Morgunblaðið - 17.06.1999, Page 8

Morgunblaðið - 17.06.1999, Page 8
8 B,tFIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ í Þorbjörn hf. hættir bol- fiskvinnslu í Bolungarvík ORBJÖRN HF. í Grindavík sameinaðist rækju- og bol- fiskvinnslufyrirtækinu Bakka hf. í Bolungarvík sumarið 1997. Bakki varð við það dótturfyrirtæki Þorbjöms. Bakki rak rækju- og bolfiskvinnslu í Bolungar- vík og rækjuvinnslu í Hnífsdal, auk útgerðar báta og togara. Bakki hafði yfir að ráða aflaheimildum sem námu rúmlega 5.600 þorskígildistonnum og við samruna íyrirtækjanna tvöfóld- uðust aflaheimildir Þorbjöms hf. Eftir sameininguna vann Þorbjöm rækju og bolfisk í húsnæði Bakka í Bolungarvík. Rækjuvinnslunni í Hnífsdal var hins vegar lokað og starfsemin flutt til Bolungarvíkur. Bolfiskvinnslunni var hætt síðasta - haust vegna taprekstrar og hráefnis- skorts og dró úr rækjuvinnslu vegna erfiðleika við hráefnisöflun. Síðasta vetur gekk Nasco ehf. til samstarfs við Þorbjöm um rekstur rækjuvinnslunnar í Bolungarvík. Nú á Bakki hf. fasteignimar í Bolungar- vík, en skipin og kvóti þeirra em í eigu Þorbjöms í Grindavík. Nasco á 60% í Bakka, á móti 40% Þorbjöms. Ekkert loforð um óbreytta útgerð Eiríkur Tómasson, framkvæmda- " stjóri Þorbjöms hf. í Grindavík, seg- ir að fyrirtækið hafi ekki gefið loforð um óbreytta útgerð í Bolungarvík. Hann segir að tvö skipa fyrirtækis- ins, Óseyri og Hrafnseyri, séu enn skráð í Bolungarvík. „Ég hef oft sagt, að ef fólk hefur áhyggjur af því að kvótinn fari úr einhverju byggð- arlagi, eigi það að tala við þann sem selur hann, ekki þann sem kaupir,“ segir Eiríkur. „Varðandi þann vanda sem Vest- firðingar eiga við að etja og oft er til umræðu, þá getur hann ekki verið að öllu leyti skorti á veiðiheimiidum að kenna. Talsverðu magni er landað á Vestfjörðum og flutt í burtu en ekki unnið á staðnum. í Bolungarvík em fyrirtæki sem hafa sprottið upp síð- ustu ár og em vel rekin. Þau byggja á útgerð smábáta og annarra báta, og vinna aflann í landi. Þeim gengur vel, em góðir atvinnuveitendur og era að vaxa og dafna. Því er kastljósi fjöl- miðla aldrei beint að þeim?“ í vetur hóf Bakki hf. að auka rækjuvinnslu í kjölfar þess að Nasco hf. kom tii liðs við fyrirtækið. Að sögn Eiríks lenti fyrirtækið í erfiðleikum með að manna vinnsluna, vegna skorts á fólki. „Þó er mikið af útlend- ingum, sem em mjög gott starfsfólk, í vinnu á Vestfjörðum,“ segir hann. Ekki kvótakerfínu að kenna Eiríkur vill ekki kenna kvótakerf- inu um það þegar kvóti flyst tii á landinu. „Langoftast er um að ræða vandamál sem tengjast fjármögnun, eða stjómun,“ segir hann. Hann telur ekki að kvótakerfið hafi alltaf leitt til þess að aflaheimiidir leiti þangað sem útgerð sé hagkvæmust. VIÐSKIPTI Morgunblaðið/Ásdís Þorbjöm hf. í Grindavík á nú kvóta sem áður var í eigu bolvíska fyrirtækisins Bakka hf. „Lengi vel vom menn að kaupa skip með veiðiheimildum til ákveðinna landshluta í krafti þess að þeir fengju betri fyrirgreiðslu en aðrir landshlut- ar. Þar má minna á útlán Byggða- stofnunar á ámm áður.