Morgunblaðið - 17.06.1999, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 17.06.1999, Blaðsíða 2
2 C FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ URSLIT FRJÁLSÍÞRÓTTIR Er ekki tilbúin Þóreyju Eddu Elísdótt- ur skaut upp á íslenska íþróttahimininn á sl. vetri er hún bætti sig um 47 sentimetra í stangarstökki kvenna á skömmum tíma og skipaði sér í hóp þeirra bestu í heiminum. Ivar Benediktsson rabbaði við Þóreyju og sagði hún m.a. frá væntingum þeim sem hún hefur á vettvangi stangarstökksins. Þegar Þórey flutti til Svíþjóðar sl. haust í þeim tilgangi að ein- beita sér að stangarstökki og æfa undir stjóm Stanislavs Szcyrba hafði hún hæst stokkið 3,90 metra innanhúss og 4,21 metra utandyra í fyrrasumar. Hún segir strangar æfíngar Stanleys, sem hún kallar svo, hafi skilað sér í miklum fram- fórum sem hún tók í vetur og end- urspegluðust í að hún stökk hæst 4,37 metra innanhúss áður en keppnistímabilinu lauk. Fyrir vikið er hún komin í 10. sæti heimsa- frekalistans innanhúss frá upphafi. Er hún ekkert hrædd um að nú fari að hægja á framfórunum og húnjafnvel standi í stað í sumar? „Eg reiknaði aldrei með að fram- farimar yrðu svona hraðar á skömmum tíma, hélt kannski að ég myndi fara upp í 4,20 metra í vetur. Það má segja að veturinn hafi verið eitt ævintýri. Framfarimar voru miklar og auðvitað má reikna með að eitthvað dragi úr þeim. Það er hins vegar eðlilegt og þá reynir á þolinmæðina og að leggja aukna rækt við tæknina. Það er ekki nóg að auka styrkinn og gleyma tækn- inni. Eg er ekki ánægð með tækn- ina, ég á ennþá langt í land á þeim bænum. Þegar komið er upp í 4,40 metra hefst baráttan við sentímetrana. Það er ákveðið þrep að vera kom- inn upp í 4,40 til 4,45 metra og eftir það tekur maður tæplega stórstíg- um framförum." Hvað er það einkum sem þú ert óánægð með? „Fyrst og fremst þá vinnslu sem fram fer á stönginni. Ég á að geta haldið stönginni nær mér og gefið mér þar af leiðandi meiri tíma upp við rána. Nú er ég að fara of snemma yfir rána, meiri yfirvegun vantar, en hún kemur.“ Hafa þessar framfarir orðið til þess að vekja aukinn áhuga á þér og auðveldað þér að komast inn á sterk mót? „Örugglega hjálpar þessi árang- ur mér nú þegar komið er að keppnistímabilinu utanhúss, en það gerði það ekki að neinu marki í vet- ur því tímabilið innanhúss er stutt og mót oft skipulögð löngu fyrir- fram. Umboðsmaðurinn minn, Vé- steinn Hafsteinsson, fann fyrir auknum áhuga og fékk talsvert af fyrirspumum vegna móta í sumar.“ Þórey segir að strax og hún kom út til Svíþjóðar sl. haust hafi hún gengið í gegnum einhverjar þær Morgunblaðið/Golli EINBEITINGIN skín úr andliti Þóreyjar Eddu er hún leggur af stað í eitt stökka sinna á ÍR-mótinu i Laugardalshöll sl.vetur. erfiðustu æfingar sem hún hafi lent í um ævina og Stanislav þjálfari hafi ekkert gefið eftir. I hverju eru þrekæfmgar stang- arstökkvara fólgnar; hvernig æfa þeir fyrir utan að stökkva á stöng? „Hlaupaæfingar ganga einkum út á fjölmarga spretti, hver á fætur öðrum, allt á tímatöku, frá 600 metra sprettum og niður í 100 metra, þar sem maður keyrir sig gjörsamlega út. I lyftingum er að- aláherslan lögð á æfingar fyrir axl- ir og fætur. Auk þess klifrum við mikið upp í köðlum. Þegar ég mætti á æfingar fyrst síðasta haust komst ég tvö skref upp kaðalinn, en það leið ekki á löngu þar til ég komst upp og niður án vandræða. Þessar æfingar eru endurteknar hvað eftir annað þar til allt þrek er á þrotum. Þá er farið yfir ýmsar grunnæfingar í stangarstökki og vikum saman á undirbúningstíma- bilinu snertir maður ekki stöngina til þess að stökkva." Þetta er í fyrsta skipti á þeim þremur árum sem Þórey hefur æft stangarstökk sem hún æfir eins og atvinnumaður. „Þar til ég fór til Svíþjóðar stökk ég alltaf tvisvar í viku, var í tækniæfingum og reyndi að halda mér eins léttri á milli þessara æfinga og kostur var. Eftir þrekæfingarnar í vetur kom upp sú hugsun hjá mér að ég gæti ekki stokkið á ný, hefði misst tilfinning- una fyrir því hvemig á að stökkva. En það breyttist þegar komið var út í alvöruna." Þórey segir að það hafi verið gott að leggja aðaláherslu á tækn- ina fyrstu árin því mikilvægt sé að grunntæknin sé rétt áður en farið er að æfa þrek. Þrekið megi alltaf vinna upp en erfiðara sé að lagfæra tæknigalla eftir nokkurra ára rangar æfingar. Þess vegna hafi uppeldi það sem hún fékk hjá FH verið mjög gott og afar mikilvægt. „Kristján Gissurarson, þjálfari minn hjá FH, sagði mér alltaf að hugsa um tæknina fyrst og fremst fyrstu árin, þrekið væri nánast hægt að kaupa út í búð, en það væri ekki hægt þegar tæknin ætti í hlut.