Morgunblaðið - 17.06.1999, Side 12

Morgunblaðið - 17.06.1999, Side 12
Ný útgáfa af Laga- safni ís- lands AG • Ný útgáfa af Laga- safni íslands AG er komin út. Lögin eru nú uppfærö til 1. maí 1999. Úrlausn-Aðgengi ehf. gefur safnið út á geisladiski en þetta er í fjóröa skipti sem það kemur út í því formi. Lagasafnið hefur að geyma öll gildandi lög landsins ásamt leitar- kerfi. Lagasafnið er uppfært tvisvar á ári, í október þegar lögum vorþingsins er bætt við og í apríl þegar lög haustþingsins bætast við. Hægt er aö nálgast frekari upplýsingar um lagasafnið á heimasíðu Úrlausnar-Aögengis ehf. http://www.ad- gengi.is. Breytingar hjá IDEX ehf. •Sigurður Þ6r Sigurðs- son hefur nýlega gerst meðeigandi og tekið viö sem framkvæmda- stjóri IDEX ehf. á ís- landi. IDEX A/S var stofnaö í Danmörku ár- ið 1977 af Valgarö Kri- stjánssyni en starfsem- in hefur einnig veriö rekin á íslandi frá árinu 1980. í Danmörku hafa m.a. fariö fram innkaup og umsjón með vöru- sendingum, en í Reykjavík er söluskrif- stofa og sýningarað- staða. Frá upphafi hafa fé- lögin sérhæft sig í fjöl- breyttu úrvali vara fýrir trésmíða- og byggingar- iönaðinn. Má þar nefna ýmiskonar glugga- og huröakerfi, utanhúss- klæðningar, kerfisloft, felliveggi og fleira. Frá afhendlngu hundruðustu Scania-blfrelðarinnar: Gunnar Margeirsson frá Heklu, Slgfús R. Sigfús- son, forstjóri Heklu, Borgar Skarphéðinsson, eig- andi bifreiðarinnar, Sverrir Sigfússon, framkvæmda- stjórl Heklu og Gunnar BJömsson frá Heklu. Hundraðasta Scania- bifreiðin afgreidd •Hekla hf. hefur afgreitt hundruðustu Scania-bif- reiðina, en fýrirtækið hefur haft umboð fýrir sænsku Scania verksmiðjurnar hér á landi stðan 1995. Scania framleiðir einkum stórar vöru- og dráttarbifreiðar og er um þriöjungur af slíkum þif- reiðum hérlendis framleiddur af fyrirtækinu. Tölvuskóli með netklúbb •Tölvu- og verkfræðiþjónustan, Grensásvegi 16, hefur sett af stað nýja þjónustu fyrir við- skiptavini sína. Um er að ræða svonefndan Net- klúbb TV sem hægt er að skrá sig í á vefsíóu fyrirtækisins. Með því að smella á http://www.tv.is/netklubbur/ og fylla út skráningarblað fá áskrifendur reglulega send til- boð, fréttir og hagnýt ráö um tölvunotkun. Þátt- takan er ókeypis og öllum opin. Landssíminn býður lausnir í gagna- flutningi Landssími Islands hf., í samvinnu viö Equant, býður fyrirtækjum upp á lausnir í gagnaflutningi til útlanda. I fréttatil- kynningu frá Landssím- anum segir: „Equant hefur yfir að ráða stærsta fjölþjónustuneti fýrir gagnaflutning í heiminum ef litið er til landfræöilegra þátta, með 120.000 hnút- punkta í yfir 225 lönd- um. Samstarf Lands- símans og Equant hefur verið í undirbúningi und- anfarnar vikur, í fram- haldi af undirritun samrv ings fyrirtækjanna, og stendur nú þjónustan viöskiptavinum til boða. Boðið verður upp á margs konar þjónustu." Þar má nefna samnýt- ingu tal- og gagnaflutn- ings (iVAD), Frame Relay gagnaflutnings- þjónustu og PPP inn- hringiþjónustu (PPP Dial Access), samkvæmt fréttatilkynningunni. Launamálin eru ekkert mál Navision Financials Launakerfi Navision Financials heldur utan um allan launaútreikning og getur flokkað hann eftir þörfum. Kynntu þér málið hjá fyrirtækinu sem kynnti Navision Financials fyrst á íslandi. ÁRMÚLA 7, 108 REYKJAVÍK, SÍMI 550 9000, www.strongur.is FÓLK/Gylfi Rútsson Aftasti maður í vörn GYLFI Rútsson var ráðinn fram- kvæmdastjóri fjár- málasviðs hjá Tali hf. í apr- íl og tekur við því starfl 1. júlí. Attu gsm-síma? „Nei, en ég er með síma ft'á Tæknivali." Er áskríftin hjá Lands- símanum? „Já, í augnablikinu.“ Hvernig útskýrír þú það? „Pessi sími var keyptur áður en ég var ráðinn til Tals.