Morgunblaðið - 16.04.1999, Page 4

Morgunblaðið - 16.04.1999, Page 4
4 B FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 1999 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF SÍVAXANDI AÐSÓKN AÐ FULLORÐINSFRÆÐSLU FATLAÐRA á forsendum hvers og eins ara og þroskaþjálfa. Sérmenntaður listmeðferðarfræðingur var auk þess fenginn að skólanum fyrir tveimur árum tii þess að sjá um myndþerapíu, en þar fá nemendur útrás fyrir tjáningarþörf með litum. Listmeðferð er ólík myndmenntar- kennslu að því leyti að kennarinn stýrir hvorki verkefnunum né túlk- ar þau, heldur eru sköpunarferlið og afrakstur þess, myndin, í brennidepli og verða grundvöllur samræðna. Aðsókn er óháð búsetu Fullorðinsfræðsla fatlaðra varð til upp úr samstarfi þeirra þjálfun- arskóla á höfuðborgarsvæðinu sem á 8. og 9. áratugnum buðu upp á sérkennslu fyrir fullorðna í tengsl- um við dag- og sólarhringsstofnanir fyrir þroskahefta og alvarlega fjöl- fatlaða. Arið 1988 var fyrsti náms- vísir Fullorðinsfræðslunnar gefinn út og um leið varð aðgangur að námskeiðum ekki lengur háður bú- setu nemenda. Ibúar á svæðinu allt frá Mosfellsbæ til Hafnarfjarðar sækja nú námskeið Fullorðins- fræðslunnar, en nemendur þurfa sjálfir að koma sér til kennslustaða. Sumir koma í almenningsfarartækj- um, sumum er ekið af foreldrum og aðrir koma í bflum sem sérstaklega eru útbúnir fyrir fatlaða. Skólinn treystir á námskeiðsgjöid til þess að mæta kostnaði við reksturinn, en heyrir stjórnsýslulega undir menntamálaráðuneytið. Nemendur Fullorðinsfræðslunn- ar eru nú á lokaspretti vorannar og hlakkar þegar til vorhátíðarinnar sem haldin hefur verið reglulega um árabil við mikinn fögnuð þátt- takenda. Karnivalstemmning ríkir á hátíðinni sem í ár fer fram 20. maí, og skemmta nemendur þar sjálfum sér og öðrum með leik, söng, tónlist og dansi eins og kraftar leyfa. UMHVERFISUPPLIFUN ► SIGGA Maja, Inga Sunna og Betsý létu fara vel um sig í vatnsrúminu í grunn- deild fjölfatlaðra við Kópa- vogsbraut. Oflugir hátalarar eru boltaðir undir rúmið og berast hljóðbylgjurnar upp í gegnum vatnið svo nemendur læri að „hlusta“ með öllum líkamanum. „Þessar ungu stúlkur hafa mjög ákveðinn tónlistarsmekk og hlýða meðal annars á klassiska tónlist og söngleikinn Grease,“ upplýsti Auður Hannesdóttir kennari og sagði mikinn misskilning að þroskaheftir hefðu einungis gaman af barnalögum. ► MARIA sló bongótrommurnar og Fífa beitti hljóðnemanum af kunnáttu í tónlistartíma. I bak- grunni má sjá Auðbjörgu, Sóleyju og Iljalta sem tóku fullan þátt í glaðlegum flutningi Óla Skans sem ómaði um allt húsið. „Þetta er ekki musíkþerapia heldur alvöru ton- listarnám af þeim toga sem allir hafa rétt á,“ útskýrðu kennararnir og kváðu tónlistarnemendur í Full- orðinsfræðslu fatlaðra læra allt frá einföldum taktslætti í hóp til flókn- ari nótnalesturs í einkatímum. ► ÞORARINN sló tvær flugur í einu höggi í tölvuverinu í Borgarholtsskóla því um leið og hann æfði sig í ritvinnslu leysti hann málfræðiverkefni með því að fylla út eyður í texta um Ara og Lappa. Þórarinn er áhuga- maður um fréttir og notar tölvuna óspart til þess að fara inn á íslensku fréttavefina mbl.is og visir.is. REIKNINGUR Sæberg Morguni ► ERLA, Hugrún Dögg og Ása Björk sögðust