Morgunblaðið - 20.04.1999, Blaðsíða 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
KÖRFUKNATTLEIKUR
Friðrik Ingi Rúnarsson skorar á leikmenn Njarðvíkur að sýna baráttuþrek og sigurvilja í verki
Við þurfum auðvitað að
mæta í grænum búningi
LEIKAÐFERÐIN, sem Friðrik
Ingi Rúnarsson og lærisveinar
hans í Njarðvíkurliðinu beittu,
var ekki orsök þess mikla af-
hroðs, sem þeir biðu fyrir ná-
grönnum sínum og erkifjend-
um úr Keflavík á sunnudags-
kvöld, segir þjálfarinn. En
tveir aðrir veigamiklir þættir
brugðust þegar á hólminn var
komið. Annars vegar skotnýt-
ingin, en það er nokkuð sem
allir þurfa einhvern tíma að
ganga í gegnum með reglu-
legu millibili; hinsvegar sigur-
viljinn og baráttugleðin, en
það þótti Friðrik öllu alvar-
legra. Enn fremur sagði hann
að forskotið sem Keflvíkingar
höfðu á þessu sviði í leiknum,
hefði valdið því að sjálfstraust
þeirra grænklæddu, sem Frið-
rik sagði að hefðu ekki verið
sannarlega grænklæddir inn-
anbrjósts að þessu sinni,
hefði minnkað snarlega.
W
Ísjálfu sér þróaðist þessi leikur
nákvæmlega eins og höfðum búið
okkur undir,“ sagði Friðrik þjálfari
■■■■■^B er ljóst var að mögu-
Edwin leikar liðs hans á að
Rögnvaldsson verja Islandsmeist-
sknfar aratignina verða úr
sögunni tapi það aftur
í einvíginu. „Þeir voru í svæðisvöm,
sem við áttum í smá vandræðum
með í Njarðvík [þar sem annar leik-
urinn fór fram síðastliðið fímmtu-
dagskvöld], en ekki í þessum leik.
Við fengum nákvæmlega þau opnu
skotfæri sem við vildum, nákvæm-
lega sömu færin og Keflavík fékk -
fyrstu fimm mínútumar.
Eini munurinn var sá að þeir
hittu úr sínum skotum, en ekki við.
Þannig lentum við undir, 22:8. Síð-
an jöfnuðum við metin, með
nokkmm áherslubreytingum í
vörninni, en misstum þá fram úr
okkur aftur. Það sem skildi liðin í
kvöld var aðeins eitt - þeir vora
bara hungraðri og miklu grimmari í
sóknarfráköstum og annarri bar-
áttu um boltann. Annað var það
ekki... jú, vissulega hittu þeir bet-
ur en við.
Okkur tókst samt sem áður að
skapa okkur færi. Eg get ekki farið
fram á meira sem þjálfari, þegar
við setjum upp leikaðferð gegn
svæðisvörn þeirra, en að við fáum
opin skotfæri, jafnt undir körfunni
sem fyrir utan. Og þau fengum við,
en ef skotin fara ekki ofan í er ekk-
ert við því að gera.
Hinsvegar, þegar líða tók á leik-
inn misstum við sjálfstraustið við
það að ná ekki þessum fráköstum
og ná ekki boltanum þegar um
hann var barist. Það gerðu Keflvík-
ingar aftur á móti, fengu þannig
aukið sjálfstraust í kjölfarið, áhorf-
endur hrifust með og maður er svo
sem búinn að upplifa þetta marg,
margoft - á báða vegu. Þannig þró-
aðist þessi leikur. Þeir vora hungr-
aðri, vildu meira, börðust meira
fyrir sínu og uppskáru eftir því.“
Hvuð er þá tii ráða?
„Það er alveg ljóst, að við þurfum
auðvitað að mæta í grænum bún-
ingi. Þetta vora hvítir á móti hvít-
um í kvöld. Það var bara einn litur
á vellinum. Spurningin er bara sú
hvort við viljum koma sem græn,
grenjandi ljón í næsta leik eður ei.“
Einmitt í Ljónagryfjunni.