“ Má ekki búast við því að Tæknival fari að færa við- skiptin til Tals? „Ég efa ekki að Tal muni reyna að ná viðskiptum við Tæknival, eins og önnur fyrirtæki. Sú er markaðsstefna fé- lagsins." Attu þér áhugamál utan vinn- unnar? „Já, ég hef mikinn áhuga á knattspyrnu og stundaði hana með ÍBV og Víkingi í gegnum alla yngri flokkana." Þá hlýturðu að vera skyldur Rúti Snorrasyni knattspyrnumanni úr Eyjum. „Já, það passar, hann er bróður- sonur minn. Hann er mjög öflugur, en hefur verið óheppinn með meiðsli undanfarið. Vonandi nær hann góðu keppnistímabili. Hann er sprækur núna og ég held að þetta verði hans „season“.“ En við vorum að tala um þinn knattspyrn uferil. „Ég náði að spila þrjú ár með Víkingi í fyrstu deildinni á sínum tíma. Síðan fóru æfíngamar að vera of stífar fyrir mann í fullri vinnu, svo ég skipti yflr í Gróttu, sem lék í þriðju deild. Þar spilaði ég í nokkur ár. Upp á síðkastið hef ég verið að leika mér með öldunga- liði Gróttu, þó ekki síðasta ár vegna tímaskorts." Hvaða stöðu spilaðirðu? „Ég var lengst af aftasti maður í vöm (,,sweeper“), þótt ég hafi verið á kantinum í yngri flokkunum.“ Hver var eftirminnilegasti sam- herjinn hjá Víkingi? ► Gylfi Rútsson er fæddur árið 1962. Hann útskrifaðist sem stúdent frá Verslunarskólanum og síðan sem viðskiptafræðingur frá Háskóla íslands. Gylfi varð fjármálastjóri Tæknivals 1992 og síðar framkvæmdastjóri fjármála- sviðs. Gylfi er kvæntur Ágústu Kristjánsdóttur snyrtifræðingi. Þau eiga þijú börn. „Þar má nefna meistara eins og Ögmund Kristinsson markvörð, Ómar Torfason landsliðsmann og svo auðvitað Þórð Marelsson. Þórður var kolvitlaus á velli, enda Sandgerðingur. Hann var hins vegar ljúfmenni mikið utan vallar.“ Attu þér önnur áhugamál? ,jkuðvitað er aðaláhugamálið fjölskyldan og samverastundir með henni. Starfsins vegna hefur þó ekki gefist nægur tími til þeirra.“ Hvernig líst þér svo á að hefja vinnu hjá Tali hf.? „Mér líst mjög vel á það. Það var hins vegar mjög erfíð ákvörðun að fara frá Tæknivali eftir sjö og hálfs árs starf. Þar vinnur gott fólk sem ég hef tengst vináttuböndum. En ég ákvað að taka þessu áhugaverða starfi hjá Tali. Ég hef sótt nokkra fundi hjá Tali og hef störf þar af fullum krafti í júlí..“ Ljós í myrkri með Check- point Ljós í myrkri ehf. hefur nýlega tekið við umboði fyrir Checkpoint-þjófavarn- arhlið og þjófavarnarmerkimiða fyrir verslanir. Ljós í myrkri ehf. hefur séð um tæknilega þjónustu fyrir flest Checkpoint-þjófavarnarhlið sem eru hér á landi, og fyrirrennara þeirra, Actron-hliðin. Þar sem Checkpoint í Evrópu sá sér hag í því að sala og þjónusta væri á hendi sama aöila var ákveðið að Ljós í myrkri tæki við um- boöinu frá 7. júni síöastliönum, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. t tilkynningunni segir að Check- point sé einn stærsti og framsækn- asti framleiðandi þjófavarnarhliða í heiminum, og séu um 90% þjófavarn- arhliða í verslunum hér á landi frá fyr- irtækinu. ------------------ Aco og Haftækni gera samning á Olafsfirði Gagnfræðaskólinn á Ólafsfirði, Aco hf. og Haftækni hf. hafa gert með sér samning um kaup og þjónustu á Apple-tölvubúnaöi. í samningnum felst aö Gagnfræöaskólinn kaupir tuttugu tölvur af Aco hf. en Haftækni hf. á Akureyri sér um uppsetningu og þjónustu á tölvukerfinu fýrir skólann, samkvæmt fréttatilkynningu. Gagnfræðaskólinn á Ólafsfirði hef- ur undanfarin ár notað tölvur við kennslu með góðum árangri. Meginá- stæða fyrir vali á Apple Macintosh- tölvum er sú að þær eru með ís- lensku notendaviðmóti og rekstrar- kostnaður hefur auk þess veriö lág- ur, að því er fram kemur í tilkynning- unni. Gagnfræöaskólinn kaupir einnig allan hugbúnað til kennslu af Aco og Haftækni, ritvinnslu, töflureikni og gagnagrunn með íslensku viðmóti. Tölvukerfiö mun vera eitt það full- komnasta sem íslenskur grunnskóli hefur sett upp hingað til, allar tölv- urnar eru með G3 örgjörva og skól- inn veröur tengdur ISDN-neti. INNHERJI SKRIFAR. . . STÓRTÍÐINDI AF HLUTABRÉFAMARKAÐI •Sala hlutabréfa í íslenzkri erfða- greiningu