“ Eiríkur segir að síðustu árin hafi hugsunarhátturinn hjá lánastofnun- um breyst. „Þær hafa farið að lána frekar þeim sem sýna fram á betri rekstur. Auk þess hefur sú þróun að sjávarútvegsfyrirtæki fari með hlutabréf sín á almennan markað breytt miklu, eigendum hefur fjölgað verulega og fjármögnun fyrirtækj- anna hefur batnað svo um munar. Suðumes og Vestfirðir, þaðan sem mest hefur verið selt af veiðiheimild- um, hafa orðið á eftir í þessari þróun og það hefur skaðað þessa lands- hluta vemlega. Það mun verða erfitt að snúa því við,“ segir hann. Hefði frekar kosið að Þor- björn hefði ekki komið hingað Ólafur Kristjánsson, bæjarstjóri Bolungarvíkur, segist ekki halda að Þorbjörn hafi verið að brjóta samn- inga þegar fyrirtækið dró úr umsvif- um og útgerð í bænum. „Aftur á móti héldu þau fyrirheit ekki sem voru gefin þegar Þorbjarnarmenn komu hingað. Ég batt bjartar vonir við að þeir myndu efla útgerð í bæn- um og varð fyrir sámm vonbrigðum með það hvemig þeir tóku á málum. Nýir eigendur Bakka, Nasco, hafa tekið svolítið aðra stefnu og vonandi gengur það upp,“ segir hann. Ólafur segir að leiða megi líkur að því að Þorbjarnarmenn hafi ein- göngu komið til Bolungarvíkur til að flytja bolfiskaflann á brott. ,Að feng- inni reynslu hefði ég frekar kosið að þeir hefðu ekki komið hingað,“ segir hann. Fólagsleg sjónarmið á undanhaldi Ólafur segir að þau félagslegu sjónarmið, sem áður hafi ríkt, séu á undanhaldi. „Þeir sem hafa nú yfir fjármunum að ráða vilja auðvitað fá arð af fjárfestingum sínum. Fyrir- tæki em sameinuð og gerð öflugri. Þessi félagslegu sjónarmið sem eitt sinn vom ríkjandi, þegar menn höfðu taugar til sveitarfélaganna og vildu halda uppi fullri atvinnu, era horfin. Nýju eigendumir hugsa bara um arðinn og kemur ekkert við hvar fyrirtækið er rekið,“ segir hann. Ólafur samþykkir að bolfiskafli hafi farið vaxandi á Vestfjörðum þrátt fyrir allt. „Sem betur fer var yfir einn milljarður, mest fyrir skilning Sparisjóðs Bolungarvíkur, veittur í lán til kaupa á minni fiski- skipum og kvóta í Bolungarvík. Við njótum þess núna og nú er mikill uppgangur í smábátaútgerð," segir Ólafur. Hann segir smábátaútgerðina þó hafa sína annmarka, þar sem minni bátar geti ekki sótt jafn stíft og stærri í vondum veðmm. Þá sé þjón- usta og verslun við smábáta önnur en t.d. við stærri skip svo sem tog- ara. Hálaunastörf séu færri en áður og tekjur sveitarfélagsins að sama skapi minni. Uppsagnir Vinnslustöðv- arinnar í Þorlákshöfn Morgunblaðið/Jón Svavarsson Vinnslustöðin hf. hefur sagt upp Qölda manns í Þorlákshöfn. VINNSLUSTÖÐIN hf. til- kynnti þann 25. maí síð- astliðinn að allri land- frystingu „í núverandi mynd“ á vegum fyrirtækisins yrði hætt. Segja yrði upp 89 starfsmönn- um, þar af 45 starfsmönnum í 40 stöðugildum í Þorlákshöfn. Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum var stofnuð fyrir sjö ámm. Hún varð til úr sex fyrirtækjum í Vest- mannaeyjum, að kröfu íslands- banka. Þessi sex fyrirtæki; Fiskiðj- an, Vinnslustöðin, Fiskimjölsverk- smiðja Vestmannaeyja, Lifrarsam- lag Vestmannaeyja,útgerðarfélagið Knörr og Gunnar Ólafsson og Co., vom illa stödd og sum vom komin að barmi gjaldþrots. Sighvatur Bjarnason var ráðinh framkvæmdastjóri Vinnslustöðvar- innar og urðu samlegðaráhrif og hagraeðing til þess að fyrirtækið varð fljótlega öflugt. Sameining og viljayfirlýsing Árið 1996 sameinuðust Vinnslu- stöðin og Meitillinn í Þorlákshöfn, undir nafni Vinnslustöðvarinnar. Þá var gefin út viljayfirlýsing þess efn- is að stefnt skyldi að því að í Þor- lákshöfn yrði að lágmarki unninn afli sem næmi þeirri aflahlutdeild