Morgunblaðið - 17.06.1999, Síða 4
GOLF / OPNA BANDARISKA MEISTARAMÓTIÐ
Hver ve
númer e
númer
Opna bandaríska meistaramótið í golfi hefst í
dag á einum albesta golfvelli veraldar, velli
númer tvö í Pinehurst, litlu þorpi í Norður-
LEE Janzen á titil
að verja á Opna
bandaríska meist-
aramótinu, en víst
er að titilvörnin á
eftir að reynast
honum ströng því
margir eru kallaðir
nú eins og
endranær.
Karólínuríki, sem kalla má St. Andrews
______þeirra Bandaríkjamanna. Edwin_____
Rögnvaldsson veltir vöngum yfir sérkennum
vallarins, sem er afrakstur þrotlausrar vinnu
Skotans Donalds Ross, og hvað sigurvegari
mótsins þurfí að hafa til brunns að bera.
Það er engu líkara en að hallar-
bylting hafi átt sér stað innan
bandaríska golfsambandsins,
USGA, þegar mótsstaðurinn var
valinn. Stjómarmenn sambandsins
hafa í áraraðir staðið i þeirri trú að
sigurvegari helsta móts þjóðar
þeirra eigi að leika á pari. USGA
hefur statt og stöðugt reynt að
stemma stigu við framfórum á ýms-
um sviðum golflþróttarinnar og
reynt að gera vellina erfiðari með
hverju árinu til að halda höggafjöld-
anum ofan „viðunandi" marka.
í fyrra varð völlur Ólympíu-
klúbbsins svonefnda svo erfiður að
margir höfðu einfaldlega ekki þolin-
mæði til að fylgjast með kylfingum í
sjónvarpi reyna að mjaka hvítum
bolta áfram úr einhverju sem líktist
meira kálgarði heldur en golfvelli.
Svo hátt var grasið utan brautanna
sem ekki voru meira en tuttugu
metrar á breidd.
En nú virðist USGA hafa breytt
þankagangi sínum, því Pinehurst,
þ.e. völlur nr. 2 af átta, hefur síður en
svo þessa ásjónu kálgarðs eins og all-
ir vellir sem sambandið hefur notað
sem mótsstaði. Á Pinehurst er sára-
lítill kargi. Vitur maður sagði eitt
sinn að ef kylfingur glataði bolta við
leik á Pinehurst væri eitthvað mjög
athugavert við golfleik viðkomandi.
Vitaskuld hefur USGA þurft að
leggja sitt af mörkum til að gefa vell-
inum yfirbragð opna bandaríska
mótsins. Til að halda í hefðina hafa
brautimar verið þrengdar. Þær
verða um 25 m á breidd, en grasið
utan þeirra verður ekki nærri jafn
hátt og venjulega. í ljósi þess er bú-
ist við að höggafjöldi efstu manna
verði minni en oft áður. Það er þó
ekki sjálfgefið, því Pinehurst nr. 2
er ekkert lamb að leika sér við.
Völlur nr. 2 er helsta verk Skot-
ans Donalds Ross, sem flutti til
. Bandaríkjanna um síðustu aldamót
eftir að hafa verið lærisveinn hins
fræga Toms Morris eldra, vallar-
stjóra á St. Andrews - vöggu golfí-
þróttarinnar. Ross gerði golfvalla-
hönnun að viðurkenndri atvinnu-
grein í Bandaríkjunum og hannaði
meira en 400 velli þar í landi. Þeirra
á meðal voru fyrstu fjórir vellimir í
Pinehurst, en völlur nr. 2 fékk lang-
mesta athygli hans. Ross bjó í
Pinehurst frá upphafi vallarfram-
kvæmda árið 1907 þar til hann féll
frá árið 1951. Sífellt dyttaði hann að
þessu mikla meistaraverki sínu.
