Morgunblaðið - 17.06.1999, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1999
Fram
og Leiftur
úr leik
Fram og Leiftur féllu út í 32-liða
úrslitum bikarkeppninnar í gær-
kvöld. Fram tapaði fyrir Víði í Garði
eftir framlengingu og vítaspymu-
keppni og Sindri vann Leiftur á
Ólafsfirði, 1:0.
Víðismenn komust í 2:0 með
mörkum Kára Jónssonar og Grétars
Einarssonar og þannig var staðan í
hálfleik. Framarar voru búnir að
jafna þegar ellefu mínútur voru
liðnar af síðari hálfleik með mörk-
um frá Höskuldi Þórhallssyni og
Marel Oerlmans. Hvorugu liðinu
tókst að bæta við mörkum í venju-
legum leiktíma og framlengingu og
því þurfti að grípa til vítaspyrnu-
keppni.
Grétar Einarsson tók fyrstu víta-
spyrnuna fyrir Víði og skoraði, 1:0.
Agúst Gylfason jafnaði fyrir Fram,
1:1. Kári Jónsson kom Víði í 2:1 og
Valdimar Sigurðsson jafnaði 2:2.
Sævar Borgarsson skoraði fyrir Víði
3:2 og Freyr Karlsson jafnaði fyrir
Fram, 3:3. Þá kom Goran Lukic Víði
í 4:3, en Asmundur Amarsson mis-
notaði spyrnuna fyrir Fram. Hlynur
Jóhannesson innsiglaði síðan sigur-
inn með því að skora úr fimmtu
spyrnu Víðis, 5:3.
Magni Blöndal Pétursson, þjálfari
Víðis, sagði að leikurinn hafi verið
eins og bikarleikir eiga að vera,
spenna og barátta frá fyrstu mínútu.
„Við náðum að setja tvö mörk á þá í
fyrri hálfleik en misstum það niður
fyrir klaufaskap strax í upphafi síð-
ari hálfleiks. Eftir það lékum við af
skynsemi, en bæði lið fengu þó færi á
að skora í venjulegum leiktíma og
framlengingu.
Pétur Bjöm
laus hjá
Hammarby
PÉTUR Björn Jónsson er laus
undan samningi hjá sænska 1.
deildar félaginu Hammarby
og á í viðræðum við lið í 2. og
3. deild í Engiandi.
Pétur missti af hiuta undir-
búningstímabilsins i Svíþjóð
og hefúr ekki leikið með
sænska liðinu á tímabilinu.
Hann óskaði eftir því að
losna undan samningi við
sænska liðið í apríl og fá að
ræða við önnur Iið. Lið á ís-
iandi hafa sýnt Pétri áhuga
en hann hefur að undanförnu
átt í viðræðum við þrjú lið í 2.
og 3. deild i Englandi.
FIMMTUDAGUR 17. JUNI
FR J ALSIÞROTTIR
BLAÐ
c
HEIMSMETHAFINN Maurice Green fagnar heimsmeti sínu í Aþenu, 9,79 sekúndum.
Heiðar með tvö
og Lilleström í
annað sætið
HEIÐAR Helguson skoraði tvö fyrstu mörkin í
4:1 sigri Lilleström á Válerenga í norsku deild-
inni í gærkvöldi. Hann hefur nú gert 7 mörk í 10
leikjum og er meðal markahæstu leikmanna
deildarinnar. Rúnar lék einnig með Lilleström
sem er nú í öðru sæti deiidarinnar með 22 stig,
þremur stigum á eftir Rosenborg sem er efst.
Tryggvi Guðmundsson skoraði fjórða mark
Tromso og lagði upp það fimmta er lið hans vann
Bodo/Glimt 5:1 á heimavelli. Tromso er í flmmta
sæti með 17 stig. Steinar Dagur Adóifsson lék
með Kongsvinger sem vann Skeid á útivelli 1:0.
Rosenborg vann Viking 2:0 í Stafangri og
voru Ríkharður Daðason og Auðun Helgason
báðir í byi'junarliði Viking.
