Morgunblaðið - 15.07.1999, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 1999 C 3;
Rútur segist
hættur með
Eyjamönnum
RÚTUR Snorrason, leikmaður ÍBV, seg-
ist hættur með liðinu vegna
óánægju með fá tækifæri í sumar. Hefur
leikmaðurinn, sem lítið hefur leikið með
IBV á tímabilinu og var ekki í leik-
mannahópi liðsins í Evrópuleik þess gegn
SK Tirana á þriðjudag, tilkynnt stjórn
ÍBV þetta.
Jóhannes Ólafsson, formaður ÍBV,
sagði við Morgunblaðið í gær að hann
hefði heyrt af þessari ákvörðun Rúts, en
stjórn fclagsins hefði hins vegar ekki
tekið málið til afgreiðslu. „Sljórnin þarf
að afgreiða slík mál, því samningsbund-
inn leikmaður getur ekki tekið það upp
hjá sjálfum sér að hætta. Slíkar ákvarð-
anir eru aldrei teknar einhliða, en stjórn-
in mun fjalla um þetta mál innan
skamms,“ sagði Jóhannes.
Bæjarar mæta
Brimarbúum
ÞÝSKU meistaramir í Bayern Munchen
tryggðu sér í gærkvöld sæti í úrslitaleik
deildarbikarkeppninnar í Þýskalandi
með l:0-sigri á Borussia Dortmund.
Raunar fengu Bæjarar hjálp frá Christi-
an Wörns, vamarmanni Dortmund og
þýska landsliðsins, því hann varð íyrir
því óláni að setja knöttinn í eigið net.
Sex sterka leikmenn vantaði í lið
meistaranna, en Dortmund vakti athygli
fyrir góðan leik. Það er kannski ekki að
undra, því liðið hefur fjárfest ótæpilega
upp á síðkastið og keypt leikmenn eins
og Wörns, Fredi Bobic og Viktor Ikpeba.
Bæjarar hafa unnið deildarbikarmeist-
aratitilinn tvö ár í röð og mæta Werder
Bremen í úrslitaleik á laugardag. Þar
verða eflaust fagnaðarfundir, því
Brimarbúum tókst að sigra Bæjara í úr-
slitum bikarkeppniimar snemma sumars.
PF
Stórieikur á Skaganum
ÍSLANDS- og bikarmeistarar ÍBV þurfa að fara upp á fasta land-
ið til viðureignar við Skagamenn í undanúrslitum bikarkeppni
karla, en dregið var á Hótel Loftleiðum í gær. Hugsanlegt er að
annað kvöld verði forsmekkur að því sem koma skal, þegar lið-
in mætast á Akranesi í deildarkeppninni. KR-ingar önduðu létt-
ar er í Ijós kom að þeir fengu heimaleik gegn Breiðabliki. Leik-
irnir fara fram fjórða og fimmta dag ágústmánaðar.
Ekki er laust við að KR-ingar hafí
óttast að þurfa að fara til Vest-
mannaeyja og hitta þar meistarana
fy™’ fjórða árið í röð í
Edwin bikarkeppninni. Þaðan
Rögnvaldsson hefur KR-liðið ekki
skrifar rlðið feitum hesti.
Annað kom á daginn
og dróst 100 ára afmælisliðið gegn
Blikum úr Kópavogi, nýliðum í efstu
deild, sem án efa hafa minnstu
reynsluna af leikjum sem þessum.
Atla Eðvaldssyni, þjálfara KR, og
öðrum fylgjendum Vestubæjarliðs-
Hin liðin eru Grindavík og Leiftur
frá Ólafsfirði. Yfirvöld í báðum
bæjum munu hafa lagt inn fram-
kvæmdaáætlanir fyrir
Björn Ingi byggingu áhorfenda-
Hrafnsson stúkna, en slík áætlun
skrifar hefur ekki enn borist
frá Vestmannaeyjabæ.
Að sögn Jóhannesar virðist þó loks
einhver skriður kominn á málið og
hann viti til þess að íþrótta- og tóm-
stundafulltrúi bæjarins hafí málið
með höndum þessa dagana.
„Við erum á síðustu stundu með
þessi mál hér í Eyjum og það er vit-
anlega ekki sæmandi því bæjarfélagi
sem á sigursælasta knattspyrnulið
landsins á undanförnum árum. Við
eigum hér besta völl landsins og frá-
bæra áhorfendur og því eigum við
ekki skilið annað en að aðstaðan fyr-
ir þá sé einnig fyrir hendi,“ segh- Jó-
hannes.
Formaðurinn segist ekki kunna
skýringar á framkvæmdaleysinu,
aðrai' en þær að um hreint og klárt
viljaleysi sé að ræða. „Þetta er ekk-
ert annað en viljaleysi. Við höfum ít-
rekað bent á þessi mál, en orðið lítið
ágengt. Vitanlega þarf að hyggja að
ins sem viðstaddir voru frétta-
mannafund í gær, var sýnilega létt
er þetta kom í ljós. „Vissulega fögn-
uðum við. En við fögnuðum vegna
þess eins að við fengum heimaleik.