Holan er ekki stærri
Þegar Ross lauk við hönnun vall-
arins ruku menn til og kepptust við
að lofsama hann og útnefndu völlinn
þann besta í Bandaríkjunum. „í
mínum huga verður Pinehurst nr. 2
að vera á lista hvers manns yfir
fimm bestu golfvelli heims,“ segir
Raymond Floyd, gamalreyndur
kylfingur, sem hefur m.a. unnið sig-
ur í Meistarakeppninni, öðra nafni
Masters, í Augusta. „Eg tel völlinn
á meðal þeirra þriggja bestu í heimi
- hann er afar sérstakur."
Ross var þeirrar skoðunar að
marka mætti hversu góðir kylfingar
menn væra á leik þeirra með lengri
jámkylfunum. Margar brautimar á
Pinehurst era afar langar og flat-
imar era smáar og kúptar. Höggi,
sem ekki er beinlínis fullkomið, er
engin miskunn sýnd og boltinn mun
undantekningarlítið skjótast til
hliðar. Þá tekur ímyndunarafl
kylfíngsins við kringum flatirnar.
Grasið þar er allt snöggslegið, líkt
og á strandvöllum Skotlands, þar
sem Ross ólst upp, og bíður völlur-
inn þannig upp á ýmis sjaldséð
vippuhögg þegar hefðbundnar að-
ferðir eru ekki líklegar til að bera
árangur.
Braut Par Lengd Braut Par Lengd
1 4 369 m 10 5 558 m
2 4 409 m 11 4 414 m
3 4 306 m 12 4 409 m
4 5 518 m 13 4 350 m
5 4 441 m 14 4 399 m
6 3 203 m 15 3 185 m
7 4 364 m 16 4 447 m
8 4 443 m 17 3 175 m
9 3 164 m 18 4 408 m
Út 35 3.217 m Inn 35 3.344 m 6.561 m
Samt. 70
PINEHURST-VOLLURINN
Tiger Woods, David Duval og flestir
bestu kylfingar heimsins taka þátt í
99. Opna bandaríska meistaramótinu
sem fram fer á Pinehurst-vellinum
í Norður-Karólínu 17.-20. júní.
Mótið er nú í fyrsta sinn haldið
á velli númer 2 í Pinehurst.
Lágslegið gras umhverfis
kúpulaga flatir mun gera
kylfingunum erfitt fyrir
f innáskotunum.
5. braut, Par 4, 441 m
Nýbyggður teigur hetur lengt
brautina enn og gert innáskotið,
sem talið varhið erfiðasta á vellinum,
ennþá erfiðara en það var fyrir.
Heimild: The Encyclopedia ofGolf 1]
Reuters
Að Pinehurst er lögð rík áhersla
á góðan leik frá upphafsteig til flat-
ar. Gene Sarazen, einn þekktasti
kylfingur sögunnar, sem lést í síð-
asta mánuði, 97 ára að aldri, sagði
oft að það væri fáránlegt að púttin
væra svo mikilvægur þáttur í golfi.
Hann vildi því láta stækka holuna
til að auka mikilvægi góðrar golf-
sveiflu og tækni í lengri höggum.
Holan er alls ekki stærri í
Pinehurst , en áhrifin era þau
sömu.
Sálrænn styrkur
Sigurvegari Opna bandaríska
meistaramótsins er prýddur sál-
rænum styrk. Hann er fjölhæfur,
þolinmóður og einbeittur. Nokkrir
kunnir kylfingar koma strax upp í
hugann er þessi orð ber á góma:
Lee Janzen, sem á titil að verja,
Ernie Els, David Duval, Jim Furyk,
Tom Lehman, Davis Love hinn
þriðji, Nick Price, Mark O’Meara,
Jeff Maggert, Jeff Slumman og
Paul Azinger. Keppnin verður hörð,
eins og sjá má á þessari upptaln-
ingu. Vitaskuld era aðrir menn
einnig líklegir til afreka, t.d. Tiger
Woods, sem hefur leikið prýðisgolf
að undanfórnu. Sömu sögu er að
segja af Vijay Singh frá Fidji-eyj-
um.
Eitt er víst; fjölmargir aðdáendur
golfíþróttarinnar víða um heim bíða
spenntir eftir fyrsta högginu á
Pinehurst í dag. Kannski verður
það upphafið að einhverju sögulegu,
hið minnsta einhverju skemmtilegu.