Morgunblaðið - 15.07.1999, Side 2
2 C FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
_________________KNATTSPYRNA
KR-stúlkur til Eyja
íslandsmeistarar KR í kvenna-
knattspymu sækja Eyjastúlkur
heim í undanúrslitum bikarkeppn-
innai- hinn 23. júlí nk. Eyjastúlkur
skelltu Valsstúlkum óvænt í Eyj-
um í gærkvöldi, 2:0. I hinum und-
anúrslitaleiknum mætast bikar-
meistarar Blika og Grindvíkingar
suður með sjó.
Mikill fögnuðui' braust út á
meðal Eyjamanna eftir sigurinn á
Val. „Liðið lék mjög vel og mér
fannst sigurinn aldrei í hættu,“
sagði Heimir Hallgrímsson, þjálf-
ari ÍBV, eftir leikinn. „Við ætlum
að vera fyrsta liðið sem leggur KR
að velli í sumar,“ bætti hann
ákveðinn við.
Hrefna Huld Jóhannesdóttir
kom heimaliðinu yfir strax á fjórðu
mínútu og Fanný Yngvadóttir
bætti um betur tíu mínútum fyrir
leikhlé. Petra Fanney Bragadóttir,
markvörður IBV, sagði liðið stað-
ráðið í að komast áfram. „Við ætl-
uðum okkur bara að vinna. Við
stóðum okkur illa á móti Val síð-
ast, töpuðum 2:1, en bættum fyrir
það núna.“
Asthildur Helgadóttii', leikmað-
ur KR, segii' erfitt að þurfa að
mæta Eyjastúlkum á sterkum
heimavelli sínum. „Þær verða
alltaf betri og betri. Það verður
erfitt að leika við þær í Vest-
mannaeyjum, því þar hefur IBV
sterkan heimavöll," segii- Ásthild-
ur.
í hinum undanúrslitaleiknum
tekur ungt og lítt reynt lið Grinda-
víkui' á móti bikarmeisturunum
sjálfum úr Breiðabliki. Leikmenn
liðsins eru ungir að árum og munu
eflaust eiga á brattann að sækja
gegn Blikastúlkum, sem era mun
reyndari og hafa oft tekið þátt í
mikilvægum leikjum. Sigrún Ótt-
arsdóttir, fyrirliði Breiðabliks,
sagði Kópavogsliðið staðráðið í að
standa sig vel í bikarkeppninni, því
möguleikar á Islandsmeistaratitli
væra óðum að minnka. „Bikar-
keppnin er okkur mjög mikilvæg,
því okkur hefur ekki gengið sem
skyldi í Islandsmótinu. Það væri
nyög gaman að geta hampað bik-
amum aftur,“ segir Sigrún.
Fram fékk þijú
stig á silfurfati
EF ósanngirni er til í knattspyrnu þá urðu áhorfendur vitni að
henni á Laugardalsvelli í gær er Fram vann Víking óverðskuldað
2:0. Víkingar voru betri í afskaplega slökum leik, en lánleysið var
algjört hjá þeim og má segja að þeir hafi fært Safamýrarstrákun-
um þrjú stig á silfurfati í síðari hálfleik. Víkingur er nú kominn í
bullandi fallhættu, með aðeins sjö stig eftir níu leiki, en Fram
heldur sér við toppinn og er í þriðja sæti með 14 stig.
nánast allir innan eigin vítateigs
lengstum í hálfleiknum.
Sama virtist ætla að verða upp á
teningnum í síðari hálfleik. Víkingar
voru grimmari en Frammarar héldu
sig aftarlega sem fyiT og voru ekki
líklegir til afreka. Sumarliði var ógn-
andi frammi og var óheppinn að
skora ekki í tvígang á upphafsmínút-
um hálfleiksins, en Ólafur sá við
skotum hans. Það var því þvert gegn
gangi leiksins er Frammarar komust
yfir. Það var afar slysalegt hjá Vík-
ingum því Gordon Hunter lét bolt-
ann fara framhjá sér og þar var
Hilmar Bjömsson einn á auðum sjó
og skoraði auðveldlega.
Aðeins þremur mínútum síðar
vildu Víkingar fá víti er brotið var á
Hólmsteini en ekkert dæmt. Slakur
dómari leiksins var hins vegar ekki í
nokkram vafa er hann dæmdi víti á
Víking er boltinn hi'ökk í hönd
Lárusar Huldarssonar eftir fyrirgjöf
frá hægri. Ágúst Gylfason skoraði
síðan úr vítinu og gulltryggði sigur
Frammara. Eftir þetta var sem allur
vindur væri úr Víkingum, enda lán-
leysið algjört.