vera mjög duglegar í reikningi og Guðmunda Júlíusdóttir kennari staðfesti þau orð. „Mað- ur fær ekki betri nem- endur,“ sagði hún. Stúlkurnar sögðu blaða- manni frá páskaleyfinu sínu í stuttu máli en grúfðu sig að svo mæltu yfir mínus og margföld- un og máttu sýnilega ekki vera að frekara froðusnakki. Svo lengi lærir sem lifír, segir máltækið og það er sannarlega aldrei of seint að nema ---------------7------------------------- eitthvað nýtt. I vetur hafa vel yfir þrjú- hundruð manns á aldrinum 18-70 ára sótt fjölbreytt námskeið hjá Fullorðinsfræðslu fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu í því skyni að auka margs konar færni, þroska og þekkingu. Sigurbjörg Þrastardóttir leit inn í nokkrar kennslustofur og fékk hlýjar móttökur hjá áhugasömum nemendum og kennurum þeirra. ÞAÐ er sennilega sjaldgæft í skól- um nú til dags að hitta að máli nem- endur sem þykir jafnvænt um allar námsgreinarnar sem þeir leggja stund á, en sú er einmitt raunin í Fullorðinsfræðslu fatlaðra. Skýr- ingin er sú að Fullorðinsfræðslan er ekki skylduskóli heidur safn nám- skeiða sem nemendur velja eftir eigin áhugasviðum. Aðgang að nám- skeiðunum hafa fatlaðir og þroska- heftir á aldrinum 18-70 ára og hafa 342 nemendur stundað nám í vetur á höfuðborgarsvæðinu. Séu útibú skólans á Selfossi og Akureyri tekin með í reikninginn telst fjöldi nem- enda alls um 500. Háttvísi, danska og sund Þetta er ellefta starfsár Fullorð- insfræðslunnar í núverandi mynd, en skólanum er samkvæmt náms- vísi ætlað að auka sjálfstæði, öryggi og vellíðan nemenda innan heimiiis og úti í samfélaginu. Unnið er að nefndum markmiðum með því m.a. að auka almennan skilning og þekk- ingu, efla félagsfæmi og boðskipti, bæta verkkunnáttu, stuðla að al- mennu heilbrigði og ýta undir þroskandi nýtingu tómstunda. Námskeiðin í Fullorðinsfræðsl- unni em ekki beinlínis hugsuð sem stökkpallur fyrir frekara nám held- ur fremur sem undirbúningur fyrir iífið. Þar er til dæmis að finna nám- skeið sem varða almenna háttvísi, samskipti kynjanna, snyrtingu og holla lífshætti. Fyrir bókhneigða er boðið upp á lestur, ritun, reikning, dönsku, ensku og ýmiss konar tölvunám, auk skapandi námskeiða í handmennt, myndlist, tónlist, leik- list, sundi, leikfimi og matreiðslu. Nám í takt við þroska Sérstaða skólans felst í því að reynt er að koma til móts við hvem einstakling þar sem hann er staddur á þroskabrautinni og er námið sniðið að getu hvers og eins. Alvarlega greindarfatlaðir einstaklingar eiga kost á sérstökum námskeiðum í um- hverfisupplifun þar sem unnið er með skynörvun og virkni, og í sund- laug Kópavogshælis er boðið upp á vatnsörvun og slökun fyrir fjölfatl- aða. Nemendur sem valda lykla- borði geta numið ritvinnslu í tölvu- veri en þeim sem eiga erfitt með að tjá sig og skilja talmál er kennd samþætting boðskiptaleiða. Nem- endur sem sýna sérstök leikræn til- þrif geta teldð þátt í æfingum leik- hópsins Perlunnar, auk þess sem hljómsveitin Plútó er sérstaklega starfrækt með framkomu í huga og er skipuð músíkölskum nemendum. Framangreind dæmi birta aðeins brot af starfsemi skólans, en henni stjórnar tæplega þrjátíu manna hópur eljusamra kennara, sérkenn-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.