Morgunblaðið - 25.07.1999, Qupperneq 4
FYRSTI HLUT
ÓGNVALDURI
I :
N N
endur fyrir löngu
í fjarlægri vetrarbraut.
Itexll'Stelí n Unnar Sigurjónsson)
Bað hefur væntanlega
ekki farið fram hjá
um að ný Stjörnustríðs-
mynd er á leiðinni til landsins,
hjá mörgum er þetta einn
merkasti atburður ársins, því
Stjörnustríðsmyndirnar og
leikföngin voru stór hluti æsku
okkar margra, einnig er ennþá
ferskt í minni þegar gömlu
myndirnar voru endurbættar og
gefnar út aftur í tilefni tuttugu
ára afmæli þeirrar fyrstu.
Þegar þessar endurútgáfur
tröllriðu heiminum varð öllum
Ijóst að bakterían lifir góðu lífi
í gömlu kempunum og eflaust
hafa nokkrir nýjir aðdáendur
bæst í hópinn. Það varð öllum
Ijóst að heimurinn vildi meira,
hluti af heiminum hefur þegar
fengið meira, en nú er loks
komið að okkur því Stjörnu-
stríð, fyrsti hluti: Ógnvaldurinn
(The Phantom Menace), er
kominn til landsins og verður
frumsýnd þann 14. ágúst
næstkomandi. Hér á eftir fer
samantekt á aðdragandanum
að gerð myndarinar í bland við
nokkrar fróðleiksmolar.
Endur fyrir löngu í þessari vetrarbraut
kom út kvikmynd sem hófst á orðunum
"... a long time ago in a galaxy far, far
away....". Þessi mynd fjallaði um ungan pilt
sem dreymdi um ævintýr og fjarlæga heima.
Prinsessu sem leiddi andspyrnuhreyfingu í
uppreisn gegn hinu illa keisaraveldi og
síðast en ekki síst sjarmerandi smyglara
sem átti hraðskreiðasta geimskip stjörnu-
kerfisins. Þessi þrjú voru aðalhetjur
myndarinnar Star Wars: A New Hope, sem
upphaflega átti að vera ósköp venjuleg
geimmynd en þróaðist út í eitt stærsta og
öflugasta fyribæri kvikmyndasögunnar.
Árið 1970 sat ungur maður að nafni
George Lucas í Kvikmyndaháskóla í Suður-
Kaliforníu og lét sig dreyma um geislasverð
og fjarlægar vetrarbrautir. Fimm árum síðar
á því herrans ári 1975 skrifaði hann handrit
sem hann nefndi Star Wars: A New Flope.
Tveimur árum síðar var myndin frumsýnd
um allan heim, og hófst þá æðið. Sex
fyrirtæki urðu til ( kringum og eftir gerð
myndarinnar: Industrial Light and Magic,
Skywalker Sound og THX, einnig varð til
tölvuleikjarisinn Lucas Arts Entertainment
ásamt Lucas Learning og Lucas Listening.
Þess má til gamans geta að Lucas og
Twentieth Century Fox fyrirtækið sem
framleiddi myndina sömdu um að lækka
leikstjóraþóknunina um $ 500.000 gegn því
að Lucas fengi einkaleyfi á öllu Star Wars
batteríinu. Sennilegt er að sá sem tók þá
ákvörðun hafi grátið sig í svefn þegar
velgengni myndarinnar varð öllum Ijós.
Fyrstu þrjár Stjörnustríðsmyndirnar hafa
halað inn litla 1,79 milljarða dollara, sem
gerir þær að næst tekjuhæstu kvikmynda-
seríu heims á eftir James Bond myndunum,
en hafa ber i huga að Bond myndirnar eru
18 talsins á móti aðeins þremur Stjörnu-
stríðsmyndum. Þessar tölur miðast
eingöngu við fyrstu þrjár myndirnar og þorir
undirritaður að leggja líf sitt að veði að eftir
næstu þrjár myndir, þá vermi Stjörnustríðs-
myndirnar toppsætið.
