Morgunblaðið - 01.07.1999, Síða 6

Morgunblaðið - 01.07.1999, Síða 6
6 B FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 1999 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ Netverslun mest fyrir sérvöru HVORT tveggja verður til, Net- verslun og hefðbundin verslun, að mati Signrðar Jónssonar. „Það hentar vöruttokkum misvel að vera seldir í fjarsölu, hvort heldur er á Netinu, í póstverslun eða símasöiu. En víst er að Netið er ögrun sem verslunin getur ekki horft fram hjá og því fyrr sem fyr- irtæki hefja verslun á Netinu, því betra fyrir þau“, segir Sigurður. Haukur Þór Hauksson tekur undir það að Netverslun verði mjög mismunandi eftir vöruflokk- um en einnig atvinnugreinum. Hann telur að Netverslun muni áfram aukast en útrými ekki hefð- bundinni verslun, heldur sé hér um nýja vörudreifingarleið að ræða til viðbótar við þær sem fyrir eru. Þorsteinn Páisson telur einnig að Netverslun fari vaxandi í ýmis konar sérvöru en verði hins vegar aldrei stór í matvöru. „Það er ekki síst félagslegt atriði að fara og versla. Eitt sinn var því spáð að sjálfsafgreiðsluverslanir, þar sem er ekki einu sinni mann- eskja á kassanum, væru það sem koma skyldi. Raunin hefur orðið önnur. Það hefur sýnt sig að fólk vill hafa einhvem á kassanum og það vill hafa einhvern í kjötinu sem getur sagt því eitthvað, þó að það viti það fyrir. Við erum jú mannverur og þurfum samneyti við aðra og ég held að sem betur fer muni það ekki hverfa." Jóhannes Jónsson tekur undir þetta: „Eg efast um að Netverslun verði ráðandi því að verslun er svo mikið félagslegt afi. Menn héldu að kvikmyndahús liðu undir lok með myndbandavæðingu en það hefur alls ekki orðið raunin. Fólk vill fara út og umgangast annað fólk. Án þess held ég að mannlífið yrði ansi nöturlegt. Þess utan tel ég að Netverslun komi í stað póstlista og þá í sérvöru en ekki matvöru.“ Breytingar á matvörumarkaði leiða til breytinga á hlutverkum þeirra sem að verslun koma Alþjóðavæðingaræði hefur runnið á smásala Þróun verslunar undanfarin ár hefur leitt til mikillar hagræðingar og samþjöppunar á markaði, meðal annars í matvöruverslun. Aherslur hafa breyst í dreifingu og vöru- öflunog stórar innkaupkeðjur myndast. Stórar smásölukeðjur hafa orðið til og eru nú óðum að færa út kvíarnar á heimsvísu. Er þar skemmst að minnast innreiðar bandarísku keðjunnar Wal-Mart í Evrópu. Soffia Haraldsdóttir skoðaði þessa þró- un og ræddi við fjóra aðila er koma að innlendum verslunarrekstri. S: : MÁSÖLUKEÐJUR hafa margar hverjar verið að |færa út kvíamar og teygja anga sína víða um heim á síðustu árum. Alþjóðavæðing inn- kaupakeðja er ekld eins vel á veg komin og ekki fullreynt hvernig fer. Hlutverk innkaupakeðjunnar og smásölukeðjunnar á alþjóðamarkaði eru afar flókin. Því hefur reyndar verið fleygt að á smásölukeðjur hafi runnið al- þjóðavæðingaræði. Keðjumar eru hver af annarri að opna útibú á ólík- legustu stöðum. Til dæmis hefur, að sögn The Economist, Royal Ahold, rekstraraðili hollenskrar verslana- keðju, keypt stórmarkaði í Póllandi, ATVINNUHUSNÆÐI TIL LEIGU ISIL ■ ^ tHEK 3 NÝBÝLAVEGUR - KÓP. Til leigu er efsta hæðin að Nýbýlavegi 4, Kóp. Hæðin er um 410 fm. Inn- gangur að sunnanverðu, (Dal- brekkumegin). Húsnæðið er innr. sem