað til þess að verða
gjaldgengur á heimsmarkaði, ekki
þrátt fyrir að öllum toll- og vöru-
gjaldamúrum hefur verið rutt á
brott, heldur einmitt þess vegna.
Að opna útlendum fyrirtækjum
leið inn á íslenskan markað er ekki
hættulegt, það opnar íslenskum fyr-
irtækjum leið að alþjóðlegum mörk-
uðum.
Til þess að það takist verður að
nýta öll sóknarfæri og það er ekki
nokkur vafí á að það hefur SET á
Selfossi gert.
Austurgata - Hf. Falleat vel
upDaert 128 fm einbýli á 3ur hæðum.
Húsið hefur verið tekið í gegn Jafnt að
utan og innan. Verð 12,5 millj.
Hörgsholt - Hf. Fallegt 162 fm,
6 herb. parhús auk 28 fm bilskúr.
Vandað hús með vönduðum
innréttingum. Verð 15,5 Millj.
Dvergholt - Hf. Efri sérhæð
samtals 136 fm, 33 fm bílskúr á besta
stað á Holtinu. Verð 11,9 millj.
Smárahverfi - Kóp. Efri
sérhæð 142 fm ásamt 19 fm skúr og
100 fm nýtanlegu lofti. Selst tilbúið
undir tréverk eða lengra komið.
Tilbúið undir tréverk verð 12,5 millj.
Álfaskeið - Hf. Góð 4ra herb.
117 íbúð á 3ju hæð ásamt 24 fm
bílskúr. Verð 9,2 millj. Tilvnr. 2957
Hrísmóar - Gbr. Góð 4ra herb.
ibúð á 1. hæð í góðu fjölbýli. Fallegar
innréttingar og gólfefni.
FASTEIGNASALA
REYKJAVÍKURVEGI 62
SÍMI 565 1122
Valgeir Kristinsson hrl., lögg.
Æ fasteigna- og skipasali jf*
• Kristján Axelsson sölumaður ■
Kristján Þórir Hauksson sölumaður
EINBÝLI
Smárhverfi - Kóp. Góð 5
herb. íbúð á 1. hæð í litlu fjölbýli.
íbúðin er samtals 103 fm og henni
fylgir stæði í bílageymslu. (búðin
skilast fullbúin að utan bæði hús og
lóð og tilbúin undir tréverk að innan
eða lengra komin. Tilvnr. 8858
Lækjasmári - Kóp. Falleg 4ra
herb íbúð ásamt stæði í bilageymslu í
góðu fjölbýli. Húsið skilast tilbúið undir
tréverk eða lengra komið.Tilvnr. 9968
Einbýli Garðabæ. vei við haidið
170 fm einbýlishús á góðum stað í
Garðabæ. í húsinu eru 5 svefnherb. Verð
14,0 Millj. Tilvnr. 1671
RAÐ- OG PARHÚS
Reykjavíkurvegur - Hf. Snyrti-
leg 4ra herb. íbúð samtals 180 fm Parket
á gólfum og fallegar innréttingar. Verð
10,5 millj.
3JA HERB.
Suðurholt - Hf. Fallegt parhús sem
er 171 fm þar með talinn 32,8 fm bílskúr.
Ibúðin skilast fullbúin að utan með
grófjafnaðari lóð en fokheld að innan.
Verð 9,7 millj.
HÆÐIR
Bæjarholt - Hf. 3ja herb. íbúð á
1. hæð í nýlegu fjölbýli. Verð 9,1 millj.
Smárahverfi - KÓp. Snyrtileg 3ja
herb íbúð á bessum vinsaela stað.
íbúðin er samtals 85,6 fm og henni fylgir
stæði í bílageymslu. fbúðin skilast tilbúin
undir tréverk eða lengra komin. Tilvnr.
6784
Suðurbraut - Hf. mjög falleg 3ja
herb. íbúð í snyrtilegri sameign í
suðurbænum, parkett á gólfum, góðar
innréttingar og gott útsýni. Verð 8
millj.
2JA HERB.
Smárahverfi - Kóp. Snyrtileg 2ja
herb íbúð í fallegu fjölbýli ca 70 fm og
henni fylgir stæði í bílageymslu. Ibúðin
skilast tilbúin undir tréverk eða lengra
komin. Tilvísunarnr. 6781
Sléttahraun - Hf. Tveggja herb 54
fm íbúö ásamt 22 fm bílskúr. Parket á
gólfum. Verð 6,2 millj.
ATVINNUHÚSNÆÐI
Hringbraut - Hf. Stórgæsileg hæð
oq ris samtals 218,5 fm. Lokafrágang á
hæð vantar ásamt innréttingum og
gólfefnum. Ris er tilbúið undir tréverk.
Möguleiki á að aera tvær íbúðir. Verð
14,0 Millj.
rniiiriiiiiiiiimTfiiiiimiiiiiiiiiiiniiiniiiiimmnrimr ja 0] -
aso1 pB □ □E3E3SQ WkmM QQtS
Melabra næði. u húsnæði á skiptist í 8 e 100 fm m dvrum. Nár skrifstofu Va jt - Atvinnuhús- ti er að ræða 800 fm tveimur hæðum sem ningar. Hver eining er um eð stórum innkevrslu-
ari uppl. og teikningar á Ihúsa eða í síma.
JÖRÐ TIL SÖLU
Kleppsvegur. fjögurra herb. enda-
íbúð, samtals 109 fm í nýviðgerðu fjölbýli
á 3ju hæð á þessum frábæra stað. Verð
7,9 Millj.
4RA TIL 7 HERB.
Jörðin Hörgsdalur, Skaft-
árhreppi, Vestur-Skafta-
fellssýslu. Jörðin er um 42 ha
ræktuð tún, og í heild rúmlega 1000
ha. Á jörðinni er stórt steinsteypt
tvíbýlishús og annað 50 ferm. Meðal
útihúsa eru steinsteypt fjós, hlaða,
geymsla o.fl. fjárhús úr timbri. Bústofn
fylgir. Framleiðsluréttur er 48 þús.
litra mjólkurkvóti og 270 ærgildi.
Veiðiréttur í Hörgsá og heimarafstöö
fyrir 20 kw. Mikill og góður vélakostur.
Fallea staðsetning um 6 km austan
við Kirkiubæiarklaustur. Miklir fram-
tíðarmöguleikar. Jörðin er tvö lögbýli
og hægt að selja hana í tvennu lagi.
SINDRI
-Þegar byggja skal með málmum
Borgartúni 31 ■ 105 Rvík ■ sími 575 OOOO ■ fax 575 OO10 ■ www.sindri.is