George Lucas leikstýrði aðeins fyrstu
myndinni. Eftir það tók hann sér frí frá leik-
stjórastólnum, snéri sér að uppeldi þriggja
ættleiddra barna sinna og rekstri fyrirtækja
sinna. Hann hafði þó sagt að hann ætti fleiri
Stjörnustríðsmyndir í kollinum en hann vildi
bíða þartil tæknin yrði nægilega fullkominn
til þess að hann gæti gert þær nákvæmlega
eins og hann vildi. Eftir að fyrirtæki hans
ILM gerði risaeðlurnar ( Jurassic Park fyrir
Steven Spielberg sá hann að nú væri hans
tími loks kominn.
Fyrsta Nóvember árið 1994 keyrði George
Lucas börnin sín þrjú (skólann, fór svo heim
til sín. Þar settist goðsögnin niður, tók sér
blýant í hönd og fór að skrifa handritið að
fyrsta hluta nýju Stjörnustriðs seriunnar,
Stjörnustrið, fyrsti hluti: Ógnvaldurinn.
Þetta var atburður sem undirritaður, ásamt
milljónum aðdáenda, hafði beðið í tæp
sextán ár eða allt frá því að Return Of
The Jedi var frumsýnd árið 1983. Hann
tók sér tvö ár til þess að fullvinna handritið,
var að vísu með helstu atriði sögunnar
á hreinu, hverjir komu hvaðan og allar
aðalpersónurnar voru fyrirfram ákveðnar,
en engu að síður þurfti hann að færa
aðdáendum sínum eithvað nýtt í bland
við það gamla, ný tæki, ný vopn, nýjar
geimverur o.s.frv. Það þótti mörgum skrýtið
að hann kysi að fara aftur í tfmann í stað
þess að halda áfram þar sem frá var horfið,
en þegar betur er að gáð þá var alltaf verið
að vísa í fortíðina í hinum myndunum og
þykir ekki síður spennandi að fá að sjá
hvernig allt ævintýrið byrjaði.
í Ógnvaldurinn fáum við að fylgjast með
Obi-Wan Kenobi (Ewan McGreogor) sem
ungum manni og Jedi lærisvein undir
leiðsögn Jedi meistarans Qui-Gon Jinn
(Liam Neeson). Þarna eru atburðirnir, sem
við þekkjum svo vel úr hinum myndunum,
að byrja. Keisarinn er að leggja drög að
yfirráðum sínum yfir Vetrarbrautinni.
Heilmikil svik og launráð hrinda af stað
stórfenglegri atburðarrás sem á eflaust eftir
að enda sem tímalaust meistarastykki þegar
að sagan er öll sögð. Mér finnst ekki
viðeigandi að fara út í söguþráð myndar-
innar í þessum texta því þarna er á ferðinni
strangheilagur hlutur sem allir þurfa að
upplifa sjálfir.
Það voru rúmlega tvöþúsund manns
sem störfuðu við gerð myndarinnar og er
þar að miklum hluta sama fólkið sem
starfaði við þær gömlu. ( myndinni sjáum
við nokkur kunnuleg andlit eins og Yoda,
RD-D2, C-3PO og Jabba The Hutt, einnig
fáum við að kynnast betur erkifjendum Jedi
riddaranna en þeir kallast Sith og er
Keisarinn leiðtogi þeirra.
George Lucas gerði þessa mynd algjörlega
á eigin spýtur og notaði til þess fé úr eigin
vasa, en myndin kostaði 115 milljónir
dollara. Þó hann hefði gert ráð fyrir 120
milljónum tókst honum að spara sér 5
milljónir, enda má búast við því að hann hafi
fengið einhverja afslætti hjá fyrirtækjunum
sínum, en það voru að sjálfsögðu töfra-
mennirnir hjá Industrial Light and Magic
sem sáu um brelluhliðina. Það var talsvert
meira en lítið mál að breyta sýn Lucas (
raunverulegar myndir og persónur og er
alveg ótrúlegt hversu vel var hugsað út í öll
smáatriði, enda má ekkert klikka þegar slík
mynd er í vinnslu.
Megi mátturinnn fylgja ykkur og til
hamingju með nýju Star Wars myndina.
- Der Konig -