skrifstofuhúsnæði og skiptist í 12 skrifstofuherb., fundarherbergi, móttöku, kaffistofu, snyrtingar og geymslur. Leigist í einu lagi eða smærri einingum. Hús í góðu ástandi. LAUST STRAX. Allar nán- ari uppl. á skrifstofu. STÓRHÖFÐI Frábærlega stað- sett skrifstofuhæð ca 150 fm á 2. hæð (efstu). Gluggar á fjóra vegu. Mikið útsýni. Húsið hentar vel undir hvers konar skrifstofu- og þjónustu- starfsemi. LAUST STRAX. GRENSÁSVEGUR Til leigu verzlunar- og lagerhúsnæði í nýl. góðu húsi. Stærð 204 fm. LAUST STRAX. TIL SOLU FISKISLÓÐ Vönduð nýl. húseign ca 1.000 fm. Framhús er á tveimur hæðum og er innréttað sem skrif- stofur og aðstaða starfsmanna. Bakhúsið er með mikilli lofthæð og stórum innkeyrsludyrum á gafli og bakhlið. Sérlega góð lóð, malbikuð, og aðkoma greið. LAUST STRAX. HAFNARFJORÐUR Til sölu verzlunarhúsnæði á jarðhæð ásamt kjallara. Stærð 540 fm. Stórir og góðir gluggar. Hugsanlega hægt að breyta húsnæðinu í ibúðir. LAUST STRAX. Sími 533 4040 Fax 588 8366 oreign ehfF Armúla 21 ÐAN V.S. WIIUM, hdl. lögg. fasteignasali. á Spáni, í Ameríku og Argentínu. Einnig hefur Carrefour, stærsta verslanakeðja Frakklands, opnað verslanir í Chile, Colombíu, Indónesíu og Tékklandi og stefnir næst á Japan. En kapp er best með forsjá og mörg fyrirtæki hafa lent í vandræðum með alþjóðavæðingu sína. Stærðarhagkvæmni nýtist illa á millí landa Algeng skýring sem forsvars- menn fyrirtækja gefa á alþjóðaút- breiðslu er að verið sé að ná fram stærðarhagkvæmni þar sem mark- aðs- og tæknikostnaður fari síhækk- andi. Það sem þeir gera sér hins vegar ekki vel grein fyrir er að ákaflega erfitt getur verið að ná fram stærðarhagkvæmni á alþjóða- markaði. Sérstaklega á matvöru- markaði, þar sem hagkvæmni stærðarinnar nýtist illa á milli landa. Mörg alþjóðafyrirtæki hafa lent í hremmingum á nýjum markaðs- svæðum og lært að viðskiptahættir geta verið fjölbreytilegir og hegðun viðskiptavinarins mismunandi eftir svæðum. Auk þess sem smekkur manna getur verið gjörólíkur, jafn- vel í löndum sem liggja landfræði- lega saman. Ýmis smámistök hafa reynst dýrkeypt og fara þarf var- lega í að nota aðferðir sem viðkom- andi keðja hefur tileinkað sér með góðum árangri á sínum heimamark- aði. Bandaríska verslanakeðjan Wal- Mart er eitt þeirra fyrirtækja sem hefur verið að alþjóðavæðast. Síðastliðin 2 ár hefur gengi hluta- bréfa fyrirtækisins hækkað um 200% en bandaríski markaðurinn er að verða mettaður og því ekki lík- legt að fyrirtækið geti haldið uppi slíku gengi hlutabréfa. Þess vegna Jóhannes Jónsson Haukur Þór Hauksson Þorsteinn Pálsson Sigurður Jónsson var alþjóðavæðingu hrint af stað og búist er við að 30% hagnaðar fyrir- tækisins eigi eftir að koma frá öðr- um löndum eftir 3-5 ár. Wal-Mart í Evrópu Wal-Mart hefur meðal annars hafið innreið sína á Evrópumarkað. Upphafið markaðist fyrir einu og hálfu ári með kaupum Wal-Mart á þýsku verslanakeðjunni Wertkauf, en í desember síðastliðnum bætti Wal-Mart um betur á þýska smá- sölumarkaðinum og keypti verslanir Spar Handels í Þýskalandi. Þegar hér var komið sögu voru smásalar víða um Evrópu famir að óttast framhaldið. Mikið var reynt, sér- staklega í Bretlandi og Frakklandi, að finna leiðir til að verjast ágangi risans en lítið gekk. Um miðjan