Það gagnar ekki að óska sér ÍBV, af
frammistöðu þeirra gegn okkur und-
anfarin ár að dæma. Eins og Skaga-
menn léku gegn Víkingi, var erfítt að
hugsa sér að lenda á móti þeim og
eins og Blikarnir spiluðu á móti okk-
ur, er ekki annað að sjá en að þetta
verði erfítt. Við vonuðumst því bara
eftir heimaleik og það er frábært að
mörgu í bæjarfélaginu, en það eru
ekki margar samkomur sem draga
að jafnmarga áhorfendur hér í Eyj-
um og knattspyrnan. Stundum er
ríflega fjórðungur bæjarbúa kominn
saman hér á leikjum."
Jóhannes segir að teikningar að
stórri stúku liggi nú þegar fyrir.
„IBV lét teikna fyrir sig stóra og
glæsilega þúsund manna stúku og
þær teikningar liggja fyrir og við
viljum gjarnan færa bæjarfélaginu
þær að gjöf. Það þýðir ekkert annað
en að hugsa fram í tímann í þessum
efnum, vissulega mætti kannski
byggja minni stúku en staðreyndin
er sú að við hyggjumst leika heima-
leiki okkar í Evrópukeppninni hér í
Eyjum í framtíðinni og þá verðum
við að geta boðið upp á aðstöðu fyrir
áhorfendur," bendir hann á.
Bygging gæti hafist
í haust
Bygging slíkrar stúku gæti hafist í
haust, að sögn Jóhannesar, og bygg-
ingartími hennar ætti að vera stutt-
ur, þetta tveir til þrír mánuðir. „Við
þurfum strax að hefjast handa, því
KSI hefur sett okkur ströng tíma-
það hafi gengið eftir,“ sagði Atli.
Hann vitnar í viðureign liðanna í
Frostaskjóli, heimavelli KR, í
fimmtu umferð Islandsmótsins, en
þá töldu KR-ingar sig heppna að
hafa sloppið með markalaust jafn-
tefli. Eftir þann leik sagði þjálfarinn:
„Blikar era með gott lið, það er skip-
að stórum og sterkum mönnum sem
berjast af einurð og dugnaði allan
tímann. Slíkt skilar árangri. Að mínu
mati eru Blikar með gott lið sem er á
meðal þeirra þriggja til fjögurra
bestu í deildinni.“
Heimaleikurinn
mikilvægastur
Eyjamenn hafa eflaust óskað sér
einhvers annars og betra en að fara
til Akraness og leika þar við IA, lið
sem hefur átt erfitt uppdráttar í
deildarkeppninni en vann stórsigur,
mörk í þessum efnum. Þess vegna er
þetta ekki spurning um hvort heldur
hvenær hefjast beri handa og að
mínu mati er best að þyrja í haust.
Knattspyrnan hefur skapað Eyjum
jákvæða ímynd á undanförnum áram
og við viljum halda áfram á sömu
braut, ekki síst þegar árar illa hjá
ýmsum fyrirtækjum í bænum eins
og verið hefur að undanförnu. Þá er
gott að geta bent á gott gengi í
knattspyrnunni.“
Lágmarksaðstaða fyrir áhorfend-
ur, samkvæmt stöðlum KSÍ fyrir
efstu deild, tekur til skipulagðra
áhorfendastæða, bekkja eða aðskil-
inna sæta fyrir 500 manns hið
minnsta. Það er því ljóst að Eyja-
menn hyggjast bæta um betur í
þessum efnum, enda hefur aðsókn á
heimaleiki þeirra oft verið nærri
þúsundinu á undanförnum árum.
í Eyjum hafa sumir haft á orði að
þeir vilji fremur standa áfram á sín-
um stað á hólunum eða brekkunni við
völlinn fremur en að taka sæti í nýrri
stúku. Jóhannes segist hafa heyrt
þetta, en hefur ekki áhyggjur af því.
„Sumir segja að það verði erfítt fyrir
okkur að færa menn af sínum hól eða
sinni þúfu, en ég held að það verði
ekki til neinna vandræða því hvað er
betra en að eiga sitt sæti í stúkunni,
sæti sem menn ganga að í hverjum
leik og geta kallað sitt eigið? í
stúkunni eiga menn skjól fyrir veðri
og vindum og fylgjast með knatt-
spyrnunni í viðeigandi umgjörð.
Þannig viljum við Eyjamenn hafa
þetta,“ segir Jóhannes Olafsson.
5:0, á Víkingum á Laugardalsvelli í
átta liða úrslitum. Skagamenn virð-
ast því vera að rétta úr kútnum. Logi
Ólafsson, þjálfari ÍA, lagði áherslu á
mikilvægi þess að leika á heimavelli.
„Við fengum heimaleik. Það er alltaf
mikilvægast þegar á þetta stig er
komið í bikarkeppninni,“ sagði Logi.
