Morgunblaðið - 17.06.1999, Page 9
MO'RGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
FIMMTUDAGUK l?.' .TÚNÍ 'lIÖ'j B" 9V
I
Fjárfestirinn prins Alwaleed bin Talal
Yildi alþjóðlegt stór-
veldi frá upphafí
Prins Alwaleed, fjárfestir og einn óvenjulegasti meðlimur saudi-arabísku
konungsfjölskyldunnar, er enn bjartsýnn varðandi gengi hlutabréfa á
heimsmarkaði.
í EYÐIMÖRKINNI skammt
norðan við Riyadh, höfuðborg
Saudi-Arabíu, situr maður flötum
beinum á púða nálægt opnum eldi,
klæddur að hætti arabískra höfð-
ingja, og drekkur kaffi bragðbætt
með negul sem bedúínaþjónn hefur
hellt í lítinn postulínsbollann.
Menn íklæddir síðum serkjum bíða
í röð eftir að geta lesið upp ljóð
manninum til heiðurs. I tjaldborg-
inni þar sem eigandinn dvelur tvo
daga í viku má sjá um 50 tjöld auk
húsvagna, bíla, úlfalda, körfubolta-
vallar og knattspymuvallar enda
leggur eigandinn áherslu á heil-
brigt lífemi.
Hér er þó ekki á ferðinni venju-
legur arabískur prins. Á meðan
hann talar í einhvern af mörgum
símum sínum um hugsanleg kaup
á hluta Long-Term Capital Mana-
gement fjárfestingarsjóðsins, sem
átt hefur í venilegum erfiðleikum,
mundar hann sjónvarpsfjarstýr-
ingu og fylgist með einum af sjö
sjónvarpsskjám sem hann hefur
fyrir framan sig. Þar fær hann
beinar fregnir af því sem er að
gerast á fjármálamörkuðum og
fylgist grannt með gengi fyrir-
tækja sem hann hefur fjárfest í
víða um heim, að því er fram kem-
ur í tímaritinu EuroBusiness.
Aðstoðarmaður hans setur út-
prentanir af helstu viðskiptablöð-
um heims fyrir framan hann sem
prentaðar eru af Netinu, enda les
hann í minnst fjóra tíma á dag.
Einn virtasti
fjárfestir heims
Prins Alwaleed bin Talal bin
Abdulaziz A1 Saud, 42 ára, er bróð-
ursonur Fahd konungs Saudi-Ara-
bíu. Hann er umtalaður sem einn
klókasti og árangursríkasti fjár-
festir heims og er haft fyrir satt að
hann sé einn fárra meðlima kon-
ungsfjölskyldunnar sem vinnur
fyrir sér sjálfur.
Hann var stjómarformaður eig-
in fyrirtækis aðeins 14 ára að aldri,
og sjálfur segist hann hafa byrjað
fjárfestingaferil sinn með 500.000
dollara upphæð sem í dag hefur
vaxið í um 15 milljarða dollara per-
sónuleg auðæfi. Það er ljóst af um-
mælum Alwaleeds að leikurinn er
þó rétt að byrja. „Ég vissi frá upp-
hafí að ég vildi alþjóðlegt stór-
veldi,“ segir Alwaleed, en fjárfest-
ingarfyrirtæki hans ber nafnið
Kingdom Holdings.
Bjargar fyrirtækjum
frá falli
Prins Alwaleed segist aðeins
fjárfesta fyrir eigið fé, og mun
hann vera einn fárra einstaklings-
fjárfesta sem getur skrifað ávísun
að fjárhæð nokkur hundruð millj-
ónir dollara, sem fæst innleyst án
þess að hringja þurfi í bankann.
Alwaleed hefur sérhæft sig í að
koma fyrirtækjum og fjárfestingar-
verkefnum, sem komin eru í alvar-
legar kröggur en hann þyldst sjá að
geti átt sér lengri lífdaga auðið, til
bjargar og fjárfesta í þeim til að
þau hjarni við. Meðal annars er um-
talað að hann hafi bjargað tveimur
stórum fjárfestingarverkefnum í
Evrópu, það er Disneyland í París
og Canary Wharf skrifstofuhverf-
inu í London, en hann er nú stærsti
hluthafinn í þeim báðum.