nýliðinn júnímánuð hristi Wal- Mart, svo um munaði, upp í smásölum á breskum matvöru- markaði, með kauptil- boði í bresku verslana- keðjuna ASDA. Því hefur verið spáð að með yfirtöku Wal-Mart á ASDA hefjist gríðar- legt verðstríð á bresk- um matvörumarkaði og að miklar breytingar séu framundan. Það á eftir að koma í ljós hvemig Wal-Mart spjarar sig í Bretlandi en talið er að því fylgi margir ótvíræðir kostir að yfirtaka ASDA- keðjuna þar sem hún hefur starfað á svipað- an hátt og Wal-Mart, auk þess sem hún þekkir breska markað- inn vel. Wal-Mart er ekki einungis öflug smásölu- keðja. Fyrirtækið hefur einnig yfir að ráða einu öflugasta innkaupa- kerfi heims. í meginatriðum heldur það utan um magn birgða og upp- færist í höfuðstöðvum fyrirtækisins í Bandaríkjunum þegar vara er seld á afgreiðslukassa Wal-Mart versl- unar, hvar sem er í heiminum. Kerf- ið útbýr sjálfkrafa pantanir til birgja þegar þess er þörf og þannig er komið í veg fyrir að haldnar séu of miklar eða of litlar birgðir. Talið er að þetta tölvukerfi hafi gegnt lykilhlutverki í velgengni Wal-Mart keðjunnar. Innkaupakeðjur eru framtlðin i i Tölvur og tækni á Netinu ^mbl.is ALLTAT eiTTH\SAÐ HÝT7 SAMÞJÖPPUN á matvörumarkaði hefur getið af sér smásölukeðjur og með sameiginlegum magninn- kaupum hafa orðið til innkaupa- keðjur. Fjórmenningamir sem rætt var við eru sammála um að framtíðin feli jafnvel í sér samstarf við erlendar innkaupakeðjur. Sigurður Jónsson, framkvæmda- stjóri Kaupmannasamtaka Islands, bendir á að í sérvöruverslun hafi um árabil verið samstarf um inn- kaup í ákveðnum vörufiokkum og að nú þegar séu íslensku inn- kaupafyrirtækin í sambandi við stórar erlendar innkaupakeðjur. „Hvert prósent eða hluti úr því skiptir miklu máli þegar stórar keðjur eiga í hlut því að yfir 80% af útgjöldum matvöruverslana fara til vörukaupa", segir Sigurður. Jóhannes Jónsson, stjórnarmað- ur Baugs hf., segir Baug vera í samstarfi við innkaupakeðjur í Danmörku, Noregi og Bandaríkj- unum. Hann segir: „Það er stað- reynd að innkaupakeðjur eru það sem koma skal. Wal-Mart er að fara inn í Evrópu og mikil sam- þjöppun er að eiga sér stað á inn- kaupasviðinu í Danmörku og Nor- egi. Þetta er alls staðar tilhneig- ingin.“ Hins vegar varar Þorsteinn Pálsson, forstjóri Kaupáss hf., við því að lítið mál er fyrir erlendar keðjur að setja upp eina eða tvær verslanir á Reykjavíkursvæðinu. „Þetta er allt staðlað, það er bara sett upp eitt stykki verslun og það skiptir þá litlu máli hvort þcir senda flutningabfl í 5 tíma keyrslu eða gám með skipi til Islands. Svo er hinn möguleikinn líka, að við förum í samstarf við þessar keðjur en það liggur svo sem ekkert fyrir, held ég, hvorki hjá okkur né öðr- um“, segir Þorsteinn. Haukur Þór Hauksson, formað- ur Samtaka verslunarinnar, telur að ný tækni, markaðsaðferðir og lífsháttabreytingar reki þær miklu breytingar sem hafa orðið á verslun hérlendis á síðustu árum. „Islenskir kaupmenn og innfiytj- endur hafa sýnt og sannað að þeir eru miklir frumkvöðlar", segir hann. Haukur bendir þó á að eðli verslunar sé að hún breytist auð- veldlega í takt við kröfur markað- arins og að vænta megi enn meiri breytinga á næstu árum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.