Knattspyrnan sem liðin sýndu er
varla samboðin liðum í efstu deild og
Garðbæingar sótlu
oll stigin i Garðinn
Víkingar voru sterkari í fyrri hálf-
leik án þess að spila vel og
þurftu þess ekki, vegna þess að
gmmm Frammarar voru eins
ValurB. og myndastyttur á
Jónatansson vellinum. Fyrstu 20
skrifar mínútur leiksins náðu
Frammarai' ekki að
komast í sókn og áttu fyrsta skot að
marki Víkings á 26. mínútu leiksins
og var það laflaust. Þeir áttu tvö skot
að markinu allan hálfleikinn og segir
það sitt um sóknartilburði þeirra.
Víkingar fengu tvö ágæt færi. Fyrst
Arnar Hrafn, en Ólafur varði, og síð-
an komst Sumarliði í gegn, en aftur
var Ólafur á réttum stað í markinu.
Þrátt fyrir að Víkingar stjórnuðu
leiknum náðu þeir sjaldan að opna
leið að marki Frammara, sem voru
ÚRSLIT
Bikarkeppni kvenna
8-liða úrslit:
ÍBV - Valur ........................2:0
Kelly Shimmins, Hrefna Jóhannesdóttir.
1. deild karla
Víðir - Stjarnan....................2:5
Kári Jónsson 2, Grétar Einarsson 56 -
Valdimar Kristinsson 3, Rúnar Sigmunds-
son 10, Boban Ristic 29, 90. - vítasp., Veigar
Páll Gunnarsson 74.
Meistaradeild Evrópu
Forkeppni, fyrri leikir:
Sloga (Maked.) - K. Gapja (Aserb.).1:0
Partizan (Júgós.) - Flora (Eistl.).6:0
Barry (Wales) - Valletta (Möltu)...0:0
Lovech (Búlg.) - Glentoran (N-Irl.).3:0
HB (Færeyjum) - Haka (Finniand)....1:1
Jeunesse Ésch (Lúx.) - Skonto (Lettl.) . .0:2
St Patrick’s (írl.) - Zimbru (Moldavíu) . .0:5
Zalgiris (Lith.) - Tsement (Armeníu) .. .2:0
Þýskaland
Deildarbikarkeppni, undanúrslit:
Augsburg:
Bayern Miinchen - Dortmund.........1:0
Christian Wöms 66. - sjálfsm. 24.500.
• Bayem mætir Werder Bremen í úrslitum
á laugardaginn.
Ameríkubikarinn
Undanúrslit:
lírúgvæ - Chilc ...................1:1
•Urúgvæ vann i vítaspymukeppni 5:3.
Ivan Zamorano 63 - Alejandro Lembo 23.
8.000.
í KVÖLD
Knattspyrna
Efsta deiid karia:
Hlíðai'endi: Valur - Grindavík.........20
Ólafsfjörður: Leiftur - Breiðablik....20
Keflavík: Keflavík - KR................20
• KR-klúbburinn verður með hópferð frá
Eiðstorgi ki. 18.30. Upplýsingar í síma 551-
5020.
2. deild karla:
Selfoss: Selfoss - HK...................20
Stjaman úr Garðabæ gerði góða
ferð suður með sjó í gærkvöldi
þegar liðið mætti Víði í Garði. Garð-
gmBBi bæingar unnu sann-
Björn færandi sigur, 5:2, og
Blöndal era því áfram í topp-
skrifar baráttunni. Leikur
Víðismanna olli von-
brigðum eftir ágætt gengi og enn er
það vamarleikurinn sem er helsti
höfuðverkurinn. Ætli Víðismenn að
halda í þá bestu í deildinni verða
þeir að taka þennan ýiátt fyrir og
það fyrr en seinna. I hálfleik var
staðan 1:3.
Heimamenn byrjuðu þó betur og
þeir settu fyrsta markið í leiknum
strax á fjórðu mínútu. Þá átti Grétar
Einarsson skalla í þverslá og Kári
Jónsson var réttur maður á réttum
stað þegar boltinn kom til baka og
skallaði í markið. En fagnaðarlæti
Víðismanna voru varla þögnuð þeg-
ar Stjömumenn jöfnuðu metin að-
eins mínútu síðar með marki Valdi-
mars Kristóferssonar. Jöfnunar-
verða þau að bæta sig ef þau ætla að
skemmta áhorfendum. Menn höfðu á
orði eftir leikinn að það ætti að end-
urgreiða skemmtanaskattinn því
leikm'inn hefði verið það leiðinlegur
á að horfa og ekki til þess fallinn að
laða að áhorfendur.
Ásgeir ánægður
með leikinn
Ásgeir Elíasson, þjálfari Fram,
var þó hinn ánægðasti með leik sinna
manna. „Við lágum undir talsverðri
pressu í fyrri hálfleik og kláraðum
okkur ágætlega af henni. Okkur
gekk illa að halda boltanum innan
liðsins og þá möguleika sem við
fengum til að sækja hratt afgreidd-
um við illa. Mér leið hins vegar
aldrei neitt illa í fyrri hálfleiknum,
fannst í sjálfu sér ekkert að gerast
hjá þeim. Ég er ekkert óánægður
með leik okkar,“ sagði Ásgeir.