Fjárfesting hans í Citicorp fjár-
málafyrirtækinu árið 1991 er umtöl-
uð, enda var tímasetningin ótrúleg.
Hann fjárfesti 890 milljónir dollara
á skömmum tíma í bankanum, sem
þá var kominn að fótum fram, en
engir aðrir fjárfestar höfðu áhuga á
bankanum þá stundina. Sjö árum
síðar var eignarhlutur Alwaleed
metinn á 5,5 milljarða dollara.
Aðferðir prins Alwaleed, sem
hefur próf í viðskiptafræðum frá
Menlo College og meistaragráðu í
félagsfræði frá Syracuse Uni-
versity, eru með þeim hætti að
hann skoðar fyrst einstaka mark-
aði í einstökum löndum og því næst
einstök fyrirtæki á mörkuðum sem
hann hefur álit á. Þegar tækifæri
opnast í fyrirtæki og verð á hluta-
bréfum í því hefur fallið niður fyrir
ákveðin mörk, er Alwaleed tilbúinn
að kaupa í stórum stíl.
Alwaleed hefur enn trú á hækk-
unum á hlutabréfamörkuðum
heimsins, meðan aðrh- eru farnir að
gera ráð fyrir lækkun í framtíðinni.
Hann segist veðja á opnun heims-
markaða og vöxt millistéttarinnar,
og leggur áherslu á að kaupa í fyr-
irtækjum sem muni hagnast á
vexti: Fyrirtækjum í fjarskiptum,
tækni, hótelum og skemmtanaiðn-
aði. Hann hefur sérstakan áhuga á
Afríku þessa stundina. ,Afríka er
full af náttúruauðlindum og full af
fólki sem vill læra, og er hægt að
kaupa þar við lágu verði. Við vild-
um gjamar verða „eimreiðin", sem
dregur aðra fjárfesta inn á það
svæði,“ segir prins Alwaleed.
Einnig er hann áhugasamur um
fjárfestingar í rómönsku Ameríku
en er hins vegar áhugalítill um
Rússland vegna hins mikla um-
fangs spillingar í landinu.
Alwaleed á stærri og flottari
„leikfóng" en nokkur annar fjár-
málajöfur í heiminum. Hann á nýja
Boeing 767 sem hann notar sem
aðal farartæki á ferðalögum sínum
heimshoma á milli, með Being 727
og Challenger 601 einkaþotu til
vara. Hann á einnig 282 feta
skemmtisnekkju sem áður til-
heyrði fasteignajöfrinum Donald
Tmmp, þá glæsilegustu í heimi,
hús í St. Moritz og 317 herbergja
höll í Riyadh, sem hann býr í þegar
hann dvelur ekki í tjaldborginni í
eyðimörkinni.
Eins og við er að búast em ekki
allir á eitt sáttir um mann sem
auðgast hefur eins og Alwaleed.
Tímaritið Economist hefur í raun
gefið í skyn að hann stundi fjár-
festingar fyrir aðra en sjálfan sig,
og það segir að dularfullar hliðar
séu á viðskiptastórveldi hans.
En annars staðar nýtur hann
virðingar sem fjárfestir. Þannig
kallaði Forbes hann „prins samn-
inganna", tímaritið Time sagði hann
„arabískan Warren Buffet“, en
langtímavöxtur fjárfestinga þeirra
er svipaður, og BusinessWeek
nefndi hann „áhrifamesta viðskipta-
jöfur jarðar“. Þau gerast varla há-
stemmdari lofsyrðin.
Breytingar
hjá Atvinnu-
þróunarsjóði
Suðurlands
•STJÓRN Atvinnu-
þróunarsjóös Suður-
lands hefur sam-
þykkt að ráða Ró-
bert Jónsson í starf
framkvæmdastjóra
sjóðsins og mun
hann hefja störf um
næstu mánaðamót.
Róbert er rekstrarhagfræöingur
að mennt með MBA-gráðu frá Edin-
borgarháskóla og meö B.Sc.-gráöu
frá tækniháskóla í Danmörku. Ró-
bert hefur starfað sem fram-
kvæmdastjóri hjá Reykjavíkurborg
sl. fjögur ár en starfaði áður við
ráögjafarstörf á verkfræðistofu VSÓ
í Reykjavík.
