Morgunblaðið - 08.07.1999, Page 4
Stefán
skoraði
tvö mörk
STEFÁN Þórðarson kom, sá
og sigraði er hann lék með
Skagamönnum á ný eftir að
hafa leikið í Svíþjóð og
Noregi. Hann skoraði tvö
mörk gegn Víkingi, það
fyrra eftir aðeins sex mín.
Markaveisla
„Það var gaman að vinna jafn stóran og sannfærandi sigur á liði
sem leikur í efstu deild og okkur tókst hér í kvöld. Skagaliðinu
nefur ekki gengið sem skyldi uppi við mark andstæðinganna en
ég geri mér vonir um að það sé loks búið að finna taktinn enda
hefur það fengið sterka framherja sem geta gert gæfumuninn í
leik,“ sagði Logi Ólafsson, þjálfari Skagamanna, er liðið tryggði
sér sæti í 4-liða úrslitum bikarkeppni KSÍ eftir 5:0-sigur á Vík-
ingum á Laugardalsvelli.
Þorsteinsson
-sknfar
Skagaliðið, sem hafði skorað tvö
mörk í sex leikjum í efstu deild,
bauð upp á markaveislu er það
mætti Víkingum í 8-
liða úrslitum bikar-
keppninnar. Gestirn-
ir hófu leikinn af
miklum krafti og eft-
ir sex mínútur lá boltinn í netinu
hjá Víkingum. Kári Steinn Reynis-
son, sem lék vel fyrir Skagamenn,
var felldur af Ögmundi Reynissyni,
markverði Víkinga, inni í vítateig.
Ögmundur bætti fyrir brot sitt og
varði vítaspymu frá Pálma Har-
aldssyni en Stefán Þórðarson, sem
lék á ný í liði Skagamanna eftir
þriggja ára hlé í atvinnumennsku í
Noregi og Svíþjóð, fylgdi vel á eftir
og skoraði fyrsta mark leiksins.
Skagamenn voru sókndjai-fh-
næstu mínútur og kunnu greinilega
vel við sig á Laugardalsvelli því 20
mínútum síðar lá knötturinnn á ný í
neti Víkinga. Aiexander Högnason,
fyrirliði, var þar að verki eftir und-
irbúning Suður-Afríkubúans Kenn-
eth Matijane.
Leikur Víkinga vai’ í molum og lít-
ið bar á samvinnu milli leikmanna,
sem hefur verið eitt þeirra helsta
vopn. Þess í stað reyndu þeir á eigin
spýtur en gekk lítið og var refsað af
Skagamönnum, sem voru fljótir
fram með Matijane og Stefán í far-
arbroddi. Sóknarþungi þeirra bar
árangur á 57. mínútu er þeir fengu
aukaspyrnu skammt íyrir utan víta-
teig Víkinga. Jóhannes Harðarson
tók spymuna og sendi á Matijane,
sem skallaði í netið frá markteig án
þess að vamarmenn eða markvörð-
ur Víkinga fengju rönd við reist.
Tveimur mínútum síðar veittu
Skagamenn Víkingum náðarhöggið
er Stefán Þórðarson skoraði eftir
langt innkast Kára Steins. Eftir
fjórða markið fengu varamenn
Skagamanna að spreyta sig og þeir
minntu rækiiega á sig er Ragnar
Hauksson skoraði eftir undirbúning
frá Unnari Valgeirssyni, en báðir
komu inn á undir lok leiksins.
Logi sagði að leikur sinna manna
hefði í sjálfu sér ekki komið sér á
?'vart, þrátt fyrir að liðin hefðu gert
:l-jafntefli í deild. Hann vissi að
mikið byggi í þeim mannskap sem
hann hefði undir höndum og að liðið
hefði verið á uppleið að undan-
förnu. Aðspurður sagði hann að
Matijane og Stefán, sem væra ný-
byrjaðir að leika með liðinu, gerðu
vissulega gæfumuninn fyrir það en
benti á að Ragnar Hauksson hefði
einnig leikið vel og skorað eitt
mark undir lokin. „Það er gott að
vita af þessum þremur framherjum
í hópnum. Við megum hins vegar
ekki ofmetnast og verðum að ná
okkur niður á jörðina fyrir næsta
leik sem er gegn Lokeren í Evr-
ópukeppninni á laugardag."