Súrl að fá ekkert
Lúkas Kostic, þjálfari Víkings,
sagði vonbrigði að fá ekkert út úr
þessum leik. „Við lékum ágætlega,
sérstaklega í fyrri hálfleik, og það
var súrt að fá ekkert út úr þessum
leik. Við áttum það skilið. Við færð-
um þeim mörkin á silfurfati. Enn
einu sinni missum við þrjú stig frá
okkur í leik sem við eigum ekki
minna í. Það fellur ekkert með okkur
þessa dagana, en það hlýtur að fara
að koma að því. Við eram með
reynslulítið lið og það hefur verið
okkur dýrkeypt,“ sagði Kostic.
markið virtist slá heimamenn út af
laginu en að sama skapi efla gestina
sem fram að hálfleik settu tvö mörk,
fyrst Rúnar P. Sigmundsson og síð-
an Babzu Ristic eftir herfíleg mistök
í vöm Víðis.
I síðari hálfleik blésu Víðismenn
til sóknar því lítið var annað að gera
í stöðunni og þeim tókst að minnka
muninn í 2:3 eftir tíu mínútna leik
með ágætu marki frá Grétari Ein-
arssyni. Markið setti aukinn kraft í
heimamenn sem gerðu harða hríð að
marki Stjömunnar en gestirnir voru
fastir fyrir og skyndisóknii- þeiira
afar hættulegar. Svo fór að Stjaman
bætti við fjórða markinu eftir
skyndisókn á 73. mínútu og undir
lok leiksins fengu Garðbæingar víta-
spymu sem dæmd var eftir að
Valdimar Kristófersson hafði verið
felldur innan vítateigs og úr henni
innsiglaði Babzu Ristic sigur gest-
anna.
Maður leiksins:
Valdimar Kristófersson, Stjömunni.
Morgunblaðið/Arnaldur
Barist um boltann
SUMARLIÐI Árnason, sóknarmaður Vikings, fékk nokkur færi í
leiknum gegn Fram í gær en náði ekki að nýta þau. Hér er hann
í baráttu við Sævar Pétursson, varnarmann Frammara.
| Víkingur 0:2 Fram
4-4-2 Gunnar S. Magnússon Valur Ú. G. Hunter Laugardalsvöllur 14. Júlí 1999. Aðstæður: Völlurinn góður. Norðan gola, þurt og hiti um 8 gráður. Áhorfendur: 624. Dómari: Gísli Jóhannsson, Keflavík - 5. Aðstoðardómarar: Kárí Gunnlaugsson og Einar Sig- urðsson. Gult spjald: Víkingur: Valur Úlfarsson (22. - iyrk brot), Þorri Ólafsson (36,- fyrir brot), Lárus E. Huldarson (74. - fyrir mótmæli). Fram: Sævar Pétursson (38. - fyrir brot). Hilmar B (57.) Ágúst G. (79. - vsp.) 4-4-2 Ólafur P. jW
Þrándur S. Tiyggvi B. (C. McKee 60.) Lárus H. Bjami Hall R’ Þorri Ó. (Sváfnir G. 75.) Haukur Úlfarsson flrnar H. J. (Hólmsteinn J. 60.) Sumariiði Á Anton B. Rúnar Á. Jón S. Sævar P. Freyr K (Ásmundur Á. 72.) Sigurvin Ó. (ívar J. 75.) Steinar G. Ágúst G. Hilmar B.
Rautt spjald: Enginn. Markskot: 11 - 8 Horn: 4 - 3 M. Oerlemans (Höskuldur Þ. 80.)
nuill. H - O
Rangstaða: 7 -1
0:1 (57.). Hilmar Björnsson skoraði eftir mistök í vörn Víkinga. Bolltanum var
spyrnt frá vörn Fram og Gordon Hunter hafði alla möguleika á að hreinsa frá en
lét boltann fara og Hilmar var einn og óvaldaður og setti boltann í markið af
öryggi.
0:2 (79. -vsp.). Ágúst Gylfason úr vítaspyrnu, sem var dæmd á Lárus Huldarson
sem fékk boltann slysalega í höndina eftir fyrirgjöf frá Ásmundi Arnarsyni frá
hægri.
KSÍ samþykkti ósk
Leiftursmanna
Knattspyrnusamband íslands hefur samþykkt ósk Leifturs um að
leika gegn belgíska liðinu Anderlecht í Evrópukeppni félagsliða á
Akureyri í stað Ólafsfjarðar.
Forráðamenn Leifturs fóru fram á það við KSI að leikurinn yrði
færður til Akureyrar, en þar þykja aðstæður boðlegri fyrir leiki í
Evrópukeppni.
Leiftur ieikur fyrri leikinn gegn Anderlecht í Belgíu þann 12.
ágúst en síðari leikurinn verður á Akureyri þann 26. ágúst.