„í Ljónagryfjunni. Það er í raun-
inni það sem við þurfum að gera, að
mæta hungraðri. Við þurfum að
sýna það að við séum ekki saddir,
að við séum ekki tilbúnir að láta
valta yfír okkur fram og til baka.“
Morgunblaðið/Einar Falur Ingólfsson
Kominn á skrid!
FALUR Jóhann Harðarson lék vel með Keflvfkingum, skoraði fimm þriggja stiga körfur - þar af fjórar í byrjun leiks, þegar heimamenn
voru að ganga frá leiknum. Hér brunar hann fram hjá Teiti Örlygssyni og Brenton Birmingham, sem koma engum vörnum við. Birgir
Þór Birgisson fylgist með sínum manni.
Svo virðist sem þið hafið ekki á
jafn mörgum frambærilegum leik-
mönnum að skipa og Keflvíkingar,
með Guðjón Gylfason meiddan og
Hermann Hauksson í sprautu-
meðferð fyrir hvern leik vegna
bakmeiðsla. Vantar ykkur ekki
betri leikmenn til að geta sótt af
bekknum þegar til kastanna kem-
ur?
„Við eram með leikmenn á
bekknum, til dæmis Ægi [Gunnars-
son], sem hafa verið að koma inn í
tíu manna liðið bara rétt í síðustu
leikjum. Ægir er sjálfur búinn að
eiga við meiðsl að stríða og svo
framvegis, þannig að það er erfítt
að kasta honum fyrir ljónin í svona
leikjum. En jú, jú - við höfum leik-
menn eins og þeir. Keflvíkingar
hafa ef til vill öriítið fleiri svona,
eins og maður segir, „fimmtán stiga
menn“ heldur en við. Hinsvegar
eigum við að geta fundið leið til að
sigra," sagði Friðrik.
Fal Flarðarsyni eru ófarirnar frá 1991 enn í fersku minni
Ekki búnir að vinna neitt ennþá
Keflvíkingar eru nú komnir í
sömu stöðu og þeir voru í gegn
Njarðvíkingum í úrslitarimmu lið-
■■■B^B anna árið 1991. Þá
Eftir komust þeir yfír, 2:1,
Edwin en töpuðu næstu
Rögnvaldsson tveimur leikjum og
horfðu á nágranna
sína hampa íslandsbikarnum eftir
hreinan úrslitaleik.
Falur Harðarson, bakvörður
Keflavíkur, var í Keflavíkurliðinu
sem mátti bíta í hið súra epli. Hann
kom félögum sínum á bragðið
snemma leiks á sunnudagskvöld
með glæsilegum þriggja stiga körf-
um og gerði alls fimm slíkar, en
Keflavíkurliðið skoraði hvorki
meira né minna en sextán þriggja
stiga körfur í leiknum. Falur
meiddist lítillega í síðari hálfleik og
fór því af velli. „Mér líður stórkost-
lega,“ sagði hann eftir leikinn, ,fyr-
ir utan smáhögg sem ég fékk á lær-
ið. Ég fór bara útaf til að kæla það,
því leikurinn var búinn að mínu
mati. Ég hefði haldið áfram ef þetta
hefði staðið tæpt,“ sagði hann.
Líður ykkur ef til vill eins og að
hálfur sigur sé þegar unninn?
,fylls ekki! Við eram ekki búnir
að vinna neitt ennþá. Við höfum
verið í þessari stöðu áður - og tap-
að. Ef við spilum svona áfram, hef
ég trú á að við vinnum. Það er enn
einn sigurleikur eftir hvað okkur
varðar - og við stefnum auðvitað að
því að ná honum í Njarðvík [í
kvöld]. Ef við töpum er ekki um
annað að ræða en hreinan úrslita-
leik, en hann er einfaldlega ekki á
dagskránni hjá okkur.“
Finnst þér að hugarfarið og
stemmningin í hópnum sé þannig
að ykkur sé fært að Ijúka verkinu í
næsta leik?
„Já, virkilega. Munurinn á
tveimur síðustu leikjum okkar mið-
að við þann fyrsta er sá að nú eru
menn komnir virkilega til þess eins
að spila. Mér fínnst andinn í hópn-
um mjög góður og allir eru búnir
að setja stefnuna á eitt - að klára
þetta.“