Island fær-
ist upp um
tvö sæti
STYRKLEIKALISTI FIFA, al-
þjóða knattspymusambandsins, var
birtur í gær. Islendingar hækka enn
og deila nú 46. sætinu með Ungverj-
um. íslenska liðið hefur klifið hratt
upp listann og er búið að hækka um
18 sæti síðan í desember. Island hef-
ur hækkað um tvö sæti frá því að síð-
asti listi var gefinn út fyrir mánuði
Guðjón Þórðarson landsliðsþjálf-
ari sagði í samtali við Morgunblaðið
að það væri ánægjulegt að vera að
þokast upp. „Það er ekki aðalmálið
hvar við stöndum á þessum lista,
meira skiptir að liðið er að sýna mik-
inn þroska í leik sínum. Það er varla
raunhæft að við förum mikið hærra á
þessum lista þar sem þjóðimar fyrir
ofan okkur leika mun fleiri leiki en
við.“
Tékkar eru á hraðri siglingu og
eru komnir í þriðja sætið og nálgast
stöðugt heimsmeistara Frakka og
Brasilíu, sem er í fyrsta sæti. Rússar
hækka sig um tíu sæti, em komnir í
23. sæti. Tveim sætum neðar er
Ukraína.
Noregur er efst Norðurlanda-
þjóða, í því ellefta, og em Norðmenn
aðeins einu stigi neðar en Hollend-
ingar. Svíþjóð er í 15. sæti, Danir eru
í því 17. Færeyingar, sem gerðu
jafntefli á dögunum við Skotland og
Bosníu, vinna einnig á og em komnir
í 105. sæti. Þeir hafa hækkað sig um
tuttugu sæti síðan í desember
„Ég gleðst innilega fyrir hönd
Færeyinga og það er gaman að sjá
þá fara upp á þessum lista. íslend-
ingar halda að þeir geti ekki leikið
knattspymu. Þegar við lékum gegn
Færeyingum síðast sá ég að þeir
leika agaða og skynsama knatt-
spymu - og það er það sem fleytir
mönnum áfram,“ sagði Guðjón.
Reuters
Frábært heimsmet
Heimsmeistarinn í 100 metra
hlaupi, Maurice Greene, stóð í
gær við stóru orðin er hann bætti
heimsmetið í 100 metra hlaupi um 5
sekúndubrot og hljóp á 9,79 sekúnd-
um á stigamóti Alþjóða frjálsíþrótta-
sambandsins í Aþenu. Fyrra metið
setti Kanadamaðurinn Donovan
Bailey, 9,84, á Ólympíuleikunum í
Atlanta 1996. Um leið bætti Greene
bandaríska metið um 6 sekúndubrot,
en það var í eigu Leroys Burrells.
Allt frá því rafmagnstímataka var
tekin upp fyrir rúmum 30 árum hef-
ur heimsmetið í 100 metra hlaupi
ekki verið bætt eins mikið.
Greene, þessi tæplega 25 ára
Bandaríkjamaður, hefur undanfarið
þótt vera drjúgur með sig og síst
sparað yfirlýsingamar þess efnis að
hann ætli að bæta heimsmetið, og
það hressilega. Að þessu sinni gekk
hann óhindrað til verks á sömu braut
og hann vann heimsmeistaratitilinn
á 1997.
„Ég ætlaði að gera mitt best og
það tókst, en ég læt ekki staðar
numið með þessum árangri," sagði
Greene, eftir að heimsmetið hafði
verið staðfest.
Aðstæður voru allar hinar bestu
er hlaupið fór fram og með sér í
hlaupinu hafði Greene meðal annars
æfingafélaga sinn, Ato Boldon frá
Trínidad og Namibíumanninn
Frankie Fredericks, en Greene
hljóp á braut á milli þeirra. Einnig
voru Kanadamaðurinn Bruny Surin
og Bandaríkjamennirnir Dennis
Mitchell og Tim Montgomery meðal
keppenda. Allir hafa þeir hlaupið
100 metrana á skemmri tíma en 10
sekúndum. Meðvindur í hlaupinu
var +0,1 metri á sekúndu. Er
Bailey setti sitt heimsmet fyrir
þremur árum var vindur 0,7 metrar
á sekúndu.
Greene náði e.t.v. ekki besta við-
bragðinu og fyrstu 30 metrana var
hann í humátt á eftir Boldon og
nærri samsíða Fredericks og Surin,
en þá var allt gefið á fullt og eftir 50
metrana var hann kominn fram úr
þeim öllum og síðustu 50 metrana
gat enginn ógnað honum. Boldon
varð annar á 9,86 og Surin varð
þriðji á 9,97. Fredericks hreppti
fjórða sætið á 10,02, sama tíma og
hann fékk er hann varð fjórði í sömu
grein á sama stað á heimsmeistara-
mótinu fyrir 2 árum.
„Næst set ég heimsmet," sagði
Boldon, glaður yfir árangri æfingafé-
laga sín.
VIÐTAL VID ÞÓREYJU EDDU ELÍSDÓTTUR STANGARSTÖKKVARA / C2