Morgunblaðið - 13.04.1999, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 13.04.1999, Qupperneq 30
MORGUNBLAÐIÐ 30 C ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 1999 > * * HÆÐARSEL 2 er í sölu hjá ValhöH. Þetta er vandað og fallegt einbýl- ishús með góðum garði. Asett verð er 18,5 millj. kr. Fallegt einbýlis- hús við Hæðarsel FASTEIGNASALAN Valhöll er nú með í einkasölu einbýlishús að Hæðarseli 2 í Breiðholti. Húsið er á tveimur hæðum, en það er 180 ferm. að stærð með 30 ferm. bíl- skúr. Hús var reist 1981 og er steinsteypt. „Þetta er fallegt hús og reisu- legt,“ sagði Oddrún Sverrisdóttir hjá Valhöll. „A neðri hæð er komið inn í anddyri með flísum, en inn af því er flísalögð gestasnyrting. Síð- an er gengið inn í gott hol og það- an er gengt inn í teppalagt her- bergi. Eldhúsið er með Alno-innrétt- ingu og þvottahús er inn af eldhúsi með sér útgangi. Inn af eldhúsinu er og gott búr. Á hæðinni eru einnig tvær samliggjandi stofur með útgangi út í garð á verönd, sem snýr í suður. Á efri hæð eru þrjú góð svefn- herbergi með skápum, gott sjón- varpsherbergi og út af því er geng- ið út á góðar suðursvalir. Baðher- bergi er einnig á efri hæðinni, en það er flísalagt með góðri sturtu, baðkari og ágætri innréttingu. Bílskúrinn er frístandandi með rafmagni og hita og góðu geymslurisi, en bílaplanið er hellu- lagt. Garðurinn er sérlega fallegur. Húsið er ágætlega staðsett í rólegu hverfi og stutt í helstu þjónustu. Ásett verð er 18,5 millj. kr. glæsileg og varanleg lausn - ryðgar ekki - tærist ekki - lágmarks viðhald ALCAN álklæðningar eru komnar á tugi íslenskra bygginga af öllum stærðum og gerðum. ALCAN hefur framleitt álklæðningar undir ströngu gæðaeftirliti í meira en þrjá áratugi. ALCAN álklæðningar hafa staðið sig frábærlega vel við allar hugsanlegar veðurfarsaðstæður um allan heim. ALCAN álklæðningar eru lakkaðar með PVDF2 Kynar 500, lakkhúð sem endist lengur en allar aðrar lakktegundir og heldur betur lit og gljáa. Altak er eina fyrirtækið á íslenskum markaði sem hefur sérhæft sig í álklæðningum og býður heildarlausn á þessu sviði, reynslu og þekkingu á öllum verkþáttum, undirbúningi, hönnun, efni, undirgrind, múrboltum, festingum og uppsetningu. Alcan er stærsti álframleiðandi í heimi ■ ■ ■ 3 |Mf 1 ^ ém 1 Arkitektar: Hróbjartur Hróbiartsson f Richard Óklftir Brierrí Verk&ld: Afmyinsfeli j li «1 »111 m ALTAI Arkitektar: Hördur Haröarson Verktaki: K.5. Verktakar Askalind 3 - 200 Kopavogur Sími: 564 5810 - Fax: 564 5811 Skeljungshúsið Arkitektar: Jeiknistofa Hauks Harðarsonar Verktaki: ístak HF /ÁLCAN V iifimiiiiumiuiMi tlinin ui UUUJUMliiÍi i.5. -r i i i £ í i í I i 1.1 I í hóf stillt HÉR ríkir mikið hóf og samræmi í litavali. Jafnframt er um ein- staklega nýtískulega hönnun að ræða, t.d. á glervegg, stólum og borði. Litum Heima- smíðaður garðstóll ÞOTT ekki sé sumarlegt um að litast, nálgast sumardagurinn fyrsti óðfluga. Þá er mál að fara að hugsa fyrir garðhúsgögnum og öðru sem tilheyrir sumarverk- um í garðinum. Þessi stóll er skemmtilega frumstæður, enda heimasmíðaður og virðist ekki flókinn að gerð. Vel nýtt pláss OFT er hægt að nýta pláss betur en gert er. Hér er hengi undir viskustykki hengt undir borðs-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.