Stefán Þórðarson, Skagamaður,
var glaðbeittur í leikslok og sagði
vart hægt að hugsa sér betri byrjun
en að skora tvö mörk. „Því er ekki
að neita að talsverður styrkleika-
munur er á norsku og íslensku
knattspyrnunni en Skagamenn eru
með gott lið sem getur gert góða
hluti. Það kom aldrei annað tfl
greina en að ganga til liðs við mína
gömlu félaga er ég fór frá Kongs-
vinger, þrátt fyrir fyrirspurnir frá
öðrum íslenskum liðum,“ sagði
Stefán sem hyggst leita fyrir sér í
atvinnumennsku á ný. „Eg geri
mér vonir um að fara aftur út en
ætla að leika nokkra leiki með
Skagamönnum í það minnsta."
Lúkas Kostic, þjálfari Víkinga,
var dapur í leikslok, sagði að sínir
leikmenn hefðu ekki verið tilbúnir
gegn Skagamönnum og taldi að 4:1-
tap gegn KR í deildinni hefði setið í
þeim.
„Við tókum aðeins við okkur und-
ir lokin en það var of seint tfl þess
að bjarga nokkra. Við getum ekki
leyft okkur að slaka á gegn Skaga-
mönnum, sem hafa öflugu liði á að
skipa, og ég vil óska þeim tfl ham-
ingju með góðan leik.“
Lúkas sagðist hafa gert sér vonir
um að breytingar á liðinu frá síð-
asta leik hefðu áhrif til hins betra
en þær vonir hefðu bragðist. „Mitt
hlutverk nú verður að finna þá leik-
menn í byrjunarliðið sem eru til-
búnir að leggja sig fram en ég geri
ekki ráð fyrir að við fáum tfl okkar
nýja leikmenn enda hefur Víkingur
ekki efni á slíku.“
Morgunblaðið/Golli
FRJALSIÞROTTIR / GULLMOT I ROM
El Guerroiý setti heimsmet
ANNAÐ gullmót sumarsins á vegum alþjóða frjálsíþróttasam-
bandsins fór fram í Róm í gærkvöldi og bar heimsmet Marokkó-
búans Hichams El Guerrouj í míluhlaupi hæst. El Guerrouj, eða
„eyðimerkurprinsinn“ eins og hann er títt nefndur, hljóp míluna
á 3.43,13 mín. og bætti sex ára gamalt met Alsírbúans
Noureddine Morcelis um 1,26 sek í gærkvöld.
likfl spenna ríkti á lokahring
I míluhlaupsins. Kenýamaður-
inn Noah Ngeny veitti eyðimerkur-
prinsinum mikla keppni allt tfl loka
og bætti eldra metið er hann fylgdi í
humátt á eftir sigurvegaranum yfir
línuna - var innan við þremur tí-
unduhlutum úr sekúndu á eftir El
Guerrouj.
„Ég taldi mig geta hlaupið á
þremur mínútum og fjöratíu og
tveimur sekúndum eða jafnvel sek-
úndu betur, en þegar ég átti um
þrjú hundrað metra eftir leit ég upp
og sá að Ngeny var við það að kom-
ast framúr. Það sló mig eilítið útaf
laginu,“ sagði El Guerrouj, sem
bætti heimsmetið í 1.500 metra
hlaupi á sömu braut í fyrra. „Ég
ann þessum stað, því hér hef ég sett
tvö heimsmet. Ég var heldur tauga-
óstyrkur á fyrstu átta hundrað
metranum, því Ngeny virtist
feiknasterkur," bætti hann við.