hf., sem tilkynnt var i gær, eru mestu tíðindi á markaönum frá því, að tilkynnt var um kaup FBA og Kaupþings á hlutabréfunum í Baugi á sínum tíma. Þar kemur tvennt til: ann- ars vegar er hér um mjög háa fjár- hæð að ræða og hins vegar valda framtiðarmöguleikar íslenzkrar erfða- greiningar hf. því, að hér gæti verið um ævintýralegan fjárfestingarkost að ræða. Sú spurning vaknar að sjálfsögöu hvers vegna hinir erlendu fjárfestar eru tilbúnir til að selja töluvert af hlut sínum í fslenzkri erfðagreiningu fyrir verð, sem virðist vera mjög hóflegt. Ástæðan sýnist fyrst og fremst vera sú, að með því telji þeir sig greiöa fyr- ir því, að starfsumhverfi fyrirtækisins verði vinsamlegra hér á íslandi og þar með möguleikar þess til þess að vinna þau stórvirki, sem að er stefnt. Takist það muni hlutabréfin, sem þeir eiga eftir, margfaldast í verði og ávöxtun þeirra á upphaflegu hlutafé ótrúlega mikil. Salan á hlutabréfunum til íslenzkra fjárfesta á aö þeirra mati, að skapa jákvæðara umhverfi fyrir fyr- irtækið vegna þess, að þá veröi það oröiö 70% í íslenzkri eigu og ekki lengur hægt að halda því fram, að verið sé að nota heilsufarsgögn ís- lenzku þjóðarinnar til þess að skapa stórfelldan hagnað fýrir útlendinga. Salan á þessu verði er því áhættufjár- festing í því skyni að stórauka hagn- að framtíöarinnar. Stóra spurning, sem vaknar eftir að FBA, Landsbanki, Búnaðarbanki og Hof hf. keyptu hlutabréfin, sem um er að ræða í íslenzkri erföagrein- ingu, er auðvitað sú, hverjum bank- arnir ætla að selja. Eigendur Hofs hf., þ.e. Hagkaupssystkinin, geta auðvitað ákveöiö að eiga bréfin eða selja eftir því, sem þeim hentar en ætla verður að bankarnir hyggist selja a.m.k. töluverðan hluta af bréf- unum til annarra. Hverjir fá tækifæri til þess að kaupa þessi bréf, sem að sumra mati munu tífaldast f verði á næstu árum? Bréfin verða seld í lokuðu útboði en lokuðu útboði til hverra? Það verður áreiðanlega fýlgzt með því m.a. vegna þess, að bankarnir þrír eru að meiri- hluta i eigu ríkisins og verða þess vegna að sæta þvi að til þeirra eru geröar annars konar kröfur en ef um einkafyrirtæki væri að ræða. Verður lífeyrissjóðum boöið að kaupa bréfin og þá hvaða lifeyrissjóð- um? Verður fjárfestingarfýrirtækjum boðið að kaupa bréf og þá hvaða fyrir- tækjum? Munu einstaklingar koma við sögu og þá hverjir? Ef markmiðið meö sölunni er að skapa jákvæðara andrúm í kringum fyrirtækið skiptir þetta verulegu máli. Ef bankarnir mis- stíga sig í þessum efnum getur salan auðveldlega snúizt gegn fýrirtækinu. íslenzk erfðagreining hf. á því töluvert í húfi að vel takist til. GENGUR ÆVINTÝRIÐ UPP? •Hversu vænlegur fjárfestingarkostur er íslenzk erfðagreining? Þegar til skemmri tíma er litið er nánast enginn vafi á því, að þeir sem fá tækifæri til að kaupa bréf geta hagnazt vemlega á viðskiptum með þau á næstu mánuð- um ogjafnvel misserum. Fyrir þá, sem hyggja á langtímaprfestingu í fyrirtæk- inu er spurningin einfaldlega, hvort þetta ævinfýri gengur upp að lokum eða ekki. Það eru fjölmörg dæmi um þaö, ekki sízt í Bandaríkjunum, að fyrir- tæki á borð við íslenzka erfðagreiningu geta skilað eigendum sínum ævintýra- legum auði, þegar upp er staðiö. Þau geta líka horfið af sjónarsviðinu sem ævintýrið, sem aldrei varð. Miðað við það, sem hingaö til hefur gerzt í uppbyggingu íslenzkrar erfða- greiningar eru meiri likur á því en ekki að framtíöarsýn Kára Stefánssonar gangi upp. Og Innherji hefur hugboð um, aö þaðan sé að vænta á næstu mánuöum eða misserum nýrra og óvæntra tíðinda. íslenzk erföagreining er skv. þeim viðskiptum, sem fram fóru í gær, metin á um 40 milljaröa króna. Til samanburöar er Eimskipafélagið, sem starfaö hefur nær alla öldina, metið á tæpa 25 milljarða. Þessar tölur segja töluverða sögu um það, sem hér er að gerast.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.