“ Uppalin í Hafnarfirði Þórey er uppalin í Hafnarfirði, en fæddist reyndar í Reykjavík eins og svo margir aðrir. Hún verð- ur 22 ára hinn 30. júní. Þórey er dóttir hjónanna Elísar Stefánsson- ar og Sigríðar Albertsdóttur, og á Þórey tvo bræður. „Foreldrar mín- ir hafa alltaf fylgst vel með mér í íþróttunum." Hún hóf skipulagðar íþróttaæf- Knattspyma Bikarkeppni KSÍ - 32 liða úrslit I'A 23 - Keflavík...................0:4 - Albert Sveinsson (16., 24.), Kristján Brooks (61.), Þórarinn Kristjánsson (88.). Víðir - Fram........................2:2 Kári Jónsson (28.), Grétar Einarsson (44.) ■ Höskuldur Þórhallsson (50.), Marel Oerlmans (56.). ■Staðan var óbreytt eftir framlengingu, en Víðir vann eftir vítaspymukeppni 7:6. Haukar - Skallagrímur ............1:1 Ómar Öm Friðriksson - ívar Benediktsson ■Staðan var óbreytt eftir framlengingu, en Haukar unnu eftir vítaspyrnukeppni 5:3. HK - Víkingur R ....................1:6 Gunnar Helgason - Colin McKee 2, Arnar Hrafn Jóhannesson 1, Sváfnir Gíslason, Alan Prentice, Daníel Hjaltason. Sindri - Leiftur ...................1:0 Hjalti Þór Vignisson (55.). ■Sindri var mun sterkari og fékk mun fleiri færi, sérstaklega í íyrri hálfleik. Síðustu tíu mínútumar sóttu Leiftursmenn nokkuð grimmt en Hajmdin Cardakljja, fyrram markvörður Leifturs, varði þá nokkrum sinnum vel. Noregur Lilleström - Válerenga..............4:1 Moss - Strömgodset .................2:5 Odd - Moide.........................0:0 Skeid - Kongsvinger...............0:1 Tromsö - Bodö/Glimt ................5:1 Viking - Rosenborg..................0:2 Staðan Rosenborg............10 8 1 1 31:7 25 Liileström...........10 7 1 2 25:17 22 Stabæk ...............9 6 2 1 22:10 20 Molde ...............10 6 2 2 16:7 20 Tromsö ..............11 5 2 4 29:19 17 Odd Grenland........11 5 1 5 15:232 16 Brann ................. 9504 14:17 15 Viking................10 4 1 5 16:14 13 VSlerenga.............11 4 1 6 15:19 13 Moss ................11 4 0 7 18:23 12 Skeid................11 3 1 7 12:27 10 Kongsvinger..........10 3 0 7 14:21 9 Strömgodset...........10 3 0 7 14:26 9 Bodö/glimt ..........11 2 2 7 19:30 8 Svíþjóð Örebro - Hammarby...................3:1 ■Einar Brekkan skoraði tvö marka Örebro. Danmörk AGF Árhus - B93 Kaupmannahöfn......2:1 FC Kaupmannah. - AB Kaupmannah. . .1:0 Herfölge - AaB Álaborg..............3:2 Lyngby - Bröndby ...................2:6 Silkeborg - Viborg..................1:2 Vejle - Arhus Fremad................4:1 Lokastaðan AaB Áiaborg........33 17 13 3 65:37 64 Bröndby ..........33 19 4 10 73:37 61 AB Kaupmannah .. .33 17 5 11 49:36 56 Lyngby ...........33 14 10 9 55:60 52 Herfölge .........33 12 11 10 44:36 47 Vejle ............33 14 5 14 54:48 47 FC Kaupmannah. .. .33 12 10 11 55:52 46 Viborg.............33 13 5 15 61:59 44 Silkeborg..........33 10 14 9 52:53 44 AGF Árhus..........33 11 10 12 45:55 43 Árhus Fremad .....33 7 8 18 51:73 29 B93 Kaupmannah. . .33 3 3 27 22:80 12 I dag Knattspyrna Bikarkeppni KSÍ, Coca-Cola bikarinn, 32- liða úrslit: Valbjarnarvöllur:Fram 23 - Grindavík .. .12 A morgun Knattspyrna 1. deild karia: Fylkisvöllur: Fylkir - Stjarnan..........20 Dalvíkurvöllur: Dalvík - ÍR..............20 3. deild: Fjölnisvöllur: Fjölnir - Augnablik.......20 Grýluvöllur: Hamar - KFR.................20 Grindavíkurvöilur: GG - Bruni ...........20 Njarðvíkurvöllur: Njarðvík ; ReynirS .. .20 Ólafsvíkurvöllur: Víkingur Ó - Þróttur V .20 Akureyrarvöllur: Nökkvi - HSÞB............20 Blönduósarvöllur: Hvöt - Kormákur........20 Grenivíkurvöllur: Magni - Neisti H ......20 Egilsstvöllur: Huginn/Höttur - Leiknir F20 Neskaups.völlur: Þróttur N - Einherji .. .20 FELGASLIF Golfmót körfu- knattleiks- manna GOLFMÓT körfuboltamanna verð- ur haldið á Garðsvelli á Akranesi föstudaginn 25. júní. Leikinn verður 18 holu höggleikur, með og án for- gjafar. Ræst verður út frá kl. 16.00. Skráning fer fram í golfskálanum á Akranesi, sími 431-2711. Nánari upplýsingar er að fá hjá Ríkharði Hrafnkelssyni (sími 438-1449). Mótið er ætlað öllum þeim ein- staklingum sem einhvem tímann hafa leikið körfuknattleik og stunda nú golf. að vinna Völu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.