„Það er nú ekki vænlegt til árangurs
að óska sér einhverra sérstakra
mótherja, heldur aðeins að fá heima-
leikinn. Við vorum alltént heppnfr
hvað það varðar, því það er mjög
slæmt að þurfa að fara til Vest-
mannaeyja, út á KR-völl eða í Kópa-
voginn. Okkur þykir því kostur að fá
að leika á heimavelli, sem við höfum
ekki fengið fyrr í þessari keppni.“
Um titilhafa IBV sagði hann:
„Það þarf nú ekki að fletta mörgum
blöðum um það að þar fer mjög gott
lið og það hefur sýnt síðustu þrjú
eða fjögur árin að liðið er mjög
sterkt. Þetta era handhafar bikars-
ins og þeir hafa leikið ágætlega í
sumar og þetta verður náttúralega
feikilega erfiður leikur fyrir okkur.“
■ NEWCASTLE er tilbúið að greiða
Ipswich Town um 700 milljónir
króna fyrir Kieron Dyer. Leikmað-
urinn, sem er 20 ára, hefur verið
fastamaður í 21. landsliði Englend-
inga og tók nýverið sæti í landsliðs-
hóp Kevins Keegans. Nokkur lið '
vora á höttunum eftir leikmanninum,
svo sem West Ham og Leeds, en nær
öraggt er að hann gangi til liðs við
Newcastle.
■ EVERTON hefur keypt Kevin
Campell frá Trabzonspor í Tyrk-
landi fyrir um 350 milljónir króna.
Leikmaðurinn var í láni hjá Everton
undir lok síðustu leiktíðar og átt
stóran þátt í að bjarga liðinu frá falli.
■ SAMNINGUR fyrirtækjasam-
steypunnar Granada við Liverpool
gerir Gerard Houllier, knattspyrnu-
stjóra félagsins, kleift að kaupa leik-
menn fyrir um 2,3 milljarða króna.
Granada keypti 9,9% hlut í félaginu.
Houllier gerir sér vonir um að geta
keypt Dietmar Hamann frá
Newcastle, Marc-Vivien Foe frá
West Ham og Markus Babbel frá
Bayern Miinchen. Samanlagt kaup-
verð leikmannanna er um 1,7 millj-
arðar króna.
■ CRAIG Brown landsliðsþjálfari
Skota hefur hlotið stuðning knatt-
spyrnusambandsins þar í landi en
staða hans þótti óöragg í kjölfar þess
að dagblað birti frétt þess efnis að
þjálfarinn hefði sungið and-kaþólsk-
an söng á símsvara vinkonu sinnar.
Lagið er vinsælt meðal margra
stuðningsmanna Glasgow Rangers
en kaþólskum andstæðingum þeirra
í Glasgow Celtic þykir það móðgandi
í meira lagi.
■ STEVE Bull, leikmaður enska
liðsins Wolves til margra ára, hefur
ákveðið að leggja skóna á hilluna
vegna meiðsla i hné. Leikmaðurinn,
sem er 34 ára, hefur verið einn helsti
markaskorari liðsins og gríðarlega
vinsæll meðal stuðningsmanna þess.
Hann gerði 306 mörk í 561 leik fyrir
liðið. Hann lék 13 landsleiki fyi'ir
hönd Englands og skoraði fjögur
mörk.
■ ENSKA úrvalsdeildarliðinu Sout-
hampton gengur erfiðlega að fá æf-
ingaleiki við norsk lið í sumar. Þrjú
lið: Asane, Brann og Ny-Krohnborg,
hafa heitað beiðni liðsins. Eitt norskt
lið, Fana, hefur samþykkt að leika-
við enska liðið.
■ ENSKI knattspyrnumaðurinn Da-
vid Beckham fékk fá tækifæri til
þess að njóta lífsins með eiginkonu
sinni Victoriu Adams. Leikmaðurinn
hugðist halda í brúðkaupsferð fyrir
skömmu en hætti við því hann varð
að hefja æfingar með félagi sínu,
Manchester United. ^
Morgunblaðið/Sigfús G. Guðmundsson
HÁSTEINSVÖLLUR í Vestmannaeyjum. Grasið á vellinum er eitt hið besta á landinu en aðstöðu fyrir
áhorfendur vantar alveg.
Jóhannes Ólafsson, formaður ÍBV, um Hásteinsvöllinn í Eyjum
„Verðum að geta
boðið upp á aðstöðu
fýrir áhorfendur“
ÞRÍR heimavellir liða í efstu deild karla í knattspyrnu uppfylla
ekki lágmarkskröfur Knattspyrnusambands Evrópu (UEFA) um
aðstöðu fyrir áhorfendur og hafa forráðamenn liðanna haft frest
frá Knattspyrnusambandi íslands til að leggja fram fram-
kvæmdaáætlun vegna byggingar skipulagðrar áhorfendaaðstöðu,
eða sæta heimaleikjabanni eila. Jóhannes Ólafsson, formaður
ÍBV, sem er eitt félaganna þriggja, segist hafa fullan skilning á
kröfum KSÍ og að bæjaryfirvöld í Eyjum séu loks að vakna til vit-
undar um alvöru málsins.