Mörg önnur áhugaverð afrek vora
unnin á mótinu, sem háð var við
kjöraðstæður. Bandarílqamaðurinn
Maurice Greene, heimsmethafi í 100
m hlaupi, jafnaði þriðja besta tíma
sögunnar í greininni er hann kom
íyrstur í mark á 9,85 sek. Það er
sami tími og landi hans, Leroy
Þróun heimsmetsins
3.59,4 Roger Bannister (Bretlandi) 6. maí, 1954
3.57,9 John Landy (Ástralíu) 21. júni, 1954
3.57,2 Derek Ibbotson (Bretlandi) 19, júlí, 1957
3.54,5 Herb Elliott (Ástralíu) 6. ágúst, 1958
3.54,4 Peter Snell (Nýja Sjálandi) 27. janúar, 1962
3.54,1 Snell 17. nóvember, 1964
3.53,6 Michel Jazy (Frakklandi) 9. júní, 1965
3.51,3 Jim Ryun (Bandar.) 17. júlí, 1966
3.51,1 Ryun 23. júní, 1967
1 3.51,0 Filbert Bayi (Tansaníu) 17. maí, 1975
3.49,4 John Walker (Nýja Sjálandi) 12. ágúst, 1975
! 3.48,95 Sebastian Coe (Bretlandi) 17. júlí, 1979
3.48,80 Steve Ovett (Bretlandi) l.júlí, 1980
3.48,53 Coe 19. ágúst, 1981
3.48,40 Ovett 26. ágúst, 1981
3.47,33 Coe 28. ágúst, 1981
3.46,32 Steve Cram (Bretlandi) 27. júlí, 1985
| 3.44,39 N. Morceli (Alsír) 5. september, 1993
3.43,13 H. E1 Guerrouj (Marokkó) 7. júlí, 1999
Burrell, hljóp á þegar hann setti
heimsmet í Lausanne fyrir fimm ár-
um. Þegar Greene var spurður
hversu hratt hann geti hlaupið, sagði
hann: „Það veit enginn, en ég sé
enga ástæðu fyrir því að ég geti ekki
bætt heimsmetið aftur.“ Greene setti
heimsmet, 9,79 sek., í Aþenu í síð-
asta mánuði.
Michael Johnson virðist hafa náð
sér fullkomlega af meiðslum, sem
hafa hrjáð hann um nokkurt skeið.
Johnson, sem er ólympíumeistari í
200 og 400 m hlaupi,
hafði betur í baráttu
sinni við Ato Boldon
frá Trínidad í 200 m
hlaupi og kom fyrst-
ur í mark á 19,93
sek. Þetta var í
fyrsta sinn sem
Johnson og Boldon
mætast í greininni
síðan á Ólympíuleik-
unum í Atlanta 1996,
en þá setti Johnson
glæsflegt heimsmet
- 19,38 sek. í raun
hreppti Obadele
Thompson frá Bar-
bados óvænt annað
sætið eftir góðan
endasprett og
Boldon varð því að gera sér þriðja
sætið að góðu. „Mér fannst ég svo-
lítið „ryðgaður“,“ sagði Johnson.
„Ég verð betri næst, en ég er auð-
vitað ánægður með að sigra.“
Spretthlaupadrottningin Marion
Jones frá Bandaríkjunum sigraði
öragglega í 200 metra hlaupi á 22,19
sek. og á því enn möguleika á hlut í
„gullpottinum", einni milljón
Bandaríkjadala, sem koma í hlut
þeirra sem sigra í sömu grein á öll-
um „gullmótunum" sjö.
Sömu sögu er að segja af Wflson
Kipketer frá Danmörku, sem fór
leikandi létt með að sigra í 800 m
hlaupi, en hann kom í mark á
1.42,79 mín. Þetta var besti árangur
Kipketers í greininni síðan hann
veiktist af malaríu í fyrra, en hann
náði einnig góðum árangri í sömu
grein á Bislett-leikunum í Osló í síð-
ustu viku - 1.43,11 mín.
Fimm aðrir frjálsíþróttamenn eiga
enn möguleika á „gullpottinum“
góða: Allen Johnson, Bandaríkjun-
um, 110 m grindahlaup karla; Bem-
ard Barmasai, Kenýa, 3.000 m hindr-
unarhlaup karla; Erick Walder,
Bandaríkjunum, langstökk karla;
Svetlana Masterkova, Rússlandi, 800
m hlaup kvenna, og Gabriela Szabo,
Rúmeníu, 3.000 m hlaup kvenna.
Skagamanna í
Laugardalnum