Atvinnuþróunarsjóður Suöurlands
var stofnaður 1980 og er í eigu
sveitarfélaga á Suðurlandi. Um liö-
in áramót var eigið fé sjóösins liö-
lega 200 m.kr. Hlutverk sjóðsins er
að styðja við verkefni sem leiða til
eflingar atvinnulífs á Suðurlandi. Til
að rækja hlutverk sitt veitir sjóður-
inn ráðgjöf, fjárhagslega styrki,
áhættulán og lán til áhugaverðra
verkefna. Jafnframt hefur sjóðurinn
frumkvæöi að því að skilgreina og
leita aö nýjum atvinnutækifærum.
Sjóöurinn rækir hlutverk sitt í
samstarfi við einstaklinga, fyrir-
tæki, félagasamtök, önnur innlend
atvinnuþróunarfélög, opinbera aðila
og erlenda aðila á sviði skipulags-
og atvinnumála, að því er fram
kemur í fréttatilkynningu frá
Atvinnuþróunarsjóði Suöurlands.
Fráfarandi framkvæmdastjóri
sjóösins er Óli Rúnar Ástþórsson
hagfræóingur en hann hefur verið
ráöinn framkvæmdastjóri Kaupfé-
lags Árnesinga.
---------------
Nýr vefur með
atvinnuaug-
lýsingum
NÝLEGA var opnaður vefur á Netinu,
job.is, sem ætlað er að miðla at-
vinnuauglýsingum, að því er fram
kemur í fréttatilkynningu. Að vefnum
stendur fyrirtækið Nettengsl ehf. og
er nú unnið að því að gera samninga
við öll fýrirtæki og stofnanir sem aug-
lýsa mikið eftir starfsfólki.
Fram kemur í kynningarbæklingi
frá Nettengslum ehf., að job.is sé
ekki ráöningastofa en að ráðningafyr-
irtæki geti nýtt sér vefinn til að aug-
lýsa eftir starfsfólki fýrir viöskiptavini
sína.
UNDIR-
FATALÍNA
Kringlunni
S. 553 7355
PowerEdge 1300
Fyrir smærri fyrirtæki og
sem aukaþjónn.
1-2 Pentium II
eða III örgjörvar
I - 4 harðir diskar.
Minni stækkanlegt í allt að IGB.
PowerEgde 2300
Fyrir smærri
og meðalstór fyrirtæki.
1-2 Pentium II
eða III örgjörvar
1 - 6 harðir diskar.
Möguleiki á „heitskiptan-legum"
diskum.
Minni stækkanlegt í allt að 2GB.
Passar I skáp.
PowerEdge 2300 var nýlega
valinn Netþjónn ársins 1999
hjá Network Magazine og
hlaut World Class Award hjá
Network World.
PowerEdge 4300
Beinlínukerfi, vöruhús
gagna, netverslun.
1-2 Pentium II
eða III örgjörvar
Allt að 8 harðir diskar.
Möguleiki á þreföldu orku-
og kælikerfi.
Möguleiki á „heitskiptarriegum"
diskum.
Minni stækkanlegt I allt að 2GB..
Passar I skáp.
PowerEdge 6300
Hámarkskröfur um öryggi
og afköst
1-4 Pentium III
Xeon örgjörvar
Allt að 2MB slyndiminni
á hvern örgjörva.
Allt að 4GB innra minni.
Alt að 8 „heitskiptanlegih diskar
Passar I skáp.
Margverðlaunaður netþjónn.
Skiptu honum
hiklaust út
ef hann er flöskuháls fyrir
upplýsingastreymið í fyrirtækinu
Dell PowerEdge netþjónar henta öllum stærðum fyrirtækja og eru sérlega
sveigjanlegir að hvers kyns sérþörfum. Netþjónn frá Dell og BackOffice
hugbúnaður frá Microsoft sfyra upplýsingaflæði f fyrirtækinu, hópvinnukerfum,
tölvupósti og vista heimaslðuna.
Hafðu samband og gerðu hagstæðan heildarsamning um netþjón, hugbúnað,
uppsetningu og rekstrarþjónustu.
EJS h f . + 563 3000 ♦ www.ejs.is + Grensásvegi 10
llliilffliliOBIilllWMMBMMIIIIMMWWIIMMIIMnilllllllWIIHMKWWMWWMWWBWWMMMWmwni
►
■L