sem skráð væri á skip Meitilsins hf. „í dag er aflahlutdeildin um 4.000 þorskígildi," sagði í yfirlýsingunni. A síðustu missemm fór hins veg- ar að halla undan fæti. Sighvatur lét af störfum 31. mars síðastliðinn og í framhaldinu kom í ljós að tap á fyrstu sex mánuðum yfirstandandi rekstrarárs, frá 1. september í fyrra til 28. febrúar sl., nam 605 milljón- um króna. í kjölfarið var tilkynnt um fjölda- uppsagnir hjá fyrirtækinu. Alls var 89 starfsmönnum sagt upp, þar af 40 starfsmönnum í 45 stöðugildum í Þorlákshöfn. Tilkynnt var að land- frystingu „í núverandi mynd“ á veg- um fyrirtækisins yrði hætt. Ekki mistök Olíufélagið hf., Esso, var einn þeirra hluthafa Vinnslustöðvarinnar sem stóðu að viljayfirlýsingunni á sínum tíma. Geir Magnússon, fram- kvæmdastjóri félagsins, segist ekki líta svo á að mistök hafi þá átt sér stað. „Viljayfirlýsingin var gefin miðað við forsendur þess tíma. Hver heilvita maður sér að slíkt loforð er einskis virði, ef ekki er bmgðist við slæmri stöðu fyrirtækisins. Ef ekk- ert hefði verið að gert, hefði fyrir- tækið endað í þroti. Hvers virði hefði loforðið þá verið?“ spyr hann. Geir segir að á sínum tíma hafi leg- ið fyrir mat sérfræðinga á því að samlegðaráhrif sameiningar Vinnslu- stöðvarinnar og Meitilsins yrðu tölu- verð. „En síðan hefur þróunin því miður orðið óheppileg og reksturinn ekki gengið sem skyldi,“ segir hann. Engin ákvörðun um að yfirgefa bæinn Geir segir eigendur Vinnslustöðv- arinnar telja sig vera að leita leiða með þessum aðgerðum til að efna loforðið. Stefnan væri að fyrirtækið næði að lágmarki sama árangri í landvinnslu og önnur sambærileg fyrirtæki. „Þetta vora sársaukafull- ar aðgerðir, en því miður nauðsyn- legar, miðað við reynslu af öðram leiðum,“ segir hann. Stefna eigendur Vinnslustöðvar- innar að því að endurreisa starf- semina í Þorlákshöfn? „Við geram okkur vonir um að við getum endur- reist fyrirtækið, sama hvemig sú vinnsla verður, þannig að það verði arðbært. Því fylgja atvinnutæki- færi. Það liggur ekki fyrir nein ákvörðun um að yfirgefa Þorláks- höfn,“ segir hann. Loforð er loforð Sesselja Jónsdóttir, bæjarstjóri Ölfuss, hefur í fréttaviðtölum sagt að ákvörðun Vinnslustöðvarinnar um að hætta landvinnslu hafi verið svik við íbúa Þorlákshafnar, vegna þess að á sínum tíma hafi verið gef- in loforð um að svo yrði ekki. Sesselja segist líta svo á að lof- orðið hafi verið bindandi. „Loforð er loforð, og þegar tekið er loforð af fyrirtæki er ætlast til þess að staðið sé við það,“ segir hún. Þórður Ólafsson, formaður verka- lýðsfélagsins Boðans á Þorlákshöfn, segir að vissulega megi líta á upp- sagnir Vinnslustöðvarinnar sem svik, miðað við yfirlýsingar. „En yf- irlýsingar eru annað en efndir og ég held að það þýði lítið að hengja sig í þær. Miðað við þróun rekstrarins síðustu sex mánuði gat ég ekki séð annað en að það stefndi beinustu leið í þrot og aðgerða var greinilega þörf. Svo er það spurning hvort að- gerðirnar voru réttar,“ segir Þórð- ur. Þórður segist ekki vita hvaða for- sendur hafi brostið síðan yfirlýsing- in var gefin. „Hins vegar er ljóst að það er ekki hægt að gera ráð fyrir að umhverfi fyrirtækja haldist gott til eilífðamóns. Þess vegna tel ég að menn hefðu ekki átt að gefa þessa yfirlýsingu,“ segir Þórður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.